Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 4
Auglýsingavirði um-
fjallana erlendra miðla um
herferðina er metið á um
2,3 milljarða króna.
✿ Öskurherferðin í tölum frá 15. júlí
Ferðaáhugi til Íslands jókst um
19% í Bandaríkjunum og Kanada.
600 þúsund hafa heimsótt vef verkefnisins.
44 þúsund hafa skilið eftir streitulosandi öskur.
Ísland fór í fyrsta sæti úr þriðja
á öllum markaðssvæðum sem
ákjósanlegasti áfangastaðurinn.
Samkvæmt Icelandair jókst fjöldi
leita á bókunarvélinni um 17% á
fyrstu tveimur vikum herferðar-
innar frá vikunni áður.
800 umfjallanir í erlendum miðlum.
Ferðaáhugi hjá markhóp Yougov
jókst um 49% á markaðssvæðum.
Heimildir: Swayable, Íslandsstofa og Yougov Destination Index.
FERÐAÞJÓNUSTA Fyrsti mánuður
markaðsherferðarinnar Ísland –
saman í sókn, hefur farið vel af stað
ef marka má mælingar greiningar-
fyrirtækjanna Swayable og Yougov
ásamt greiningum Íslandsstofu.
Seinni bylgja COVID-19 farald-
ursins á Íslandi og erlendis hefur
þó sett strik í reikninginn varðandi
ímynd Íslands sem áfangastaðar
en Daði Guðjónsson, fagstjóri
neytendamarkaðssetningar hjá
Íslandsstofu sem stýrir markaðs-
herferðinni, bendir á að átakið sé
hugsað til lengri tíma.
„Þetta er ímyndarherferð, ekki
söluherferð. Ég horfi smá á þetta
eins og kosningar. Þú byrjar ekki
að auglýsa á kosningadeginum. Þú
þarft að byggja upp vitund, áhuga,
vinna í viðhorfi, þannig að þegar
kemur að kosningadegi eru ein-
hverjir aðilar tilbúnir að kjósa þig.
Ef þú bíður of lengi verða aðrir fram-
bjóðendur fyrir valinu,“ segir Daði.
„Þetta er ekki auðvelt. Maður þarf
að taka allt með í reikninginn.“
Markaðsherferðin Looks like you
need Iceland jók áhuga á ferðum til
Íslands um 17 prósent í Þýskalandi í
síðasta mánuði. Um fjórar milljónir
Þjóðverja horfðu á myndbandið og
400 þúsund Danir. Öskurherferðin,
eða Let it out, hefur fengið yfir 800
umfjallanir í erlendum miðlum
síðan henni var ýtt úr vör 15. júlí.
Grófir útreikningar Íslandsstofu
benda á að auglýsingavirði þeirra
umfjallana sé metið á 2,3 milljarða.
Rúmlega 20 milljónir notenda
hafa orðið varir við kynningarefni
markaðsátaksins á samfélagsmiðl-
um. Yfir ellefu þúsund stöðufærslur
vísa beint í herferðina. Alls hafa um
600 þúsund notendur heimsótt vef
verkefnisins og hafa rúmlega 44.000
þeirra gesta skilið eftir sig öskur.
Upphaflega markmiðið var að safna
20.000 öskrum yfir sama tímabil.
Daði vonast til að sjá eðlilegra
ástand um áramótin en segir að
verið sé að passa upp á fjármagn
verkefnisins núna í haust svo hægt
verði að eyða meiru í vor.
„Þetta seinkar ekki framleiðslu
en þetta seinkar kannski birtingu.
Það er ýmislegt sem við tökum með
í reikninginn. Aðstæðurnar annars
staðar, aðstæðurnar á Íslandi. Efna-
hagshrunið í Bretlandi og svona er
líka eitthvað sem við þurfum að
meta,“ segir Daði.
Ríkissjóður veitir verkefninu
1.500 milljónir króna á fjárauka-
lögum ársins 2020. Alls nemur
fjárfesting í öllum aðgerðum verk-
efnisins til þessa um 300 milljónum
króna, eða um 20 prósentum af því
sem til ráðstöfunar er til apríl 2021.
Íslandsstofa horfir á verkefnið
í þremur fösum. Fyrsti fasinn er
markaður sem skiptir Ísland máli
en er alveg lokaður og getur ekki
ferðast. Annar fasinn eru lönd sem
eru að opna landamæri sín og sá
þriðji eru lönd þar sem ástand er
eðlilegt. Engin lönd eru í þriðja fas-
anum eins og er.
Tvær herferðir hafa litið dagsins
ljós sem byggja á mismunandi hug-
myndafræði. Looks like you need
Iceland-herferðinni er beint að
löndum sem eru að opna landa-
mæri sín, þar á meðal Þýskalandi
og Danmörku. Fólki sem getur farið
að huga að því að ferðast til Íslands.
„Það myndi ekki ganga í Bandaríkj-
unum,“ segir Daði.
Öskurherferðin er unnin fyrir
Bandaríkin, Bretland og Kanada.
„Þar erum við meira að setja okkur
í þeirra spor. Það er útgöngubann,
þetta er erfitt tímabil, það er mikill
pirringur en við vitum um stað
sem er frábær staður til að losa um
streitu,“ segir Daði. Finna þurfti
skemmtilegan vinkil á þetta þunga
efni.
„Þar kemur þessi sálræna með-
ferð um að losa öskrið frá sér og þar
kemur tengingin við Ísland sem er
með svo mikla víðáttu,“ segir Daði
en sú herferð er gerð til að segja við
fólk: „Við skiljum ykkur og getum
verið lausn í framtíðinni.“
mhj@frettabladid.is
Seinni bylgja COVID seinkar
birtingum í ímyndarherferð
Ríkissjóður veitti verkefninu Ísland – saman í sókn 1.500 milljónir króna á fjáraukalögum ársins 2020.
Alls nemur fjárfesting í öllum aðgerðum verkefnisins til þessa um 300 milljónum króna. Fagstjóri hjá Ís-
landsstofu segir seinni bylgju faraldursins líklega seinka birtingu á markaðsefni frekar en framleiðslu.
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
HÚS NÆ ÐI S M ÁL Velferðarnefnd
Alþingis hélt áfram umfjöllun sinni
um frumvarp félagsmálaráðherra
um hlutdeildarlán á fundi sínum
í gær. Drög að breytingartillögum
meirihluta nefndarinnar hafa verið
send hagsmunaaðilum til umsagnar.
Afgreiðslu málsins, sem er hluti
af aðgerðum stjórnvalda í tengslum
við gerð Lífskjarasamningsins, var
frestað á þingi í júní með það að
markmiði að klára það þegar þing
kemur aftur saman í lok ágúst.
Úrræðinu er ætlað að auðvelda ungu
fólki og tekjulágum að komast inn á
húsnæðismarkað.
Verkalýðshreyfingin leggur mikla
áherslu á afgreiðslu málsins en hefur
gagnrýnt ýmsa þætti frumvarpsins.
Þannig leggur ASÍ mikla áherslu á
að tekjumörk verði felld út úr frum-
varpinu þannig að úrræðið verði
almennara.
Í drögum að breytingartillögum
meirihluta nefndarinnar er hins
vegar ekki brugðist við gagnrýninni
um tekjumörkin. Þar er hins vegar
að finna breytingartillögur sem
koma til móts við gagnrýni ASÍ. Þar
á meðal verður það tryggt að hlut-
deildarlánin verði vaxtalaus út láns-
tímann.
Þá er lagt til að felld verði brott
skylda lántaka til að verja skatt-
frjálsri ráðstöfun séreignarsparn-
aðar inn á lán sem komi á undan
hlutdeildarláni í veðröðinni.
Meðal annarra breytingartillagna
er að 20 prósent hlutdeildarlána
verði veitt til kaupa á íbúðum utan
höfuðborgarsvæðisins og vaxtar-
svæða. Einnig er lögð til undanþága
á landsbyggðinni frá því skilyrði að
hlutdeildarlán séu aðeins veitt
vegna kaupa á nýbyggingum. – sar
Ekki brugðist við gagnrýni ASÍ um tekjumörk hlutdeildarlána
SJÁVARÚTVEGUR Rétt undir 75 þús-
und tonnum af makríl hafði verið
landað á föstudag samkvæmt gögn-
um frá Fiskistofu. Um er að ræða ríf-
lega 45 prósent af því magni sem má
veiða á yfirstandandi kvótaári, að
meðtöldum yfirfærðum heimildum
frá síðasta ári og tilboðspottum
sjávarútvegsráðuneytisins fyrir
smærri skip.
Í ágústmánuði einum og sér hefur
um þriðjungi heildarmagnsins
verið landað, en verslunarmanna-
helgin reyndist sérstaklega fengsæl
hjá íslenska flotanum á makrílslóð.
Veiðar hófust óvenju snemma í ár,
eða í síðari hluta júnímánaðar. Þau
skip sem mestu hafa landað eru
Huginn VE-55 og Börkur NK-122,
hvort með um 6.300 tonn. – thg
Búið að veiða
tæpan helming
makrílkvótans
LÖGREGLUMÁL Gæsluvarðhald yfir
hinum grunaða við rannsókn á
brunanum við Bræðraborgarstíg
1 þann 25. júní síðastliðinn hefur
verið framlengt til 8. september.
Héraðsdómur Reykjavíkur kvað
upp úrskurð þess efnis í vikunni,
en Fréttablaðið hefur úrskurðinn
undir höndum.
Hinn grunaði er sagður liggja
undir sterkum grun um að hafa
framið manndráp af ásetningi
ásamt fleiri brotum. Í úrskurðinum
kemur fram að brotin sem um ræðir
geti varðað allt að ævilöngu fang-
elsi. – thg
Gæsluvarðhald
framlengt fram
í september
Þrír létust í brunanum 25. júní.
1 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð