Morgunblaðið - 07.01.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 2020
ICQC 2020-2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Ég hlakka mikið til að syngja í
Hörpu í fyrsta sinn,“ segir baritón-
söngvarinn Jóhann Schram Reed
sem ásamt píanóleikaranum Aladár
Rácz kemur fram á Kúnstpásu,
fyrstu hádegistónleikum Íslensku
óperunnar á nýju ári, sem haldnir
verða í Norðurljósum í dag kl. 12.15
og er aðgangur ókeypis.
„Það má segja að þema tónleik-
anna séu ferðalög og ákveðin leit að
tilgangi með lífinu,“ segir Jóhann, en
á efnisskránni eru ljóðaflokkurinn
Songs of travel eftir Vaughan Willi-
ams og ljóðaflokkur eftir David
Conte. „Ég hef reglulega sungið lög
úr báðum flokkum, en þetta verður í
fyrsta sinn sem ég flyt þá í heild
sinni, sem er gaman.“
Spurður um samstarf þeirra Alad-
árs segist Jóhann lengi hafa fylgst
með Aladár sem árum saman hafi
unnið með föður Jóhanns, söngv-
aranum Keith Reed. „Við Aladár
unnum fyrst saman fyrir rúmu ári
þegar ég tók þátt í Vox Domini,“
segir Jóhann og vísar þar til söng-
keppni klassískt menntaðra söngv-
ara sem Félag íslenskra söngkenn-
ara stendur fyrir. Jóhann gerði sér
lítið fyrir og vann keppnina 2019 í
Opnum flokki. „Hluti verðlaunanna
fólst í því að syngja á Kúnstpásu
Íslensku óperunnar og það er
ánægjulegt að koma því loksins við
þótt bráðum sé liðið ár frá keppn-
inni,“ segir Jóhann sem býr og starf-
ar í Bandaríkjunum. Þangað hélt
hann árið 2010 að loknu framhalds-
prófi í söng og lauk bachelornámi í
Kaliforníu og síðan mastersprófi
2017 frá Bloomington í Indiana.
„Ég hélt síðast tónleika á Íslandi í
mars í fyrra með konunni minni,
Emily Dyer sópran,“ segir Jóhann
og tekur fram að þau Dyer hafi frá
námslokum verið nokkuð á ferð og
flugi í Bandaríkjunum, en einnig í
Japan. „Við sungum nýverið saman í
Rakaranum frá Sevilla hjá óperunni
í Virginiu og unnum einnig saman í
Utah. Við tókum snemma þá ákvörð-
un að vera ekki aðskilin of lengi í
einu, þannig að oft fylgir annað okk-
ar hinu þegar spennandi verkefni
bjóðast. Það þýðir að við höfum ekki
búið á sama stað nema í nokkra
mánuði í einu þar til núna, en við er-
um nýbúin að koma okkur fyrir í San
Francisco þar sem ég mun seinna í
þessum mánuði halda tónleika til-
einkaða kvikmyndatónskáldinu
Elmer Bernstein,“ segir Jóhann og
tekur fram að þau Dyer sinni söng-
kennslu samhliða öðrum störfum.
„Við kennum mikið söng í gegnum
Skype, sem er skemmtileg áskorun,
því þá þarf að reiða sig meira á það
sem maður sér en heyrir. En það er
reyndar mjög hollt í allri söng-
kennslu,“ segir Jóhann að lokum.
„Hlakka til að
syngja í Hörpu“
Jóhann Schram Reed á Kúnstpásu
Morgunblaðið/Eggert
Félagar Aladár Rácz og Jóhann Schram Reed á æfingu í Norðurljósum.
Bandaríski myndlistarmaðurinn
John Baldessari er látinn, 88 ára
að aldri. Hann var einn áhrifa-
mesti konseptlistamaður Banda-
ríkjanna og hefur undanfarna
hálfa öld haft mikil áhrif á þróun
myndlistar í heimalandinu, sem og
utan þess, bæði með verkum sín-
um og rómaðri kennslu við listahá-
skóla í Los Angeles.
Eitt megineinkenni á listsköpun
Baldessaris var húmorinn sem
ætíð var undirliggjandi í verk-
unum. Hann hóf ferilinn sem hálf-
abstrakt málari en rúmum áratug
síðar hafði hann fengið nóg af
slíkri handavinnu og fór með öll
sín málverk á útfararstofu og lét
brenna þau. Öskuna notaði hann
síðan í allra handa önnur verk en
Baldesari vann í ýmiskonar miðla;
vídeó, ljósmyndun, grafík, skúlp-
túra, texta, innsetningar og einnig
af og til málverk, og blandaði
þessu saman eins og hugmynd-
irnar kölluðu á. Samkvæmt The
New York Times taldi hann mikil-
vægt að bjarga hugmyndalistinni
frá því sem hann leit á sem inn-
byggðan alvarleika í stefnunni. Er
honum í sömu umfjöllun eignað að
hafa meira en nokkur annar mótað
og rifið upp samtímalistasenuna í
Los Angeles.
Árið 2001 var sett upp yfirlits-
sýning á verkum Baldessaris í
Listasafni Reykjavíkur, í sýning-
arstjórn Þorvaldar Þorsteinssonar.
Meistari írónískrar
konseptlistar allur
Morgunblaðið/Þorkell
Áhrifavaldur Listamaðurinn John Baldessari á sýningu sinni í Listasafni
Reykjavíkur vorið 2001, við verk sem hann mótaði með íslensku myndefni.
Íslenski dans-
flokkurinn mun
21. mars flytja
Black Marrow,
verk Damiens Ja-
lets og Ernu Óm-
arsdóttur, list-
ræns stjórnanda
flokksins, í
Queen Elizabeth
Hall í London.
Í umfjöllun listrýna The Guardi-
an um það sem helst sé á döfinni í
danslistum í Bretlandi er sérstak-
lega mælt með þessari sýningu.
Rifjað er upp að hluti kóreó-
grafíunnar sjáist í stuttmynd tón-
listarmannsins Thoms Yorkes og
leikstjórans Pauls Thomas And-
ersons, Anima, og nú gefist tæki-
færi til að sjá verkið í heild í flutn-
ingi „hins svala dansflokks frá
Reykjavík“. Í því sé spurt mikil-
vægra spurninga um það hversu
háðir olíu mennirnir séu.
Mælt með verki
Jalets og Ernu
Erna Ómarsdóttir
Málaferlin yfir
bandaríska kvik-
myndaframleið-
andanum Harvey
Weinstein hófust
í dómsal á Man-
hattan í New
York í gær.
Ásakanir tuga
kvenna á hendur
Weinstein um
kynferðisbrot og
áreitni mörkuðu upphaf #MeToo-
herferðarinnar en fyrir réttinum er
kann kærður fyrir fimm brot.
Þeirra alvarlegast er kæra fyrir
fyrirfram undirbúna kynferðislega
árás en harðasta refsing fyrir það
er lífstíðarfangelsisdómur. Fyrstu
vikur réttarhaldanna fara í val á
kviðdómendum og geta málaferlin
varað í einhverja mánuði.
Málaferlin yfir
Weinstein hafin
Harvey Weinstein