Fréttablaðið - 15.08.2020, Page 24
Foreldrar mínir tóku við rekstrinum 1993 og þá var áherslum breytt,“ segir Íris
Jensen, sem svo tók við rekstrinum
árið 2014 ásamt eiginmanni sínum
Grétari Þór Grétarssyni. Fyrir-
tækið leggur áherslu á persónulega
og góða þjónustu. „Þetta er algjört
fjölskyldufyrirtæki. Maðurinn
minn er í annarri vinnu, en kemur
svo alltaf upp í búð að vinnudegi
loknum. Og ef foreldrar mínir eru
ekki á staðnum, þá eru börnin
hérna. Svo bíð ég bara eftir að
ömmubörnin mæti á vaktina,“
segir Íris og hlær.
Innréttingar og tæki selur í
dag afar vandaða sérvöru fyrir
baðherbergi. Til að mynda fást
þar baðinnréttingar, sturtuklefar,
hreinlætisvörur og blöndunar-
tæki. „Við erum í raun með allt
fyrir baðherbergið nema vegg- og
gólfefni. Við viljum vera sérvöru-
verslun, en ekki þessi dæmigerða
byggingavöruverslun. Við leggjum
metnað okkar í vandaðar vörur og
persónulega þjónustu,“ segir Íris.
Einföld leið til að poppa
upp baðherbergið
Fyrirtækið er þekkt fyrir að
vera með puttann á púlsinum í
skemmtilegum og nýstárlegum
lausnum fyrir baðherbergið. Íris
bendir á að ein einfaldasta og
ódýrasta leiðin til þess að poppa
upp þreytt baðherbergi, sé að
skipta út blöndunartækjum fyrir
ný í skemmtilegum lit eða með
flottri áferð. „Við höfum verið
framarlega á merinni í því að
bjóða upp á hvort heldur er svört
og mött blöndunartæki, eða
glansandi brons- eða gulllituð. Það
þarf ekki endilega að skipta út öllu
í einu, handlauginni, baðkarinu
og klósettinu, þótt þú fáir þér ný
blöndunartæki. Munurinn kemur
líka skemmtilega á óvart.“
Þessar skemmtilegu og litríku
vörur segir Íris að komi mikið frá
Ítalíu og Spáni. „Globo er til að
mynda svakalega flott merki frá
Ítalíu og þeir bjóða upp á virkilega
skemmtileg lituð salerni eins og
svört, brún og grá. Þessir litir eru
dálítið óvæntir, en koma ótrúlega
vel út. Svörtu salernin hafa líka
verið vinsæl sem og pastellituð sal-
erni. Hvítu salernin hafa svo aftur
verið að koma inn upp á síðkastið,
þá með mattri áferð.“
Innréttingar fyrir alla
Innréttingar og tæki býður upp á
fjölbreyttar og vandaðar innrétt-
ingar fyrir fjölbreytt baðherbergi
í breiddunum 60 cm til 120 cm.
„Hvítar innréttingar eru sígildar
og njóta alltaf vinsælda en nú er
líka hæstmóðins að velja fjöl-
breyttara útlit á framhliðar hurða
og skúffa, til dæmis gráleita hnotu
eða hvíttaða eik, sem og dökkan
palisander með svörtum æðum.“
Að sögn Írisar er gott að hugsa
um framtíðina þegar kemur að
innréttingum fyrir baðherbergi.
„Þegar um ungt fólk er að ræða,
sem er kannski að stofna sitt fyrsta
heimili, þá þarf að hugsa fyrir
ýmsu. Ef ætlunin er að eignast
börn þá þarf að geyma ótalmargt
inni á baðherbergjum eins og
handklæði og þvottastykki, bleiu-
pakka og baðdót, snyrti- og hrein-
lætisvörur og því þarf skápapláss
að vera gott og hirslurnar nota-
drjúgar. Djúpar skúffur og skápar
verða iðulega fyrir valinu þar sem
ung fjölskylda býr. Fyrir lítil eða
þröng baðherbergi fást líka ótal
lausnir í innréttingum í þremur
dýptum. Skúffurnar eru rúmgóðar
og eins og heill skápur út af fyrir
sig. Það er engin afsökun að geta
Svört og mött salerni hafa verið að koma sterk inn upp
á síðkastið. Þá hafa hvít og mött salerni sótt í sig veðrið.
Innréttingar og
tæki bjóða upp
á fjölbreyttar
baðherbergis-
innréttingar
og lausnir fyrir
ólíkar aðstæð-
ur. FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Þegar blönd-
unartækin eru
orðin að djásni,
þá er gaman.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Ítölsku mosaplöturnar frá Benetti Home koma þrælskemmtilega vel út inni
á baðherberginu og skapa bæði náttúrulega og notalega stemningu.
Vaskarnir frá Globo hafa slegið í gegn, enda fallegt baðherbergisstáss.
Gala sturtubotnarnir bjóða upp á einfalda og hentuga
leið til þess að setja upp stórkostlega „walk-in“ sturtu.
Ódýrasta leiðin til
að poppa upp
þreytt baðherbergi er að
skipta út blöndunar-
tækjum fyrir ný í óvænt-
um lit og flottri áferð.
Framhald af forsíðu ➛
ekki verið með gott skipulag og
góðar hirslur þótt fermetrarnir
séu ekki margir. Við mætum öllum
stærðum og gerðum baðherbergja
með frábærum lausnum,“ segir
Íris.
Gífurlega vinsælir og end-
ingargóðir sturtubotnar
Sturtubotnarnir frá spænska
merkinu Gala eru sívinsælir enda
sameinast þar gæði og fagurfræði í
einni heilli f lís. Botnarnir eru afar
sterkbyggðir og endingargóðir úr
granít/stonex/resinefni sem er
borið stamri gelkvoðu sem gerir
botninn að stöðugu undirlagi. Þeir
koma einnig með innbyggðum
halla sem einfaldar uppsetningu til
muna. Íris segir þessa botna seljast
eins og heitar lummur. „Þetta á
sér nú allt eðlilegar skýringar. Það
er gott að vera með baðkar þegar
krakkarnir eru ungir, en þegar
börnin eldast og fjölskyldumeð-
limir fara að keppast um baðher-
bergið á morgnana, þá er sturtan
mun betri kostur. Það er sáraein-
falt að skipta út baðkarinu, fyrir
stóran sturtubotn og gler. Þá ertu
kominn með æðislega „walk-in“
sturtu með lítilli fyrirhöfn.“
Mosinn birtir upp rýmið
Fyrir þá sem vilja færa náttúruna
inn á baðherbergið eru mosa-
plöturnar frá Ítalska hönnunar-
fyrirtækinu Benetti Home alger
bylting. „Mosaveggur gefur hið
fullkomna mótvægi við stílhrein
flísalögð baðherbergi og gerir allt
svo miklu hlýlegra. Mosaplöturnar
eru afar fallegar og fást í fjölda lita.
Plöturnar sjálfar eru vistvænar
og búnar til úr léttu áli og mosinn
er náttúrulegur bæði með og án
laufa. Mosinn heldur sér vel og það
þarf aðeins að úða efni á hann á
nokkurra mánaða fresti ef rakinn
er lítill. Einfaldara getur það ekki
verið.“
Mosaplöturnar hafa vakið
gríðarlega athygli um allan heim
og eru vinsældir alls ekki einskorð-
aðar við baðherbergin. „Plöturnar
má setja upp sem stóran eða lítinn
gróðurvegg eða klippa til og búa
til listaverk eða lógó fyrirtækja,
allt eftir því sem hver og einn vill.
Mosaplöturnar eru líka eftirsóttar
til að skreyta hótel og veitingastaði
en þær setja mjög skemmtilegan
svip á umhverfið. Svo skemmir
ekki fyrir að mosinn bætir hljóð-
vist í stórum opnum rýmum og
skapar einnig notalega stemn-
ingu,“ segir Íris.
Innréttingar og tæki eru í Ármúla 31
Sími 588 7332. Sjá nánar á i-t.is.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R