Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 8

Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is Verkfæralagerinn                     í miklu úrvali, gæða- vara á góðu verði Kolibri penslar Handgerðir þýskir penslar  !  "!#$ á afar hagstæðu verði Ennþá meira úrval af  % WorkPlus Strigar frá kr. 195 Ásdís Kristjánsdóttir, hagfræð-ingur Samtaka atvinnulífsins, birti grein á vef samtakanna í gær þar sem bent var á að efnahags- lægð væri nú yfir landinu þó að ým- islegt jákvætt hefði gerst á nýliðnu ári.    Ásdís nefndi aðaðlögun að breyttum aðstæðum gæti orðið mild ef rétt væri að málum staðið: „Stjórnvöld boða skattalækkanir og aukið fjár- magn verður sett í opinberar fram- kvæmdir. Þá hefur Seðlabankinn lækkað stýrivexti um 150 punkta á árinu. Viðbrögð hagstjórnaraðila við breyttum efnahagsforsendum eru í senn eðlileg og jákvæð. Meira þarf þó að koma til. Á sama tíma og stýrivextir Seðlabankans eru í sögulegu lágmarki eru skamm- tímaraunvextir á skuldabréfamark- aði álíka og áður en vaxtalækk- unarferlið hófst. Viðskipta- bankarnir berjast nú við að skila ásættanlegri arðsemi við skilyrði íþyngjandi eiginfjárkvaða og sér- íslenskra bankaskatta. Hefur það skilað sér í hærri útlánavöxtum en ella. Á næstu misserum verða stjórnvöld og Seðlabankinn að tryggja heilbrigt rekstrarum- hverfi.    Það dugar þó ekki að endur-skoða einungis sérálögur á fjármálafyrirtækin heldur einnig aðra skattstofna – tryggingagjald, tekjuskattur fyrirtækja, fjármagns- tekjuskattur, veiðigjald, gistinátta- skattur og kolefnisgjald eru dæmi um nýja skatta eða eldri sem hafa hækkað síðastliðin ár.“    Enginn vill að efnahagslægðinverði meira en skammtíma- fyrirbæri. Til að forðast það þurfa stjórnvöld að lækka og í ein- hverjum tilvikum fella niður þá skatta sem Ásdís taldi upp. Ásdís Kristjánsdóttir Lækka þarf skatta – af nógu er að taka STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ekkert verður leitað að Rimu Grun-skyté Feliksasdóttur á næstu dögum. Hennar hefur verið saknað frá 20. desember. Talið er að hún hafi fallið í sjóinn við Dyr- hólaey en þar fannst bíll hennar. Ákvörðun um næstu leit hefur ekki verið tekin, sagði Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á Suður- landi, við mbl.is í gær. Hann gerði ráð fyrir því að Rimu yrði leitað aftur eftir hálfan mánuð eða þrjár vikur og þá gengið eftir fjörum. Síðast leitað á sunnudag Ekkert veður er í kortunum fyr- ir leit næstu daga. Rimu var síðast leitað á sunnudag en þá fór hópur björgunarsveitarmanna og leitaði í fjöru frá Jökulsá að Bakkafljóti, að því er Davíð Már Bjarnason, upp- lýsingafulltrúi Landsbjargar, sagði við mbl.is í gær. Engin ákvörðun hefur verið tekin um leit að Andris Kalvans sem ekkert hefur spurst til síðan 28. desember, að sögn Davíðs, en hans var síðast leitað síðastliðinn föstudag vegna óveð- urs um síðastliðna helgi. Aukinn kraftur var settur í leitina á föstu- dag vegna vitneskju um komandi óveður. „Báðar aðgerðir eru komnar á það stig að framhaldið er algjör- lega í höndum lögreglu,“ segir Davíð. Óvissa um leit að Rimu og Andris  Líklega leitað að Rimu eftir hálfan mánuð  Veðrið hamlar leitarstarfi Andris Kalvans Rima Grunskyté Vænst er að átta stórmeistarar í skák taki þátt í árlegu skákmóti sem haldið verður í dag á afmælisdegi Magnúsar V. Péturssonar, fyrrver- andi forstjóra og milliríkjadómara í handbolta og knattspyrnu. Magnús, sem varð 87 ára á gamlársdag, er meðal virkustu eldri skákmanna landsins og hefur lengi haldið upp á afmæli sitt með því að hóa mönnum saman í skák. Mótið í dag verður það áttunda í röðinni og verður nú haldið í Ásgarði, salarkynnum Fé- lags eldri borgara í Stangarhyl 4 í Reykjavík. Afmælismótið hefst kl. 13 og í boði eru vegleg verðlaun og viðurkenn- ingar. Tefldar verða 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma. Magnús V. Pétursson hefur unnið sér margt til frægðar á skáksviðinu, meðal annars að gera jafntefli við Mikhail Tal, fyrrverandi heims- meistara í skák, árið 1957 í Moskvu, Fyrir þremur árum var Magnús sæmdur heiðursmerki Skáksam- bands Íslands fyrir framlag sitt. Það merki fór í safn 11 gullmerkja sem hann hafði áður fengið frá íþrótta- hreyfingunni. Teflt af góðu tilefni  Magnús 87 ára  Skákmót í Stang- arhyl í dag  Átta stórmeistarar mæta Skák Friðrik Ólafsson og Magnús V. Pétursson hér saman á góðri stundu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.