Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 16
Það var fyrst og
fremst yndislegt að
komast í keppnisham og
hitta alla andstæðinga mína
loksins á móti.
Heilsan verður
ávallt sett í fyrsta
sæti við ákvarðanir okkar
um mótahald.
K R A F T LY F T I N G A R Jú l ía n J . K .
Jóhannsson bætti um síðustu
helgi eigið heims met í réttstöðu
lyftu þegar hann varð Íslands
meistari í +120 kg flokki í greininni.
Júlí an lyfti 409 kíló um og bætti því
metið um þrjú og hálft kíló.
Þar sem lyftan var ekki fram
kvæmd á alþjóðlegu móti verður
heimsmetið ekki gert opinbert en
Júlían á hins vegar opinbera metið
í réttstöðulyftu. Það met setti Júlí
an á heims meist ara mót inu í kraft
lyft ing um sem fram fór í Dúbaí í
nóv em ber 2019 með því að lyfta
405,5 kíló um.
„Það var fyrst og framst alveg
yndislegt að komast í keppnisham
og hitta alla andstæðinga mína
loksins á móti. Á keppnisstaðn
um myndaðist frábær stemming
þegar mótið fór fram og það var
ljóst að það var mikil spenna hjá
kraftlyftingafólki að keppa á nýjan
leik eftir erfiða mánuði. Mér þótti
svo vænt um að setja þetta met með
konuna mína, barnið og nána vini
í salnum.
Það má segja að það hafi verið lán
í óláni að mótahald hafi fallið niður
á þeim tíma þegar ég var nýbakaður
faðir. Það gerði það að verkum að ég
gat varið meiri tíma með nýfæddum
syni mínum en ella hefði verið
mögulegt vegna ferðalaga vegna
mótanna,“ segir Júlían.
„Ég kem bara vel út úr pásunni
sem gerð var vegna kórónaveirunn
ar. Það er hins vegar mjög skrýtið
fyrir mig að æfa án þess að hafa
neinn fastan punkt fyrir framan
mig. Í venjulegu árferði er æfinga
álagið þrepaskipt þar sem mark
miðið er að toppa í þyngdum á ein
hverjum tímapunkti,“ segir hann
um síðustu mánuði hjá sér.
„Þar sem engin mót hafa farið
fram á árinu hef ég aftur á móti
breytt upplegginu á æfingum hjá
mér. Ég stytti æfingarnar og fjölgaði
þeim þess í stað. Það gerði ég aðal
lega þar sem það var erfitt að gíra sig
upp í langar æfingar einn í æfinga
salnum,“ segir íþróttamaður ársins.
„Þegar mót eru fram undan er
æf ingaplanið vanalega þannig
að fyrst um sinn lyfti ég létt með
mörgum endurtekningum og færi
mig svo yfir í meiri þyngd í færri
skipti þegar nær dregur móti. Það
má í raun segja að ég hafi verið
staddur í löngum millikafla síðustu
vikurnar,“ segir Júlían.
„Næsta verkefni hjá mér er
Íslandsmeistaramótshelgi sem fram
fer í september næstkomandi og þar
á eftir er svo heimsmeistaramótið
á dagskrá í nóvember. Það er góð
tilfinning að vera kominn með fast
land undir fætur og geta skipulagt
æfingar miðað við það að hámarka
árangurinn í haust,“ segir þessi
metnaðarfulli kraftlyftingamaður.
„Ég mun breyta uppkeyrslunni
á næstu vikum yfir í hefðbundið
æfingaform fyrir mót. Það var gott
að sjá hvar ég stend um síðustu helgi
og gaman að sjá í hversu góðu formi
ég er líkamlega eftir erfiða mánuði
andlega.
Með betri uppkeyrslu í æfingum
hjá mér tel ég góðar líkur á að ég
gæti bætt mig enn frekar næsta
haust. Mér finnst ég eiga nóg inni og
stefni á að bæta heimsmetið aftur í
komandi mótum,“ segir þessi öf l
ugi íþróttamaður um framhaldið.
hjorvaro@frettabladid.is
Rúm fyrir bætingu á metinu
Það var langþráð stund hjá kraftlyftingamanninum Júlían J.K. Jóhannssyni þegar hann keppti á fyrsta
móti ársins um síðustu helgi. Pásan hefur ekki haft slæm áhrif á Júlían sem bætti heimsmet á mótinu.
Júlían J.K. Jóhannsson minnti rækilega á sig á Íslandsmótinu í réttstöðulyftu en hann lyfti þar 409 kílóum og bætti heimsmetið í greininni. MYND/AÐSEND
E N S K I B O LTI N N For ráðamenn
ensku úrvalsdeildarinnar í knatt
spyrnu karla hafa boðið enska
knattspyrnusambandinu styrk,
sem jafngildir um 170 milljónum
íslenskra króna, sem á að renna í
rekstur ensku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu kvenna.
Peningana á að nota til þess að
skima leikmenn deildarinnar fyrir
COVID19, áður en næsta keppnis
tímabil hefst, en síðustu leiktíð var
hætt í kvennadeildinni vegna kór
ónaveirufaraldursins. Voru María
Þórisdóttir og samherjar hennar hjá
Chelsea krýndar enskir meistarar.
Það er enska knattspyrnusam
bandið sem rekur kvennadeildina
eins og sakir standa, en forsvars
menn karladeildarinnar hafa áhuga
á að taka yfir þann rekstur í fram
tíðinni. – hó
Styrkja skimun
á leikmönnum í
kvenndeildinni
FÓTBOLTI Afríkukeppninni í knatt
spyrnu karla, sem átti að halda í
Kamerún í janúar á næsta ári, hefur
verið frestað til ársins 2022 vegna
kórónaveirufaraldursins.
Þetta kom fram fram í tilkynn
ingu sem knattspyrnusamband
Afríku sendi frá sér í gær. Þar kom
enn fremur fram að Afríkukeppni
kvenna hafi verið aflýst.
„Heilsan verður ávallt sett í fyrsta
sæti við ákvarðanir okkar um móta
hald,“ segir Ahmad Ahmad, forseti
knattspyrnusambands Afríku, um
ákvörðunina.
Keppnin karlamegin mun fara
fram í janúar árið 2022, en í nóvem
ber og desember seinna á því ári,
verður heimsmeistaramót haldið í
Katar.
Lið í Evrópu munu því halda afr
ísku leikmönnunum í sínum her
búðum í janúar á næsta ári,
en Mohamed Salah, Sadio Mané,
Joël Matip og Naby Keita, geta til
að mynda leikið með Liverpool í
janúar á næsta ári. – hó
Ákveðið að
fresta mótinu
til ársins 2022
María Þórisdóttir varð síðastliðið
vor enskur meistari með Chelsea.
Sadio Mané og Mohamed Salah
geta spilað með Liverpool í janúar.
SUND Sundkonan Eygló Ósk Gúst
afsdóttir tilkynnti í tilfinninga
þrunginni færslu á facebooksíðu
sinni í dag, að hún væri hætt keppni.
Eygló Ósk var valin íþróttamaður
ársins árið 2015 en hún keppti á
tvennum Ólympíuleikum á glæst
um ferli sínum.
Eygló Ósk, sem er aðeins 25 ára
gömul, hefur glímt við meiðsli í baki
undanfarin ár. Árið 2015 varð hún
fyrsta íslenska sundkonan til þess
að vinna til verðlauna á stórmóti
þegar hún hreppti tvenn brons
verðlaun á Evrópumótinu í 25 metra
laug.
Þá keppti hún sama ár til úrslita
á heimsmeistaramótinu í 50 metra
laug. Eygló Ósk keppti svo á Ólymp
íuleikum í Ríó árið 2016 og í London
árið 2012. Á Ólympíuleikunum í Ríó
synti hún til úrslita í 200 metra bak
sundi. Hún á fjölda Íslandsmeta og
nokkur Norðurlandamet.
„Tilfinningarnar hellast yfir mig,
þegar ég hugsa til þess að ég muni
ekki fara aftur á HM eða Ólympíu
leika. Ég er á sama tíma mjög ánægð
með að hafa gefið allt sem ég gat í
þessa íþrótt og fengið að upplifa allt
það sem ég fékk að upplifa,“ segir
Eygló Ósk meðal annars í facebook
færslunni þar sem hún fer yfir þessa
stóru ákvörðun sína. – hó
Eygló Ósk setur sundhettuna á hilluna 25 ára gömul
Eygló Ósk Gústafsdóttir hefur ákveðið að láta gott heita. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT