Fréttablaðið - 04.08.2020, Page 6

Fréttablaðið - 04.08.2020, Page 6
DÓMSMÁL Alvar Óskarsson hefur óskað eftir áfrýjunarleyfi til Hæsta- réttar vegna dóms Landsréttar frá 26. júní síðastliðnum. Þar var hann ásamt tveimur öðrum sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Með beiðninni ætlar Alvar Hæsta- rétti að kveða upp fordæmisgefandi dóm vegna ákvörðunar refsinga fyrir fíkniefnaframleiðslu og hvað sé framleiðsla. Í beiðninni er vísað til þess að Hæstiréttur hafi aðeins einu sinni kveðið upp dóm um framleiðslu amfetamíns. Það var í máli tveggja manna sem sakfelldir voru fyrir að hafa komið á fót sérútbúinni verksmiðju í iðnaðarhúsnæði með mikilli afkastagetu og staðið þar að stórfelldri amfetamínframleiðslu. Fyrir það brot fengu mennirnir átta og tíu ára fangelsisdóma. Mál Alvars og félaga er fyrsta mál sinnar tegundar frá því fyrrnefndur dómur Hæstaréttar féll árið 2010. Málið er fordæmisgefandi um sak- fellingu og refsingu, þrátt fyrir að ætluð framleiðsla sé smærri í snið- um. Ekki er um að ræða framleiðslu frá grunni, og ljóst af vettvangi að aðstaðan bauð ekki upp á fram- leiðslu fíkniefna í mörgum lotum. Alvar hlaut sex ára fangelsi í Landsrétti. Refsingin er í miklu ósamræmi við dóma fyrir innflutn- ing á sambærilegu magni efna. Vísað er til þess að í júlí var kveðinn upp dómur í þriðja framleiðslumálinu. Þar voru sex menn dæmdir í þriggja og fjögurra ára fangelsi fyrir amfeta- mínframleiðslu. Flestir þeir sem þar voru dæmdir hafi áfrýjað dómi til Landsréttar. Í því ljósi er brýnt að Hæstiréttur taki af skarið um túlk- un ákvæðis almennra hegningar- laga um stórfelld fíkniefnabrot. Ákvæðið er frá árinu 1974 og komið til ára sinna. Gerð er athuga- semd við þá réttarframkvæmd sem myndast hafi um ákvæðið á sama tíma og miklar breytingar hafi orðið í samfélaginu. Hæstiréttur þurfi að taka af skarið um hvort ákvæðið geti staðið undir mismunandi refsingum vegna ólíkra brota sem öll séu heim- færð á sama ákvæðið. Í dómi Landsréttar er því haldið fram að ein tegund brots sé alvar- legri en önnur. Í ákvæðinu sjálfu er ekki gerður greinarmunur á fram- leiðslu fíkniefna, innflutningi eða sölu og dreifingu og hvort einn þáttur eigi að varða þyngri refsingu en annar. Í beiðni Alvars eru gerðar alvar- legar athugasemdir við meðferð málsins. Málið hafi verið illa rann- sakað. Þannig hafi DNA fundist í andlitsgrímum frá vettvangi sem var ekki úr neinum þeirra sem sakfelldir voru. Ekki liggi fyrir úr hverjum það DNA er. Þá var byggt á því að hrærivél sem meðákærði keypti í Elko hafi verið notuð til framleiðslunnar, þrátt fyrir að sannað væri að hrærivélin hafi verið gefin í brúðargjöf. Sú vél bar ekki sama framleiðslunúmer og vélin sem haldlögð var í sumar- bústaðnum. Bar brúðguminn vitni um gjöfina við aðalmeðferð málsins. Í dómsforsendum hafi framburð- ur lögreglumanna sem staðhæfðu að þeir hafi verið í sjónlínu við sumar- húsið, verið lagður til grundvallar. Lögreglumennirnir neituðu að gefa upp hvar þeir voru staðsettir við eft- irlitið og báru við mikilvægi leyndar um rannsóknaraðferðir lögreglu. Í beiðninni segir að óviðunandi sé að byggja á framburði sjónarvotts sem neiti að tilgreina hvar hann var þegar hann sá eða heyrði það sem hann beri vitni um. Rétt hefði verið að fara á vettvang við meðferð máls- ins til að sannreyna vitnisburð lög- reglunnar. adalheidur@frettabladid.is Hæstiréttur Íslands leggi nýja línu í stórum fíkniefnamálum Óskað hefur verið eftir nýju fordæmi Hæstaréttar um ákvæði hegningarlaga um stórfelld fíkniefna- brot. Tvívegis hefur verið sakfellt fyrir framleiðslu fíkniefna á þessu ári og vísað í fordæmalausan dóm Hæstaréttar frá 2010. Maður sem dæmdur var í sex ára fangelsi í Landsrétti vill fá málið fyrir Hæstarétt. Hæstiréttur hefur einu sinni kveðið upp dóm um framleiðslu amfetamíns, árið 2010. Þá voru tveir dæmdir í átta og tíu ára fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Stefán Karl er verjandi Alvars Óskarssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SVÍÞJÓÐ Tólf ára stúlka sem skotin var til bana í Norsborg í Svíþjóð á sunnudag  var úti að ganga með heimilishundinn er hún lenti í eld- línu stríðandi fylkinga glæpagengja sem áttu í átökum um fíkniefna- markaðinn. Fréttastofa Sænska ríkissjón- varpsins segir á vef sínum, svt.se, að klofningur hafi orðið meðal umrædds hóps glæpamanna fyrir um hálfu ári síðan. Einn með- limurinn var þá myrtur á heimili sínu. Samkvæmt heimildum hafi skotmark byssumannsins á sunnu- dag verið hópur manna sem báru skotheld vesti og voru á bílastæði sem stúlkan gekk yfir. Nokkrir hafa verið yfirheyrðir vegna þessa atburðar. – gar Tólf ára skotin í stríði dópsala Beðið eftir vagninum Íbúar Manilla, höfuðborgar Filippseyja, röðuðu sér upp í gær og biðu þess að vagninn kæmi. Í dag taka á ný gildi strangar tveggja vikna takmark- anir í borginni og nágrenni hennar til að sporna við útbreiðslu kórónaveirunnar. Alls hafa greinst í landinu yfir 100.000 tilfelli veirusýkingarinn- ar. Forseti landsins, Rodrigo Duterte, lét loks undan ákalli 80.000 lækna og yfir milljón hjúkrunarfræðinga um að grípa til lokananna. MYND/GETTY NEW YORK Eigendur og skipstjóri f ljótabátsins  The Liberty Belle voru handteknir um helgina fyrir að brjóta gegn reglum um varnir gegn COVID-19. Að sögn BBC var The Liberty Bell, sem tekur alls 600 farþega, með 170 gesti um borð og vínbarina opna í óleyfi. Íbúar New York, sem voru gríðarhart leiknir af kórónavírusn- um, standa nú frammi fyrir auknu smiti. Um það bil 650 hafa greinst þar með smit á hverjum degi undan- farna viku. – gar Handtökur á fljótabáti The Liberty Belle. MYND/EMPIRE CRUISES SPÁNN Ósk hefur komið frá Spáni um lánafyrirgreiðslu til að mæta erfiðleikum í atvinnulífinu af völd- um COVID-19. Um eitt þúsund ný tilfelli hafa greinst daglega á Spáni að undanförnu. Efnahagslíf Spánar hefur orðið fyrir einna mestu skakkaföllunum af völdum kórónaveirunnar af löndum ESB. El País segir að á þeim 40 dögum sem liðnir séu frá því neyðarástandi var aflýst í landinu hafi fjöldi stað- festra smita áttfaldast, farið úr 334 þann 20. júní síðastliðinn í 2.789 þann 30. júlí. Sérstaklega hefur orðið aukning í Aragón, Madríd og Kata- lóníu þar sem yfirvöld tilkynntu í gær að fjöldi smitaðra væri kominn yfir eitt hundrað þúsund. – gar Spánn biður um fjárhagsaðstoð Í Barcelona. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA Talvert há glæpatíðni er í Norsborg í Botkyrka þar sem gengi hafa hreiðr- að um sig. 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.