Fréttablaðið - 05.08.2020, Side 10
ÁSTAND HEIMSINS
Stór hópur fólks tók þátt í mótmælum í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, í gær
til stuðnings sjálfstæðisbaráttu Hong Kong. Mótmælin voru fyrir framan
kínverska sendiráðið í borginni og báru mótmælendur grímur.
Á meðan
margir Evrópu-
búar njóta
sólar og sumars
mokuðu þessir
menn djúpan
snjó sem fallið
hafði við Zug-
spitze, hæsta
fjall Þýskalands,
í gær. Sam-
kvæmt þýsku
veðurstofunni
féllu 20 sentí-
metrar af snjó á
svæðinu í gær-
morgun.
MYNDIR/GETTY
Tata Traoré, starfsmaður Grand Rex-kvikmyndahússins í París, læsti dyrum
bíósins í gær og verða þær ekki opnaðar aftur fyrr en í fyrsta lagi þann 26.
ágúst næstkomandi. Aldrei fyrr hefur kvikmyndahúsinu, sem tekur 2.800
manns í sæti, verið lokað í svo langan tíma, en það var til að mynda opið á
meðan seinni heimsstyrjöldin geisaði.
Mikill viðbún-
aður var hjá
þýsku lög-
reglunni í gær,
eftir að þrír
grímuklæddir,
vopnaðir menn
rændu Volk-
bank-bankann í
Berlín. Ræn-
ingjarnir voru
með byssur og
varð einn ör-
yggisvörður við
bankann fyrir
skoti og særðist
á öxl.
Fjöldi slökkviliðsmanna og sjálfboðaliða berst við að ná tökum á miklum skógareldum sem geisa í Abruzzo-
héraði á Ítalíu. Bæði þyrlur og flugvélar hafa verið notaðar við slökkvistörf sem staðið hafa yfir dögum saman.
5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð