Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 8
Maður veit ekkert
hvað hún gæti borið
með sér, eða hvaða áhrif hún
hefur.
Guðni Guðbergsson
Við erum á leið í
óvissuferð fyrir
verulega háar upphæðir
Gunnar Gíslason,
oddviti Sjálf-
stæðisflokksins
Félögin voru dæmd til
að greiða um 6 milljónir auk
1,6 í málskostnað.
AKUREYRI Bæjarráð Akureyrar sam-
þykkti í síðustu viku að tvær álmur
Lundarskóla yrðu endurnýjaðar. Í
skýrslu umhverfis- og mannvirkja-
sviðs voru þrír möguleikar teknir
til greina. Var fyrsti kosturinn val-
inn vegna þess að hann myndi taka
skemmstan tíma, væri hagkvæm-
astur, en myndi jafnframt uppfylla
þarfir nútíma skólastarfs.
Elsti hluti skólans er nærri hálfr-
ar aldar gamall og við loftgæða-
mælingar fannst mygla í honum.
Starfsfólk skólans hefur lengi
kvartað undan heilsufarslegum
óþægindum, lasleika og ólykt. Sam-
kvæmt skýrslu Mannvits var talið
nauðsynlegt að grípa til ráðstafana
í tveimur álmum, en að hægt væri
að koma burðarvirkinu í gott lag og
lengja líftíma byggingarinnar.
Fu llt r úar Sjálfst æðismanna
greiddu gegn tillögunni og vildu
frekar rífa bygginguna og reisa
nýjan skóla með áföstum leikskóla.
Um gríðarlega stórt og mikið verk-
efni er að ræða, sem hleypur á millj-
örðum hvaða leið sem valin er. Telja
þeir ekki hyggilegt að velja leið þar
sem kostnaður sé, að þeirra sögn,
80 prósent af byggingu nýs skóla.
Einnig að skólinn sé að hluta til í
kjallara, sem stríðir gegn núverandi
reglugerðum.
„Við erum á leið í óvissuferð fyrir
verulega háar upphæðir,“ segir
Gunnar Gíslason, oddviti Sjálf-
stæðismanna. „Mér finnst vera
skammsýni í þessum aðgerðum
því að steypan er orðin mjög gömul
í húsinu og ný bygging myndi duga
mun lengur.“
Í skýrslu umhverfis- og mann-
virkjasviðs eru endurbæturnar
metnar á allt að 3 milljarða,
nýbygging að hluta myndi kosta
allt að 4 milljarða og nýtt húsnæði
frá grunni 4,5. Þá á eftir að reikna
inn kostnað við bráðabirgðaað-
gerðir, til að halda skólastarf i
gangandi á framkvæmdatíma, sem
hleypur á hundruðum milljóna
króna.
Guðmundur Baldvin Guðmunds-
son, formaður bæjarráðs, segir
valið byggt á faglegum forsendum,
eftir að hafa farið í gegnum frí-
stunda-, skóla- og fræðsluyfir-
völd. „Þetta var talið best, meðal
annars með sem minnstu raski á
skólastarfi í huga, því þarna eru
500 nemendur,“ segir hann. Hefur
hann ekki áhyggjur af því að lag-
færingarnar dugi aðeins til skamms
tíma, eða að verðið standist ekki.
„Við erum að gera svipaðar fram-
kvæmdir í Glerárskóla, og reiknum
með því að þetta verði eins og nýtt.“
Gunnar segist gera alvarlegar
athugasemdir við hvernig kost-
unum sé stillt upp og að nýbygg-
ingarkostirnir séu ekki greindir til
fullnustu og efast um þá verðmiða
sem settir eru á þá. „Ég fæ ekki
betur séð en að hægt sé að finna
hagkvæmni og samlegð í að byggja
eina byggingu fyrir grunn- og leik-
skóla,“ segir hann. Þá hefur hann
einnig áhyggjur af því að kostnað-
urinn við þá leið sem að óbreyttu
verður farin, fari úr böndunum.
„Við þekkjum af reynslunni, til
dæmis í Listasafninu, að áætlanir
um endurbyggingu gamalla húsa
standast ekki.“
kristinnhaukur@frettabladid.is
Ekki allir sammála
um endurbyggingu
Eftir að mygla kom upp í Lundarskóla, stendur til að fara í um þriggja millj-
arða króna endurbætur. Formaður bæjarráðs segir ákvörðunina faglega og
skólinn verði eins og nýr. Minnihlutinn vill rífa skólann og byggja nýjan.
Mygla fannst í Lundarskóla eftir að starfsfólk hafði kvartað yfir óþægind-
um. Elsti hluti skólans eru um hálfrar aldrar gamall. MYND/LUNDARSKÓLI
Sumar
útsala
Frábær útsala
í fjórum búðum
verslaðu á dorma.is eða í DORMA
verslun og við sendum þér vörurnar frítt
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Frábær útsala
í fjórum búðum
verslaðu á dorma.is eða í
DORMA
verslun og við sendum þé
r vörurnar frítt
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGN
UM ÚTSÖLUBÆKLINGIN
N OKKAR
Dýna og hjól 2-3 | Mjúkva
ra og dúnn 4–11 | RÚM 12–2
1 | Svefnsófar 22–23 | Sófa
r 24–34 | Stólar 35–39 | Bo
rð og smávara 40–55
Hv
er
ni
g
frí
se
nd
in
g h
já
D
OR
M
A
vi
rk
ar
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
SENDUM
FRÍTT
Sumar
útsala
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
Þú kaupir Oakley eða
Everly heilsudýnu eða
heilsurúm sem afhent
er í boxi á hjólum og
færð innifalið glæsilegt
Aspen fjallahjól*
RENNDU ÞÉR INN Í SUM
ARIÐ!
* á meðan birgðir endast
Sjá nánar bls. 2–3
DÝ
N
A
Góður svefn
Hjólreiðatúr
Þú finnur
nýjan
útsölu-
bækling
á dorma.is
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
SENDUM
FRÍTT
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR DÓMSMÁL Félögin ACE FBO og Global Fuel voru fyrir skemmstu dæmd til þess að greiða þrotabúi
ACE Handling, fyrrverandi systur-
félagi, samanlagt rúmlega 6 millj-
ónir króna, í tveimur samhangandi
riftunarmálum. Eru félögin tvö, sem
eru í eigu Hilmars Ágústs Hilmars-
sonar, auk þess dæmd til að greiða
málskostnað, samanlagt 1,6 milljón
króna.
Félögin komust fyrst í deiglu
fjölmiðla sumarið 2018, þegar DV
greindi frá því að Sigurður Ingi
Þórðarson, títtnefndur Siggi hakk-
ari, færi fyrir ACE Handling. Hefði
hann þar með aðgang að hafta-
svæðum f lugvalla, þrátt fyrir að
hafa dóma fyrir kynferðisbrot og
fjársvik á bakinu. Á þessum tíma
hafði ACE Handling þegar óskað
eftir gjaldþrotaskiptum.
Málið gegn ACE FBO snerist um
afsal á stigalyftu fyrir f lugvélar,
sem seld hafði verið eftir frestsdag
án greiðslu. En fyrir dómi vitnaði
Alma Guðmundsdóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri, um að hafa séð
ACE FBO reyna að selja lyftuna og
16 önnur tæki, til hins nýstofnaða
flugfélags Play.
Taldi Arnar Þór Jónsson dómari
félagið ekki hafa sýnt fram á að
verðmæti lyftunnar væri minna en
um 5 milljóna króna krafan sagði
til um og ekki var fallist á að félagið
fengi að skila henni.
Málið gegn Global Fuel snerist
um greiðslur til tryggingamiðl-
unar í Svíþjóð sem ekki voru gjald-
fallnar við greiðslu og taldi dómari
fjárhæðina umfram hlutdeild ACE
Handling í heildartryggingapakka
systurfélaganna, eða um eina millj-
ón. „Verður því ekki litið svo á að
greiðslan geti talist venjuleg eftir
atvikum,“ segir í dómnum. – khg
Félögin dæmd til sex milljóna greiðslu
Skiptastjóri þrotabús ACE Handling. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
NÁT TÚR A Guðni Guð bergs son,
sér fræðingur hjá Haf rann sókna-
stofnun, segir að gullfiskar geti vel
þrifist í Elliðaánum. Það væri hins
vegar ó æski legt ef slíkir fiskar gerðu
sig heim akomna þar, enda ekki
falast eftir frekari fjöl breytni í ám
landsins.
Veiði maður kom auga á japansk-
an Koi-gull fisk í ánni á mánudaginn
og sagði ber sýni legt að laxarnir
í ánni lúffuðu, þegar þessi gullni
bróðir þeirra kom að vífandi að
legu stað þeirra.
Guðni segir ekki víst hvaða áhrif
gullfiskurinn hefur á lífríkið. „Það
yrðu breytingar á líf fræði legri fjöl-
breytni á Ís landi ef framandi tegund
eins og þessi færi að fjölga sér og
maður veit ekkert hvað hún gæti
borið með sér, eða hvaða á hrif hún
hefur,“ segir Guðni. – kdí
Gullfiskar óæskilegir
1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð