Fréttablaðið - 07.08.2020, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 07.08.2020, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 7 2 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 7 . Á G Ú S T 2 0 2 0 Nýr Škoda Superb iV Rafmagn & bensín Verð frá 5.190.000 kr. hekla.is/skodasalur · Sími 590 5000 · Laugavegur 170 · HEKLA FERÐAÞJÓNUSTA Mikil vandræði hafa verið við útgreiðslu andvirðis Ferðagjafarinnar til einstaklinga og fyrirtækja sem tóku þátt í átaks- verkefni stjórnvalda. Alls áttu 668 aðilar von á greiðslu frá Fjársýslu ríkisins í byrjun mánaðarins. Svo fór að 355 aðilar fengu greiddar út alls um 137 milljónir króna en 313 þátt- takendur þurftu að bíta í það súra epli að fá ekki greitt eins og þeim bar. Í svari frá atvinnu- og nýsköp- unarráðuneytinu segir að ástæðan sé sú að stór hluti þátttakenda hafi ekki skráð inn bankaupplýsingar. „Unnið er að því að fá banka- upplýsingar frá fyrirtækjum og einstaklingum og hafa nú borist upplýsingar frá 181 aðila sem mun fá greitt samtals 43.302.961 krónu í upphafi næstu viku,“ segir Guðrún Gísladóttir, skrifstofustjóri fjár- laga, rekstrar og innri þjónustu hjá atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu. Einn þeirra sem fengu ekki greitt er Björn Baldursson, eigandi Surf & Turf á Selfossi. „Ég hef tekið við um 150 Ferðagjöfum á mínum veitinga- stað enda bauð ég 2.000 krónur til viðbótar hverri gjöf,“ segir Björn. Hann hafi búist við um hálfri millj- ón um mánaðamótin og sé verulega ósáttur við að það dragist. „Þeir sem standa að þessu halda því fram að ég hafi ekki skilað inn bankaupp- lýsingum en það er einfaldlega lygi. Það segir sig sjálft að þegar svona stór hluti á að hafa gleymt að skrá inn upplýsingarnar þá er eitthvað í ólagi. Þetta er að mínu mati illa unnið,“ segir Björn. Ari Steinarsson, framkvæmda- stjóri Yay ehf. sem hannaði og rekur Ferðagjafarappið, segir að fyrirtæk- ið muni læra af reynslunni. „Eitt af því sem við hefðum getað gert betur var að setja kerfið þannig upp að fyrirtæki geti ekki skráð sig í kerfið án þess að gefa upp þessar upplýs- ingar. En það var lagt upp með frá byrjun að gera skráninguna fyrir fyrirtækin sem einfaldasta, svo þess vegna er þetta svona,“ segir Ari. – bþ Mikil vandræði við útgreiðslu 47 prósent þeirra fyrirtækja sem áttu von á útgreiðslu andvirðis Ferðagjafar ríkisins um mánaðamótin fengu ekki greitt því að bankaupplýsingar vantaði. Ósáttur eigandi veitingahúss segir ferlið illa unnið. Ég hef tekið við um 150 Ferðagjöfum á mínum veitingastað enda bauð ég 2.000 krónur til viðbótar hverri gjöf. Björn Baldursson, veitingamaður á Selfossi STJÓRNSÝSLA Capacent varð við ósk Þingvallanefndar um að fella niður helminginn af 1,5 milljóna reikningi vegna umdeildrar þjónustu vegna ráðningar þjóðgarðsvarðar. Fyrirtækið varð gjaldþrota áður en tókst að ljúka málinu en þjóð- garðurinn hefur gert kröfu í þrotabú fyrirtækisins. Formaður Þingvalla- nefndar segir að peningarnir myndu koma sér vel fyrir þjóðgarðinn sem glímir við fjárhagserfiðleika í kjölfar COVID-19. Málið sem um ræðir er mál Ólínu Þorvarðardóttur, fyrrverandi alþing- ismanns, sem fékk 20 milljónir króna í bætur frá ríkinu eftir að kærunefnd jafnréttismála komst að þeirri niður- stöðu að brotið hefði verið á Ólínu er gengið var fram hjá henni við ráðn- ingu þjóðgarðsvarðar. – gar / sjá síðu 4 Lofuðu að borga en urðu gjaldþrota Það getur tekið á að hoppa í stærsta hoppukastala heims líkt og sjá má á mæðusvip barnsins sem hvíldi sig á toppi kastalans í gær. Hoppukastalinn sem ber heitið Skrímslið er staðsettur við Perluna í Öskjuhlíðinni í Reykjavík og er rúmir sautján hundruð fermetrar að stærð. Hoppukastalinn verður opinn alla daga í ágúst ef veðurguðirnir verða örlátir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.