Fréttablaðið - 04.08.2020, Qupperneq 18
Lægra lántökugjald við
kaup á vistvænum bílum
Viðskiptavinir Landsbankans greiða ekkert lántökugjald
við fjármögnun rafbíla og fá 50% afslátt af lántökugjaldi
við fjármögnun bíla sem skil greindir eru sem vistvænir.
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R4 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR
Náðst hefur á mynd dulbúin útgáfa
næsta raf bíls Kia sem kallast ein-
faldlega CV og er væntanlegt f lagg-
skip merkisins. Er bílnum ætlað að
sýna næstu kynslóð raftækni Kia,
meðal annars nýja hleðslutækni
ásamt nýjum undirvagni, sem er
sérhannaður fyrir raf bíla. Kia CV
byggir á grunni Imagine-tilrauna-
bílsins sem sýndur var á bílasýn-
ingunni í Genf í fyrra.
Af því sem er sýnilegt á myndinni
má sjá að bíllinn verður með
svipuðu Coupé-byggingarlagi og
hlaðbaks-afturenda og tilrauna-
bíllinn. Kia CV verður fyrsti bíll
Kia/Hyundai til að nota E-GMP-
undirvagninn og fær hann rafhlöðu
sem gefur honum um það bil 500
km drægi og 20 mínútna hleðslu-
tíma. Mun rafbúnaðurinn notast
við svipað 800 volta rafkerfi og er í
Porsche Taycan sem notast getur við
350 kW hleðslustöðvar. Að sögn yfir-
manns hjá Kia í Evrópu er einnig von
á GT útgáfu sem mun geta keppt við
Taycan Turbo S, með upptak undir
þremur sekúndum í 100 km hraða.
Njósnamyndir af
rafjepplingi Kia
Það er rafmögnuð framtíð sem
blasir við BMW líkt og öðrum
bílaframleiðendum. Á næstu
misserum verða 25 nýir rafbílar
kynntir hjá framleiðandanum.
Eru það bæði nýir bílar og raf-
magnaðar útgáfur fyrri gerða.
BMW-bílaframleiðandinn hefur
tilkynnt að ný, rafdrifin útgáfa X1
sé á leiðinni. Bíllinn fær nafnið
iX1 og verður líklega hluti af
næstu kynslóð X1-línunnar, þar
sem stutt er síðan hann fékk and-
litslyftingu. Mun bíllinn koma á
markað fyrir 2023 þar sem BMW
hefur sagt að hann sé hluti af
þeim 25 nýju raf bílum sem panta
má frá BMW Group innan þessa
tímaramma. Mun nýr iX1 koma á
endurhönnuðum UKL undirvagni
en sá er í notkun á Mini Electric,
en fá stærri og öflugri rafhlöðu
en hann notar. Verður ný lína
X1 boðinn í tvinnútfærslum og
einnig sem tengiltvinnbíll líkt og
stefnan er með næstu kynslóðir
5-línu og 7-línu.
BMW hefur einnig tilkynnt að
næsta kynslóð 5-línunnar verði
einnig fáanleg sem 100% raf bíll,
og að hans sé að vænta seint á því
25 bíla tímabili sem fram undan
er fyrir 2023. Fyrstu bílarnir af
þessum 25 verða næsta útgáfa iX3,
i4 og iNEXT sem koma á markað
á næsta ári. Loks er von á rafdrif-
inni 7-línu árið 2022 með fimmtu
kynslóð eDrive-raftækninnar, en
fyrsti bíllinn búinn eDrive verður
iX3-rafjepplingurinn. Kerfið
parar saman rafmótor, skiptingu
og annan raf búnað í einu stykki
sem að einfaldar alla samsetningu
bílsins og minnkar þyngd hans.
Rafmögnuð framtíð BMW
Fyrstu bílarnir af
þessum 25 verða
næsta útgáfa iX3, i4 og
iNEXT sem koma á
markað á næsta ári.
Er bílnum ætlað að
sýna næstu kynslóð
raftækni Kia.
Meðal fyrstu
hinna 25 rafbíla
sem kynntir
verða á næstu
árum er nýr
BMW i4 sem
keppa á við
Tesla Model 3.
Það sést vel að bíllinn líkist Imagine
hugmyndabílnum frá því í fyrra.