Fréttablaðið - 15.08.2020, Side 33
Vegna aukinna umsvifa á Íslandi og á erlendum mörkuðum leitar Zymetech ehf. að starfsfólki.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi:
Umsjónarmaður Cryotin verksmiðju
Starfsmaður í ensímhreinsun og gæðaeftirlit
Spennandi störf í líftækniiðnaði
Umsóknarfrestur er til og með 24.ágúst 2020
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Zymetech leitar að starfsmanni í Cryotin verksmiðju fyrirtækisins. Cryotin er ensímblanda sem unnin er
úr Atlantshafsþorski. Zymetech hefur fjárfest í nýjum tækjabúnaði sem settur verður upp í verksmiðjunni
á komandi vetri. Við leitum að ábyrgum, samviskusömum og sjálfstæðum einstaklingi sem mun hafa
umsjón með verksmiðjunni að lokinni þjálfun.
Í boði eru áhugaverð framtíðarstörf hjá
litlu og framsæknu líftæknifyrirtæki í
skemmtilegu starfsumhverfi sem starfar
þétt með móðurfélagi sínu í Svíþjóð og á
alþjóðamarkaði.
Zymetech var stofnað árið 1999 og
hefur sérhæft sig í rannsóknum á virkni
þorskensíma og framleiðslu á ensímum.
Ensímin eru notuð í lækningatæki og
snyrtivörur sem fyrirtækin þróa og selja.
Zymetech ehf. sameinaðist sænska
líftæknifyrirtækinu Enzymatica AB árið
2016 en síðarnefnda fyrirtækið er skráð á
Nasdaq First North hlutabréfamarkaðinn í
Stokkhólmi. Dæmi um vörur fyrirtækjanna
eru PENZIM húðáburðurinn sem seldur
er á Íslandi og PreCold® munnúði
gegn kvefi. PreCold® (einnig kallað
ColdZyme®) er nú selt víðsvegar um
Evrópu og Asíu.
Zymetech ehf. er staðsett í líflegu
umhverfi á Grandanum í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um fyrirtækin má
nálgast á:
www.zymetech.is og
www.enzymatica.com
Zymetech leitar að starfsmanni í framleiðslu á ensímum (Penzyme®) sem notuð eru í lækningatæki og
snyrtivörur. Um er að ræða starf í teymi starfsmanna sem sinna hvort tveggja hreinsun á ensímum og
gæðaeftirliti (quality control). Við leitum að ábyrgum, samviskusömum og sjálfstæðum einstaklingi sem
verður hluti af framleiðsluteymi fyrirtækisins.
Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi:
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjenda sem nýtist í starfi.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
U sóknarfrestur er til og með 24.ágúst 2020
U sókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Nánari upplýsingar:
Torfi Markússon (torfi@intellecta.is)
Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is)
• Háskólamenntun á sviði líftækni, lyfjafræði, efnafræði eða sambærilegt
• Reynsla af framleiðslu lyfja og/eða vinnu á rannsóknarstofu á sviði líftækni er kostur
• Þekking á GMP framleiðsluumhverfi og/eða GLP rannsóknarvinnu er kostur
• Agi og nákvæmni í vinnubrögðum
• Góðir samskiptahæfileikar og gott vald á enskri tungu og rituðu máli
• Færni í að starfa í teymi
• Menntun á sviði líftækni, matvæla eða matvælaframleiðslu, svo sem mjólkurfræði, matvælafræði eða sambærilegt
• Reynsla í framleiðslu matvæla, heilsuvara og/eða lyfja undir stýrðum verkferlum og/eða gæðakerfum er kostur
• Skilningur á örverumengun og þrifaferlum
• Áhugi á tækni og færni í notkun tölvubúnaðar er kostur
• Agi og nákvæmni í vinnubrögðum
• Góðir samskiptahæfileikar og gott vald á enskri tungu og rituðu máli
• Færni í að starfa í, byggja upp og leiða teymi
Læknahúsið er 37 ára gamalt
fyrirtæki þar sem fram kvæmdar
eru almennar, lýta-, æða-, og
þvagfæraskurðaðgerðir og hjá
því starfar einvala lið starfsfólks
og lækna.
Skurðhjúkrunar-
eða hjúkrunar-
fræðingur
Læknahúsið ehf. Domus Medica auglýsir eftir
skurðhjúkrunarfræðingi eða hjúkrunarfræðingi
með reynslu af bráðasviði í 50% starf.
Um er að ræða fjölbreytt starf í skemmtilegu og líflegu starfsumhverfi.
Við leitum af einstaklingi með íslenskt hjúkrunarleyfi, mikinn faglegan
metnað og góða hæfni í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Guðný María í síma 563-1060.
Umsókn sendist ásamt náms- og starfs ferilsskrá á:
domusmedica@domusmedica.is
Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst nk.