Morgunblaðið - 07.01.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.01.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020 England Bikarkeppnin, 3. umferð: Arsenal – Leeds........................................ 1:0 Ítalía Bologna – Fiorentina ............................... 1:1 AC Milan – Sampdoria............................. 0:0 Atalanta – Parma ..................................... 5:0 Juventus – Cagliari .................................. 4:0 Lecce – Udinese ....................................... 0:1 Napoli – Inter Mílanó .............................. 1:3 Staðan: Inter Mílanó 18 14 3 1 39:15 45 Juventus 18 14 3 1 35:17 45 Lazio 17 12 3 2 40:17 39 Roma 18 10 5 3 33:19 35 Atalanta 18 10 4 4 48:25 34 Cagliari 18 8 5 5 33:27 29 Parma 18 7 4 7 24:25 25 Napoli 18 6 6 6 28:25 24 Torino 18 7 3 8 24:26 24 Bologna 18 6 5 7 28:30 23 Hellas Verona 17 6 4 7 19:20 22 AC Milan 18 6 4 8 16:24 22 Udinese 18 6 3 9 14:28 21 Sassuolo 18 5 4 9 30:31 19 Fiorentina 18 4 6 8 22:29 18 Sampdoria 18 4 4 10 14:27 16 Lecce 18 3 6 9 22:36 15 Brescia 18 4 2 12 16:31 14 Genoa 18 3 5 10 19:36 14 SPAL 18 3 3 12 12:28 12 Katar Al-Arabi – Al-Sadd .................................. 1:6  Aron Einar Gunnarsson lék fyrstu 86 mínúturnar með Al-Arabi. Heimir Hall- grímsson þjálfar liðið. KNATTSPYRNA ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Akureyri: SA – Fjölnir......................... 19.30 Í KVÖLD! HANDBOLTI Danmörk Nyköbing – Esbjerg ............................ 19:31  Rut Jónsdóttir var ekki á meðal leik- manna Esbjerg. Svíþjóð Skuru – Heid ........................................ 26:24  Eva Björk Davíðsdóttir var ekki á meðal markaskorara Skuru. B-deild: Kristianstad – Aranäs......................... 32:19  Andrea Jacobsen skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad sem er efst í deildinni. Vináttulandsleikur karla Austurríki – Þýskaland........................ 28:32 Dominos-deild karla Keflavík – Tindastóll ............................ 95:84 Staðan: Stjarnan 12 10 2 1122:1000 20 Keflavík 12 9 3 1075:997 18 Tindastóll 12 8 4 1061:1006 16 Njarðvík 12 8 4 1014:887 16 KR 11 7 4 920:907 14 Haukar 12 6 6 1073:1049 12 ÍR 12 6 6 979:1035 12 Þór Þ. 12 5 7 957:993 10 Grindavík 12 5 7 1047:1071 10 Valur 12 4 8 974:1032 8 Þór Ak. 11 2 9 893:1038 4 Fjölnir 12 1 11 1020:1120 2 1. deild karla Hamar – Vestri ................................... 106:86 Staðan: Höttur 12 11 1 1040:928 22 Hamar 13 11 2 1287:1159 22 Breiðablik 12 10 2 1207:991 20 Vestri 11 6 5 957:881 12 Álftanes 12 5 7 983:1024 10 Selfoss 11 4 7 845:879 8 Snæfell 12 2 10 949:1150 4 Skallagrímur 11 2 9 921:1066 4 Sindri 10 1 9 808:919 2 1. deild kvenna ÍR – Keflavík b...................................... 71:80 Tindastóll – Fjölnir .............................. 71:80 Hamar – Njarðvík ................................ 51:54 Staðan: Fjölnir 13 10 3 973:836 20 Keflavík b 13 9 4 978:926 18 Njarðvík 13 8 5 843:727 16 Tindastóll 13 8 5 884:861 16 ÍR 13 7 6 827:756 14 Hamar 13 2 11 761:919 4 Grindavík b 12 1 11 640:881 2 NBA-deildin LA Clippers – New York ................. 135:132 Miami – Portland.............................. 122:111 Cleveland – Minnesota..................... 103:118 Phoenix – Memphis .......................... 114:121 LA Lakers – Detroit .......................... 106:99 KÖRFUBOLTI ings til New Orleans og unnu Saints, 26:20. Þetta voru óvænt úrslit sem sýna að Vikings virðist á réttri leið að nýju. Um kvöldið vann svo Seattle Seahawks verðskuldaðan sigur á Philadelphia Eagles, 17:9, í slag ránfuglanna. Í annarri umferðinni mætast því eftirfarandi lið um næstu helgi: Landsdeild: Green Bay Packers gegn Seattle Seahawks San Fransisco 49ers gegn Minne- sota Vikings Ameríkudeild: Kansas City Chiefs gegn Houston Texans Baltimore Ravens gegn Tennes- see Titans Undirritaður býst fastlega við að heimaliðin muni vinna alla fjóra leik- ina, en líklegasti útisigurinn yrði hjá Seattle í Green Bay. Aukavika í hvíld og að leika á heimavelli hefur sögulega hjálpað toppliðunum fjór- um í annarri umferðinni og það ætti að halda áfram. Leikstjórnendur ráða ferðinni Í ruðningsíþróttinni hefur staða leikstjórnandans mun meiri áhrif á leikinn en gerist í flestum liðsíþrótt- um. Hann les kerfi varnarliðsins þegar sóknin setur sig í stöðu og getur breytt skipunum þjálfara um hvað eigi að gera þegar tuðran er sett í leik. Í langflestum tilfellum tekur hann tuðruna frá miðherj- anum og annaðhvort gefur hana til ruðningsmanns eða sendir sendingu upp völlinn. Hann stjórnar því sókn- inni að miklu leyti hvað varðar út- setninguna á leikkerfunum. Af þeim sökum er mikill akkur fyrir NFL- liðin að hafa góða leikmenn í þessari stöðu. Það er hinsvegar hægara sagt en gert. Í gegnum áratugina hefur það oftast tekið nokkur ár fyrir flesta leikstjórnendur sem koma úr há- skólaliðunum að ná tökum á atvinnu- boltanum, en það er smám saman að breytast eftir því sem háskólabolt- inn líkist æ meir NFL leiknum. Tvö bestu liðin í Ameríkudeildinni eru dæmi um það. Patrick Mahomes, leikstjórnandi Kansas City Chiefs, sat á bekknum fyrsta keppnistímabilið með liðinu, en um leið og hann tók við leik- stjórninni á sókn Chiefs var ljóst að hann yrði stjörnuleikmaður. Hann var kosinn leikmaður ársins í deild- inni í fyrra, en það var aðeins annað keppnistímabilið sem hann var í byrjunarliði Chiefs. Sömu sögu er að segja um Lamar Jackson hjá Baltimore Ravens. Liðið fékk hann númer 32 í háskóla- valinu 2018 og forráðamenn liðsins ákváðu að setja hann beint í byrj- unarliðið það haust. Hann átti erfitt uppdráttar á fyrsta keppnistíma- bilinu – þurfti að læra af mistökum sínum – en hann sprakk svo út á þessu keppnistímabili og gæti unnið kosninguna um leikmann ársins þetta leiktímabil. Þessir tveir leikmenn eru mjög líkir hvað varðar leikstíl. Þeir eru báðir dæmi um þróun í stöðu leik- stjórnandans í NFL. Sögulega séð hafa leikstjórnendur ekki hlaupið mikið með tuðruna, bæði vegna þess að þeir hafa ekki verið góðir í því og þjálfurum er ógjarnt að setja þá í stöðu þar sem þeir gætu meiðst (les- endur: treystið mér þegar ég segi ykkur að þið viljið sem minnst hafa að gera að vera tæklaðir af NFL varnarmönnum!). Hafa gert liðin að toppliðum Mahomes og Jackson eru hins- vegar báðir ekki einungis góðir að kasta, þeir eru eldfljótir að hlaupa með tuðruna í gegnum vörn and- stæðinganna – annaðhvort sem upp- sett leikkerfi, eða að þeir eru að bregðast við leikkerfi sem hefur riðl- ast og eru að bjarga málunum. Þeir hafa gert bæði lið sín að topp- liðum deildarinnar en eru báðir í sömu deild, þannig að það mun sjálf- sagt vera annar hvor þeirra í Of- urskálarleiknum. Spá mín héðan vestra er sú að þegar reyknum linni muni það verða Baltimore Ravens úr Ameríkudeild og San Fransisco 49ers úr Lands- deild sem munu komast í Ofurskál- arleikinn í Miami þetta keppnis- tímabilið. gval@mbl.is Upphafið að endalokum meistaranna?  New England er úr leik en Gull- grafarar og Hrafnar stefna á Flórída AFP Lykilmaður Lamar Jackson hefur vakið mikla athygli sem leikstjórnandi Baltimore Ravens og gæti farið með liðinu alla leið í úrslitaleikinn. NFL Gunnar Valgeirsson Los Angeles Fyrsta umferðin í úrslitakeppni NFL ruðningsdeildarinnar hófst um helgina, en í henni sitja tvö toppliðin í deildunum tveimur hjá og bíða eftir að takast á við sigurlið fyrstu um- ferðarinnar á heimavelli. Eftir þessa leiki eru átta lið eftir og nú er það aðalfjörið sem tekur við. Á laugardagseftirmiðdag vann Houston Texans sprækt lið Buffalo Bills, 22:19, eftir að hafa lent undir 16:0, og seinna um kvöldið voru nú- verandi meistarar New England Patriots slegnir út úr keppninni á heimavelli sínum af Tennesse Tit- ans, 20:13. Með tapinu eru nú miklar pælingar hér vestra um hvort þessi úrslit verði upphafið á endalokunum hvað varðar yfirburði Patriots í deildinni undanfarna tvo áratugi. New England lék ekki eins vel í deildakeppninni þetta keppn- istímabil og fólk er vant, þannig að tapið kom ekki eins á óvart og vænta mátti. Óvissa með Brady og möguleg uppstokkun Tom Brady, 42 ára gamli leik- stjórnandi Patriots, er nú með laus- an samning og hann seldi nýlega hús sitt í Massachusetts, þannig að pæl- ingarnar um framtíð hans fylla nú samfélagsmiðla NFL-eðjóta. Búast má við að forráðamenn Patriots muni nú hugsa sig vel um áður en að meiriháttar uppstokkun fer fram, en á meðan rúlla pælingar fram og aft- ur í fjölmiðlum. Það verður því nýtt lið meistari í ár. Á sunnudag fór Minnesota í vík- Cristiano Ronaldo sá til þess að- minna fór fyrir endurkomu Zlat- ans Ibrahimovic í ítalska fótbolt- ann en gert var ráð fyrir. Ronaldo skoraði þrennu fyrir Juventus í sannfærandi 4:0-sigri á Samp- doria. Er hann kominn með 13 mörk í 15 leikjum á tímabilinu. Zlatan spilaði í hálftíma fyrir AC Mílan gegn Sampdoria en tókst ekki frekar en öðrum leik- mönnum að brjóta ísinn í marka- lausu jafntefli. Leikurinn var sá fyrsti hjá Zlatan á Ítalíu síðan 2012. Ronaldo stal senunni af Zlatan AFP Senuþjófur Ronaldo gerði þrennu í sannfærandi sigri Juventus. Albert Guðmundsson, landsliðs- maður í knattspyrnu, reiknar með að geta byrjað að æfa á ný með hol- lenska liðinu AZ Alkmaar í lok jan- úar. Albert er á sínu öðru tímabili hjá félaginu en bein brotnaði í fæt- inum á honum í leik í lok september og hefur hann verið frá keppni síð- an. Albert sagði í viðtali við mbl.is í gær að planið hefði alltaf verið að byrja að spila á ný í lok febrúar eða byrjun mars og hann væri vongóður um að það tækist. Hann nær því tæp- lega leikjum liðsins í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. bjarnih@mbl.is Vongóður um að spila í lok febrúar AFP Meiðsli Albert Guðmundsson er frá keppni í samtals um fimm mánuði. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Viðar Örn Kjartansson, landsliðs- maður í knattspyrnu, gæti verið á förum frá Rússlandi í þessum mánuði. Þar er hann samnings- bundinn Rostov en leikur þetta tímabil með Rubin Kazan sem lánsmaður. Bæði liðin eru í rúss- nesku úrvalsdeildinni, Rostov er í toppbaráttu en Rubin Kazan í harðri fallbaráttu þar sem liðið situr í þrettánda sæti af sextán liðum og hefur aðeins skorað ell- efu mörk í nítján leikjum á tíma- bilinu. Viðar sagði við Morgunblaðið í gær að staðan væri dálítið flókin hjá sér en staðfesti að áhugi væri fyrir hendi frá félögum í Tyrk- landi, Svíþjóð og fleiri löndum. Það væri ekkert leyndarmál að fótboltinn í Rússlandi hentaði sér ekki vel og hann langaði til að komast í lið sem væri í toppbar- áttu og spilaði sóknarfótbolta. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins eru Malmö og Hammarby, fé- lögin sem Viðar hefur leikið með í Svíþjóð við góðan orðstír, á meðal þeirra sem vilja fá hann í sínar raðir. Viðar skoraði 14 mörk í 20 leikjum með Malmö árið 2016 og varð sænskur meistari og næstmarkahæsti leikmaður deild- arinnar enda þótt hann væri seldur til Maccabi Tel Aviv þegar tíu umferðum var enn ólokið. Á fyrri hluta síðasta árs gerði hann 7 mörk í 15 leikjum með Hamm- arby en þangað var hann lánaður í hálft ár. Viðar var seldur frá Maccabi Tel Aviv til Rostov í ágúst 2018 en fékk aldrei tæki- færi í byrjunarliðinu og hefur verið lánsmaður hjá áðurnefnd- um félögum síðustu tíu mán- uðina. Viðar Örn á förum frá Rússlandi? Viðar Örn Kjartansson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.