Fréttablaðið - 04.08.2020, Blaðsíða 24
MG er nýtt merki á Íslandi sem
er í mikilli sókn á mörkuðum
erlendis. Hefur framkvæmda-
stjórn MG einsett sér að kynna
merkið í 100 löndum á næstu
árum og því þarf engan að
undra þótt bílar þessarar
gerðar reki á fjörur okkar.
Svona til að byrja með er gott
að útskýra aðeins hvað nafnið
MG ZS EV stendur fyrir. MG er
merki framleiðanda sem var
betur þekktur fyrir framleiðslu
sportbíla á sjöunda áratugnum.
Merkið er nú í eigu kínversku
samsteypunnar SAIC sem að hefur
hafið mikla markaðsherferð með
nafnið í Evrópu. ZS er upphaflega
bíll með brunahreyfli og varla
einu sinni jepplingur því að hann
er aðeins boðinn með framdrifi.
EV viðbótin kemur þegar bílnum
er breytt í hreinræktaðan raf bíl á
grunni gamla bílsins. Þar sem að
hann er nánast óbreyttur í útliti
þýðir lítið hjólhafið það að raf-
hlaðan er aðeins 44,5 kWst sem að
dugar honum fyrir 263 km akstur.
Vel búinn en …
Það vakna blendnar tilfinningar
við að setjast undir stýri á þessum
nýja bíl. Auðvitað er spennandi
að fá nýtt merki á markaðinn en
um leið setur maður upp betri
gleraugun enda margt sem er ekki
kunnuglegt eins og hjá öðrum
merkjum. Fyrir það fyrsta er um
vel búinn bíl að ræða í MG ZS EV og
þá sérstaklega Luxury-útgáfunni.
Má þar nefna rafdrifið ökumanns-
sæti, opnanlegt glerþak, bakk-
myndavél, fjarlægðarskynjara
og umferðarmerkjalesara. Hann
er dálítið klunnalegur í stjórn-
tækjum og hefur bílablaðamaður
Fréttablaðsins ekki séð skriðstilli
sem er jafn fyrirferðarmikill og í
þessum bíl. Það er ágætis upp-
lýsingakerfi í bílnum með Apple
Carplay en þar sem að hita-
stig er aðeins sýnt á skjánum í
miðjustokki, dettur það út þegar
kviknar á Apple Carplay. Miðstöð-
in er eins og í 50 ára gömlum bíl að
því leyti að maður sér rauðan og
bláan borða á upplýsingaskjánum
þegar hún er stillt, en aftur ekkert
hitastig. Loks er eins og bíllinn sé
einu númeri of lítill fyrir einhvern
Bíllinn með skrýtna nafnið
Reynsluakstur
Njáll
Gunnlaugsson
njall@frettabladid.is
KOSTIR OG GALLAR
MG ZS EV
Grunnverð: 3.990.000 kr.
Hestöfl: 143
Tog: 353 Newtonmetrar
0-100 km/klst: 8,5 sek
Hámarkshraði: 140 km/klst.
Rafhlaða: 44,5 kWst
Drægi: 263 km
L/B/H: 4.314/2.048/1.620 mm
Hjólhaf: 2.579 mm
Farangursrými: 470 lítrar
Eigin þyngd: 1.502 kg
n Verð
n Farangursrými
n Búnaður
n Hitamælir
n Miðstöð
n Enginn aðdráttur á stýri
KOSTIR GALLAR
Kostir:
Verð,
farangursrými,
búnaður
Gallar:
Hitamælir,
miðstöð,
enginn aðdráttur á stýri
Grunnverð: 3.990.000 kr
Hestöfl: 143
Tog: 353 Newtonmetrar
0-100 km/klst: 8,5 sek
Hámarkshraði: 140 km/klst
Rafhlaða: 44,5 kWst
Drægi: 263 km
L/B/H: 4.314/2.048/1.620 mm
Hjólhaf: 2.579 mm
Farangursrými: 470 lítrar
Eigin þyngd: 1.502 kg
Útlit MG ZS EV er nánast eins og á fyrri útgáfu með brunahreyfli og því er skögun meiri og hjólhaf í minna lagi. MYNDIR/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Búnaður er veglegur í Luxury útgáfu en ökumaður þarf að teygja sig í stýrið.
Rafmótorinn er aðeins 143 hestöfl
og sá eini sem er í boði eins og er.
Farangursrýmið er rúmgott og einn-
ig djúpt og frekar aðgengilegt.
sem er meðalmaður að stærð, og
finnst það vel á sætum sem eru
með bríkum á köntunum, og eru
aðeins of mjó. Eins þarf að teygja
sig í f lest, meira að segja rafmagns-
rúður þegar búið er að stilla sæti í
hentuga stillingu meðalmannsins.
Loks er enginn aðdráttur á stýri
sem er mikill ókostur í þessum
bíl. Bíllinn er samt rúmgóður og
höfuðrými ágætt sem og útsýni, en
síður í aftursætum. Farangursrými
er mjög gott eða 470 lítrar og ekki
hægt að kvarta yfir því.
Hefðbundið upptak
Ólíkt mörgum raf bílum er MG ZS
EV enginn kraftabíll og upptakið
svipað og í meðal fólksbíl. Hann er
líka fyrsti raf bíll sem undirritaður
hefur prófað sem að spólar ekki
við snögga inngjöf. Stýrið veitir
ekki mikla tilfinningu, en hægt er
að velja um þrjár akstursstillingar
á stýri sem gefa ekki svo mikinn
mun. Auk þess er hægt að segja
það sama um endurhleðsluna á
bremsum sem er með þrjár still-
ingar, sem gefa ekki mikinn mun í
akstri. Það er eins og vanti aðeins
upp á fjöðrun bílsins sem mætti
vera stífari, svo að ekki er eins
skemmtilegt að keyra þennan
eins og margan raf bílinn. Á móti
kemur að bíllinn er í léttara lagi
af raf bíl að vera. Loks verður ekki
komist hjá því að nefna sérstak-
lega afskiptasaman akreinavara
sem hendir bílnum til á akrein
ef að ökumaður vogar sér hálfan
metra frá vegbrún.
Milljón króna munur
Í samanburði við nýrri raf bíla er
helst að MG ZS EV líði fyrir saman-
burð á drægi, en ekki verði. Helstu
keppinautar hans væru nýkominn
Peugeot e-2008 eða Hyundai
Kona með minni rafhlöðunni.
Drægi MG-bílsins er 263 km
með 44 kWst rafhlöðu en Peu-
geot e-2008 er með 320 km drægi
og Hyundai Kona með 39 kWst
rafhlöðunni 289 km. MG ZS EV
er aðeins fyrir 50 kW hleðslustöð
sem þýðir að hann er 40 mínútur
að fara upp í 80 prósent hleðslu á
CCS-hleðslustöð. Verðið er hins
vegar MG bílnum í hag og vel það.
Hann kostar frá 3.990.000 kr. og
Luxury bíllinn 4.390.000 kr. sem
er ansi gott. Hyundai Kona kostar
5.290.000 kr. í Comfort-útgáfu með
minni rafhlöðunni og Peugeot
e-2008 kostar frá 4.650.000 kr. í
sinni ódýrustu útgáfu. Hægt er að
fyrirgefa honum nokkra smá-
galla fyrir þennan mun á verði, en
hann er um milljón krónum undir
sambærilegri samkeppni þessara
keppinauta.
Um vel búinn bíl er
að ræða í MG ZS EV
og má nefna rafdrifið
ökumannssæti og opn-
anlegt glerþak.
4 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 B Í L A R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
BÍLAR