Fréttablaðið - 05.08.2020, Page 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 0 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0
Mmm ...
Fullkomið
millimál!Besta
uppskeran
núna!
MENNTAMÁL Óvíst er hvernig til-
högun skólastarfs verður í haust
vegna fjölgunar COVID-19 tilfella.
Skólastjórar framhaldsskóla búast
jafnvel við að þurfa að grípa til fjar-
kennslu á ný, en á grunnskólastig-
inu er róið að því að halda starfinu
óbreyttu fyrir nemendurna.
Framhaldsskólar hefjast f lestir
upp upp úr miðjum ágúst en grunn-
skólar að jafnaði viku síðar.
Magnús Ingvason, skólameistari
Fjölbrautaskólans við Ármúla, segir
kennara nú undirbúa önnina, hvort
sem um verði að ræða stað- eða fjar-
kennslu. „Við bíðum aðeins eftir því
hvernig mál þróast, en ég hef látið
kennara vita að mögulega verði
byrjað á fjarkennslu,“ segir hann.
Ingi Ólafsson, skólastjóri Verzl-
unarskólans, segir að verið sé að
teikna upp sviðsmyndir sem miði
við skilaboð almannavarna um
fjölda í hverju rými og hvort tveggja
metra reglan verði í gildi.
„Ef ekki verður hægt að hefja
kennslu með hefðbundnum hætti,
þá verður farið í fjarkennslu með
svipuðu sniði og á síðustu önn,“
segir hann. Sambland af stað- og
fjarkennslu komi einnig til greina.
Sigrún Björnsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar, segir unnið
að skipulagi grunnskólastarfsins í
samvinnu við stjórnendur.
„Meginmarkmiðið er að tryggja
að starfið haldist óbreytt fyrir
börnin og unglingana,“ segir Sigrún.
„Í því samhengi verður höfuðáhersl-
an lögð á smitgát milli starfsfólks í
daglegu starfi og milli foreldra og
starfsfólks.“ Eigi þetta meðal annars
við um aðgengi að sameiginlegum
skóla- og frístundarýmum.
Fundað var í neyðarstjórn Reykja-
víkurborgar í gær, en frekari tilmæli
um skólastarf hafa ekki borist frá
almannavörnum. Núverandi tak-
markanir gilda til 13. ágúst en eiga
ekki við um börn á grunnskólaaldri.
„Maður veit aldrei hvað gerist,
hvort þurfi að hafa eitthvað raf-
rænt og annað í stofu, en það verð-
ur leitast eftir að halda náminu
óbreyttu,“ segir Sigrún. Í vor þurfti
að skammta bekkjum tíma.
Sigurjón Ólafsson, sviðsstjóri
þjónustu- og þróunarsviðs Hafnar-
fjarðar, á von á að sveitarfélögin
samræmi aðgerðir. Fundað hafi
verið í gær og fundur verði aftur
í vikunni. „Þá búumst við við því
að línurnar verðir orðnar skýrari,“
segir hann. – khg, bþ
Óvissa með skólastarf í haust
Fundahöld og undirbúningur er nú í gangi fyrir skólaveturinn. Skólastjórar framhaldsskóla gera allt eins
ráð fyrir fjarkennslu á ný. Grunnskólar vonast til að geta haldið starfinu óbreyttu fyrir nemendur sjálfa.
Ef ekki verður hægt
að hefja kennslu
með hefðbundnum hætti þá
verður farið í fjarkennslu
með svipuðu
sniði og á
síðustu önn.
Ingi Ólafsson,
skólastjóri
Verzlunarskólans
SJÁVARÚTVEGUR Helgin reyndist
farsæl á makrílslóð. Að sögn Ómars
Sigurðssonar, skipstjóra á Aðalsteini
Jónssyni SU-11, voru fjölmörg skip að
fá allt upp í 300 tonn í hverju kasti.
„Þessir blettir sem menn hitta á
hverfa oft eftir rúmlega sólarhring,
svo þarf að fara að leita aftur,“ segir
Ómar.
Theodór Þórðarson, skipstjóri á
Venus NS-150, segir göngur makr-
ílsins breyttar frá fyrri árum. Hins
vegar sé engan bilbug að finna á
miðunum: „Það verður reynt við
þetta fram í rauðan dauðann,“ segir
Theodór. – thg / sjá síðu 4
Helgin gjöful á
makrílveiðum
Það verður reynt
við þetta fram í
rauðan dauðann.
Theodór Þórðarson,
skipstjóri á Venus NS-150
Stór sprenging varð við höfnina í Beirút í Líbanon í gær og varð gríðarleg eyðilegging á svæðinu. Samkvæmt heilbrigðisyfirvöldum í landinu voru minnst fimmtíu manns látnir og þúsundir
slasaðar er Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Vísa þurfti fjölda slasaðra frá sjúkrahúsum borgarinnar því þau voru yfirfull. Ekki er ljóst hvað olli sprengingunni. Sjá síðu 8 MYND/GETTY