Fréttablaðið - 15.08.2020, Síða 33

Fréttablaðið - 15.08.2020, Síða 33
Vegna aukinna umsvifa á Íslandi og á erlendum mörkuðum leitar Zymetech ehf. að starfsfólki. Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi: Umsjónarmaður Cryotin verksmiðju Starfsmaður í ensímhreinsun og gæðaeftirlit Spennandi störf í líftækniiðnaði Umsóknarfrestur er til og með 24.ágúst 2020 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is Zymetech leitar að starfsmanni í Cryotin verksmiðju fyrirtækisins. Cryotin er ensímblanda sem unnin er úr Atlantshafsþorski. Zymetech hefur fjárfest í nýjum tækjabúnaði sem settur verður upp í verksmiðjunni á komandi vetri. Við leitum að ábyrgum, samviskusömum og sjálfstæðum einstaklingi sem mun hafa umsjón með verksmiðjunni að lokinni þjálfun. Í boði eru áhugaverð framtíðarstörf hjá litlu og framsæknu líftæknifyrirtæki í skemmtilegu starfsumhverfi sem starfar þétt með móðurfélagi sínu í Svíþjóð og á alþjóðamarkaði. Zymetech var stofnað árið 1999 og hefur sérhæft sig í rannsóknum á virkni þorskensíma og framleiðslu á ensímum. Ensímin eru notuð í lækningatæki og snyrtivörur sem fyrirtækin þróa og selja. Zymetech ehf. sameinaðist sænska líftæknifyrirtækinu Enzymatica AB árið 2016 en síðarnefnda fyrirtækið er skráð á Nasdaq First North hlutabréfamarkaðinn í Stokkhólmi. Dæmi um vörur fyrirtækjanna eru PENZIM húðáburðurinn sem seldur er á Íslandi og PreCold® munnúði gegn kvefi. PreCold® (einnig kallað ColdZyme®) er nú selt víðsvegar um Evrópu og Asíu. Zymetech ehf. er staðsett í líflegu umhverfi á Grandanum í Reykjavík. Nánari upplýsingar um fyrirtækin má nálgast á: www.zymetech.is og www.enzymatica.com Zymetech leitar að starfsmanni í framleiðslu á ensímum (Penzyme®) sem notuð eru í lækningatæki og snyrtivörur. Um er að ræða starf í teymi starfsmanna sem sinna hvort tveggja hreinsun á ensímum og gæðaeftirliti (quality control). Við leitum að ábyrgum, samviskusömum og sjálfstæðum einstaklingi sem verður hluti af framleiðsluteymi fyrirtækisins. Umsækjandi þarf að uppfylla eftirfarandi: Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf, þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjenda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. U sóknarfrestur er til og með 24.ágúst 2020 U sókn óskast fyllt út á www.intellecta.is Nánari upplýsingar: Torfi Markússon (torfi@intellecta.is) Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) • Háskólamenntun á sviði líftækni, lyfjafræði, efnafræði eða sambærilegt • Reynsla af framleiðslu lyfja og/eða vinnu á rannsóknarstofu á sviði líftækni er kostur • Þekking á GMP framleiðsluumhverfi og/eða GLP rannsóknarvinnu er kostur • Agi og nákvæmni í vinnubrögðum • Góðir samskiptahæfileikar og gott vald á enskri tungu og rituðu máli • Færni í að starfa í teymi • Menntun á sviði líftækni, matvæla eða matvælaframleiðslu, svo sem mjólkurfræði, matvælafræði eða sambærilegt • Reynsla í framleiðslu matvæla, heilsuvara og/eða lyfja undir stýrðum verkferlum og/eða gæðakerfum er kostur • Skilningur á örverumengun og þrifaferlum • Áhugi á tækni og færni í notkun tölvubúnaðar er kostur • Agi og nákvæmni í vinnubrögðum • Góðir samskiptahæfileikar og gott vald á enskri tungu og rituðu máli • Færni í að starfa í, byggja upp og leiða teymi Læknahúsið er 37 ára gamalt fyrirtæki þar sem fram kvæmdar eru almennar, lýta-, æða-, og þvagfæraskurðaðgerðir og hjá því starfar einvala lið starfsfólks og lækna. Skurðhjúkrunar- eða hjúkrunar- fræðingur Læknahúsið ehf. Domus Medica auglýsir eftir skurðhjúkrunarfræðingi eða hjúkrunarfræðingi með reynslu af bráðasviði í 50% starf. Um er að ræða fjölbreytt starf í skemmtilegu og líflegu starfsumhverfi. Við leitum af einstaklingi með íslenskt hjúkrunarleyfi, mikinn faglegan metnað og góða hæfni í mannlegum samskiptum. Nánari upplýsingar um starfið gefur Guðný María í síma 563-1060. Umsókn sendist ásamt náms- og starfs ferilsskrá á: domusmedica@domusmedica.is  Umsóknarfrestur er til og með 26. ágúst nk.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.