Fréttablaðið - 07.08.2020, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 07.08.2020, Blaðsíða 30
VIÐ ERUM AÐ VINNA MEÐ FYRIR FERÐAR­ MIKLA FÁGUN. Jóhanna Rakel ÞAÐ KEMUR STRAX Í LJÓS AÐ ÞESSAR KONUR ERU FÁR SJÚKAR AF Á HYGGJUM. Salka Valsdóttir Þetta átti upp haf lega að vera glað leg og hress plata um sumar frí og sælu en út göngu bann o g h e i m s á hy g g ju r lögðu sitt af mörkum,“ segir Salka Vals dóttir, annar með­ limur tví eykisins Cyber, um nýjustu plötu hljóm sveitarinnar, Vacation. Jóhanna Rakel, hinn hluti tví­ eykisins, tekur undir. „Þetta varð frekar skrítinn bræðingur af svaka­ legum kvíða og á hyggjum í bland við drauma og frí.“ Það liggur á milli hluta hvort Vacation sé önnur eða þriðja plata Cyber en þær hafa einnig gefið út fjórar smá skífur. „Við erum búnar að á kveða að þetta sé önnur breið­ skífan okkar,“ segir Jóhanna á­ kveðin og bætir við að það sé allt of full orðins legt að vera að gefa út þriðju plötuna. „Já, það væri bara frekar kvíða valdandi,“ skýtur Salka inn í. Pressa að líða vel Tón l i s t a r konu r n a r sköpu ðu bróður part nýju plötunnar í út­ göngu banni í Ber lín þar sem þær bjuggu á há punkti far aldursins. „Við vorum bara fastar heima að horfa á þætti milli þess sem við sömdum tón list um ein hverjar strendur, nætur klúbba og aðra hluti sem voru ekki innan seilingar,“ segir Salka kímin. Ekki hafi það heldur bætt úr skák að á fyrstu vikum sam komu­ bannsins hafi borið veru lega á þeim skila boðum að nú væri tíminn til að verða besta út gáfan af sjálfri sér. Allt snerist um að ná þessari full komnu rútínu sem inni hélt hug leiðslu, heima æfingar og sjálfs hjálpar boð­ skap, að sögn Jóhönnu. „Það var rosa lega mikil pressa á að líða vel í þessu stór furðu lega á­ standi og það áttu allir að vera dug­ legir og gera rosa mikið.“ Á sama tíma kviknaði spurningin um hversu af slöppuð væri hægt að vera á meðan heimurinn logaði. Fár sjúkar konur Það lá fyrir að sækja inn blástur í á standið en því var ætíð haldið til streitu að loka út koman yrði popp­ plata. Því mark miði var svo sannar­ lega náð en upp lífgandi lag línurnar stinga þó nokkuð í stúf við kvíða­ þrungna textana. „Ef maður hlustar að eins á text­ ann þá kemur strax í ljós að þessar konur eru fár sjúkar af á hyggjum,“ segir Salka og bendir á að þemu á Bræðingur af kvíða og sumarsmellum Platan Vacation með hljóm sveitinni Cyber kom út í dag en um er að ræða óð til sumar frís og skemmti staða á tímum sam komu banns og sótt kvíar. Útgöngubann og heimsáhyggjur hafi þó haft sín áhrif við gerð plötunnar. Tón listar konurnar sköpuðu bróður part nýju plötunnar í út göngu banni í Ber lín þar sem þær bjuggu á há punkti far aldursins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI borð við val kvíða og stress fái veiga­ mikið hlut verk á plötunni. „Eitt lagið er bara um að sitja á drauma ströndinni og geta ekki hætt að horfa á símann sinn.“ Það sé eitt af vanda málunum sem eru farin að herja á nú tíma manninn. „Það skiptir ekki máli hvort maður er að lifa lífinu sem alla á Insta gram dreymi um, maður er alltaf að bíða eftir ein hverju meira spennandi.“ Fyrir ferða rmikil fágun Út lit Cyber hefur tekið stökk­ breytingum í gegnum árin og ó hætt að segja að hljóm sveitin hætti aldr­ ei að koma á ó vart. Þær byrjuðu í pastel litum, færðu sig síðar yfir í latex og þaðan í jakka föt en það sem hefur nú tekið við er erfiðara að út skýra. „Við erum að vinna með fyrir­ ferðar mikla fágun, sem er nokkuð brot hætt fyrir bæri,“ segir Jóhanna í byggin á svip. Þær segja stílinn vera inn blásinn af há stéttar 18.  aldar tísku í anda Mari e Antoinette í bland við sumar frí á partí strönd á I biza. Salka og Jóhanna viður kenna að COVID hafi einnig haft á hrif á nýja út litið. Undir himin háu hári þeirra leynist nefni lega klósett pappírs­ rúlla. Báðar upp lifðu þær klósett­ pappírs skort í Þýska landi og vilja nú vera við öllu búnar. „Þetta er fínasta redding, maður getur alltaf vippað pappírnum út ef þess gerist þörf.“ Vegna á standsins verður ekki blásið til út gáfu tón leika í til efni plötunnar í bráð. „Það er bara ekki í boði.“ Mögu lega verði reynt að halda tón leika á næsta ári. „Í kvöld förum við kannski bara og skálum í tveggja metra fjar lægð.“ kristlin@frettabladid.is MAN. CITY vs REAL MADRID FÖSTUDAG 18:50 Tryggðu þér áskrift í dag á stod2.is 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R26 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.