Fréttablaðið - 15.08.2020, Page 22
Muna!
n Handþvottur
n 2 metra regla
n Handspritt
Konur eru líklegri en karlar til að mynda appelsínuhúð. Fitufrumum og samsafni
þeirra er haldið saman af kolla
genþráðum sem eru bundnir við
vöðvalög undir þeim. Þegar fitu
magn eykst eða ef kollagenþræðir
inir dragast saman, til dæmis við
hrörnun og aukinn aldur, veldur
það útbungun fituvefs með „holu
myndun“ á milli sem í daglegu tali
nefnist appelsínuhúð.
Þetta er ekki sjúkdómur heldur
öllu fremur ástand sem f lestar ef
ekki allar konur glíma við á lífs
leiðinni og karlar að hluta til líka.
Ýmsar skýringar eru taldar vera
á því hvers vegna sumir fá frekar
appelsínuhúð en aðrir, nægir þar
að nefna ættgenga þætti, ofþyngd,
hormónabreytingar, slæmt mat
aræði og hreyfingarleysi sem og
kynþátt. Hvítar konur eru líklegri
en asískar til að mynda appelsínu
húð svo dæmi sé tekið, en þetta er þó
fyrst og fremst einstaklingsbundið.
Hégómi kvenna og markaðsleg
misnotkun hans um langt skeið
veldur því að sífellt fleiri vörur, með
ferðir og aðferðir hafa litið dagsins
ljós í því skyni að meðhöndla app
elsínuhúð. Sumir lofa meira að segja
100% árangri sem auðvitað er hreint
út sagt kjánalegt. Auðvitað er þetta
ekki allt gagnslaust og ég efa ekki að
margir munu halda fram ágæti vöru
sinnar sem eðlilegt er.
Tímabundinn árangur
Rannsóknir um ágæti einstaka
þátta liggja fyrir, en árangurinn
er í besta falli tímabundinn eða
minniháttar. Hvort sem um er að
ræða krem, dropa, nudd, bakstra,
ljósameðferð, raf bylgjur, aðgerðir
á hefðbundinn máta eða með frost
og lasertækni.
Helsta vörnin ef kalla má svo
gegn appelsínuhúð er að vera reglu
bundið í góðu líkamlegu formi og
þjálfun, drekka nóg vatn, passa
mataræðið og þá sérstaklega fitu og
kolvetnishlutann. Megrunarkúrar
og mikil hreyfing á vigtinni getur
aukið líkur á appelsínuhúð og þá er
auðvitað mikilvægt að drekka ekki
of mikið af áfengi, kaffi né reykja
tóbak.
Hundraða milljarða iðnaður
Þegar öllu er á botninn hvolft er
iðnaðurinn í kringum appels
ínuhúð og hégóma kvenna mörg
hundruð milljarða króna virði á
ársgrundvelli um heiminn allan.
Því eru miklir hagsmunir í húfi og
sannfæringarmáttur auglýsinga auk
reynslusagna og óstaðfests með
ferðarárangurs verðmætur, hvað
þá staðalímynd kvenna sem stillt er
fyrir framan okkur á hverjum degi.
Þegar gefnar eru ráðleggingar
varðandi skyndilausnir getur niður
staðan aldrei orðið önnur en tíma
bundin. Við læknar og fagfólk sem
reynum að vinna með forvarnir og
almenna heilsueflingu að leiðarljósi
gerum að mínu viti meira gagn gegn
appelsínuhúð en við fáum lof fyrir,
því heilbrigð sál í hraustum líkama
er líklegri til að hafa síður minni
máttarkennd yfir líkama sínum og
viðhalda líkamlegu atgervi.
Húðin og appelsínur?
Appelsínuhúð er ekki sjúkdómur heldur ástand. MYND/GETTY
Bandaríska lyfjastofnunin FDA hefur sent út viðvaranir þar sem margar tegundir spritts
á markaði eru beinlínis taldar
heilsuspillandi. Greinilegt er að
sjálf sprottinn svindliðnaður er
kominn til í þessari slæmu krísu
sem við erum í á heimsvísu vegna
COVID19.
Óprúttnir aðilar hafa framleitt
slíka vöru sem inniheldur methanol
sem er eiturefni fyrir líkamann við
frásog og sérstaklega ef innbyrt. En
það er sama efni og við í daglegu tali
köllum tréspíra.
Alvarleg eitr unaráhr if geta
komið fram en methanoleitrun
getur verið lífshættuleg í ákveðnu
magni. Ýmis einkenni eitrunar, líkt
og ógleði, hausverkur, svimi, sjón
truf lanir og önnur einkenni frá
miðtaugakerfi geta komið fram.
Flestir þekkja þá sögu að af tré
spíra geti maður blindast. Í dag
eru tilvik í Bandaríkjunum tengd
þessari vöru þar sem slíkt hefur
gerst. Það hefur því verið gefinn út
listi sem í dag inniheldur meira en
100 mismunandi framleiðendur og
merki sem eru að selja og svindla
á spritti þar í landi og vafalítið eru
einnig slíkar vörur á Evrópumark
aði og víðar.
Það er mikilvægt að hafa varann
á og því miður eru engin takmörk
á því hvað fólk getur lagst lágt til
þess að búa til peninga á neyð ann
arra. Spritt drepur veiruna og er ein
meginstoð einstaklingsbundinna
sóttvarna. Sprittið þarf að inni
halda alkóhól í 70% styrk eða meira
til að gera gagn.
Spritt og svindl
Svindliðnaður hefur sprottið upp í
faraldrinum. MYND/GETTY
Einkenni hafa verið fjölmörg og er enn að vissu leyti deilt um orsakir og afleiðingar. Það virðist þó nokkuð ljóst að heilsufarsleg áhrif eru
til staðar og þau einstaklingsbundin
líkt og við þekkjum við ofnæmi.
Sumir finna fyrir köttum eða
grasi, aðrir ekki. Að vissu leyti gildir
hið sama um viðbragð líkamans við
sveppum og myglu.
Í dag er viðurkennt að slímhúðar
einkenni frá augum, nefi og lungum
virðast megineinkenni auk útbrota
í húð.
Fleira hefur verið nefnt eins og
þreyta, óljósir verkir, slappleiki,
svefntruf lanir og breyting á ein
beitingu og minni, sem hefur þá
fremur verið tengt við eitrunaráhrif
sem þessar lífverur hafa á miðtauga
kerfið.
Samspil ólíkra þátta
Enn hefur ekki verið fundin endan
leg niðurstaða hvað öll þessi atriði
snertir. Við vitum að mygla er allt
um kring og hefur alla jafna ekki
mikil áhrif á okkur. Það er samspil
raka og myglu, loftunar og ýmissa
annarra þátta svo sem efna og efna
samsetninga í húsnæði sem virðist
hafa áhrif á þá sem eru móttækilegir
og flækir myndina enn frekar.
Það eru til fjöldamargar undirteg
undir sveppa sem vert er að skoða og
greina enda er þekkt að þeir valda
alls ekki allir einkennum. Við lifum
daglega með sveppum í lífi okkar,
mörg þekkjum við sveppasýkingar
af öðrum toga en myglu sem hafa
áhrif á líkamann.
Þar má nefna naglsvepp sem
býsna margir glíma við, sveppa
sýkingar í slímhúðum sem er einn
ig algengt vandamál. Þá má ekki
gleyma alvarlegri sveppasýkingum
sem geta herjað á sjúklinga sem eru
ónæmisbældir eða glíma við mein
og/eða taka lyf sem draga tennurnar
úr ónæmiskerfinu. Allt skiptir þetta
miklu máli þegar kemur að grein
ingu, meðferð og nálgun á vandann.
Tímalengd útsetningar
Í tilfelli myglu og rakavanda virðist
svo vera að tímalengd útsetningar
skipti máli og þá að sama skapi felst
meðferð að hluta til í því að komast
burt úr því húsnæði sem skapar
einkennin, auk annarrar stuðnings
meðferðar og jafnvel lyfja.
Algengt er að heyra að viðkom
andi líði betur um helgar eða í fríi,
en finni svo f ljótlega aftur til ein
kenna við að snúa til baka. Ekki
eru til neinar afgerandi rannsóknir
til greiningar líkt og við þekkjum
til dæmis í hálsbólgu, þar sem við
greinum með skyndiprófi strepto
kokka. Við getum þá meðhöndlað
með einföldum hætti, iðulega með
sýklalyfi, en rétt greining skilar
réttri meðferð og skjótum bata.
Lífið er ekki alveg svo einfalt
þegar kemur að mygluvanda í hús
næði og einkennum sem fólk finnur
fyrir.
Vantar enn upp á þekkingu
Hægt er að átta sig með ýmsum
leiðum á því hvort húsnæði sé í lagi
eða ekki, en það er iðulega erfiðara
að tengja það beint við einkenni
sjúklingsins með mælanlegum
aðferðum.
Þess vegna skapar það okkur
ákveðinn vanda í allri umræðu og
samskiptum um þetta efni, það
vantar enn upp á þekkingu og
nálgun en við færumst nær.
Sá eða sú sem finnur fyrir óþæg
indum í umhverfi sínu sem við
komandi ekki getur skýrt vel, sér
staklega ef það innifelur í sér þau
einkenni sem ég taldi upp að ofan,
ætti að hafa það í huga að orsaka
valdurinn geti verið húsnæði það
sem hann býr og/eða vinnur í.
Fjölmargar aðrar orsakir og
algengari geta skýrt það sem við
komandi finnur fyrir en rétt er að
ræða það við lækni sinn og skoða
þá líka hvort aðrir í sama umhverfi
finni til þess sama. Það má þó árétta
að viðbragð og það hversu móttæki
leg við erum er mjög einstaklings
bundið.
Áhrif sveppa og myglu
Talsverð umræða hefur verið síðastliðin ár vegna mygluvanda og rakaskemmda í hús-
næði sem hafa áhrif á líf og líðan einstaklinga. Einkennin eru margvísleg og margþætt.
Samspil ólíkra þátta veldlur því að óþægindi verða af myglu. MYND/GETTY
Teitur
Guðmundsson
læknir
1 5 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð