Morgunblaðið - 16.01.2020, Page 59
Dagskrárgerðarmenn
K100 senda út frá Ítalíu
Ferðalag Jón Axel og Ásgeir Páll ásamt eiginkonum
sínum Maríu Johnson og Elínu Hrund Garðarsdóttur.
Í loftinu Jón Axel og
Ásgeir Páll saman í
útsendingu á Ítalíu.
Eins og áður hefur komið fram á
K100 fluttist Jón Axel Ólafsson, einn
af þáttastjórnendum Ísland vaknar
á K100, tímabundið til Ítalíu í vetur
og sendir þaðan út á hverjum degi.
Félagi hans úr þættinum, Ásgeir
Páll, ákvað að flýja vetrarhörkurnar
hér á Íslandi ásamt eiginkonu sinni
og heimsækja Jón á Ítalíu. Hafa þeir
félagar því vaknað saman á morgn-
ana þar og sent þáttinn út og ferðast
svo um eftir hádegið. Það heyrir svo
sem ekkert til tíðinda þegar menn
fara í frí en hins vegar verður að
segjast að það var ansi spaugilegt að
sjá fararkost þeirra félaga í ferð sem
þeir fóru á dögunum ásamt eig-
inkonum sínum. Bílaleigubíll var
pantaður í verkið en það vildi svo illa
til að fyrir mistök var minnsti bíllinn
á leigunni pantaður og þurftu þau
fjögur með einhverju móti að kom-
ast fyrir í honum. Engum sögum fer
af þægindum í ferðinni en þau kom-
ust a.m.k. á leiðarenda.
Ísland vaknar er á dagskrá K100
alla virka morgna frá 6-10.
Jón Axel Ólafsson, einn
af þáttastjórnendum
K100, hefur verið með
útsendingar frá Ítalíu
hin síðustu misseri. Mál-
tækið „þröngt mega
sáttir sitja“ átti svo
sannarlega við þegar
þeir Ásgeir Páll fóru í
ferðalag um Ítalíu ásamt
konum sínum.
Sá minnsti Í þessum bíl máttu dagskrárgerðarmenn Ís-
land vaknar og eiginkonur þeirra sitja í í fleiri klukkutíma.
Innköllun hlutabréfa
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf., kt. 600269-2089
(„SS“), gerir kunnugt að með heimild í 2. mgr. 27. gr.
laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 4. mgr. 13. gr. í
samþykktum félagsins hefur hún tekið ákvörðun um
að hlutabréf í B-deild stofnsjóðs verði tekin til rafrænnar
skráningar í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf.
Stefnt er að skráning taki gildi föstudaginn 17. apríl
2020 kl. 9.00 árdegis. Frá þeim tíma eru hin
áþreifanlegu hlutabréf í félaginu ógild í samræmi við
heimild í ákvæði til bráðabirgða nr. II í lögum nr.
131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, sbr.
6. gr. laga nr. 32/2000, um breytingar á ýmsum lögum
vegna tilkomu rafrænnar eignarskráningar á
verðbréfum, og reglugerð nr. 397/2000, um rafræna
eignarskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Nánar tiltekið verða öll hlutabréf SS (B-deild stofnsjóðs)
tekin til rafrænnar skráningar, en þau eru öll gefin út á
nafn hluthafa. Útgáfudagsetningar er getið á hverju
bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hluta-
bréfa sem telja nokkurn vafa leika á því að eignarhald
þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá SS að staðreyna
skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár SS, Fosshálsi
1, 110 Reykjavík á netfangið hluthafaskrass@ss.is.
Komi í ljós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki
verið skráð ber eigendum að færa sönnur á þau
gagnvart félaginu innan þriggja mánaða frá síðari
birtingu innköllunar þessarar.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð
réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að
koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, sbr.
10. gr. laga nr. 131/1997 um rafræna eignarskráningu
verðbréfa, innan þriggja mánaða frá síðari birtingu
innköllunar þessarar í Lögbirtingablaði. Gæta skal
þess að reikningsstofnun hafi gert aðildarsamning
við Nasdaq verðbréfamiðstöð hf.
Stjórn SS hefur ákveðið að eftir að innköllunarfrestur er
liðinn og rafræn skráning á ofangreindum hlutabréfum
hefur átt sér stað í kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar
hf. skuli arðgreiðslur til hluthafa einungis fara fram í
gegnum kerfi Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf., sbr.
heimild í 4. tölul. 54. gr. reglugerðar nr. 397/2000.
Hluthafar skulu fela reikningsstofnun sem gert hefur
aðildarsamning við Nasdaq verðbréfamiðstöð hf.
umsjón með eignarhlut sínum í félaginu og stofna
vörslureikning.
Reykjavík, 13. janúar 2020.
Stjórn Sláturfélags Suðurlands svf.
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250 HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI
jeep.is
AFMÆLISTILBOÐ VERÐ FRÁ: 10.390.000 KR.
AFMÆLISTILBOÐ
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
35” BREYTT LISTAVERÐ VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR.
Allt um sjávarútveg