Fréttablaðið - 01.07.2020, Side 30

Fréttablaðið - 01.07.2020, Side 30
Lagt var upp með að tölvuleikjaf yrirtækið Mainframe Industries, sem meðal annars var stofnað af meðstofnanda CCP og hefur fengið fjár- mögnun frá Andreessen Horro- witz, yrði stærra en Ísland eitt og sér myndi ráða við. Þess vegna var brugðið á það ráð að stofna fyrir- tækið í Finnlandi og vera með skrif- stofur þar og á Íslandi. Þetta segir Þorsteinn Högni Gunnarsson, for- stjóri og einn stofnenda leikjafyrir- tækisins. Mainframe Industries hefur safn- að um tíu milljónum evra, jafnvirði 1,6 milljarða króna, til að standa að uppbyggingunni. Fyrirtækið er rúmlega eins árs. „Á Íslandi er mikið af hæfu fólki sem starfað hefur hjá CCP og f leiri fyrirtækjum en þetta er tiltölulega lítill hópur enn, ef til vill nokkur hundruð manns,“ segir Þorsteinn Högni. Hann var framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar hjá CCP í sjö ár. Finnland áhugavert „Finnland er sérstaklega spenn- andi hvað þetta varðar, þar er stór og öflugur leikjageiri,“ segir hann og nefnir að um fimm þúsund manns starfi þar við hann. Þekkt tölvu- leikjafyrirtæki eins og Supercell, sem meðal annars bjó til Clash og the Titans, og Remedy Games hafa sprottið þar upp. „Við erum að reyna að búa til sýndarheim sem milljónir manna munu kalla heimili sitt, vonandi til margra ára,“ segir Þorsteinn Högni um leikinn. Um er að ræða fjöl- notenda leik sem fjölmargir geta spilað á sama tíma, eins og í tilviki krúnudjásns CCP, Eve Online. Ekki hefur verið upplýst um hvert sögu- svið leiksins er. Hugmyndin að leiknum kviknaði fyrir nokkuð mörgum árum hjá Reyni Harðarsyni, einum af með- stofnendum CCP, en hann hafði hvorki fundið tæknilegu leiðina né rétta teymið sem gæti framkvæmt hana fyrr en nú. Þorsteinn Högni, Reynir og Kjartan Emilsson, sem meðal ann- ars var yfirleikjahönnuður hjá CCP, stofnuðu saman sprotafyrirtækið Sólfar Studios árið 2014 í því skyni að framleiða efni fyrir sýndarveru- leika. „Við ákváðum að venda kvæði okkar í kross,“ segir hann og hafist var handa við að leggja drög að nýja leiknum undir merkjum Main- frame Industries. Streymisveitur fyrir leiki Að sögn Þorsteins Högna var hvat- inn að stofnun fyrirtækisins öðrum þræði „að við vorum að sjá gríðar- legar breytingar“ á leikjageiranum með tilkomu streymisveitna fyrir leiki í anda Spotify og Netflix. „Allt byggt á því að leikjum er streymt í tækið sem spilað er á hverju sinni,“ segir hann. Leikir eins og EVE Online eru hannaðir fyrst og fremst fyrir vel útbúnar PC-tölvur. „Ný tækni gerði það að verkum að hægt var að búa til leik eða sýndarheim sem myndi ná til miklu stærri hóps leikmanna en áður hefur verið hægt,“ segir hann. Þorsteinn Högni segir að liðlega þremur mánuðum eftir stofnun fyrirtækisins hafi Mainframe In- dustries safnað hlutafé frá fjár- festum „sem eru sterkir á Íslandi og í Finnlandi“. Söfnuðu fjármagni hratt Fyrirtækið safnaði tveimur millj- ónum evra frá íslenska vísissjóðn- um Crowberry, sem meðal annars Helga Valfells fer fyrir, og þremur finnskum vísissjóðum. Tveir þeirra eru sérhæfðir í leikjafyrir- tækjum. Tilkynnt var opinberlega um fjármögnunina í október í fyrra. Í mars var upplýst að And- reesen Horrowitz, einn þekktasti vísisfjárfestir í heimi, hefði leitt 7,6 milljóna evra fjármögnun. „Við einsettum okkur að safna frekar hratt fjármagni inn í félag- ið,“ segir Þorsteinn Högni og nefnir að leitað hafi verið eftir fjárfestum með tengslanet og þekkingu. Hafist var handa við að kynna fyrirtækið fyrir fjárfestum á finnsku tækniráð- stefnunni Slush í nóvember. Tveim- ur vikum síðar lá leiðin í Kísildalinn að hitta fjárfesta. Hann segir að það hafi komið í ljós að hugmyndir þeirra og And- reesen Horrowitz um framtíðina í leikjageiranum fóru vel saman. Aukinheldur hafi Andreesen Horro- witz um 160 manns á sínum snær- um sem veiti sprotafyrirtækjum aðstoð á fjölda sviða. „Það var líka gaman að fá Riot Games í hluthafahópinn því þeir framleiða vinsælasta tölvuleik í heimi, League of Legends,“ segir Þorsteinn Högni. Ræddu við 30 fjárfesta Rætt var við 30 fjárfesta á þeim tíma. Hann segir að það sé alltaf erfitt að fá fundi með fjárfestum. Þeir fái enda ótal fjárfestingartæki- færi á sitt borð á hverju ári. Gott tengslanet skipti því sköpum við að fá fundi með fjárfestum. „Í okkar til- viki þekkti einn af meðstofnendum okkar frá Finnlandi einn af með- eigendum Andreesen Horrowitz,“ segir hann. Að sögn Þorteins Högna hefur ekki verið gefið upp hvenær leik- urinn komi á markað. Það sé enn nokkuð í það en vonast sé til að prófanir hefjist „áður en of langt um líður“. Munu safna meira fé Mainframe Industries hefur safnað 9,6 milljónum evra í hlutafé og feng- ið 600 þúsund evra lán frá finnska sprotasjóðnum. „Við munum safna meira fé þegar fram líða stundir. Við erum í ansi góðum málum núna,“ segir hann og nefnir að með þessu fé verði hægt að ná lykilvörðum í framgangi leiksins. Auknu fé verði safnað þegar þróun leiksins verður lengra komin. Þorsteinn Högni segir að stuðn- ingur finnska ríkisins við sprota- fyrirtæki sé veglegur en annars eðlis en á Íslandi. Á Íslandi sé fyrst og fremst um að ræða styrki frá Tækni- þróunarsjóði eða endurgreiðslur á rannsóknar- og þróunarkostnaði. Það sé afar gagnlegt. Í Finnlandi séu veitt hagstæð lán sem nema oft um helmingi eða meira af því hlutafé sem fyrirtækið hafi safnað. „Þetta eru tíu ára kúlulán og í augnablikinu á eins prósents vöxt- um,“ segir hann. Mainframe hafi tekið eitt slíkt lán fyrir 600 þúsund evrur og reiknað sé með að taka fleiri slík lán á næstu tveimur árum. Leggja drög að leikjafyrirtæki sem er stærra en Ísland mun ráða við Hópur sérfræðinga í tölvuleikjum á Íslandi er tiltölulega fámennur. Mainframe fékk fjármagn frá Andrees sen Horowitz, einum þekktasta vísisfjárfesti í heimi. Eins árs sprotafyrirtæki, stofnað af fyrrverandi lykilmönnum CCP, hefur safnað um tíu milljónum evra til að byggja upp leikjafyrirtækið. Er með skrifstofur í Finnlandi og á Íslandi. Streymisveitur fyrir leiki breytir myndinni. Borgun sagði upp rúmlega 140 erlendum viðskiptavinum vegna athugasemda frá Fjár- málaeftirlitinu sem bárust árið 2017. Fyrir Landsrétt hafa verið lögð „gögn sem gefa [það] til kynna“ segir í dómi réttarins sem kveður á um að Borgun hefði átt að greiða fyrrver- andi forstöðumanni alþjóðasviðs fyrirtækisins fullan kaupauka við árslok 2017. Fram hefur komið í fréttum að Fjármálaeftirlitið (FME) gerði á árinu 2017 margvíslegar athuga- semdir við eftirlit kortafyrir- tækisins með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Í úrtaki FME sem í voru 16 viðskiptavinir alþjóðasviðs kannaði fyrirtækið ekki áreiðanleika upplýsinga um 13 þeirra með fullnægjandi hætti. Þess vegna krafðist eftirlitið að Borgun sliti viðskiptum við þá og að kortafyrirtækið færi yfir framkvæmd áreiðanleikakann- ana vegna annarra erlendra við- skiptavina. Slíta ætti viðskiptum við þá sem ekki uppfylltu lagaleg skilyrði. Rekstur Borgunar hefur gengið erfiðlega á síðustu árum en til marks um það tapaði félagið ríf- lega 972 milljónum króna á síðasta ári borið saman við 1.069 milljóna króna tap árið 2018. Erlenda greiðslumiðlunarfyrir- tækið Salt Pay keypti Borgun í mars fyrir um fimm milljarða, að því er fram kom í Markaðnum. Seljendur voru Íslandsbanki sem átti 64 pró- senta hlut, eignarhaldsfélagið Borgun, sem meðal annars var í eigu Stálskipa og Einars Sveinssonar fjárfestis, með 32 prósenta hlut og félag í eigu stjórnenda Borgunar með tveggja prósenta hlut. Landsdómur dæmdi Borgun til að greiða Sigurði Guðmundssyni, yfir- manni alþjóðasviðs fyrirtækisins, 1,6 milljónir auk vaxta og máls- kostnaðar. Í árslok 2014 fékk Sigurður greidd 60 prósent af umsömdum kaupauka en greiðslu 40 prósenta fjárhæðar- innar var frestað í þrjú ár. Sá hluti kaupaukans var hins vegar ekki inntur af hendi í árslok 2017 og því höfðaði Sigurður mál á hendur Borgun. – hvj Borgun sagði upp 140 viðskiptavinum vegna athugasemda FME Borgunarhúsið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@frettabladid.is „Í okkar tilviki þekkti einn af meðstofnendum okkar frá Finnlandi einn af meðeigendum Andreesen Horrowitz,“ segir Þorsteinn Högni um það hvernig Mainframe fékk fund með vísisjóðnum. MYND/AÐSEND Finnar og Íslendingar stofnuðu Mainframe Það starfa 27 manns hjá Main- frame Industries og stefnt er að því að fjöldinn verði um 40 í lok árs. Þorsteinn Högni vekur athygli á að meðal annars sé verið að leita að starfskröftum á Íslandi. Stofnendur Mainframe eru 13. Fimm Finnar og sjö Íslendingar. „Það er óvanalegt að svo stór hópur komi að stofnun sprota- fyrirtækis en okkur þótti það nauðsynlegt því verkefnið er til- tölulega flókið og því þótti okkur mikilvægt að stofnendahópurinn væri öflugur,“ segir Þorsteinn Högni. Hver og einn í hópnum hafi um 20 ára reynslu, hver á sínu sviði. „Það hjálpaði okkur að safna fjármagni.“ Þorsteinn nefnir að Íslending- arnir sem fóru af stað með Main- frame Industries hafi notið góðs af tengslaneti sínu í Finnlandi frá fyrri árum. Við erum að reyna að búa til sýndar- heim sem milljónir manna munu kalla heimili sitt, vonandi til margra ára. 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.