Fréttablaðið - 01.07.2020, Síða 24

Fréttablaðið - 01.07.2020, Síða 24
Allar líkur eru á því að kísilmálmverk-smiðjan á Bak ka mu n i s t a r f a t i l langrar framtíðar, enda eru langtíma- horfur eftirspurnar málmsins óbreyttar, þrátt fyrir yfirstandandi erfiðleika. Ábyrgðir eru fyrir hendi vegna orkukaupasamnings PCC og Landsvirkjunar, sem tryggja hluta af tekjuf læði Landsvirkjunar þrátt fyrir rekstrarerfiðleika PCC, segir Hörður Arnarson forstjóri Lands- virkjunar. Tilkynnt var í síðustu viku að PCC myndi drepa á kísilmálm- verksmiðju sinni á Bakka. Stórum hluta starfsmanna var í kjölfarið sagt upp. Ekki er ljóst hvort eða hvenær verksmiðjan verður aftur gangsett, en forsvarsmenn fyrir- tækisins hafa sagt að markaðsað- stæður muni ráða því. „Það er mikill munur á þessari verksmiðju og þeirri í Helguvík. Hún er tæknilega fullkomnari og mikill vilji meðal heimamanna til að halda henni í rekstri. Þessi verk- smiðja verður enn á sínum stað og mun að mínu mati starfa áfram í framtíðinni,“ segir Hörður. Talsverður samdráttur eftirspurnar Ásamt rekstrarerfiðleikum PCC er fjöldi annarra þátta sem verka með neikvæðum hætti á rekstur Lands- virkjunar um þessar mundir. Hrun orkuverðs á Nord Pool-raforku- markaðnum í Evrópu, minni eftir- spurn innan íslenska kerfisins og tímabundnir afslættir á orkuverði Landsvirkjunar, munu allir verka til töluverðrar tekjulækkunar fyrirtækisins á þessu ári. „Þegar eftirspurn dregst saman nýtum við tímann til að ráðast í viðhald. Við drögum þá úr af köst- um kostnaðarsömustu eininganna, sem eru jarðvarmavirkjanir. Svo fer orka til spillis ef miðlunarlón verða yfirfull og við þurfum að láta renna framhjá virkjunum,“ segir Hörður. Í uppgjöri Landsvirkjunar fyrir fyrsta fjórðung ársins kom fram að 12 milljörðum króna yrði varið á næstu þremur árum til ýmis konar viðhaldsverkefna. Að sögn Harðar áætlar Lands- virkjun að samdráttur eftirspurnar raforku muni nema að minnsta kosti einni teravattstund á þessu ári, eða á bilinu 6-8% frá síðasta ári. „Tekjusamdráttur Landsvirkj- unar á fyrsta fjórðungi nam um 10% milli ára, en við sögðum þá að annar fjórðungur yrði verri,“ segir hann. Í uppgjöri fyrsta fjórðungs þessa árs kom fram að raforkusala Lands- virkjunar hefði dregist saman um 3.4 prósent samanborðið við sama tímabil í fyrra. Í skýringum með ársreikningi stendur að óvissa sé uppi um áhrif COVID-19 á rekstur fyrirtækisins en þó sé rekstur fyrir- tækisins talinn traustur. Þrátt fyrir að tekjusamdráttur Landsvirkjunar geti orðið tölu- verður á þessu ári er einnig vert að hafa í huga að árið 2019 var hið besta í sögu fyrirtækisins. Hefur áhrif á arðgreiðslu „Mörg orkufyrirtæki í Evrópu eru að horfa upp á fjórðungstekjusam- drátt eða meira á öðrum fjórðungi, en þetta mun allt koma í ljós í upp- gjöri annars fjórðungs. Almennt standa þau fyrirtæki sterkt sem missa fjórðung tekna sinna en skila samt hagnaði. Ég reikna ekki með öðru en að Lands- virkjun skili hagnaði á þessu ári þrátt fyrir allt saman, enda hafa skuldir verið lækkaðar um 150 milljarða króna á síðustu 10 árum,“ Tekjufall gæti orðið töluvert á árinu Samdráttur í eftirspurn raforku á árinu og lægra raforkuverð á meginlandinu mun hafa töluverð áhrif á afkomu Landsvirkjunar. Hörður Arnarson forstjóri segir að brugðist verði við með því að draga úr raforkuframleiðslu. Engar áhættuvarnir eru fyrir hendi á bókum Landsvirkjunar vegna verðbreytinga á Nord Pool. Horfur fyrir kísilmálm slæmar að sögn matsfyrirtækis. Landsvirkjun mun finna fyrir verri afkomu viðskiptavina. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Dregið verður úr rafmagnsframleiðslu til að bregðast við minnkandi eftirspurn stórnotenda. Orka fer forgörðum ef opnað er á yfirföll. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Verðhrun á Nord Pool-markaðnum Milt veður og mikil vætutíð í vetur í Skandinavíu hafði þau áhrif að miðlunarlón, einkum í Noregi, voru barmafull í vor. Afleiðingin var sú að verð á Nord Pool-raforkumarkaðnum hrundi, eftir því sem vormán- uðir nálguðust. Meðalverð ársins 2018 var um 44 evrur á megavattstund og meðalverð 2019 var 39 evrur á megavatt- stund. Í desember síðastliðnum mældist meðalverð 37 evrur. Í janúar stóð meðalverðið í 24 evrum og hefur svo lækkað statt og stöðugt síðan þá, fyrir utan skammvinnan bata í maí. Til að bæta gráu ofan á svart verða kjarnorkuver í Svíþjóð endurræst í júlí, sem mun bæta allnokkru magni af uppsettu afli á norræna raforkumarkaðinn. Fitch Ratings: Horfur slæmar fyrir kísilmálm Tveimur dögum áður en PCC tilkynnti um að slökkt yrði á verksmiðjunni að Bakka, sendi matsfyrirtækið Fitch Ratings frá sér uppfært lánshæfismat fyrir Ferroglobe PLC. Ferro globe er stærsti framleið- andi kísilmálms á Vesturlöndum. Í umfjöllun Fitch kemur fram að verð á kísilmálmblöndum hafi lækkað um 15-20% á árinu 2019. Verð er einnig talið munu lækka á þessu ári og að viðsnúningur verði í fyrsta lagi á næsta ári og að batinn verði „hægur og við- kvæmur.“ Fitch reiknar með að eftir- spurn muni dragast saman á þessu ári, bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu, einkum vegna þess að eftirspurn bílaframleiðenda verði lengi að taka við sér. segir hann og bætir við: „Þetta hefur áhrif á arðgreiðslu til ríkis- sjóðs á þessu ári.“ Forsendubrestur Mikil lækkun á Nord Pool-raf- orkumarkaðnum í Evrópu kemur illa við Landsvirkjun, en nýjasti raforkusamningur fyrirtækisins við Norðurál sem tók gildi í nóv- ember síðastliðnum, tekur mið að því verði. Meðalverð í nóvember síðastliðnum var um 42 evrur, en meðaltal í júní á þessu ári var ríf- lega 3 evrur. Landsvirkjun hefur ekki keypt neinar áhættuvarnir gegn sveiflum á Nord Pool-verðinu, sem hefur lækkað um meira en 90% síðastliðið hálft ár. „Norðurál kaupir um það bil 1,6 teravattstund af okkur á hverju ári og eru því kaupandi um 11 prósenta af okkar framleiðslu, þó þeir hafi aldrei náð sama hlutfalli í okkar tekjum. En það hefur komið mjög á óvart hvernig Nord Pool hefur þróast. Þarna er ákveðinn forsendu- brestur sem hefur átt sér stað, sem tengist inngripum stjórnvalda með að loka mörkuðunum,“ segir Hörður. Auk fullra miðlunarlóna, eink- um í Svíþjóð og Noregi, hefur mikill samdráttur eftirspurnar rafmagns í Evrópu þrýst rafmagns- verði niður á við. Samningaviðræðum hætt Norðurál og Landsvirkjun áttu í samræðum um að breyta raforku- samningnum sem tók gildi síðasta haust, að frumkvæði Norðuráls. En eftir því sem leið á haustið og Nord Pool-verðið seig niður á við, þvarr áhugi Norðuráls á því að breyta samningnum, að sögn Harðar. „Ástæða þess að við vörðum ekki samningana fyrir yfirstandandi ár, er að það lá í loftinu að við mynd- um endursemja við Norðurál, en sú varð svo ekki raunin,“ segir for- stjóri Landsvirkjunar. Núgildandi samningur Lands- virkjunar og Norðuráls gildir til loka ársins 2023, en framlengingin sem tók gildi í nóvember var und- irrituð á árinu 2016. Landsvirkjun uppfyllir um það bil þriðjung af raforkuþörf álversins á Grundar- tanga. Fyrri samningur Landsvirkj- unar og Norðuráls var tengdur við álverð, en það hefur verið stefna Landsvirkjunar á undanförnum árum að aftengja raforkusamninga álverði og miða frekar við raforku- verð í Evrópu. thg@frettabladid.is Tekjusamdráttur Landsvirkjunar á fyrsta fjórðungi nam um 10% milli ára, en við sögðum þá að annar fjórðungur yrði verri. Hörður Arnarson, forstjóri 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.