Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 18
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jóhanna Helga Viðarsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Hanna Þóra Helgadóttir, viðskiptafræðingur og matarbloggari, breytti lífs- stíl sínum fyrir tveimur árum eftir að hún fékk áfall við að sjá mynd sem hafði verið tekin af henni og póstað á Facebook. Hún ákvað að prófa ketó mataræðið og við það varð algjör umbylting á líðan hennar og heilsu. Hvað varð til þess að þú umbyltir mataræði þínu og valdir að byrja á ketó? „Það urðu ákveðin tímamót í lífi mínu fyrir tveimur árum. Pabbi hafði tekið mynd af mér í fjölskylduboði og ég missti and- litið þegar ég sá hana og hugsaði með mér: Vá, Hanna, þú ert ekki á góðum stað. Á þessum tíma leið mér ekki vel og myndin kristallaði það. Ég var orðin allt of þung, með mikinn bjúg, farin að þjást af lið- verkjum og leið almennt ekki vel. Það má eiginlega segja að við það að sjá þessa mynd hafi eitthvað opnast innra með mér og ég fann mjög skýrt á þessum tímapunkti að ég yrði að gera eitthvað í mínum málum. Í framhaldinu fór ég að spá í hvað ég gæti gert, því ég var búin að prófa ýmislegt áður með mis- góðum árangri. Ég rakst á umfjöll- un um ketó og fannst sú leið höfða strax til mín. Ég byrjaði að lesa allt sem ég komst í um ketó og þar á meðal var jákvæð umfjöllun um áhrif á frjósemi sem mér fannst afar áhugavert og var einnig stór þáttur í því að ég valdi að prófa þessa leið.“ Finnur þú mun á líðan þinni og heilsu eftir að þú byrjaðir á ketó? „Já, ég finn gríðarlegan mun. Í byrjun ákvað ég að gefa þessu þrjár vikur og sé ekki eftir því. Ég fann strax mun á mér. Fyrstu vikuna fóru fjögur kíló af bjúg og eftir þrjár vikur var orkan komin í botn. Áður en ég breytti um lífsstíl þurfti ég að leggja mig yfir daginn. Þessi þreytuköst eru alveg horfin núna. Eftir þessar þrjár vikur leið mér það vel að það varð bara ekki aftur snúið. Ég er orkumeiri, sef betur og vakna úthvíld á morgnana. Ég þarf ekki lengur að ströggla við halda mér í kjörþyngd og líður almennt miklu betur líkamlega sem and- lega. Það er algjört lykilatriði að halda mig við þetta mataræði því ef ég fæ mér auka kolvetni finn ég strax fyrir vanlíðan. Ég get svarið það að það er næstum eins og þynnka, blóðsykurinn fer í rugl og ég verð mjög þyrst.“ Tekur þú einhver bætiefni? „Já, og ég held að það sé mjög mikilvægt. Til dæmis eru góðar fitusýrur mikilvæg viðbót við ketógenískt mataræði og því hreinni sem olían er – þeim mun betra. Þess vegna tek ég krillolíu daglega. Mitt uppáhald er krill- olían frá Natures Aid. Einnig tek ég B12- og járn-munnspreyin, þar sem ég hef verið blóðlítil í mörg ár. Ég passa svo upp á steinefnin og tek D-vítamín alla daga. Það er einnig mikilvægt að passa upp á að fá nóg af trefjum þegar maður er á ketó svo ég bæti auka trefjum við mataræðið. Ég nota trefjar mikið í matargerð og bakstur. Ég á til dæmis alltaf trefjakex til og finnst mér það algjör „lifesaver“.“ Hvað finnst þér best við ketó? „Allur maturinn sem ég borða er mjög góður, maður er saddur, en samt nær maður góðum árangri og líður vel. Ég er mikil sósu-kona og finnst voða gott að borða og þar sem það er svo margt leyfilegt í ketó þá líður mér aldrei eins og mig skorti eitthvað.“ Hvað er það versta við ketó? „Að mega ekki borða ávexti. Það fannst mér erfiðast í byrjun, en með tímanum verður þetta auðveldara og maður hættir að spá í það. Ég leyfi mér jarðarber og Trefjakexið er ein uppá- haldsuppskrift Hönnu Þóru það er létt að grípa í það og gera að góðri máltíð. bláber út á mat og það er dásam- legt.“ Hvar sérðu þig eftir fimm ár? „Vonandi að halda mínu striki í mataræði og halda áfram að láta mér líða vel. Ég vil stækka mína miðla og halda áfram að hjálpa fólki. Það væri draumur að gefa út bók.“ Áttu einhverja góða uppskrift? „Já, trefjakexið mitt er uppá- haldsnestið mitt og gott að eiga alltaf til. Það er svo létt að grípa í það og gera að góðri máltíð.“ Ertu með góð ráð fyrir byrj- endur? n Best er að kynna sér lífsstílinn vel og auðvelt er að finna upp- lýsingar á netinu. n Gott er að fylgja öllum „reglum“ vel fyrsta mánuðinn því þá á árangurinn ekki eftir að láta á sér standa. n Mikilvægt er að undirbúa hvað maður ætlar að borða fyrirfram og vera óhrædd/ur við að prófa nýjar uppskriftir. n Fjölbreytni skiptir miklu máli upp á úthaldið. n Það er mikilvægt að búa til nýjar matarminningar og njóta þeirra. n Svo er bara að hafa gaman að og muna að lífið er ekki sprett- hlaup, þetta er langhlaup. Inulin-trefjakex 1 egg 2 msk. inulin-trefjar 2 dl hörfræ ½ dl möndlumjöl Himalaya-salt (magn eftir smekk – Hanna Þóra sparar ekki saltið) Öllu blandað saman í skál og smurt í þunnu lagi á bökunarpappír. Bakið í 12-15 mínútur á 180 gráðum á blæstri þar til stökkt. Slökkvið á ofninum og leyfið því að þorna í ofninum í nokkrar mínútur. Ketó-pakkinn Fjarðarkaup og Nettó bjóða upp á ketó pakka í samvinnu við Hönnu Þóru, en pakkinn inniheldur krillolíu og eru ketó-þvagstrimlar í kaupbæti, en strimlarnir sýna hvort þú sért komin/n í ketósu eða fitubrennslu. Í pakkanum fylgja einnig upplýsingar um ketó- genískt mataræði ásamt ráðum og uppskrift frá Hönnu Þóru. Hægt er að fylgjast með Hönnu Þóru á Instagram – hannathora88. Ketógenískt mataræði (KETÓ) er lágkolvetna- og fituríkt mataræði. Það felur í sér að draga úr kolvetna- neyslu og skipta þeim út fyrir fitu. Með því að lækka kolvetnaneyslu setur maður líkamann í annað efnaskiptaástand sem kallast ketósa, þar sem fita er notuð sem aðaleldsneyti líkamans. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.