Fréttablaðið - 15.08.2020, Blaðsíða 52
Vefverslun á vænt-
anlega eftir að
aukast í náinni framtíð
og er góð viðbót við
hefðbundnar verslanir.
Að reka góða
vefverslun er mikil
vinna. Þú hendir ekki
upp netverslun og málið
er dautt.
Öll innihaldsefnin eru keypt nálægt uppruna og frá traustverðum og heiðarlegum söluaðilum.
Vörurnar eru fáanlegar á vefsíðu Dimmblá www.dimmbla.is
Vegan húðvörur
Við þurfum öll að hugsa vel um húðina okkar
og það sem við notum á hana skiptir máli.
Húðvörulína Dimmblá inniheldur
lífræn innihaldsefni og er vegan.
Án
parabena
Án
Phthalate
Án
Glútens
6 KYNNINGARBLAÐ 1 5 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U RNETVERSLANIR
Bergþóra Guðnadóttir hjá Farmers
Market
Bergþóra Guðnadóttir er hönn-
uður, stofnandi og annar eigandi
hönnunarfyrirtækisins Farmers
Market – Iceland, sem rekur tvær
verslanir í Reykjavík auk vefversl-
unar.
Hvernig hefur vefverslun breytt
möguleikum íslenskra hönnuða?
Vefverslun hefur aðallega auð-
veldað íslenskum hönnuðum að
ná til viðskiptavina erlendis, sér-
staklega ef með fylgir sterk og skýr
ímynd á vef- og samfélagsmiðlum.
Á undanförnum misserum hefur
vefverslun innanlands sótt í sig
veðrið og ekki síst nú á COVID-
tímum. Einnig fáum við mikið af
erlendum pöntunum, til dæmis frá
fólki sem hefur heimsótt verslanir
okkar á Íslandi og séð eftir að hafa
ekki keypt einhverja flík eða ekki
haft pláss í ferðatöskunni.
Hvar liggja helstu tækifærin?
Vefverslun á væntanlega eftir
að aukast í náinni framtíð og
er góð viðbót við hefðbundnar
verslanir. Því skiptir miklu máli að
vefverslunin endurspegli ímynd
fyrirtækisins og hefðbundnu
verslunarinnar. Mikilvægt er að
sinna viðskiptavinum vel og fylgja
hratt og örugglega eftir pöntunum,
fyrirspurnum og öðru sem tengist
versluninni. Ánægður viðskipta-
vinur er mjög líklegur til að halda
áfram viðskiptum, hvort sem um
er að ræða heimsókn í vefverslun
eða „hefðbundna“ verslun.
Helsti lærdómur þegar kemur að
eigin vefverslun?
Vefverslun er ekki eins einföld
lausn og margir kynnu að halda
og það þarf að sinna viðskiptavin-
unum og upplýsingagjöf jafn vel
og í hefðbundinni verslun. Þetta á
ekki síst við um erlenda viðskipta-
vini, sem eru kannski aðeins vanir
vefverslun innan Evrópusam-
bandsins þar sem viðbætt aðflutn-
ingsgjöld eru lítil sem engin.
Ná til heimsins í
gegnum skjáinn
Vefverslun hefur hjálpað íslenskum hönnuðum að kynna
vörur sínar á erlendum mörkuðum. Þrír íslenskir hönn-
uðir ræða helstu kosti vefverslunar fyrir íslenska hönnun.
Ragna Sara Jónsdóttir hjá Fólk
Ragna Sara Jónsdóttir er stofnandi
og listrænn stjórnandi hönnunar-
merkisins Fólk. Fyrirtækið vinnur
í samstarfi við íslenska hönnuði
við að þróa hönnunarvörur fyrir
heimilið og hefur sjálf bæran
lífsstíl og hringrásarhagkerfi að
leiðarljósi í allri þróun og rekstri.
Hvernig hefur vefverslun breytt
möguleikum íslenskra hönnuða?
Vefverslun breytir mjög miklu
varðandi tækifærið til að selja
hönnunarvörur, sem annars væri
mest staðbundin sala, þar sem
vefir eru alþjóðlegir í eðli sínu.
Hins vegar er ekki þar með sagt að
það takist að fá athygli heimsins
á tiltekna vefverslun, eftir að hún
hefur verið sett upp. Að vefverslun
nái að selja alþjóðlega er í raun
stórt sjálfstætt verkefni, að ná
þeim áfanga krefst mikillar vinnu,
mjög skýrrar sýnar til lengri tíma
og öflugra samstarfsaðila.
Hvar liggja helstu tækifærin?
Vefurinn gefur gríðarlega
gott tækifæri til að vanda fram-
setningu á eigin hönnun, segja
sögur, birta flottar myndir og leyfa
viðskiptavininum að hrífast með
á eigin hraða og forsendum, enda
er sagan á bak við vörurnar oft
jafn áhugaverð og vörurnar sjálfar.
Þegar viðskiptavinur og söluaðili
hittast hins vegar, þá hefur
sölumaðurinn kannski bara 15
sekúndur til 2 mínútur til að heilla
viðskiptavininn.
Helsti lærdómur þegar kemur að
eigin vefverslun?
Nýverið áttum við í viðræðum
við tvær stórar verslanakeðjur
á Norðurlöndum. Önnur var
staðsett í Noregi og með margar
verslanir á sínum vegum, hin var
vefverslun í Finnlandi sem ein-
blínir eingöngu á sölu í gegnum
vef. Þegar COVID-19-krísan kom
fór allt í uppnám, samningarnir
við verslanakeðjuna í Noregi fóru í
stopp á meðan finnska vefverslun-
in kláraði samningana við okkur
og er nú að selja íslensku hönnun-
ina frá Fólk við góðar viðtökur.
Lærdómurinn er að þegar tímar
óvissu og farsótta líkt og nú standa
yfir, er vefverslun að vaxa á meðan
þurft hefur að loka staðbundnum
verslunum. Við munum því halda
áfram að leggja mikla áherslu á
að byggja okkur upp á vefnum og
með stafræna þjónustu.
Hlín Reykdal, skartgripahönnuður
Hlín Reykdal hefur hannað skart-
gripi og fylgihluti undir eigin
nafni frá árinu 2010. Hún stofnaði
verslunina Kiosk ásamt öðrum
hönnuðum árið 2010 og rekur net-
verslunina hlinreykdal.com.
Hvernig hefur vefverslun breytt
möguleikum íslenskra hönnuða?
Verslunarumhverfi og markaðs-
setning hefur breyst mikið undan-
farin ár og er netverslunin í mikilli
sókn. Margir hönnuðir eru stað-
settir í Reykjavík svo það gengur
betur að ná til landsbyggðarinnar
og á erlenda markaði með vef-
verslun.
Hvar liggja helstu tækifærin?
Það eru mörg tækifæri sem liggja
í því að vera með góða netverslun,
til dæmis er hægt að stækka mark-
hópinn til muna. Þarna ertu komin
með búðarglugga, þína ímynd og
hönnun fyrir allan heiminn. Vef-
verslun er framtíðin og ef hönn-
uðir hoppa ekki á þá lest eru þeir
hreinlega að missa af miklu.
Helsti lærdómur þegar kemur að
eigin vefverslun?
Að reka góða netverslun er
mikil vinna. Þú hendir ekki upp
netverslun og svo er málið dautt.
Það þarf að hlúa að henni og þetta
er verkefni sem er aldrei búið.
Persónulega finnst mér þetta
verslunarform rosalega skemmti-
legt og áhugavert. Möguleikarnir
eru endalausir og alltaf er hægt að
bæta og gera betur.
Ragna Sara Jónsdóttir. MYND/SAGA SIGBergþóra Guðnadóttir.
Hlín Reykdal. MYND/SAGA SIG
Það skiptir ekki lengur máli hvar í heiminum fyrirtæki eru niðurkomin því hægt er að kaupa allt mili himins og jarðar með einum smelli á netinu.