Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 1 8. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 15. tölublað 108. árgangur Hamingjaog harmur
Íslensk
Armanifyrirsæta
Á leiksviði og í lífinu sjálfu má finna
stórar tilfinningar, hamingju og harm.
Leikkonan Unnur Ösp Stefánsdóttir
segir leikhúsið bæði hættulegt og
heilandi en vill hvergi annars
staðar vera. Hún nýtur sín vel sem
leikkona, leikstjóri og framleiðandi.
Sjónvarpsserían Fangar hefur nú
verið seld til Hollywood. 12
19. JANÚAR 2020SUNNUDAGUR
Ekkert starf stendurhjartanu nær
Arnaldur KarlEinarssonsýndi nýjuherralínuArmanií Mílanó.
18
Þórhildur Líndal var fyrstiumboðsmaður barna. 20
EftirmálarsnjóflóðsinsRagnar Axelsson ljósmyndarivar á ferð á Vestfjörðum fyrirhelgi og myndaði eftirmálasnjóflóðsins. 6-11
FRÁ TÓNLIST
TIL MIÐALDA-
FRÆÐANNA
CYBER OG
HATARI Í
FERÐALAG
HRUN MENNINGAR 44ÓTTAR FELIX SJÖTUGUR 38
Mjög alvarlegt slys varð í Hafnar-
firði á tíunda tímanum í gærkvöldi
þegar bifreið fór fram af Óseyrar-
bryggju og hafnaði í sjónum.
Þrír voru í bílnum og náðust þeir
út og voru fluttir á slysadeild en lög-
reglan á höfuðborgarsvæðinu sagð-
ist í gærkvöldi ekki geta veitt frekari
upplýsingar að svo stöddu.
Lögregla, sjúkralið og slökkvilið
voru kölluð út vegna slyssins. Þá
voru fimm kafarar frá séraðgerða-
deild Landhelgisgæslunnar kallaðir
út samkvæmt upplýsingum frá
stofnuninni.
Alvarlegt slys í
Hafnarfjarðarhöfn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Aðgerðir Kafarar að störfum í
Hafnarfjarðarhöfn í gærkvöldi.
Sjónvarpsserían Fangar er fyrsta ís-
lenska serían sem verður endurgerð í
Hollywood, en rétturinn var nýlega
seldur þangað, að sögn Unnar Aspar
Stefánsdóttur, leikara og eins fram-
leiðanda Fanga.
Unnur greinir frá þessum tíðind-
um í viðtali í Sunnudagsblaði
Morgunblaðsins um helgina.
„Stærsta verkefnið mitt hingað til
er Fangar, sem var áratug í vinnslu,
en við Nína Dögg Filippusdóttir unn-
um það saman, ásamt frábærum hópi
fólks. Og það er gaman að segja frá
því að nú erum við heldur betur að
uppskera. Það er búið að skrifa undir
samning og er þetta fyrsta íslenska
serían sem er endurgerð í Holly-
wood,“ segir hún og brosir út að eyr-
um.
Unnur segir málið enn á frumstigi
og segist enn ekki vita hvort íslenska
teymið komi að seríunni á einhvern
hátt erlendis.
„Það er allt opið. Þetta er rosa
stórt! Mjög stór nöfn koma að þessu
sem við megum ekki greina frá strax.
Og þetta sem byrjaði bara sem hug-
mynd þegar við Nína vorum að láta
okkur leiðast í fæðingarorlofi!“
Fangar til Hollywood
Búið að skrifa undir Stór nöfn koma að seríunni
Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir
Frægð Sjónvarpsserían Fangar hef-
ur verið seld til Hollywood.
Íbúar á Flateyri segjast finna fyrir óvissu og
öryggisleysi eftir að í ljós kom, er á reyndi, að
snjóflóðavarnargarðar ofan við þorpið reynd-
ust ekki sú vörn sem talið var.
„Ég er í áfalli yfir því að hafa ekki vitað að
höfnin væri hættusvæði og eins því að hún var
óvarin fyrir snjóflóðum,“ segir Guðrún Páls-
dóttir. Hún á hlut í fjölskyldufyrirtækinu
Hlunnum, sem gerði út Blossa ÍS. Báturinn
sökk ásamt þremur öðrum í snjóflóðinu á
þriðjudag. Það að varnargarðarnir hafi ekki
varið höfn bæjarins eru þó ekki ný sannindi, að
sögn Guðmundar Gunnarssonar, bæjarstjóra
Ísafjarðar. Hann segir að Flateyringar og Ön-
firðingar, sem tengjast sjávarútvegi, hafi ekki
legið á þeirri skoðun sinni á sínum tíma að
verja þyrfti höfnina fyrir snjóflóðum og ljóst að
nú verði að gera nýtt hættumat.
Sýrlendingurinn Tojan Al Nashi hefur búið
á Flateyri í tvö ár, en hann var einn þeirra sem
tóku þátt í að grafa Ölmu Sóleyju Ericsdóttur
Wolf úr flóðinu. Fjölskyldan flúði stríðið í Sýr-
landi fyrir tveimur árum, og segist Tojan þau
hafa talið sig vera örugg hér. „Auðvitað vekur
svona lagað spurningar en við stefnum ótrauð
á að búa áfram á Íslandi. Hér líður okkur vel.“
Morgunblaðið/RAX
Flateyri Vinkonurnar María Kristjánsdóttir og Zuzanna Majewska á Flateyri lyfta upp hjörtum úr snjó sem minna á að sjaldan er samtakamáttur fólks jafnmikill og þegar áföll dynja á.
Öryggisleysi eftir snjóflóðin
Flateyringar upplifa óvissu Vissi ekki að höfnin væri hættusvæði Sýrlendingur sem flúði stríðið
segir sláandi að horfa á eyðilegginguna Bæjarstjóri og lögregla boðað til íbúafunda eftir helgi
MSnjóflóðin … »4, 9 og sunnudagsblað