Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 21

Morgunblaðið - 07.01.2020, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Halldóra ElínJónsdóttir fæddist á Akureyri 10. október 1928. Hún lést á Dvalar- heimilinu Hlíð, Ak- ureyri, 26. desem- ber 2019. Foreldrar hennar voru Jón Al- mar Eðvaldsson frá Akureyri og Jak- obína Guðbjarts- dóttir frá Þernu- skeri á Látraströnd, S-Þing. Systkini Elínar voru Einar Gunnar, sem lést barn að aldri, Erna Heiðrún, Einar Gunnar yngri og Bjarni Páll og eru þau látin. Fyrri maður Elínar var Valdemar Flemming Hansen, f. 6. ágúst 1925 í Danmörku, d. 21. desember 2000. Þau gengu í hjónaband haustið 1947 og fluttu síðan til Álaborgar. Dóttir þeirra er Aníta Lisbeth, f. 1949. Maður hennar er Ingvar Vagns- son. Börn þeirra eru a) Ingvar Þór, kona hans er Inga María Sigurbjörnsdóttir; b) Erlingur, kona hans er Malin María Ingv- Örn. 3) Erna, f. 1959. Maður hennar er Pétur Snæbjörnsson. Dætur Ernu og Gunnlaugs Briem eru: a) Aníta, maður hennar er Constantín Paras- kevopolous, og b) Katrín. Dætur Péturs eru a) Þuríður, maður hennar er Benedikt Einarsson, og b) Ástríður, unnusti hennar er Sindri Snær Einarsson. Elín á 28 langömmubörn og eitt langa- langömmubarn. Elín fór að vinna á Vistheim- ilinu Sólborg 1971. Hún lét mál- efni fólks með þroskahömlun sig miklu varða og tók m.a. þátt í starfi Styrktarfélags vangefinna á Akureyri. Elín lauk kennara- prófi árið 1983 og var handa- vinna hennar sérgrein, en hún var alla tíð mikilvirk handa- vinnukona. Elín var sérkennari við Oddeyrarskólann á Akur- eyri. Elín söng í kirkjukór Lög- mannshlíðar í hálfa öld og um tíma í Söngfélaginu Gígjunni á Akureyri. Hún tók þátt í starfi Kvenfélagsins Baldursbrár í Lögmannshlíðarsókn í fjölda ára og síðari árin í Parkinson- samtökunum á Akureyri. Útför Elínar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 7. janúar 2020, klukkan 13.30. arsson; c) Elín Sig- ríður, kona hennar er Stine Lippert. Hálfsystkini Anítu samfeðra eru Allan, sem er látinn, og Jette. Elín og Valdi- mar slitu samvistir. Síðari maður El- ínar var Þórarinn S. Halldórsson, f. 4. júní 1928, d. 1. júní 2016. Þau gengu í hjónaband 17. maí 1952. Þór- arinn gekk Anítu í föðurstað og ættleiddi hana. Elín og Þórarinn eignuðust saman þrjú börn. 1) Pétur f. 1951, d. 2007. Kona hans er Ingibjörg Svafa Siglaugs- dóttir. Börn þeirra eru a) Þór- arinn Ingi, kona hans er Hólm- fríður Björnsdóttir, b) Jón Helgi, kona hans er Íris Þorsteins- dóttir, og c) Heiða Björk, maður hennar er Björn Jónsson. 2) Jón Helgi. f. 1957. Börn hans og Mar- grétar Einarsdóttur eru: a) Hilmar, kona hans er Rebekka Arnbjörg Skúladóttir, b) Frið- jón, kona hans er Linda Björk Sumarliðadóttir, og c) Pétur Takk fyrir allt og allt elsku besta mamma mín. Hugur minn líður leitandi oft um liðinna ára strönd. Lít ég þar mynd af ljúfustu móður með lítið barn við hönd. Hún gætin það leiðir, geislar af ást og gleðst við hvert eitt spor. Saman fagna þau blómunum björtu sem brosa um æskuvor. Minningabrotin bera mér yl. Þeim blómum ég heitast ann er spruttu af gæsku gjöfullar móður sem garðinn sinn rækta kann. Þú skildir þar eftir ótal spor sem aldrei burtu mást. Þú gafst mér, mamma, gjöfina stærstu, þú gafst mér móðurást. (Hannes Sigurðsson) Þín dóttir, Erna. Elín var einstök kona, ég var heppin að eignast hana sem tengdamóður. Þegar litla fjöl- skyldan mín flutti norður til Dal- víkur árið 1984 kynntist ég henni vel. Ég var langt í burtu frá minni fjölskyldu og eignaðist í Ellu aðra móður fyrir norðan sem var mér einstaklega góð. Fyrir það er ég afar þakklát. Strákarnir mínir áttu alltaf athvarf hjá Ellu ömmu. Þegar við komum til Akureyrar feng- um við hlýjar og góðar mót- tökur. Hún spilaði við strákana, föndraði með þeim, las fyrir þá og lét þá lesa. Síðan bar hún fram ríkulegar veitingar af alúð og elskusemi. Þarna urðu til margar góðar minningar sem ég veit að hún naut og strákarnar njóta enn í dag. Ella var alltaf boðin og búin með allt sem hún gat gert fyrir okkur. Ég gleymi ekki þegar Ella kom til Dalvíkur á hverjum degi í marga mánuði og passaði yngsta drenginn sem gat ekki verið í leikskólanum vegna veik- inda. Ég dáðist oft að henni. Hún er mér fyrirmynd þegar ég er nú sjálf orðin amma þó svo ég nái ekki sömu hæðum og hún. Við Ella útskrifuðumst sama vor sem kennarar, ég tuttugu og tveggja ára en hún fimmtíu og fjögurra ára. Ella var í fjarnámi en kom stundum suður í námslotur og einhver skipti var hún hjá okkur. Það var gaman að fylgjast með áhuga hennar á náminu og síðar áhuga hennar á kennslunni. Hún bar hag nemenda sinna mjög fyrir brjósti og talaði máli þeirra sem minnst máttu sín. Hún lét oftast ekkert aftra sér í því sem hún vildi, fór þetta allt í rólegheitum og á elskuseminni. Fyrir henni voru allir jafnir, börn sem fullorðnir. Virðing og mannúð voru henni eðlislæg í allri umgengni. Ella var mikil hannyrðakona. Þess fengu börnin í fjölskyld- unni að njóta. Allir drengirnir mínir eiga bútasaumsteppi saumuð af ömmu og meira að segja tuskudýrin fengu sitt rúm- teppi. Drengirnir léku sér mikið með leikfangahestana sem hún saumaði handa þeim. Ég sit hér einmitt og horfi á fallegan jóla- dúk sem hún gaf mér. Við Ella vorum góðar vinkon- ur. Ég á margar einstaklega góðar minningar úr Helga- magrastræti þar sem var unað við leik og spjall. Oft sátum við og ræddum málin, ekki síst um skólamálin sem við báðar höfð- um brennandi áhuga á. Ella var góð kona, umhyggjusöm og blíð. Minningin lifir um þá einstöku konu sem Ella var. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir allt það sem ég og mínir fengum að njóta í samskiptum við Ellu. Ég votta fjölskyldunni mína dýpstu sam- úð. Margrét Einarsdóttir. Nú þegar Elín tengdamóðir mín hefur kvatt þetta jarðlíf er þakklæti efst í huga mér. Þakk- læti fyrir allt sem hún gaf af sér bæði til mín og fjölskyldu minn- ar. Þakklæti fyrir allar samveru- stundirnar jafnt í blíðu sem stríðu. Ég sé hana fyrir mér á hnján- um að leika við barnabörnin og síðar langömmubörnin, hún miðlaði þekkingu sinni og hún kenndi þeim ýmislegt því hún var kennari af lífi og sál. Ég sé hana með hannyrðir, hún var listræn og skapandi. Ég sé hana með svuntu að taka til „snarl“ sem reyndist oft margrétta máltíð, alltaf holl. Ég sé hana sorgbitna við and- lát sonar síns, en um leið vill hún hugga og styrkja. Ég sé hana rétta hjálparhönd. Ég sé hana syngja í kirkju- kórnum. Ég sé hana unga konu, ný- komna úr hárgreiðslu og svo aft- ur nýkomna úr jólaklippingunni rétt fyrir andlátið. Södd lífdaga, tilbúin til að kveðja þetta jarðlíf. Guði séu þakkir fyrir 50 ára samfylgd með Ellu. Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir. Elsku besta amma mín. Mikið er sárt að sjá á eftir þér. Þó svo að það skilji eftir mikinn söknuð munu minningarnar um þig varðveitast að eilífu. Þú kenndir okkur nefnilega að lifa í kærleik. Það var sama hvort þú bakaðir, eldaðir, undirbjóst föndurher- bergið eða söngst fyrir okkur, þú gerðir alltaf allt af svo mikilli ástúð og kærleik. Þú elskaðir alla í kringum þig. Ég mun aldrei gleyma sam- verustundum okkar í Felli, öllum dásamlegu heimsóknunum í Mýrarveginn, ferðum í Kjarna- skóg með afa Tóta og Pétri Erni frænda og safnaferðum í Nonna- hús, svo fátt eitt sé nefnt. Hjá ömmu Ellu var maður sérstak- lega öruggur og leiddist ekki í eina sekúndu, heldur sást þú alltaf um að okkur væri skemmt til fulls. Þú passaðir alltaf upp á okkur. Í þessu lífi trúi ég að mikill söknuður einkenni nánd og nær- veru, sem þú svo sannarlega veittir okkur alla tíð elsku amma mín. Við getum alltaf þakkað fyrir það. Mest af öllu mun ég þó sakna þess að heyra þig hlæja þessum yndislega hlátri sem þú bjóst yf- ir, sérstaklega núna þegar þú hefur yfirgefið þessa jarðvist. Ég sé þig fyrir mér brosa út í eitt með fallega ljósa hárið þitt, að dást að spilaborginni okkar frændsystkina eða hjálpa okkur við að klára púsl heima á Ak- ureyri. Hlátur þinn og alúð mun aldrei raskast í minningu og lifir endalaust hjá okkur, þeim þó nokkru yndislega heppnu afkom- endum þínum. Þið afi tókuð alltaf vel á móti gestum í gulu blokkinni á Mýr- arveginum og þú beiðst t.d. alltaf fyrir utan lyftuna til þess að fylgja okkur inn í íbúð. Einnig er jafn dásamlegt að muna eftir því hvernig þið lögð- uð á ykkur að fylgja okkur út eftir hverja heimsókn og biðuð svo saman í glugganum á fjórðu hæðinni. Þá horfðuð þið á eftir bílnum okkar keyra í burtu á meðan við kepptum um hver gæti vinkað hvert öðru bless sem lengst. Þú ert fyrirmyndin mín, elsku hjartans amma mín, og það voru forréttindi að líta upp til þín alla ævi og enn þann dag í dag vink- andi mér á fjórðu hæðinni í glugganum. Ég vona að þú horfir ennþá yfir okkur elsku engillinn. Hjart- að mitt er fullt af þakklæti. Dreymi þig undurfallega. Þú styrkir mig. Þín ömmustelpa alltaf, Katrín. Nú ertu farin í ljósið elsku amma mín. Þótt hjartað sé fullt af þakk- læti fyrir allan þann tíma sem við áttum og þau forréttindi að eiga heimsins yndislegustu ömmu er svo ósköp erfitt að kveðja. Amma var svo blíð, næm og tillitssöm við allar verur að hún vaknaði oft um miðjar nætur þegar skrambans kettirnir í Helgamagrastræti voru að reyna að ná í ungana uppi í trjánum, hljóp út og sprautaði vatni á þá. Verndari fuglanna og verndari okkar allra. Sagði mér að drullukökurnar mínar væru þær bestu sem hún hefði smakk- að og hjálpaði mér að skreyta þær með sóleyjum. Sumrin á Ak- ureyri voru sundlaugar- og Kjarnaskógarferðir og smátt skornir bitar af ristabrauði með kæfu, alltaf með hús fullt af barnabörnum sínum. Hún lagði mikið upp úr fallegri rithönd og keypti handa mér ótal svona „skápenna“ sem hún vildi svo mikið að ég gæti skrifað betur með. Skrifaði mér bréf á öllum mínum misskynsamlegu ferða- lögum um heiminn, hvatti mig og sagði mér hvernig afa liði. Því hún hugsaði alltaf meira um hvernig öðrum liði. Þegar ég spurði hana hvernig henni liði svaraði hún alltaf: „Það sem skiptir máli er að ykkur líði vel.“ Svona var amma. Glæsilegasta kona sem ég þekki þótt það mætti auðvitað aldrei segja henni hvað hún væri glæsileg. Hógværð og auðmýkt eru orð sem eru henni sam- dauna. Var það þess vegna afar fallegt augnablik þegar hún og afi mættu á mína fyrstu frum- sýningu í Þjóðleikhúsinu, hún í dökkbláu dragtinni sinni með ljósa hárið fullkomlega lagt, og salurinn stóð allur upp þar sem þau héldu að hún væri Vigdís Finnbogadóttir! Amma auðvitað roðnaði niður í gólf og vildi helst að gólfið gleypti sig, en þetta fannst mér fullkomið. Og fallegt og hæfandi hrós. Því hún var drottning, að utan sem innan, eins og Vigdís okkar. Svo var hún svo næm. Hún sagði mér upp úr þurru fyrir nokkru hvernig hún hefði byrjað nýtt nám þegar hún var fimm- tug. Skellti sér í sérkennaranám í háskólanum á miðjum aldri þótt það væri óvenjulegt á henn- ar samtíma. Því hún fann að ég var á krossgötum í mínu lífi og vinnu og þarna var hún að segja mér að vera hugrökk, ekki fest- ast í gömlum hugmyndum en troða óhrædd nýjar slóðir. Ef hún gæti verið hugrökk gæti ég það líka. Ég sit hérna, amma mín, um- vafin öllu því sem þú bjóst til. Þú varst svo mikil listakona! Hand- verkskona og söngkona. Saum- aðir föt á börnin þín fjögur sem og allar barbiedúkkur heimilis- ins. Og hér eru bókstaflega allir veggir, rúm og skenkar þaktir fallegu verkunum þínum elsku amma. Ég svaf með bútasaums- teppið mitt alveg upp að augum í nótt, eins og þú sért að taka utan um mig. Ég bakaði mömmukossana þína um daginn, já og bakaði og eldaði alla dagana sem þú lást á dánarbeðnum Fannst einhvern veginn að ef ég gæti búið til eins mikinn mat og bakkelsi og þú töfraðir alltaf fram úr ísskápn- um hvenær sem okkur bar að garði, þá myndirðu finna það einhvern veginn. Að þú vissir að sama hvað þú elskaðir okkur öll mikið værirðu elskuð enn meira. Og það mun ekki breytast eins lengi og ég lifi. Ég elska þig amma mín. Nú ertu engill. Þín Aníta. Elín Jónsdóttir ✝ Guðmann Mar-el Sigurðsson (Malli) fæddist í Reykjavík 21. ágúst 1954. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 12. des- ember 2019 eftir erfið veikindi, þó ekki langa sjúkra- húslegu. Foreldrar hans voru Sigurður Steindórsson, f. 10.8. 1926, d. 18.3. 2017, og B. Sigríður Marelsdóttir, f. 9.9. 1930, d. 17.9. 2017. Bróðir sam- feðra Jón Axel, f. 19.9. 1950, kona hans er Brynja Sigfúsdótt- ir, eiga þau tvo syni og 3 barna- börn. Jón Axel var síðar ætt- leiddur af Steindóri Péturssyni og Guðrúnu Gísladóttur. Eft- irlifandi sambýliskona Marels frá 2004 er Þuríður Jörgensen, f. 10.2. 1959, foreldrar hennar eru Per S. Jörgensen, f. 11.4. 1932, og Sigrún Ólafsdóttir, f. starfaði hann hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli við ýmis störf en lengst sem meindýra- eyðir, síðast í Umhverfisdeild- inni til margra ára þar sem áhugi hans á landgræðslu fékk að njóta sín. Marel bjó í nokkur ár í Reykjavík og starfaði m.a. hjá Eimskip, í Egilshöll og hjá Olíudreifingu Íslands. Eftir að hann og Þuríður fluttu til Reykjanesbæjar 2008 starfaði hann hjá Sýslumanni á Kefla- víkurflugvelli við gæslu eigna á varnarsvæði, hjá Flugmála- stjórn og síðar Isavia við örygg- isgæslu í Leifsstöð. Hér á árum áður starfaði hann fyrir íþróttahreyfinguna, sat í stjórnum Knattspyrnu- félags Keflavíkur/KFK, Hand- knattleiksfélags Keflavíkur og Njarðvíkur/HKN, og var liðs- stjóri meistaraflokks HKN. Hann stundaði golf og bridge um árabil, stangveiði stundaði hann öll sumur. Útför Marels fer fram frá Keflavíkurkirkju í dag, 7. jan- úar 2020, og hefst athöfnin kl. 13. 19.9. 1939. Marel átti einn son, barnsmóðir hans var Helga Birna Þórhallsdóttir, f. 23.10. 1955, d. 26.5. 2004. Sonur þeirra er Sigurður Ágúst Marelsson, f. 9.8. 1977, kona hans er Hrafna Júlíusdóttir, f. 18.5. 1983, börn þeirra eru: Tindur Kiljan, f. 8.9. 2007, og Ísafold Esja, f. 26.8. 2006, fósturdóttir Sigurðar, dóttir Hröfnu, er Hekla Kristín Sigurðardóttir, f. 28.8. 2001. Marel ólst upp í Keflavík nánast á íþróttavellinum þar sem faðir hans réð ríkjum, skólaganga hans var í Keflavík og að mestu hans starfsferill líka. Hann vann fyrir Keflavík- urbæ við mannvirki íþróttavall- arins m.m., bílstjóri hjá Olíu- samlagi Keflavíkur, en lengst af Vinur minn Guðmann Marel Sigurðsson, kallaður Malli, lést hinn 12. desember sl. Við Malli náðum saman í gegn- um íþróttir í Keflavík, þar sem hann byrjaði ungur að starfa að félagsmálum ásamt því að leika knattspyrnu. Það var ekki síst pabbi Malla, Sigurður Steindórs- son, íþróttafrömuður í Keflavík, sem var áhrifavaldur hjá okkur báðum. Malli byrjaði ungur að keppa fyrir Knattspyrnufélag Keflavík- ur í yngri flokkum í fótbolta. Hann leik með KFK upp í 2. flokk. Eftir að knattspyrnuferlin- um lauk tók hann til við fé- lagsstarfið og var í stjórn knatt- spyrnufélagsins í mörg ár. Þar byrjaði vinskapur okkar Malla, þar sem ég var kominn í stjórnina að tilstuðlan Sigga Steindórs, pabba hans. Malli tók þátt ásamt öðrum í stofnun Handknattleiksfélags Keflavíkur og Njarðvíkur, HKN, og endurreisti þar með handbolt- ann í Keflavík. Við félagarnir vor- um liðstjórar meistaraflokks fé- lagsins á meðan það starfaði. Að mínu mati var styrkur hans í að laða fram keppnisskap og móral liðsins utan vallar sem innan ein- stakur. Áhugamál Malla voru mörg og reyndi hann að smita mig af þeim mörgum. Ég nefni sem dæmi golf, sil- ungs- og laxveiði, brids og svo ég tali nú ekki um það sem hann lifði fyrir; náttúruvernd. Hann hefur gróðursett ótal tré og græðlinga víðsvegar á Suðurnesjum þar sem ekki var talið lífvænlegt land fyrir trjárækt. En þeir eru nú orðnir margir lundirnir hans sem eru orðnir mjög svo glæsilegir. Einnig var hann mikill dýravinur og átti bæði hunda og kött, sem hann elskaði mikið. Þau eru ófá ferðalögin, sem við félagarnir fórum saman, bæði ut- anlands og innan. Aðallega voru þetta ferðalög vegna íþrótta, sem fararstjórar en einnig fórum við oft til Englands að sjá fótbolta- leiki. Hann var harður stuðnings- maður Arsenal en ég stuðnings- maður West Ham. Það gátu oft orðið langar umræður um leiki þegar þessi lið mættust. Einnig fórum við saman í ferðir ótengdar íþróttum, m.a. ferðuðumst við mikið um Evrópu með Kristjáni Inga og Grétari Mar. Ekki má gleyma stórkostlegum ferðum okkar á tónleika The Rolling Sto- nes, sem við fórum í með kon- unum okkar til Kaupmannahafn- ar og Amsterdam. Þetta voru ógleymanlegir tímar. Malli datt í lukkupottinn þegar hann hitti eftirlifandi konu sína, Þuríði Jörgensen, sem hefur ver- ið honum stoð og stytta síðast- liðin 16 ár, sérstaklega var hún kletturinn í hafinu þegar veikindi Malla fóru að láta vita af sér. Það var mér mikils virði, Malli minn, að ná því að kveðja þig nokkrum klukkustundum áður en þú lést. Við sjáumst svo síðar á Emirates og London Stadium og ræðum málin. Ragnar Marinósson. Marel Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.