Fréttablaðið - 15.08.2020, Page 38

Fréttablaðið - 15.08.2020, Page 38
Þjóðkirkjan – Biskupstofa leitar eftir öflugum bókara til starfa í fjölbreytt og krefjandi starf á fjármálasvið skrifstofu sinnar í Reykjavík. Um er að ræða fullt starf og er miðað við að viðkomandi hefji störf sem fyrst en í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að gengið hefur verið frá ráðningu. Umsóknarfrestur um starfið er til miðnættis mánudaginn 24. ágúst 2020. Sækja ber rafrænt um starfið á vef Þjóðkirkjunnar, www.kirkjan.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar. Vísað er til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 og eru bæði kynin hvött til að sækja um starfið. Starfssvið; Viðkomandi kemur til með að starfa í teymi starfsmanna á fjármálasviði skrifstofunnar og munu verkefni viðkomandi verða fjölbreytt og margþætt og reynir mikið á skipulagshæfni og samskiptahæfileika. Helstu verkefni • Yfirumsjón með fjárhagsbókhaldi, viðskiptamannabókhaldi og lánardrottnabókhaldi • Færsla bókhalds, afstemmingar og leiðréttingar • Árs- og árshlutauppgjör • Samskipti við stofnanir • Upplýsingagjöf og skýrslugerð • Önnur tengd verkefni Þekking og hæfni • Mjög góð reynsla af bókhaldi, afstemmingum og uppgjörsvinnu almennt. • Mjög góð reynsla af Navision bókhaldskerfi • Reynsla og þekking á bókhaldstengingum undir- og yfirkerfa • Góð Excel kunnátta • Mikil nákvæmni • Frumkvæði, skipulag og sjálfstæði í vinnubrögðum • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Sveiganleiki til að taka að sér ýmis tilfallandi verkefni Öflugur bókari til Þjóðkirkjunnar – Biskupsstofu Skútustaðahreppur Framsækinn skipulagsfulltrúi óskast Skútustaðahreppur auglýsir 100% starf skipulagsfulltrúa laust til umsóknar. Skútustaðahreppur er í góðu samstarfi við Þing- eyjarsveit í skipulags, -byggingar- og nýsköpunarmálum og hafa sveitarfélögin sett sér að markmiði að vera í fararbroddi í loftslagsmálum. Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert starf í lifandi umhverfi, þar sem hugmyndaauðgi og drifkraftur fá að njóta sín. Menntunar og hæfniskröfur: • Háskólamenntun í samræmi við ákvæði skipulagslaga. • Reynsla af verkefnastjórnun, þátttaka í nýsköpunarverk- efnum og þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur. • Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Góð samskiptahæfni. Starfssvið: • Yfirumsjón með starfi að skipulagsmálum og öðru því sem undir starfið heyrir samkvæmt starfslýsingu. • Framkvæmd verkefna í samræmi við samþykktir sveitarstjórnar hverju sinni. • Umsjón með gerð fjárhagsáætlana, starfsáætlana og framkvæmdaáætlana sem undir starfið heyra. • Undirbúningur fyrir og umsjón með fundum skipulags- nefnda. • Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða sem gilda hverju sinni og heyra undir sviðið. • Samskipti við opinberar stofnanir, íbúa sveitarfélagsins og aðra þá sem tengjast verkefnum sviðsins. • Önnur verkefni sem undir starfið heyra hverju sinni. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 23. ágúst 2020. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sveinn Margeirsson sveitarstjóri í síma 680 6666. Umsóknir ásamt ítarlegri starfsferilsskrá og kynningarbréfi skulu sendar til skutustadahreppur@skutustadahreppur.is Í Mývatnssveit búa um 500 manns. Við erum fjölskyldvænt, heilsueflandi samfélag þar sem er öflugt leikskóla- og grunnskóla- starf, boðið er upp á ókeypis skólamáltíðir fyrir börn og ókeypis frístund. Í Þingeyjarsveit búa um 900 manns og er samanlögð stærð beggja sveitarfélaga um 12 þúsund ferkílómetrar. Sérfræðingur í bókhaldi Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar ótímabundið starf sérfræðings í bókhaldi á sviði fjármála og rekstrar. Um er að ræða ótímabundið 100% starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. október n.k. eða eftir nánari samkomulagi. Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2020 Nánari upplýsingar veitir Guðfinna Helgadóttir gudfinna.helgadottir@heilsugaeslan.is 585-1300 • Færsla bókhalds og skráning í bókhaldskerfi ríkisins. • Afstemmingar, frágangur og skil á VSK. • Greiningarvinna og úrvinnsla gagna. • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt beiðni deildarstjóra. • Viðskiptafræðingur eða sambærileg menntun. • Reynsla og góð þekking á bókhaldi er skilyrði. • Góð almenn tölvufærni og góð þekking á Excel. • Þekking og reynsla af Orra bókhaldskerfi er kostur. • Góð samskiptahæfni og þjónustulund. • Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. Helstu verkefni og ábyrgð Hæfnikröfur Sjá nánar á www.heilsugaeslan.is undir laus störf og www.starfatorg.is Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is 8 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 5 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.