Fréttablaðið - 01.07.2020, Page 42
Við viljum opna augu fólks fyrir
því fjölbreytta lífi sem leynist í
nærumhverfi okkar.
Þetta byggir svolítið á þeirri hugmyndafræði að allir geti verið vísindamenn,“ segir Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðs-ins, sem stendur ásamt Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum og Reykja-
víkurborg að viðburðinum Lífveruleit í
Laugardalnum í júlímánuði.
Hjörtur segir leitina miða við þá fjöl-
breyttu íbúa Laugardalsins sem séu ekki
með lögheimili í Húsdýragarðinum, en
þar má einnig finna þrestina í trjánum,
ánamaðkana í moldinni, hunangsflug-
urnar sem suða í blómabeðunum og
fíf lana sem vaxa upp úr stéttinni, og
svo framvegis.
„Það er meira verið að skoða mosann,
illgresið, fuglana og skordýrin og í raun
og veru alla þá náttúru sem er að finna
í borgarumhverfinu,“ segir hann. „Við
viljum opna augu fólks fyrir því fjöl-
breytta lífi sem leynist í nærumhverfi
okkar.“
Til að taka þátt í lífveruleitinni má
nálgast fróðleiksspjöld, annaðhvort í
afgreiðslu Fjölskyldu- og húsdýragarðs-
ins eða í anddyri garðskálans í Grasa-
garðinum. Á spjöldunum eru nokkur
einföld verkefni þar sem þátttakendur
eru hvattir til að leita að ákveðnum
gerðum lífvera og velta fyrir sér nokkr-
um áhugaverðum spurningum. Verk-
efnin henta fólki á öllum aldri.
arnartomas@frettabladid.is
Lífið iðar í Laugardalnum
Í júlímánuði býðst gestum Grasagarðsins og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins að taka
þátt í lífveruleit í lífríki Laugardalsins þar sem heill heimur opnast ef grannt er skoðað.
Merkisatburðir
1346 Karl 4. af Lúxemborg verður keisari Heilaga róm-
verska keisaraveldisins.
1490 Píningsdómur er samþykktur á Alþingi.
1881 Alþingi kemur saman í fyrsta sinn í Alþingishúsinu
við Austurvöll.
1886 Landsbanki Íslands, fyrsti banki á Íslandi, hefur
starfsemi við Bakarastíg í Reykjavík og er í byrjun opinn
tvo daga í viku. Fljótlega fékk gatan nafnið Bankastræti.
1919 Stofnendur Morgunblaðsins selja það nýstofn-
uðum félagsskap sem kallast Fjelag í Reykjavík.
1922 Fyrsta útvarpsauglýsingin er send út í Bandaríkj-
unum.
1928 Líflátshegning er afnumin á Íslandi og hafði ekki
verið beitt í næstum öld.
1931 Þýska loftskipið Graf Zeppelin kemur til Reykja-
víkur með póst og tekur hér fyrsta flugpóst til útlanda.
2000 Kristnihátíðin er sett á Þingvöllum.
2000 Eyrarsundsbrúin milli Danmerkur og Svíþjóðar er
opnuð.
Hvert skyldi þessi vera að fara? Það búa ekki öll dýr Laugardalsins í Húsdýragarðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Er ekki orðið langt síðan þú heimsóttir járnsmiðina?
Faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Jón Karl Úlfarsson
útvegsbóndi,
frá Eyri í Fáskrúðsfirði,
sem lést miðvikudaginn 24. júní á
Dvalarheimilinu Fossahlíð Seyðisfirði,
verður jarðsunginn frá Fáskrúðsfjarðarkirkju föstudaginn
3. júlí kl. 14.00. Jarðsett verður í Kolfreyjustaðarkirkjugarði.
Fjölskyldan
Elsku faðir minn, sonur,
bróðir og frændi,
Jón Skúli Traustason
lést miðvikudaginn
24. júní síðastliðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ingvar Breki Skúlason
Ragnheiður Helga Jónsdóttir
Helga, Ingi Hrafn, Ragna Bergmann, Lóa og Rögnvaldur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gísli Gunnar Magnússon
fyrrverandi varðstjóri slökkviliðs
Hafnarfjarðar,
andaðist á heimili sínu í faðmi
fjölskyldunnar laugardaginn 13. júní.
Útför hans fór fram í kyrrþey þann 26. júní.
Oddný Jóna Bárðardóttir
Málfríður Gísladóttir Gunnlaugur Hjartarson
Bárður Ágúst Gíslason
Guðlaug Gísladóttir Árni Sch. Thorsteinsson
Jónína Gísladóttir Þórarinn Jóhann Kristjánsson
Þórey Erla Gísladóttir Þórður Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku mamma mín, tengdamamma,
amma, langamma og sálufélagi,
Lára Ragnhildur Bjarnadóttir
(Lóló)
Fellsási 1, Mosfellsbæ,
verður jarðsungin frá Lágafellskirkju
föstudaginn 3. júlí kl. 13.
Streymi (bein útsending) verður á slóðinni
www.sonik.is/lolo og FM-útsending við kirkjuna
á tíðni 106,1.
Sigurður Jón Grímsson Rósa Sveinsdóttir
Sólveig Lára Sigurðardóttir Friðrik Arnar Helgason
Grímur Snæland Sigurðsson
Elínborg Rós Sigurðardóttir
Benjamín Thor og Karlotta Rós Friðriksbörn
Sigurður Hreiðar Hreiðarsson
1 . J Ú L Í 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT