Morgunblaðið - 07.01.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 07.01.2020, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020 Ég hef alla ævi þekkt Árna móður- bróður minn en ég kynntist honum betur á síðustu fimm árum þegar ég vann við doktorsritgerð mína um Arinbjarnarkviðu eftir Egil Skallagrímsson. Árni, eins og flest móðurfólk mitt, hafði mik- inn áhuga á íslenskum fræðum og við Árni höfum haft um margt að tala. Mér finnst eins og Árni hafi haft betri skilning en ég á fyrri tímum vegna þess að hann fædd- ist þegar atvinnuhættir voru líkir því sem þeir voru á dögum Egils. Árni gerði miklar kröfur til sjálfs sín en hann setti ekki út á hvað aðrir gerðu. Ég held að óhætt sé að segja að verk hans, sem mörg tengdust framförum í atvinnu- háttum, fremur en orð hafi orðið til þess að margir litu upp til hans án þess þó að Árni ætlaðist til þess. Ég kveð Árna frænda með söknuði en þakka jafnframt fyrir nærri níutíu og eitt árið sem hann lifði mér og öðrum til gagns og fyrirmyndar. Þorgeir Sigurðsson. Ég hafði unnið nokkra mánuði á Raunvísindastofnun Háskóla Íslands þegar ég kynntist Árna Benediktssyni fyrst. Á RHÍ var Rögnvaldur Ólafsson að berjast fyrir framleiðslu skráningar- tækja í fiskiðnaði og hafði ráðið tvo nýútskrifaða skólafélaga mína, Jón Þór Ólafsson og Brand St. Guðmundsson, til verksins. Ég fékk svo vinnu hjá Rögnvaldi þeg- ar Jón Þór og Brandur voru að ljúka við fyrstu skráningarvogina. Rögnvaldur komst í samband við Árna Benediktsson í Fram- leiðni sf., sem sá þarna vænlegan möguleika og fól Gylfa Aðal- steinssyni að koma á sölu og framleiðslu á skráningarvogum. Nýtingar- og bónusskráning var mikið vandamál í fiskiðnaði og það vantaði skráningarbúnað. Ég var svo færður yfir í Framleiðni sf. og átti að vinna að framleiðslu voga. Það sem mér er minnisstæðast þegar ég hitti Árna í fyrsta sinn í Framleiðni er að hann rétti mér handhafaávísun upp á tvær millj- ónir til að kaupa fyrir tæki sem vantaði á Raunvísindastofnun. Tvær gamlar milljónir frá sumr- inu 1979 eru í dag sama og tvær milljónir í nýkrónum. Þetta var einkennandi fyrir Árna. Hann treysti starfsmönnum sínum full- komlega, í einu og öllu. Þegar ég rifjaði upp árin í Framleiðni áttaði ég mig líka á því að Árni var mjög glöggur í mannaráðningum, því allt var þetta úrvals fólk sem sýnt hefur sjálfstæði og áræði í starfi. Þar sem Árni treysti sínu fólki var hann heldur ekki að nöldra þegar hlutirnir gengu ekki upp. Maður heyrði kannski smá taut þegar hann sneri sér við og fór. Maður tók það sem merki um að nú þyrfti að redda málinu snarlega. Árni Benediktsson ✝ Árni Benedikts-son fæddist 30. desember 1928. Hann lést 28. desem- ber 2019. Útför Árna fór fram 6. janúar 2019. Marel hf. varð til árið 1983 upp úr starfseminni í Fram- leiðni sf. og með flutningi vöruþróun- ar frá Raunvísinda- stofnun yfir í Marel. Marel hf. varð til sem fullkeyrandi fyrir- tæki með innan- landsmarkað og vísi að útflutningi bæði austur um haf og vestur. Marel hf. varð því til í skjóli Árna Benediktssonar í Framleiðni sf. Ég hitti stundum Árna á förn- um vegi og mér fannst hann alltaf eins og eldast vel. Ég talaði við hann seinast í síma fyrir nokkrum mánuðum og fann ekki mikinn mun, en hann sagði að sér færi hratt aftur. Með Árna er genginn einn af merkustu mönnum sem ég hef kynnst. Alltaf samkvæmur sjálfum sér. Pétur Jónsson. Við kveðjum í dag mikinn frumkvöðul í íslenskum sjávarút- vegi. Árni Benediktsson var, að öðr- um ólöstuðum, einn helsti forvíg- ismaður mikilla framfara hjá sjáv- arútvegsfyrirtækjum innan Sambands íslenskra samvinnu- félaga á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Þá voru nær öll hraðfrystihús landsins innan tvennra stórra sölusamtaka, Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sjávarafurðadeildar Sambands- ins. Samkeppni þessara sölusam- taka var drifkraftur breytinga í átt til aukinna gæða og bættrar meðferðar á hinu verðmæta hrá- efni sem unnið var. Bætt nýting aðfanga og skipulagðari vinnu- brögð, samfara aukinni menntun stjórnenda í greininni, skapaði aukin verðmæti. Ég kynntist Árna Benedikts- syni árið 1982 er ég réðst til starfa hjá fyrirtækinu Framleiðni sf. sem hann stýrði. Framleiðni sf. var í eigu Sambandsfrystihús- anna og sinnti einkum ráðgjöf fyr- ir þau á sviði framleiðslustjórnun- ar, fisktækni, vinnuvistfræði og fiskvinnslukerfa. Árna var vel ljóst að til að auka gæði framleiðslunnar í hraðfrysti- húsunum var nauðsynlegt að tryggja rekjanleika fisksins, allt frá veiðislóð til neytanda. Aðeins með því að þekkja öll vinnslustig, mæla og skrá framleiðsluþætti væri hægt að bæta nýtingu og flýta framleiðsluferlinu til að varðveita ferskleika fisksins. Á þessum árum höfðu frumkvöðlar í Háskóla Íslands unnið með nokkrum fiskverkendum að þarfagreiningu sem leiddi til þess að hugmyndir þróuðust um nýt- ingu rafeindatækninnar til tölvu- skráninga í framleiðsluferli fisk- vinnslunnar. Árni gerðist mikill baráttumaður þess að Sam- bandsfrystihúsin tækju þessi mál föstum tökum. Skemmst er frá því að segja að fyrstu Marel-raf- eindavogirnar litu dagsins ljós, framleiddar af Framleiðni s.f. með samvinnu Raunvísindastofn- unar Háskóla Íslands og nokk- urra Sambandsfrystihúsa og und- irverktaka. Árni valdi Marel nafnið, þegar nokkrar tillögur höfðu verið nefndar. Sagan segir að hann hafi ekki tekið lengri tíma í það val, en það tók hann að snara sér í jakkann á skrifstofunni! Full- yrða má að forysta Árna Bene- diktssonar var mjög mikilvæg, á erfiðum uppvaxtarárum nýsköp- unarverkefnisins. Eins og oft vill verða um stórar hugmyndir þá skortir yfirleitt ekki úrtölumenn. Þá var gott að eiga hauk í horni þann baráttumann sem Árni var. Árni var góður stjórnandi sem lét starfsfólk sitt, í flestum tilvik- um unga stráka, njóta frjálsræðis við úrvinnslu verkefna, þegar stefnan hafði verið mótuð. Hann varði sína undimenn af festu og gaf okkur holl ráð og góð og þau Björg sýndu okkur umhyggju og gestrisni. Árni var snöggur til ákvarðana, mjög talnaglöggur, framsýnn og sá stóru myndina. Hann var samvinnumaður sem gat leitt ólíka aðila að sameigin- legu takmarki. Það var gaman að vinna undir stjórn Árna og vera þátttakandi í þeim byltingar- kenndu umbótum sem urðu með tilkomu Marel-tækjanna. Enn þann dag í dag býr Marel að þeim góða grunni sem lagður var í önd- verðu. Við fráfall Árna sendum við Magga Björgu og öllum aðstand- endum einlægar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Árna Bene- diktssonar. Þórólfur Árnason. Leiðir okkar Árna Benedikts- sonar lágu saman árið 1978. Þau kynni skiptu miklu máli fyrir mig og verkefnið sem ég vann þá að. Eftir á að hyggja skiptu þau líka miklu máli fyrir atvinnuvegi þjóð- arinnar. Við andlát Árna langar mig til að rifja upp þessi kynni. Þetta voru ár mikilla breytinga í íslenskum sjávarútvegi og Sam- band íslenskra samvinnufélaga átti stóran þátt í þeim. Það keypti útgerðir og fiskvinnslur og efldi fyrirtækin með kaupum á skut- togurum sem gátu tryggt hráefni allt árið. Markmiðið var að breyta sjávarútvegi úr árstíðabundnum atvinnuvegi í atvinnuveg þar sem vinna var tryggð allt árið. Fram- leiðni sf. var stofnað til að vinna að þessu og að því stóðu Sjávaraf- urðadeild Sambandsins, sölufélög Sambandsins erlendis og frysti- hús þess. Árni var ráðinn til að veita Framleiðni forstöðu en á þessum árum vann hann fjölda- mörg störf fyrir sjávarútveginn. Ég var nýkominn frá námi í Kanada þar sem ég hafði kynnst nýrri rafeinda- og tölvutækni og starfaði við Raunvísindastofnun Háskólans. Snemma árs 1978 höfðum við Þórður Vigfússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri Þormóðs ramma, skrifað skýrslu um hvað ný tækni gæti gert fyrir íslenskan sjávarútveg með því að bæta nýtingu í frystihúsum. Nýta ætti rafeindavogir og tölvutækni í vinnslunni. Þar var lagt til að tæk- in væru hönnuð og smíðuð á Ís- landi. Skýrslan vakti áhuga Sig- urðar heitins Markússonar, framkvæmdastjóra Sjávarafurða- deildar Sambandsins. Sigurður sendi mig til Árna í Framleiðni. Hann hafði strax áhuga og skiln- ing á verkefninu. Árni hafði ráðið til Framleiðni stóran hluta af fyrsta árgangi Fiskvinnsluskól- ans sem menntaði fólk fyrir sjáv- arútveginn. Fyrir hópi sem kann- aði arðsemi og nýtingu stóð Gylfi Aðalsteinsson hagfræðingur, ný- lega kominn frá námi í Svíþjóð. Hópurinn hafði mælt nýtingu í frystihúsum og var mjög vel að sér um hvernig mætti auka hag- kvæmni. Til þess þurfti nýjan tækjabúnað, vogir og tölvur. Áhugi minn og hagsmunir Fram- leiðni féllu því vel saman. Vorið 1978 komst á gott sam- starf milli Raunvísindastofnunar og Framleiðni. Ég réð nýútskrif- aða verkfræðinga í verkefnið og við unnum að rannsóknum, hönn- un og þróun á Raunvísindastofn- un. Nutum við þekkingar sér- fræðinga Framleiðni og starfsfólks frystihúsa Sambands- ins, sérstaklega Tryggva Finns- sonar og Hallgríms Valdimars- sonar hjá Fiskiðjusamlaginu á Húsavík. Sala og umsjón með framleiðslu var hjá Framleiðni, en framleiðslan sjálf hjá Öryrkja- bandalagi Íslands. Þetta var ákaf- lega farsælt og ánægjulegt sam- starf, aldrei átök eða vesen. Árni stóð þarna á bak við, fylgdist með, lét ekki mikið á sér bera en gerði vafalaust meira en við unga fólkið gerðum okkur grein fyrir til að allt gengi upp. Verkefnið var rek- ið á þennan hátt þangað til Marel hf. var stofnað vorið 1983. Starf Árna og starfsemi Fram- leiðni sf. var áreiðanlega stór þátt- ur í þeirri miklu breytingu sem hefur orðið á íslenskum sjávarút- vegi á síðustu hálfri öld. Skref í að greinin breyttist úr frumstæðum vertíðaatvinnuvegi í háþróaðan iðnað sem skilar miklu fyrir þjóð- ina. Rögnvaldur Ólafsson. Magnús Jón Björgvinsson er fall- inn frá saddur líf- daga. Mansi, eins og hann var æv- inlega kallaður af sveitungunum, var fæddur og uppalinn í Klaust- urhólum í Grímsnesi. Mansi og kona hans, Jónína Brynja Krist- insdóttir (Nína), tóku við jörðinni 1962 af foreldrum Mansa og bjuggu þar til ársins 1964 að þau seldu jörð og búsmala og fluttu til Reykjavíkur. Var mikil eftirsjá að Klausturhólafjölskyldunum þegar þær fluttu úr sveitinni. Klausturhólabændur voru áberandi í félagslífi sveitarinnar meðan þeirra naut við, voru ráð- hollir og raungóðir. Heimilið í Klausturhólum var ávallt talið til fyrirmyndar hvað sneri að heimilishaldi og snyrti- mennsku innan húss sem utan. Var Mansi þar enginn eftirbátur Magnús Jón Björgvinsson ✝ Magnús JónBjörgvinsson fæddist 5. nóv- ember 1935. Hann lést 19. desember 2019. Útför Magnúsar fór fram 6. janúar 2020. feðra sinna. Eftir að hann hafði komið sér fyrir í Reykjavík ávann hann sér fljót- lega traust vinnu- félaga sinna og var kjörinn af þeim til trúnaðarstarfa í stéttarfélagi þeirra auk félagsstarfa á öðrum vettvangi. Mansi unni Grímsnesinu. Liðu ekki mörg ár frá flutningi hans úr sveitinni að hann byggði sér bú- stað í Klausturhólalandi og naut veru sinnar í honum meðan heils- an leyfði. Þegar kom til tals að stofna fé- lag, sem hefði að markmiði að leggja sveitinni gott til, kom nafn Mansa fyrst upp í hugann. Sat hann í stjórn félagsins, Hollvina Grímsness, fyrstu árin og tók virkan þátt í störfum þess af áhuga og natni. Ég vil fyrir hönd félagsmanna þakka honum sam- starfið. Að lokum viljum við, systkinin frá Efri-Brú, þakka Mansa fyrir áralanga vináttu og vottum af- komendum hans og fjölskyldum innilega samúð. Guðmundur Guðmundsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁGÚSTA Þ. GÍSLADÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Grund laugar- daginn 28. desember. Útförin fer fram frá Neskirkju 8. janúar klukkan 13. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar fyrir hlýhug og góða umönnun. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins. Ólafur Davíðsson Helga Einarsdóttir Sigrún Davíðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR MAGNÚS MAGNÚSSON skipstjóri, lést þriðjudaginn 31. desember. Útförin fer fram frá Eskifjarðarkirkju fimmtudaginn 9. janúar klukkan 14. Guðrún Aðalbjörg Halldórsdóttir Bryndís Fjóla Sigurðardóttir Þorbergur Níels Hauksson Magnús Ómar Sigurðsson Rósamunda Karlsdóttir Brynjar Sigurðsson Þórhildur Þórhallsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BJARNEY GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 3. janúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 15. janúar klukkan 13. Margrét Elín Guðmundsd. Guðmundur Sophusson Kristín Guðmundsdóttir Ólafur Jónsson Bjarni Guðmundsson María G. Sigurðardóttir Þuríður Guðmundsdóttir Jonathan Wiedemann Rós Guðmundsdóttir Þorvaldur Ingimundarson Jason Guðmundsson Tinna Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR RAFNAR JÓNSSON, lést á Vífilsstöðum 22. desember. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigríður Björk Þórðardóttir Sigurður Óskar Björgvinsson Hjörtur Þórðarson Heléne Alfredsson Harpa Þórðardóttir Ásmundur Þórðarson barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, fóstri, tengdafaðir, afi og langafi, HERMANN ÁSKELL GUNNARSSON, áður Álfhólsvegi 90, lést á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt föstudagsins 3. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Lindakirkju í Kópavogi fimmtudaginn 9. janúar klukkan 15. Guðbjörg Greta Bjarnadóttir Þórkatla Hermannsdóttir Þorkell Þorkelsson Kristrún Hermannsdóttir Jón Gunnar Þorkelsson Óskar Gunnlaugsson Hrönn Helgadóttir Ásta B. Gunnlaugsdóttir Samúel Örn Erlingsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÞÓR HJARTARSON rafvirki, sem lést föstudaginn 20. desember, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 10. janúar klukkan 13. Bergljót Hulda Sigurvinsdóttir Júlíus Sigurþórsson Justyna Klosinska Hulda Sigurþórsdóttir Guðjón Örn Emilsson og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR GUNNARSSON, fyrrverandi bóndi, Selfossi I, sem lést mánudaginn 30. desember, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju fimmtudaginn 9. janúar klukkan 14. Steinunn Eyjólfsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.