Fréttablaðið - 07.08.2020, Blaðsíða 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656,
Framhald af forsíðu ➛
Hljómsveitin Sólstafir til-kynnti nýverið útgáfu nýrrar plötu, sem ber heitið
Endless Twilight of Codependent
Love og kemur út 6. nóvember.
Aðalbjörn Tryggvason, söngvari
Sólstafa, segir að platan hafi verið í
vinnslu í um eitt og hálft ár og það
hafi hist vel á fyrir sveitina að með-
limir hennar hafi verið uppteknir
við plötugerð og barneignir á
meðan heimsfaraldurinn stendur
yfir. Hann segir að það skemmti-
legasta við að vera í hljómsveit sé
að vita aldrei hvað kemur út úr því
að hittast og töfra eitthvað fram
með félögunum.
Aðalbjörn býr einn í miðbæ
Reykjavíkur, en hann er nýbak-
aður faðir og barnsmóðir hans býr
annars staðar með barni þeirra
og syni sínum. „Ég eyði miklum
tíma með þeim og undanfarið hef
ég verið í dagvinnu við að smíða,
þannig að ég hef mætt í vinnu sjö
á morgnana, fer svo og eyði tíma
með stelpunni og kem heim um tíu
á kvöldin,“ segir hann.
Aðalbjörn talar líka inn á teikni-
myndirnar Bubbi byggir og Sammi
brunavörður. „Það er skemmtilegt
aukastarf en þetta er erfiðara en
maður heldur,“ segir hann. „Ég er
til dæmis að talsetja með Ladda
og Steini Ármanni og þeir eru svo
mikil „legend“ að maður á aldrei
séns í að vera eins góður.
En ég er kominn í frí frá smíða-
vinnunni og er farinn að sinna
Sólstöfum. Nú hefst kynningar-
starfið fyrir plötuna og í næstu
viku er ég að fara í þrjú til fjögur
viðtöl á dag. Þó að platan komi
ekki út fyrr en í nóvember þá er
líka alls konar vinna sem fylgir
því að gefa út smáskífurnar og við
þurfum að græja ólíkar útgáfur af
plötunni og plötuumslög fyrir þær.
Platan kemur út á geisladisk, vínyl,
kassettu og í svaka fínum kassa
úr svörtu leðurmixuðu flaueli.
Síðasta plata, Berdreyminn, var
gefin út í trékassa og við höfum
gert alls konar, klakabox, fána og
ég veit ekki hvað. Þannig að ég er í
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is Nýjasta plata Sólstafa heitir
Endless Twilight
of Codepend-
ent Love og
hún kemur út
6. nóvember
næstkomandi.
Aðalbjörn segir
að nýja platan
hafi verið í
vinnslu í um eitt
og hálft ár og
hann sé mjög
sáttur við hana.
Fyrsta lagið er
komið út og
heitir Akkeri,
en það er von á
tveimur öðrum
smáskífum
fyrir útgáfu
plötunnar.
skrifstofuhljómsveitarvinnu, sem
ég skráði mig nú reyndar aldrei í,“
segir Aðalbjörn léttur.
Þyngri áhrif laumast inn
Aðalbjörn hlustar minna á tón-
list í frítímanum en áður. „Eftir
að ég varð flakkandi tónlistar-
maður sem spilar kannski á 200
tónleikum á einu ári hefur þetta
minnkað. Ef ég er heima hlusta ég á
dót eins og Thin Lizzy, Neil Young
og Townes Van Zandt, en þegar ég
fer í ræktina tek ég oft einhverja
plötu fyrir. Til dæmis gamlar
dauðarokksplötur sem ég hef ekki
hlustað á lengi eða einhverja nýja
svartmálmsplötu,“ segir hann. „Ég
er líka með annað verkefni, sem er
Crust punk-hljómsveit og hef verið
í miklum rannsóknum fyrir það í
eitt til tvö ár.
Eftir að hafa gert svona þunga
Crust punk-plötu og öskrað aðeins
meira laumaðist smá af þeim
fíling á nýju Sólstafaplötuna,
það er meira um öskur en hefur
verið á síðustu þremur plötum.
Í fyrra túruðum við líka í tilefni
af tíu ára afmæli plötunnar Köld
og spiluðum hana í heild um alla
Evrópu,“ segir Aðalbjörn. „Þá
enduruppgötvaði ég ást á því að
spila þyngri tónlist á sviði. Það var
mjög gaman að taka hraðari lög og
svo erum við líka svo miklu meiri
fagmenn núna. Við erum með
betri græjur, okkur eigið starfsfólk
og erum ekki lengur fullir að spila.
Þetta var öðruvísi.
Svo komum við á æfingar og
þá koma út þyngri riff og öðru-
vísi hugmyndir. Það er svo fyndið
hvernig allar upplifanir og allt
sem þú gerir hefur áhrif á einn eða
annan hátt. En á sama tíma og ég
er að fá þyngri áhrif er Sævar gítar-
leikari bara að stúdera Pink Floyd
og hann kemur inn með allt aðrar
áherslur.“
Þrjár dauðadrukknar
eiginkonur
Sólstafir hafa náð miklum árangri
á erlendum vettvangi og Aðal-
björn þakkar það þrautseigju fyrst
og fremst. „Það og ást á því sem
við erum að gera. Verðlaunin eru
skrítin, við slógum aldrei í gegn
á einni nóttu og urðum ríkir og
frægir. Þetta hefur verið mjög hæg
þróun, en við höfum alltaf verið
á uppleið og það hefur haldið
okkur að verki. Það eru komin tíu
ár síðan við fórum að ferðast um
heiminn, en hin tíu árin vorum við
að spila í bílskúr í Breiðholti eða
fullir á Grand Rokk tvisvar á ári.
Þannig að þetta er svona tvískipt.“
Hann segir að í gamla daga
hafi verið mikið fyllerí í kringum
hljómsveitina, en nú drekkur
bara einn í sveitinni og það mjög
hóflega. „Þetta er allt annað. Við
vorum komnir út á hálan ís þegar
brennivínsneyslan var sem öfga-
fyllst. Þetta var eins og að eiga
þrjár eiginkonur sem eru dauða-
drukknar og að rífast á hverjum
degi. Það nennir því enginn.“
Eins og Ísland í stríðinu
Aðalbjörn segir að Sólstafir hafi
verið heppnir í heimsfaraldr-
inum. „Við erum svolítið eins og
Ísland í seinni heimsstyrjöld, það
eru margir sem hafa það slæmt,
en ekki við. Við vorum búnir að
ákveða að nota tímann í plötu-
gerð og barneignir og það hægðist
á öllu,“ segir hann. „Ég eignaðist
barn í apríl og Hallgrímur tromm-
ari eignaðist son í byrjun júlí,
þannig að við þurftum ekki að
aflýsa neinum tónleikum, þó að
tónlistarhátíðum sem við áttum
að spila á hafi reyndar verið aflýst.
Það hefði komið tónleika-
ferðalag núna í haust, en það er
allt lokað og það þýðir ekkert að
æsa sig yfir því,“ segir Aðalbjörn.
„Það er kaldhæðnislegt að þetta
var svona vel tímasett, þetta hefði
getað verið miklu verra. En það var
auðvitað skrítið að eignast barn í
miðjum heimsfaraldri og það var
leiðinlegt að það mátti enginn fara
á spítalann. En við getum ekki
kvartað.“
Ekkert eitt lag sem
lýsir plötunni
„Það er eitt og hálft ár síðan við
byrjuðum að semja nýju plötuna,
en langmest gerðist síðustu fjóra
mánuðina,“ segir Aðalbjörn. „Ég
er mjög sáttur við hana. Það eru
mörg góð lög á henni og þau er
mismunandi, það er ekkert eitt lag
sem lýsir henni.
Það er aldrei neitt planað þegar
við semjum. Við hittumst bara til
að fara að gera plötu og sjáum hvað
gerist. Einn daginn kemur einhver
með hugmynd og svo verður það
eitthvað gott. Þetta er kannski
það skemmtilegasta við að vera í
hljómsveit, einhvers konar töfrar
eiga sér stað þegar þú ert að galdra
með vinum þínum. Þú veist ekkert
hvað kemur.“
Fyrsta lagið af nýju plötunni
er komið út og heitir Akkeri. Von
er á tveimur öðrum smáskífum
fyrir útgáfu plötunnar. „Þetta er
fyrsta lagið á plötunni og ef það er
nógu sterkt til að opna plötuna er
það nógu sterkt til að vera fyrsta
smáskífan,“ segir Aðalbjörn. Hann
segir að nokkur lög á plötunni hafi
verið í uppáhaldi hjá sér, en lagið
Rökkur standi líklega upp úr. „Það
er mjög öðruvísi, smá Nick Cave-
fílingur í því. Ég get hlustað á þetta
núna, en svo get ég ekki hlustað á
tónlistina okkar þegar við erum
búnir að fara með hana á tónleika-
ferðalag. Þetta skemmist eiginlega,
á skrítinn hátt. Þegar ég er búinn
að spila eitthvað 700 sinnum tengi
ég bara við „live“ útgáfuna, en ekki
útgáfuna sem er á plötunni.“
Kunna lögin ekki
Aðalbjörn er ekki viss hvernig
kynningarstarfinu fyrir nýju
plötuna verður háttað. „Við héldum
stutt streymi fyrir blaðamenn um
daginn sem gekk ágætlega, en við
þurfum líka að læra að spila plötuna
áður en við getum haldið tónleika.
Við kunnum ekki lögin á þessari
plötu,“ segir hann. „Við semjum svo
mikið svo hratt og það gerist mikið
í einu. En svo tökum við eitt lag
fyrir í einu og lærum það. Það hefur
alltaf verið þannig. Ef við ætlum að
fara að kynna þetta lærum við eitt
eða tvö lög og skellum svo gömlum
slögurum með. Kannski gerist það á
næstunni, annars bíður þetta bara
til næsta árs.
Það er mikið talað um það í tón-
leikaheiminum hvort heimurinn
verði tilbúinn fyrir stórar tón-
listarhátíðir næsta sumar. En fólk
heldur í vonina,“ segir Aðalbjörn.
„Þegar allt opnar aftur verður flóð.
Það verða allir staðir bókaðir alla
daga og samkeppnin verður svo
hörð að það verður ringulreið, því
fólk á ekki endalausa peninga til
að ferðast og fara á tónleika.
Svo er líka spurning hvaða
hátíðir og tónleikastaðir lifa þetta
af, það er mikil óvissa,“ segir Aðal-
björn. „En ekkert er ómissandi. Ef
Wacken fer á hausinn kemur bara
Spracken árið eftir. Kirkjugarð-
arnir eru nú yfirfullir af ómissandi
fólki.“
Það er aldrei neitt
planað þegar við
semjum. Við hittumst
bara til að fara að gera
plötu og sjáum hvað
gerist.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R