Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 1

Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 1
Þ R I Ð J U D A G U R 7. J A N Ú A R 2 0 2 0 Stofnað 1913  5. tölublað  108. árgangur  HLAKKAR TIL TÓNLEIKANNA Á KÚNSTPÁSU SEX SKIPVERJAR FÓRUST OPNAR DÁ- LEIÐSLUSKÓLA Á AFMÆLINU HÁLF ÖLD FRÁ HVARFI SÆFARA BA 10 DÆGRADVÖL 24JÓHANN SCHRAM REED 29 Gróðureldar » Gríðarlegt eignatjón hefur orðið og margir látist. » Gróðureldar eru ekki óal- gengir í Ástralíu en hafa aldrei verið skæðari en nú. » Loftslagsbreytingar eiga þátt í eldunum. Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Ekkert lát er á gróðureldunum miklu í Ástralíu og veðurskilyrði fara versn- andi á ný. Inga Árnadóttir, kjörræð- ismaður Íslands í landinu, segir í sam- tali við Morgunblaðið að óvíst sé að hægt verði að ráða niðurlögum eld- anna næstu mánuðina. „Þetta er ógn- vænlegt ástand,“ segir hún. Gífurlegt tjón hefur orðið og margir látist. „Árið 2019 var heitasta ár síðan byrjað var með formlegar veðurat- huganir. Hiti fór í 49 gráður í vest- urútjaðri Sydney í vikunni sem leið. Þetta hefur aldrei átt sér stað áður. Talið er að breyttar aðstæður yfir Indlandshafi hafi haft mikil áhrif á veðurfar hér. Það virðist stöðugt hitna. Þessu fylgja svo þurrkar sem eru þeir verstu sem sögur fara af,“ segir Inga. Inga segir að New South Wales virðist hafa farið verst út úr eldunum fram að þessu, en það logi einnig núna í Suður-Ástralíu og Viktoríu. Hún segir að Íslendingar séu á öllum þess- um svæðum. Um 500 íslenskir ríkis- borgarar eru búsettir í Ástralíu, dreifðir um landið en stór hluti býr í Vestur-Ástralíu í og í kringum borg- ina Perth og einnig í Melbourne og Sydney. „Ástandið er ógnvænlegt“  Ekkert lát á gróðureldunum í Ástralíu  500 Íslendingar búsettir í landinu  Hitinn fór í 49 gráður í Sydney  Verstu þurrkar sem sögur fara af MBrunastækja í loftinu … »14 AFP Vítiseldar Hvarvetna blasir við eyðilegging af völdum gróðureldanna. Brunnin ökutæki á víð og dreif eru algeng sjón og fjöldi húsa er rústir einar.  Embætti landlæknis hefur ekki verið tilkynnt um alvarlegt atvik í nóvember sl. þar sem maður lést á heimili sínu í kjölfar þess að hafa verið útskrifaður of snemma af Landspítalanum. Þetta staðfestir Alma D. Möller landlæknir í samtali við Morgunblaðið en hún hefur kallað eftir uppfærðum upplýs- ingum um bráðadeild Landspítala í kjölfar frétta um atvikið. „Öll svona alvarleg atvik á að til- kynna til okkar og við skoðum þau. Við vorum bara að heyra þetta í fyrsta skipti,“ segir Alma. »4 Landlæknir vissi ekki af atvikinu  Áformað er að taka 17 hæða hótelturn á Skúlagötu í Reykjavík í notkun á næsta ári. Hótelið verður rekið undir merkjum Radisson RED og verður með 203 her- bergjum, veitingastað og þakbar. Skoski arkitektinn Tony Kettle teiknaði hótelturninn. Hann hefur hannað margar byggingar, m.a. Lakhta-skýjakljúfinn í St. Péturs- borg, hæstu byggingu Evrópu. Kettle segist í samtali við Morgunblaðið hafa sótt innblástur í Hörpu og Hallgrímskirkjuturn. Markmiðið sé að skapa eitt af þremur helstu kennileitum borg- arinnar. Á efstu hæð hótelturnsins verði útsýnispallur með útsýni út á sundin og yfir miðborgina. »12 Teikning/Kettle Collective Turn Á horni Skúlagötu og Vitastígs. Vígja nýjan hótel- turn á næsta ári Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Enn ein verðlaunin bættust í safn Hildar Guðnadóttur tónskálds í fyrrakvöld. Hún fékk þá afhent Golden Globe-verðlaunin í Los Ang- eles fyrir bestu frumsömdu tónlist við kvikmynd en það var við mynd- ina Joker. Þykir nú enn líklegra að Hildur hljóti tilnefningu til Óskars- verðlauna fyrir sömu tónsmíðar og jafnvel verðlaunin sjálf. Aðeins ein kona hefur áður hlotið Golden Globe-verðlaunin fyrir bestu frumsömdu tónlist í kvikmynd. Það var Lisa Gerrard sem hlaut þau með Hans Zimmer árið 2001. Hildur er því fyrsta konan sem hlýtur verð- launin ein en ekki í samstarfi við annað tónskáld. „Ég tel fólk opnara núna fyrir því að treysta konum,“ sagði Hildur þegar hún sat fyrir svörum á blaðamannafundi eftir verðlaunaveitinguna. Hildur þakkaði leikstjóra Joker, Todd Phillips, fyrir að bjóða henni í þetta ævintýralega ferðalag, treysta henni fyrir verkefninu og trúa á hana. Þakkaði hún einnig aðalleik- ara myndarinnar, Joaquin Phoenix, fyrir að auðvelda sér verkið með magnaðri túlkun sinni á titilpersón- unni, Jókernum. Samtök erlendra fjölmiðlamanna í Hollywood standa að Golden Globe- verðlaununum sem veitt eru bæði fyrir það besta í kvikmyndum og sjónvarpi. Verðlaunin þykja gefa góða vísbendingu um það sem koma skal á Óskarsverðlaunahátíðinni eft- ir rúman mánuð. »28 Treysta konum betur  Hildur Guðnadóttir tónskáld hlaut Golden Globe-verðlaun AFP Sigursæl Hildur Guðnadóttir með verðlaunagripinn, Gyllta hnöttinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.