Fréttablaðið - 01.07.2020, Side 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Hanna Þóra Helgadóttir, viðskiptafræðingur og matarbloggari, breytti lífs-
stíl sínum fyrir tveimur árum eftir
að hún fékk áfall við að sjá mynd
sem hafði verið tekin af henni og
póstað á Facebook. Hún ákvað
að prófa ketó mataræðið og við
það varð algjör umbylting á líðan
hennar og heilsu.
Hvað varð til þess að þú umbyltir
mataræði þínu og valdir að byrja
á ketó?
„Það urðu ákveðin tímamót
í lífi mínu fyrir tveimur árum.
Pabbi hafði tekið mynd af mér í
fjölskylduboði og ég missti and-
litið þegar ég sá hana og hugsaði
með mér: Vá, Hanna, þú ert ekki
á góðum stað. Á þessum tíma leið
mér ekki vel og myndin kristallaði
það. Ég var orðin allt of þung, með
mikinn bjúg, farin að þjást af lið-
verkjum og leið almennt ekki vel.
Það má eiginlega segja að við það
að sjá þessa mynd hafi eitthvað
opnast innra með mér og ég fann
mjög skýrt á þessum tímapunkti
að ég yrði að gera eitthvað í mínum
málum.
Í framhaldinu fór ég að spá í
hvað ég gæti gert, því ég var búin
að prófa ýmislegt áður með mis-
góðum árangri. Ég rakst á umfjöll-
un um ketó og fannst sú leið höfða
strax til mín. Ég byrjaði að lesa allt
sem ég komst í um ketó og þar á
meðal var jákvæð umfjöllun um
áhrif á frjósemi sem mér fannst
afar áhugavert og var einnig stór
þáttur í því að ég valdi að prófa
þessa leið.“
Finnur þú mun á líðan þinni og
heilsu eftir að þú byrjaðir á ketó?
„Já, ég finn gríðarlegan mun.
Í byrjun ákvað ég að gefa þessu
þrjár vikur og sé ekki eftir því.
Ég fann strax mun á mér. Fyrstu
vikuna fóru fjögur kíló af bjúg og
eftir þrjár vikur var orkan komin í
botn. Áður en ég breytti um lífsstíl
þurfti ég að leggja mig yfir daginn.
Þessi þreytuköst eru alveg horfin
núna. Eftir þessar þrjár vikur leið
mér það vel að það varð bara ekki
aftur snúið.
Ég er orkumeiri, sef betur og
vakna úthvíld á morgnana. Ég þarf
ekki lengur að ströggla við halda
mér í kjörþyngd og líður almennt
miklu betur líkamlega sem and-
lega. Það er algjört lykilatriði að
halda mig við þetta mataræði því
ef ég fæ mér auka kolvetni finn ég
strax fyrir vanlíðan. Ég get svarið
það að það er næstum eins og
þynnka, blóðsykurinn fer í rugl og
ég verð mjög þyrst.“
Tekur þú einhver bætiefni?
„Já, og ég held að það sé mjög
mikilvægt. Til dæmis eru góðar
fitusýrur mikilvæg viðbót við
ketógenískt mataræði og því
hreinni sem olían er – þeim mun
betra. Þess vegna tek ég krillolíu
daglega. Mitt uppáhald er krill-
olían frá Natures Aid. Einnig tek
ég B12- og járn-munnspreyin, þar
sem ég hef verið blóðlítil í mörg
ár. Ég passa svo upp á steinefnin
og tek D-vítamín alla daga. Það er
einnig mikilvægt að passa upp á að
fá nóg af trefjum þegar maður er á
ketó svo ég bæti auka trefjum við
mataræðið. Ég nota trefjar mikið
í matargerð og bakstur. Ég á til
dæmis alltaf trefjakex til og finnst
mér það algjör „lifesaver“.“
Hvað finnst þér best við ketó?
„Allur maturinn sem ég borða
er mjög góður, maður er saddur, en
samt nær maður góðum árangri
og líður vel. Ég er mikil sósu-kona
og finnst voða gott að borða og
þar sem það er svo margt leyfilegt
í ketó þá líður mér aldrei eins og
mig skorti eitthvað.“
Hvað er það versta við ketó?
„Að mega ekki borða ávexti.
Það fannst mér erfiðast í byrjun,
en með tímanum verður þetta
auðveldara og maður hættir að
spá í það. Ég leyfi mér jarðarber og
Trefjakexið
er ein uppá-
haldsuppskrift
Hönnu Þóru
það er létt að
grípa í það og
gera að góðri
máltíð.
bláber út á mat og það er dásam-
legt.“
Hvar sérðu þig eftir fimm ár?
„Vonandi að halda mínu striki
í mataræði og halda áfram að láta
mér líða vel. Ég vil stækka mína
miðla og halda áfram að hjálpa
fólki. Það væri draumur að gefa út
bók.“
Áttu einhverja góða uppskrift?
„Já, trefjakexið mitt er uppá-
haldsnestið mitt og gott að eiga
alltaf til. Það er svo létt að grípa í
það og gera að góðri máltíð.“
Ertu með góð ráð fyrir byrj-
endur?
n Best er að kynna sér lífsstílinn
vel og auðvelt er að finna upp-
lýsingar á netinu.
n Gott er að fylgja öllum „reglum“
vel fyrsta mánuðinn því þá á
árangurinn ekki eftir að láta á
sér standa.
n Mikilvægt er að undirbúa hvað
maður ætlar að borða fyrirfram
og vera óhrædd/ur við að prófa
nýjar uppskriftir.
n Fjölbreytni skiptir miklu máli
upp á úthaldið.
n Það er mikilvægt að búa til nýjar
matarminningar og njóta þeirra.
n Svo er bara að hafa gaman að
og muna að lífið er ekki sprett-
hlaup, þetta er langhlaup.
Inulin-trefjakex
1 egg
2 msk. inulin-trefjar
2 dl hörfræ
½ dl möndlumjöl
Himalaya-salt (magn eftir smekk
– Hanna Þóra sparar ekki saltið)
Öllu blandað saman í skál og smurt
í þunnu lagi á bökunarpappír.
Bakið í 12-15 mínútur á 180
gráðum á blæstri þar til stökkt.
Slökkvið á ofninum og leyfið
því að þorna í ofninum í nokkrar
mínútur.
Ketó-pakkinn
Fjarðarkaup og Nettó bjóða upp á
ketó pakka í samvinnu við Hönnu
Þóru, en pakkinn inniheldur
krillolíu og eru ketó-þvagstrimlar
í kaupbæti, en strimlarnir sýna
hvort þú sért komin/n í ketósu eða
fitubrennslu. Í pakkanum fylgja
einnig upplýsingar um ketó-
genískt mataræði ásamt ráðum og
uppskrift frá Hönnu Þóru. Hægt
er að fylgjast með Hönnu Þóru á
Instagram – hannathora88.
Ketógenískt mataræði (KETÓ) er
lágkolvetna- og fituríkt mataræði.
Það felur í sér að draga úr kolvetna-
neyslu og skipta þeim út fyrir fitu.
Með því að lækka kolvetnaneyslu
setur maður líkamann í annað
efnaskiptaástand sem kallast
ketósa, þar sem fita er notuð sem
aðaleldsneyti líkamans.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R