Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 4

Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020 DIMMALIMM Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17 Skoðið úrvalið á facebook DimmalimmReykjavik 30% 50% afsláttur til ÚTSALAN ER HAFIN! Landhelgisgæslan fjarlægði í gær vaktskýli sem staðið hefur á Faxa- garði í Gömlu höfninni í Reykjavík frá árinu 2004. Varðskýlið verður flutt til Helguvíkur í Keflavík. Skýlið er flutt sjóleiðina með varðskipinu Þór. Ásgeir Erlendsson, upplýsinga- fulltrúi Gæslunnar, segir að um tíma- bundna ráðstöfun sé að ræða þar til endanleg ákvörðun verður tekin um hvað gert verði við skýlið. Í Helguvík sé gott pláss til að geyma það. Vakt- skýli Landhelgisgæslunnar þarf að víkja fyrir nýrri spennistöð, sem Faxaflóahafnir ætla að reisa á Faxa- garði. Vaktmenn á vegum Landhelgis- gæslunnar höfðu það hlutverk um áratuga skeið að fylgjast með varð- skipunum þegar þau lágu í höfn, síð- ast á Faxagarði og þar áður á Ingólfs- garði. Gæslan hætti árið 2016 að vakta varðskipin með föstum starfs- mönnum í skýlinu og fól Securitas gæsluna. Vöktunin felst í samblandi af vöktun myndavéla, hreyfanlegu eftirliti og fastri viðveru starfsmanna Securitas. Því er ekki lengur þörf fyrir skýlið á Faxagarði. sisi@mbl.is Skýli Landhelgisgæslunnar á Faxagarði víkur fyrir nýrri spennistöð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vaktskýli flutt til Helguvíkur Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Embætti landlæknis hefur kallað eftir uppfærðum upplýsingum um bráðadeild Landspítala í kjölfar frétta um að sjúklingur hafi látist á heimili sínu í nóvember sl. þremur dögum eftir ótímabæra útskrift og ranga greiningu á spítalanum. Þetta staðfestir Alma D. Möller landlækn- ir í samtali við Morgunblaðið en embættið gerði síðast úttekt á bráðamóttökunni í október. Öll alvarleg atvik á að tilkynna Segir hún að fyrrnefnt atvik hafi enn ekki verið tilkynnt til embættis- ins og kveðst hafa haft samband við Landspítala snemma í gærmorgun til að spyrjast fyrir um það hvers vegna það hafi ekki verið tilkynnt. Hún staðfestir að þegar atvikið verði tilkynnt muni embættið fara í að skoða málið. „Öll svona alvarleg atvik á að til- kynna til okkar og við skoðum þau. Við vorum bara að heyra þetta í fyrsta skipti,“ segir Alma. Morgunblaðið greindi frá því á laugardag að Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga, hefði í viðtali í Læknablaðinu lýst yfir miklum áhyggjum af stöðunni á bráðamóttöku spítalans. Í viðtalinu sagði Már m.a. að mikill þrýstingur væri á að útskrifa sjúklinga sem hefði orðið til þess að sjúklingur lést á heimili sínu. Aðspurð segist Alma ekki hafa fengið vísbendingar um slíkan þrýsting. Ekki einu um að kenna „Það er auðvitað þannig að ef það koma upp alvarleg atvik þá er sjald- an eða aldrei einhverju einu um að kenna. Það er margt sem spilar saman sem við köllum kerfisþætti og það er allt þetta sem við erum bú- in að vera að tala um. Þar er nátt- úrlega ástæðan sem búin er að skap- ast á gríðarlega mörgum árum, t.d. að uppbygging á hjúkrunarheimil- um hefur verið of hæg og við vitum að það vantar hjúkrunarfræðinga, það er reyndar alþjóðlegur vandi. Maður hefði viljað sjá hraðari við- brögð til að bregðast við þessu,“ segir Alma. Hún segir að samkvæmt upplýs- ingum um bráðadeild Landspítala sem síðast voru uppfærðar í október hafi bráðamóttökunni tekist að sinna bráðahlutverki sínu vel, vand- inn liggi í að sjúklingar þurfi að bíða á bráðamóttökunni of lengi eftir legudeildarplássi. „Það er fyrst og fremst vegna þess að það vantar hjúkrunarfræð- inga og sjúkraliða,“ segir Alma. Vilja dreifa sjúklingum betur Segir hún að embættið hafi beint því til Landspítala við síðustu eft- irfylgniúttekt á bráðamóttökunni að spítalinn ætti að horfa inn á við og skoða hvort hægt sé að dreifa sjúk- lingum og starfsfólki með öðrum hætti á deildirnar og opna sérstaka biðdeild til að færri þurfi að bíða á bráðamóttökunni. „Okkur finnst ekki ásættanlegt að svona margir séu að bíða á bráða- móttökunni af því að húsnæðið ber það ekki,“ segir Alma. „Annaðhvort þarf að dreifa sjúk- lingum öðruvísi eða opna betri að- stöðu og það snýr að stjórnendum Landspítala að skoða það. Mér skilst að það sé í undirbúningi,“ segir hún. Atvikið ekki tilkynnt landlækni  Landlæknir hefur kallað eftir uppfærðum upplýsingum frá Landspítala í kjölfar frétta um alvarlegt atvik á bráðadeild  Ekki ásættanlegt að svo margir bíði á bráðamóttökunni, segir Alma D. Möller Alma D. Möller Morgunblaðið/Árni Sæberg Bráðamóttaka Oft er mikill erill og lítið pláss á bráðamóttöku Landspítala. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk eftir hádegið í gær tilkynningu um hugsanlega sprengju á leik- skólalóð í Breiðholti. Leikskólastjór- inn tilkynnti. Sérsveit lögreglu fjar- lægði „sprengjuna“. Í ljós kom að þetta var pappahólkur sem búið var að festa saman með límbandi, líklega innan úr skottertu eða flugeldi. Lög- reglan veit ekki hver kom hólknum fyrir á lóðinni eða í hvaða tilgangi. Annars var mikill erill hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu í gær. 41 mál var bókað á tímabilinu frá klukkan 11 til 17. Meðal annarra mála má nefna að starfsfólk verslunar í Hafnarfirði óskaði eftir aðstoð lögreglu vegna manns sem sagt var að reynt hefði að greiða fyrir vörur með fölsuðum peningaseðli. Lögreglan tók seðilinn en við skýrslutöku á vettvangi neit- aði maðurinn öllum sakargiftum. Alvarlegt íþróttaslys varð í Garða- bæ. Tíu ára stúlka sem var við fim- leikaæfingar á trampólíni féll og hef- ur líklega brotnað á báðum handleggjum. Hún var flutt með sjúkrabíl á slysadeild. Loks má nefna að erlendir ferða- menn sem fest höfðu bílaleigubíl í snjó á Nesjavallaleið óskuðu eftir að- stoð. Leiðin var merkt ófær en ferðafólkið sagðist ekki hafa tekið eftir skiltinu. Lögreglan sótti fólkið á jeppabifreið og flutti í bæinn. „Sprengja“ á leikskólalóð  Mikill erill hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu Morgunblaðið/Hari Forgangsakstur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði mikið að gera.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.