Fréttablaðið - 05.08.2020, Side 28
Víða um heim eru gerðar þær kröfur að fólk klæðist and-litsgrímum vegna heimsfaraldursins. COV I D -19 va r í
rénun hér á landi en það virðist þó
að einhverju leyti vera að breytast
og er nú frekar kallað eftir því að
við Íslendingar tökum okkur til og
berum grímur. Margir kjósa að nota
margnota grímur, umhverfisins
vegna. Mörg íslensk fyrirtæki og
hönnuðir standa nú í ströngu við
að panta eða sauma grímur. Hér
má sjá nokkur dæmi um hvað til
boða stendur fyrir þá sem vernda
sig sjálfa en umfram allt aðra með
grímunotkun.
steingerdur@frettabladid.is
Margnota grímur fyrir
okkur sjálf, aðra og umhverfið
Þrátt fyrir að grímunotkun hafi ekki verið
mikil í vor má búast við að það sé nú að
breytast, sér í lagi eftir að aukin krafa var
gerð um slíkt hérlendis. Það er um að gera
að velja sé einhverja fallega og margnota,
fyrir mann sjálfan, aðra og umhverfið.
johannasaeberg
Hinn ungi og efnilegi hönnuður Jóhanna María Sæberg gerir grímur. Sumar eru handmálaðar og aðrar sérhannaðar.
Hildur Yeoman er með grímur gerðar
úr sínum sérhönnuðu efnum til sölu í
búð sinni við Skólavörðustíg.
Verslunin Rokk og rómantík á Laugavegi stendur nú í ströngu við að sauma fleiri grímur. Þær verða til sölu í
búðinni strax í dag, að sögn verslunarstjórans Karlottu Halldórsdóttur, og koma í fleiri litum þegar á líður.
Á heimasíðu
FashionNova er
hægt að panta
og fá sendar til
landsins flottar
margnota grímur.
Í Hókus Pókus hefur verið hægt
að fá áþekkar grímur en þær eru
væntanlegar aftur á næstu dögum.
5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ