Fréttablaðið - 15.08.2020, Side 51
Netverslun Heklu, sem byggir á netverslunarkerfi Stefnu, hefur þróast mjög mikið
síðustu ár og hafa stjórnendur
fyrirtækisins lagt mikla áherslu
á að halda þeirri þróun áfram,
að sögn Halldóru Önnu Hagalín,
markaðsstjóra Heklu.
„Við höfum verið með sýningar-
sal notaðra bíla á netinu í gegnum
kerfi Stefnu í nokkuð mörg ár.
Fyrir rúmu ári opnuðum við einn-
ig sýningarsal nýrra bíla, ásamt
netverslun aukahluta á vefsíðunni
okkar hekla.is. Sýningarsalur
nýrra bíla er virknin sem er einna
mest notuð á vef Heklu, en þar
er hægt að skoða og panta alla
nýja bíla sem eru til á staðnum
eða eru á leiðinni til okkar. Við
veljum kerfismegin hvaða bíla
við viljum birta á vefnum, bætum
við myndum og lýsingum og þeir
birtast áreynslulaust á netinu
innan skamms.“
Einfalt fyrirkomulag
Halldóra segir netverslunarkerfi
Stefnu nýtast afar vel fyrir við-
skiptavini Heklu.
„Viðskiptavinir geta á ein-
faldan hátt skoðað vöruúrvalið á
netinu, hvort sem um er að ræða
nýja eða notaða bíla, aukahluti
eða lífsstílsvörur eins og reiðhjól,
hjálma, bílstóla og f leira. Í náinni
framtíð munum við geta gengið
frá bílakaupum nýrra bíla frá a-ö
á netinu, en í dag er hægt að kaupa
aukahluti ásamt því að skoða
úrval bíla, velja uppáhaldsbílinn
og taka hann frá.“
Netverslunarkerfi Stefnu er líka
einfalt og þægilegt í notkun fyrir
starfsmenn Heklu.
„Það er afar einfalt fyrir okkur
að setja inn nýjar vörur í kerfið,
lýsingar á þeim og myndir. Svo er
þetta allt tengt við bókhaldskerfið
okkar svo þetta skráist strax alla
leið í kerfinu okkar.“
Ánægðir viðskiptavinir
Halldóra segir viðskiptavini hafa
tekið þessari nýjung fagnandi
og er vefsíða Heklu sífellt meira
notuð í þeim tilgangi að ganga frá
kaupum eða taka frá bíla.
„Við höfum líka fundið fyrir
því að viðskiptavinir sem koma
til okkar vita nú þegar hvað er til
hjá okkur, hafa skoðað vöruna
á netinu og tekið ákvörðunina.
Í bílakaupum kemur fólk oft til
okkar sem er búið að taka ákvörð-
un um bílakaup en kemur þá til
að reynsluaka sambærilegum bíl,
svona til að staðfesta ákvörðun-
ina. Það er í raun bara formsatriði
fyrir marga að koma á staðinn og
ganga frá kaupum. Þannig þarf þá
ekki að bíða eftir póstflutningi
á aukahlutum og biðin eftir nýja
bílnum styttist í örfáa daga.“
Hún segir sölu aukahluta hafa
margfaldast síðustu ár og að þar
spili mörg atriði saman.
„Ásamt því að hafa opnað net-
verslun höfum við lagt aukna
áherslu á aukahlutasölu yfir
höfuð. Við höfum breytt vara-
hlutaversluninni, fært hana
innanhúss hjá okkur og lagt okkur
fram við að efla þjónustu og þekk-
ingu.“
Tenging beint í Navision
Frá upphafi var lögð mikil áhersla
á að netverslunarkerfi Heklu
myndi tengjast beint inn í bók-
haldskerfi fyrirtækisins, sem er
Navision.
„Það skipti afar miklu máli fyrir
okkur í allri meðhöndlun upp-
lýsinga sem og einfaldleika sölu
fyrir þjónusturáðgjafa okkar sem
taka vörurnar til. Einnig skiptir
það máli fyrir lagerstöðu auka-
hluta hverju sinni, sem uppfærist
sjálfkrafa. Frá upphafi lögðum við
áherslu á að vinnsla fyrir starfs-
fólk okkar yrði eins auðveld og
hægt væri og sem mest sjálfvirk.
Við erum með miklar sérþarfir
í vinnslu í netverslun okkar en
höfum ekki enn þá lent í því að
fá svar um að eitthvað sé ekki
hægt. Viðmót starfsmanna Stefnu
er lausnamiðað og vilji til góðra
verka er mikill.“
Góður samstarfsaðili
Samstarf Heklu og Stefnu nær til
margra ára og hefur verið einkar
farsælt að sögn Halldóru.
„Það skiptir gríðarlega miklu
máli fyrir fyrirtæki eins og Heklu
að nánir samstarfsaðilar hafi
mikla þekkingu á rekstri okkar,
enda vörumerkin mörg og starf-
semin fjölbreytt.“
Hekla heldur úti sex vefsíðum
og þar af eru þrjár sérsniðnar
af Stefnu: netverslun og tveir
sýningarsalir á netinu.
„Umfangið er gríðarmikið og
utanumhaldið tímafrekt. Við
fáum mikla aðstoð frá Stefnu og
starfsfólki þar, sem er leiðbeinandi
og þjónustulundað. Skipulag
þeirra er gott og tímaskráning
skýr, sem skiptir verulegu máli
þegar velja á samstarfsaðila.“
Sjá nánari upplýsingar á stefna.is
og í síma 464-8700.
Netverslun
frá Stefnu
sparar tíma
og fyrirhöfn
Undanfarin ár hefur Hekla stuðst við
netverslunarkerfi Stefnu, með mjög
góðum árangri. Kerfið einfaldar alla
vinnu og ákvarðanatöku, bæði fyrir
viðskiptavini og starfsmenn Heklu.
„Viðskiptavinir
geta á einfaldan
hátt skoðað
vöruúrvalið á
netinu, hvort
sem um er að
ræða nýja eða
notaða bíla,
aukahluti eða
lífsstílsvörur
eins og reiðhjól,
hjálma, bíl-
stóla og fleira,”
segir Halldóra
Anna Hagalín,
markaðsstjóri
Heklu. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/ANTON
Margir nýta vefinn til að skoða og velja nýja bílinn áður en kaup fara fram.
Fyrir rúmu ári opnaði Hekla sýningarsal nýrra bíla ásamt netverslun aukahluta á vefsíðu sinni hekla.is.
KYNNINGARBLAÐ 5 L AU G A R DAG U R 1 5 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 NETVERSLANIR