Morgunblaðið - 07.01.2020, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020
Fylgst með Spakur hundur virðir fyrir sér útsýnið út um glugga við Hverfisgötuna og fylgist grannt með ferðum manna og dýra á fyrstu dögum nýs árs.
Eggert
Í mörgum stórum
mikilvægum málum
sem meðal annars
varða aukið umferð-
aröryggi á vegum
borgarinnar og vernd-
un umhverfis hefur
núverandi meirihluti í
Reykjavík sýnt af sér
bæði ráðaleysi og yfir-
gang.
Af mörgu er að taka
en í þessari grein verð-
ur sérstaklega fjallað um eftirtalin
málefni:
Elliðaárdalurinn
Meirihutinn hefur samþykkt að
heimila stórfellda uppbyggingu í
Elliðaárdal norðan Stekkjarbakka.
Meðfram Stekkjarbakka stefnir
meirihlutinn að uppbyggingu á fjór-
um lóðum og að heimila þar hvorki
meira né minna en um 12.000 fer-
metra byggingarmagn. Einnig er
útilokað að Stekkjarbakkinn verði
fjögurra akreina gata eins og áður
var stefnt að. Umferð um Stekkjar-
bakkann er þegar orðin verulega
mikil og stefnir í óefni. Fjölgun
gangandi og hjólandi vegfarenda
mun ekki leysa umferðarvandann á
þessari götu.
Borgarfulltrúi meirihlutans segir
að þetta svæði líti illa
út, þar sé stunduð
vafasöm starfsemi og
þar megi jafnvel sjá
kanínur á ferli. Skóg-
rækt hófst 1951 í
Elliðaárdalnum en fyr-
ir alvöru 1976. Þá voru
í dalnum nokkur svæði
í töluverðri órækt. Þau
eru nú skógi vaxin og
skarta sínu fegursta.
Engum borgarfulltrúa
á þessum tíma, hvorki í
meiri- né minnihluta,
kom til hugar að
byggja á þessum svæðum.
Mislæg gatnamót
Borgarfulltrúar meirihlutans
virðast umhverfast þegar minnst er
á mislæg gatnamót. Aðgerðaleysi
meirihlutans í þeim efnum hefur
ekki síst átt stóran þátt í því að al-
gjört umferðaröngþveiti ríkir nú á
götum borgarinnar. Mislæg gatna-
mót eru á nokkrum stöðum í
Reykjavík og eru þar í ágætri sátt
við sitt nánasta umhverfi. Hinn 21.
mars árið 2017 var lögð fram tillaga
minnihlutans í borgarstjórn „um að
teknar verði upp viðræður við Vega-
gerðina um gerð mislægra gatna-
móta við Reykjanesbraut-
Bústaðaveg í því skyni að auka
umferðaröryggi, draga úr mengun
og greiða fyrir umferð“. Útfærðar
teikningar fylgdu með, sem sýndu
vel hönnuð mislæg gatnamót á
Reykjanesbraut og Bústaðavegi.
Elliðaárnar óskertar og Elliðaárdal-
urinn einnig. Ein lítil breyting var
þó gerð á texta með tillögunni að
beiðni meirihlutans, sem var sam-
þykkt. Það var að í stað orðanna
„gerð mislægra gatnamóta“ kæmi
„útfærsla gatnamóta“. Feluleikur
meirihlutans. Þrátt fyrir skýra and-
stöðu meirihlutans mörg undanfarin
ár við mislæg gatnamót á fyrr-
nefndum gatnamótum er ljóst að
Sigurður Ingi samgönguráðherra
hefur þvingað þau inn í nýgerðan
samgöngusáttmála ríkis og sveitar-
félaga á höfuðborgarsvæðinu.
Einkabíllinn
Einkabíllinn hefur orðið fyrir
miklum ónotum frá borgarfulltrúum
meirihlutans. Honum er kennt um
allt það vandræðaástand sem nú
ríkir á götum borgarinnar þegar
staðreyndin er sú, að aðgerðaleysi
meirihlutans í stofnbrautarfram-
kvæmdum í a.m.k. 10 ár er aðal-
ástæðan. Það er t.d. afar líklegt að
borgarfulltrúar meirihlutans noti
einkabílinn svipað og flestir borgar-
búar sem eiga einkabíl. En meiri-
hlutinn kýs oftast að horfa framhjá
staðreyndum sem blasa við í um-
ferðarmálum höfuðborgarinnar. Það
er helsta ástæðan fyrir því um-
ferðaröngþveiti sem er flesta daga á
götum Reykjavíkur og víðar á
höfuðborgarsvæðinu.
Sundabraut
Gerð Sundabrautar yfir Elliðaár-
vog hefur ekki verið áhugamál
meirihlutans. Á þeim vettvangi ger-
ir hann sem allra minnst og hefur
ekki haft neitt frumkvæði í að flýta
þeirri mikilvægu framkvæmd nema
síður sé. Hinn 22. sept. 2011 var
undirrituð viljayfirlýsing af hálfu
innanríkis- og fjármálaráðuneytis,
Vegagerðarinnar og Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu, þar sem borgarstjóri situr í
stjórn, sem gerir ráð fyrir frestun
Sundabrautar í 10 ár. Í borgar-
stjórn 21. mars 2017 var samþykkt
eftirfarandi tillaga borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins: „Borgarstjórn
samþykkir að hefja viðræður við
innanríkisráðuneytið um Sunda-
braut.“ Meirihlutinn hefur ekki
stofnað til neinna alvöruviðræðna
við samgönguráðherra um þetta
mikilvæga mál, en nú eru liðin um
þrjú ár frá samþykkt tillögunnar. Á
sama tíma sem meirihlutinn sýnir
byggingu Sundabrautar og öðrum
mikilvægum stofnbrautafram-
kvæmdum algjört áhugaleysi hefur
bifreiðum fjölgað verulega og íbúa-
fjöldi aukist úr u.þ.b. 200 þúsund í
um 220 þúsund á höfuðborgarsvæð-
inu. Til viðbótar hefur erlendum
ferðamönnum á Íslandi fjölgað gríð-
arlega.
Nú hefur samgönguráðherra
ákveðið að kynna næstu skref að
Sundabraut fljótlega. Hann telur að
lágbrú með tengingu við Holtaveg
sé besti kosturinn. Aðalskipulag
Rvk. 2010-2030 gerir ekki ráð fyrir
tengingu Sundabrautar við Holta-
veg. Gallinn við þá lausn er m.a. sá
að starfsemi hafnarinnar við Voga-
bakka mun skaðast verulega. Meiri-
hlutinn í Reykjavík eyðilagði besta
kostinn, þ.e. lágbrú með tengingu
við Kleppsmýrarveg, með úthlutun
lands við Elliðaárvog fyrir um 350
íbúðir. Áform samgönguráðherra
um að hefja undirbúning að fram-
kvæmdum við Sundabraut er
greinilega ekki vegna hvatningar
frá borgaryfirvöldum.
Trúlega er Reykjavík nú í hópi
þeirra borga þar sem skipulag um-
ferðar er í hvað mestum ólestri, að
teknu tilliti til mannfjölda og efna-
hags.
Eftir Vilhjálm
Vilhjálmsson » Borgarfulltrúi meiri-
hlutans segir þetta
svæði líta illa út, þar sé
stunduð vafasöm starf-
semi og þar megi jafnvel
sjá kanínur á ferð.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Höfundur er fv. borgarstjóri.
Ráðaleysi meirihlutans í Reykjavík