Fréttablaðið - 01.07.2020, Blaðsíða 30
Lagt var upp með að tölvuleikjaf yrirtækið Mainframe Industries, sem meðal annars var stofnað af meðstofnanda CCP og hefur fengið fjár-
mögnun frá Andreessen Horro-
witz, yrði stærra en Ísland eitt og
sér myndi ráða við. Þess vegna var
brugðið á það ráð að stofna fyrir-
tækið í Finnlandi og vera með skrif-
stofur þar og á Íslandi. Þetta segir
Þorsteinn Högni Gunnarsson, for-
stjóri og einn stofnenda leikjafyrir-
tækisins.
Mainframe Industries hefur safn-
að um tíu milljónum evra, jafnvirði
1,6 milljarða króna, til að standa
að uppbyggingunni. Fyrirtækið er
rúmlega eins árs.
„Á Íslandi er mikið af hæfu fólki
sem starfað hefur hjá CCP og f leiri
fyrirtækjum en þetta er tiltölulega
lítill hópur enn, ef til vill nokkur
hundruð manns,“ segir Þorsteinn
Högni. Hann var framkvæmda-
stjóri viðskiptaþróunar hjá CCP í
sjö ár.
Finnland áhugavert
„Finnland er sérstaklega spenn-
andi hvað þetta varðar, þar er stór
og öflugur leikjageiri,“ segir hann og
nefnir að um fimm þúsund manns
starfi þar við hann. Þekkt tölvu-
leikjafyrirtæki eins og Supercell,
sem meðal annars bjó til Clash og
the Titans, og Remedy Games hafa
sprottið þar upp.
„Við erum að reyna að búa til
sýndarheim sem milljónir manna
munu kalla heimili sitt, vonandi til
margra ára,“ segir Þorsteinn Högni
um leikinn. Um er að ræða fjöl-
notenda leik sem fjölmargir geta
spilað á sama tíma, eins og í tilviki
krúnudjásns CCP, Eve Online. Ekki
hefur verið upplýst um hvert sögu-
svið leiksins er.
Hugmyndin að leiknum kviknaði
fyrir nokkuð mörgum árum hjá
Reyni Harðarsyni, einum af með-
stofnendum CCP, en hann hafði
hvorki fundið tæknilegu leiðina né
rétta teymið sem gæti framkvæmt
hana fyrr en nú.
Þorsteinn Högni, Reynir og
Kjartan Emilsson, sem meðal ann-
ars var yfirleikjahönnuður hjá CCP,
stofnuðu saman sprotafyrirtækið
Sólfar Studios árið 2014 í því skyni
að framleiða efni fyrir sýndarveru-
leika. „Við ákváðum að venda kvæði
okkar í kross,“ segir hann og hafist
var handa við að leggja drög að nýja
leiknum undir merkjum Main-
frame Industries.
Streymisveitur fyrir leiki
Að sögn Þorsteins Högna var hvat-
inn að stofnun fyrirtækisins öðrum
þræði „að við vorum að sjá gríðar-
legar breytingar“ á leikjageiranum
með tilkomu streymisveitna fyrir
leiki í anda Spotify og Netflix. „Allt
byggt á því að leikjum er streymt í
tækið sem spilað er á hverju sinni,“
segir hann.
Leikir eins og EVE Online eru
hannaðir fyrst og fremst fyrir vel
útbúnar PC-tölvur. „Ný tækni gerði
það að verkum að hægt var að búa
til leik eða sýndarheim sem myndi
ná til miklu stærri hóps leikmanna
en áður hefur verið hægt,“ segir
hann.
Þorsteinn Högni segir að liðlega
þremur mánuðum eftir stofnun
fyrirtækisins hafi Mainframe In-
dustries safnað hlutafé frá fjár-
festum „sem eru sterkir á Íslandi og
í Finnlandi“.
Söfnuðu fjármagni hratt
Fyrirtækið safnaði tveimur millj-
ónum evra frá íslenska vísissjóðn-
um Crowberry, sem meðal annars
Helga Valfells fer fyrir, og þremur
finnskum vísissjóðum. Tveir
þeirra eru sérhæfðir í leikjafyrir-
tækjum. Tilkynnt var opinberlega
um fjármögnunina í október í
fyrra. Í mars var upplýst að And-
reesen Horrowitz, einn þekktasti
vísisfjárfestir í heimi, hefði leitt 7,6
milljóna evra fjármögnun.
„Við einsettum okkur að safna
frekar hratt fjármagni inn í félag-
ið,“ segir Þorsteinn Högni og nefnir
að leitað hafi verið eftir fjárfestum
með tengslanet og þekkingu. Hafist
var handa við að kynna fyrirtækið
fyrir fjárfestum á finnsku tækniráð-
stefnunni Slush í nóvember. Tveim-
ur vikum síðar lá leiðin í Kísildalinn
að hitta fjárfesta.
Hann segir að það hafi komið í
ljós að hugmyndir þeirra og And-
reesen Horrowitz um framtíðina
í leikjageiranum fóru vel saman.
Aukinheldur hafi Andreesen Horro-
witz um 160 manns á sínum snær-
um sem veiti sprotafyrirtækjum
aðstoð á fjölda sviða.
„Það var líka gaman að fá Riot
Games í hluthafahópinn því þeir
framleiða vinsælasta tölvuleik í
heimi, League of Legends,“ segir
Þorsteinn Högni.
Ræddu við 30 fjárfesta
Rætt var við 30 fjárfesta á þeim
tíma. Hann segir að það sé alltaf
erfitt að fá fundi með fjárfestum.
Þeir fái enda ótal fjárfestingartæki-
færi á sitt borð á hverju ári. Gott
tengslanet skipti því sköpum við að
fá fundi með fjárfestum. „Í okkar til-
viki þekkti einn af meðstofnendum
okkar frá Finnlandi einn af með-
eigendum Andreesen Horrowitz,“
segir hann.
Að sögn Þorteins Högna hefur
ekki verið gefið upp hvenær leik-
urinn komi á markað. Það sé enn
nokkuð í það en vonast sé til að
prófanir hefjist „áður en of langt
um líður“.
Munu safna meira fé
Mainframe Industries hefur safnað
9,6 milljónum evra í hlutafé og feng-
ið 600 þúsund evra lán frá finnska
sprotasjóðnum. „Við munum safna
meira fé þegar fram líða stundir. Við
erum í ansi góðum málum núna,“
segir hann og nefnir að með þessu
fé verði hægt að ná lykilvörðum í
framgangi leiksins. Auknu fé verði
safnað þegar þróun leiksins verður
lengra komin.
Þorsteinn Högni segir að stuðn-
ingur finnska ríkisins við sprota-
fyrirtæki sé veglegur en annars eðlis
en á Íslandi. Á Íslandi sé fyrst og
fremst um að ræða styrki frá Tækni-
þróunarsjóði eða endurgreiðslur á
rannsóknar- og þróunarkostnaði.
Það sé afar gagnlegt. Í Finnlandi séu
veitt hagstæð lán sem nema oft um
helmingi eða meira af því hlutafé
sem fyrirtækið hafi safnað.
„Þetta eru tíu ára kúlulán og í
augnablikinu á eins prósents vöxt-
um,“ segir hann. Mainframe hafi
tekið eitt slíkt lán fyrir 600 þúsund
evrur og reiknað sé með að taka
fleiri slík lán á næstu tveimur árum.
Leggja drög að leikjafyrirtæki sem
er stærra en Ísland mun ráða við
Hópur sérfræðinga í tölvuleikjum á Íslandi er tiltölulega fámennur. Mainframe fékk fjármagn frá Andrees sen Horowitz, einum
þekktasta vísisfjárfesti í heimi. Eins árs sprotafyrirtæki, stofnað af fyrrverandi lykilmönnum CCP, hefur safnað um tíu milljónum
evra til að byggja upp leikjafyrirtækið. Er með skrifstofur í Finnlandi og á Íslandi. Streymisveitur fyrir leiki breytir myndinni.
Borgun sagði upp rúmlega 140 erlendum viðskiptavinum vegna athugasemda frá Fjár-
málaeftirlitinu sem bárust árið
2017.
Fyrir Landsrétt hafa verið lögð
„gögn sem gefa [það] til kynna“ segir
í dómi réttarins sem kveður á um að
Borgun hefði átt að greiða fyrrver-
andi forstöðumanni alþjóðasviðs
fyrirtækisins fullan kaupauka við
árslok 2017.
Fram hefur komið í fréttum að
Fjármálaeftirlitið (FME) gerði á
árinu 2017 margvíslegar athuga-
semdir við eftirlit kortafyrir-
tækisins með peningaþvætti og
fjármögnun hryðjuverka. Í úrtaki
FME sem í voru 16 viðskiptavinir
alþjóðasviðs kannaði fyrirtækið
ekki áreiðanleika upplýsinga um
13 þeirra með fullnægjandi hætti.
Þess vegna krafðist eftirlitið að
Borgun sliti viðskiptum við þá
og að kortafyrirtækið færi yfir
framkvæmd áreiðanleikakann-
ana vegna annarra erlendra við-
skiptavina. Slíta ætti viðskiptum
við þá sem ekki uppfylltu lagaleg
skilyrði.
Rekstur Borgunar hefur gengið
erfiðlega á síðustu árum en til
marks um það tapaði félagið ríf-
lega 972 milljónum króna á síðasta
ári borið saman við 1.069 milljóna
króna tap árið 2018.
Erlenda greiðslumiðlunarfyrir-
tækið Salt Pay keypti Borgun í mars
fyrir um fimm milljarða, að því er
fram kom í Markaðnum. Seljendur
voru Íslandsbanki sem átti 64 pró-
senta hlut, eignarhaldsfélagið
Borgun, sem meðal annars var í
eigu Stálskipa og Einars Sveinssonar
fjárfestis, með 32 prósenta hlut og
félag í eigu stjórnenda Borgunar
með tveggja prósenta hlut.
Landsdómur dæmdi Borgun til að
greiða Sigurði Guðmundssyni, yfir-
manni alþjóðasviðs fyrirtækisins,
1,6 milljónir auk vaxta og máls-
kostnaðar.
Í árslok 2014 fékk Sigurður greidd
60 prósent af umsömdum kaupauka
en greiðslu 40 prósenta fjárhæðar-
innar var frestað í þrjú ár. Sá hluti
kaupaukans var hins vegar ekki
inntur af hendi í árslok 2017 og
því höfðaði Sigurður mál á hendur
Borgun. – hvj
Borgun sagði upp 140 viðskiptavinum vegna athugasemda FME
Borgunarhúsið. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
„Í okkar tilviki þekkti einn af meðstofnendum okkar frá Finnlandi einn af meðeigendum Andreesen Horrowitz,“
segir Þorsteinn Högni um það hvernig Mainframe fékk fund með vísisjóðnum. MYND/AÐSEND
Finnar og Íslendingar stofnuðu Mainframe
Það starfa 27 manns hjá Main-
frame Industries og stefnt er að
því að fjöldinn verði um 40 í lok
árs. Þorsteinn Högni vekur athygli
á að meðal annars sé verið að
leita að starfskröftum á Íslandi.
Stofnendur Mainframe eru 13.
Fimm Finnar og sjö Íslendingar.
„Það er óvanalegt að svo stór
hópur komi að stofnun sprota-
fyrirtækis en okkur þótti það
nauðsynlegt því verkefnið er til-
tölulega flókið og því þótti okkur
mikilvægt að stofnendahópurinn
væri öflugur,“ segir Þorsteinn
Högni. Hver og einn í hópnum
hafi um 20 ára reynslu, hver á
sínu sviði. „Það hjálpaði okkur að
safna fjármagni.“
Þorsteinn nefnir að Íslending-
arnir sem fóru af stað með Main-
frame Industries hafi notið góðs
af tengslaneti sínu í Finnlandi frá
fyrri árum.
Við erum að reyna
að búa til sýndar-
heim sem milljónir manna
munu kalla heimili sitt,
vonandi til margra ára.
1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN