Fréttablaðið - 04.08.2020, Síða 9

Fréttablaðið - 04.08.2020, Síða 9
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9Þ R I Ð J U D A G U R 4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Lykillinn margborgar sig á Kvikk stöðvunum* Þú nálgast lykilinn í verslunum Kvikk eða á Orkan.is Pylsupartí Pylsa + ½ lítri af gosi að eigin vali frá Ölgerðinni 499 kr. Red Bull Orkudrykkir 199 kr. Frítt á könnunni Ókeypis kaffi og kakó Sbarro tilboð á Vesturlandsvegi Sneið + drykkur 690 kr. OPIÐ 24/7 Kvikk: Dalvegi, Suðurfelli, Vesturlandsvegi og Fitjum *G ild ir e in g ö ng u g eg n fr am ví su n O rk ul yk ils /- ko rt s. T ilb o ð in g ild a til 3 1. á g ús t 2 02 0. Covid veiran æðir enn yfir heiminn smýgur inn i æðstu stofnanir og sýkingar aukast um víða veröld. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur varað við annarri bylgju. Þetta hefur víða leitt til endur- skoðunar á fyrri aðgerðum og lok- unum. Umræður hafa jafnvel heyrst hér um mögulegar frekari heim- sóknartakmarkanir á hjúkrunar- heimili. Það var lofsvert af Gísla Páli Gísla- syni, forstjóra Grundar og núverandi formanni Samtaka fyrirtækja í vel- ferðarþjónustu, SFV, að viðurkenna í útvarpsviðtali að betur hefði átt að standa að heimsóknarbanni á elli- og hjúkrunarheimili og gera yrði betur ef þyrfti að endurtaka, sem gæti komið til greina. Þessi viðurkenning var virðingar- verð þar eð heimsóknarbannið hafði verið lofað og réttlætt af hjúkr- unarforstjóra og lækni innan SFV í tveimur blaðagreinum, og síðar lofsungið af þingmanni í eldhús- dagsumræðum. Forstjórinn afsakaði sérstaklega að engin fyrirvari hafði verið gef- inn til undirbúnings og kynningar. Bannið var algert við heimsóknum ættingja án nokkurra undantekn- inga, en ekkert var kynnt varðandi eftirlit á heilbrigði starfsfólks sem annast og er í nánasta sambandi við vistmenn. Viðurkennt var að þetta hafi verið erfitt fyrir hjón til margra ára- tuga þar sem annað var á stofnun, oft vegna heilabilunar og dvínandi minnis. Þetta viðurkenndi einnig landlæknir 78 dögum eftir að bent var á það. Ættingjum gafst ekkert ráðrúm til undirbúnings samskiptaleiða eða skýra sjúkum vistmönnum fjarveru. Tæplega níræður maður var rek- inn burtu eins og rakki þegar hann kom í sína daglegu heimsókn til heilabilaðrar konu sinnar til um 70 ára, sem gat ekki einu sinni notað síma. Þau fengu ekki að hittast í tæpa þrjá mánuði. Fleiri urðu fyrir svip- aðri reynslu um leið og starfsmenn gengu inn og út án eftirlits. Fjöldi heilabilaðra var þannig sviptur samskiptum við ættingja sem þeir enn þekktu og þannig settir í félagslega einangrun. Slíkt stuðlar varla að geðheilbrigði. Umhyggju- samt starfsfólk bætir slíkt ekki. En hvernig tókst til með megin- tilgang heimsóknarbannsins sem átti að vernda gamalmennin fyrir veirunni? Forstjóri Karólínska sjúkrahússins benti á hið augljósa í Silfrinu, að smit bærust ekki síður inn á elliheimili með starfsfólki en ættingjum. Þenn- an möguleika hafði þegar verið bent á í bréfi til landlæknisembættisins 7. mars, sem svaraði með bréfi 30. apríl. Þetta sannaðist heldur betur. Smit barst fljótlega inn á stofnun þáverandi formanns SFV sem hafði lofað öryggi vistmanna og þurfti smitunin aðgerða við. Smit barst inn hjúkrunardeild sjúkrahúss í Reykjavík og olli tals- verðum veikindum en ekki manns- láti. Alvarlegust voru smit inni á elli- heimili á Vestfjörðum sem ollu dauða tveggja eða 20% heildar dauðsfalla vegna kórónaveirunnar. Þessi smit bárust ekki með ætt- ingjum. Ef þyrfti að endurtaka heim- sóknartakmarkanir ætti að kynna það betur og gefa ættingjum kost á undirbúningi. Viðurkenna ætti þörf á heimsóknum í sérstökum undantekningartilfellum, til dæmis gamalla hjóna þar sem annað er inni á stofnun. Meginatriði ætti þó að vera að kanna betur heilsufar starfsmanna sem annast um vistmenn með til dæmis skimunum og hitamælingum sem eru auðveldar. Ég tel að starf þríeykisins varðandi skimun og viðbrögð hafi verið vel heppnað og starfsfólk LSH staðið sig af burðavel. Sérstaklega er ánægju- legt að faraldurinn varð ekki neinum heilbrigðisstarfsmanni að aldurtila eins og varð í mörgum löndum. Að halda því fram að vel hafi tekist til með þetta harkalega heim- sóknarbann er klassísk fölsk frétt. Ég voga mér að segja að það var nánast klúður. Heimsóknarbann uppgjör Birgir Guðjónsson læknir Oft heyrist að ferðaþjónusta sé láglaunagrein sem ekki sé rétt að byggja mikið á, en hvað er ferðaþjónusta? Sam- kvæmt alþjóðlegri hagfræðilegri skilgreiningu er ferðaþjónusta samansafn atvinnugreina sem selja ferðamönnum afurðir sínar. Með öðrum orðum, ferðaþjónusta er ekki ein atvinnugrein heldur summa atvinnugreina sem selur misstóran hluta afurða sinna ferðamönnum. Þær atvinnugreinar sem selja meirihluta afurða ferða- mönnum eru í fræðunum kallaðar einkennandi ferðaþjónustugreinar, en það eru greinar eins og gisting, veitingar og samgöngur. Aðrar atvinnugreinar veita einnig ferða- þjónustu í mismiklum mæli eins og verslun, af þreying, menning og svo framvegis. Eftirfarandi taf la sýnir sam- setningu á ferðaþjónustuneyslu á Íslandi og á Nýja-Sjálandi sam- kvæmt alþjóðlegum ferðaþjón- ustureikningum. Fram kemur að 45 prósent af ferðaþjónustuneyslu á Nýja-Sjálandi tengist öðrum atvinnugreinum en einkennandi ferðaþjónustugreinum, en aftur aðeins 15 prósent hér á landi. Sóknarfæri – hagstjórnartæki Líta má á hinn mikla fjölda ferða- manna sem heimsækir Ísland sem auðlind sem hægt er að nýta til frekari virðisauka fyrir land og þjóð. Í fræðunum segir að megintil- gangur ferðalaga sé (1) frí/afþreying, (2) vinir/vandamenn, (3) verslun, (4) viðskipti, (5) menntun, (6) heilbrigð- isþjónusta, (7) trúarbrögð, (8) frí- höfn og (9) annað. Sé horft til ferða- þjónustu vítt og breitt um heiminn þá er samsetning hennar afar mis- munandi, eða allt frá megináherslu á sól/afþreyingu (Spánn), verslun/ viðskipti (Bretland), menningu (Frakkland), náttúru (Nýja-Sjáland), menntun (Bandaríkin), heilbrigðis- þjónustu (Ungverjaland) og trúar- brögð (Sádi-Arabía). Hér á landi hafa til dæmis skapast tækifæri í ferðaþjónustu tengdri heilbrigðis- þjónustu með áformum um rekstur sérhæfðra sjúkrahúsa í Reykja- nesbæ (2010) og Mosfellsbæ (2016). Á sviði ferðaþjónustu eru því fjöl- mörg sóknarfæri, en það er áskorun okkar að sækja fram og bjóða þær afurðir sem gefa samfélaginu hvað mest til lengri tíma litið. Fyrir stefnumótun og ákvarðana- töku í ferðaþjónustu til lengri tíma þarf að styrkja verulega ferðaþjón- ustuþáttinn í þjóðhagslíkönum (sem vaxið hefur gífurlega undan- farin ár). Með slíku skrefi er hægt að styrkja verulega áætlana- og spágerð í ferðaþjónustu og meta mun betur möguleg sóknarfæri og ávinning fyrir þjóðarbúið. Virðisauki í ferðaþjónustu – næstu skref Framlag (virðisauki) ferðaþjónustu til landsframleiðslunnar 2019 var um 240 milljarðar króna eða rúm- lega 8 prósent af landsframleiðslu. Rætur virðisaukans eru í vinnu- afli, fjármagni og auðlindanotkun. Mikið vinnuaf l starfar í ferða- þjónustu, en fjármagn er þar einn- ig mjög mikið í gistingu, veitingum og samgöngutækjum. Arðurinn (virðisaukinn) af auðlindanýtingu er hins vegar að mestu óbeinn en þó eru dæmi um beina nýtingu eins og tengt Kerinu og Bláa lóninu. Fyrir hagvöxt næstu ára og ára- tuga þarf að líta á ferðaþjónustu með jákvæðum hætti og skoða vel hvaða sóknarfæri eru til staðar. Til að svo verði sem best gert þarf að: Líta á ferðamenn sem auðlind sem stækkar til muna efnahagskerfi okkar með aukinni spurn eftir inn- lendum afurðum. Styrkja verulega þátt ferðaþjónustu (hegðunar- jöfnur) í þjóðhagslíkönum til að meta nákvæmar breytingar/áhrif og sóknarfæri á landsframleiðslu og styrkja til muna áætlana- og spágerð til lengri tíma. Ef la veru- lega hagfræðilega þekkingu og rannsóknir á sviði ferðaþjónustu á háskólastigi þannig að stefnu- mörkun í ferðaþjónustu verði með sem faglegustum hætti. Ferðaþjónusta – framtíðaratvinnugrein Jóhann Rúnar Björgvinsson hagfræðingur Ísland - m.ISK 2016 2017 2018 2019 Neysla í ferðaþjónustu 494.383 528.235 553.459 552.565 Einkennandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu, alls 1416.532 445.124 462.930 463.737 Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu, alls 77.851 83.111 90.529 88.828 Einkennandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu, % af heild 84,3 84,3 83,6 83,9 Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu, % af heild 15,7 15,7 16,4 16,1 Nýja-Sjáland - m.NZ$ 2016 2017 2018 2019 Neysla í ferðaþjónustu (tourism expenditure) 31.983 32.934 35.580 37.059 Einkennandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu, alls 17.347 18.005 19.292 20.188 Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu, alls 14.635 14.928 16.288 16.871 Einkennandi atvinnugreinar í ferðaþjónustu, % af heild 54,2 54,7 54,2 54,5 Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu, % af heild 45,8 45,3 45,8 45,5 ✿ Samanburður á neyslu í ferðaþjónustu á Íslandi og Nýja-Sjálandi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.