Morgunblaðið - 18.01.2020, Page 2

Morgunblaðið - 18.01.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Gera atlögu að stóru forgangsmáli  Fundað stíft yfir alla helgina til að reyna að ná samkomulagi um vinnutímamál vaktavinnufólks Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Kraftur hefur verið settur í kjaravið- ræður um styttingu vinnuvikunnar fyrir vaktavinnufólk og er stefnt að því að reyna að leiða þau mál til lykta með stífum fundarhöldum yfir alla helgina. Samningaviðræður opinberra starfsmanna við ríkið, Reykjavíkur- borg og Samband íslenskra sveitar- félaga hafa ekki síst strandað á ágreiningi um fyrirkomulag vakta- vinnu á umliðnum vikum og mánuð- um. Náist niðurstaða í þessu máli eins og stefnt er að gæti það greitt fyrir viðræðum í fjölda kjaradeilna sem enn eru óleystar. ,,Við upplifum að það sé komast gangur í þennan þátt viðræðnanna,“ sagði Sonja Ýr Þorbergsdóttir, for- maður BSRB, í gær „Við sitjum núna við og það er búið að taka frá daginn í dag og bæði laugardaginn og sunnu- daginn. Við erum sammála um að við ætlum að reyna að gera atlögu að því að klára umræðuna um styttingu vinnuvikunnar í vaktavinnu,“ segir Sonja Ýr. Leitað hefur verið leiða til að ná samkomulagi um fyrirkomulag vaktavinnu og starfskjör vaktavinnu- fólks í starfshópi fulltrúa BSRB, BHM, Félags íslenskra hjúkrunar- fræðinga og Eflingar með viðsemj- endum hjá ríki, borg og Sambandi ísl. sveitarfélaga á undanförnum vikum og nú er loks komin hreyfing á þau mál. Sonja Ýr segir aðspurð að samhliða séu samtöl í gangi varðandi aðra þætti kjaraviðræðna en allir séu sam- mála um að þetta mál sé eitt af for- gangsmálunum og þess vegna sé lögð hvað mest vigt á það. Í umfjöllun á vef BSRB í gær er minnt á að öðrum stórum málum sé einnig ólokið, til dæmis kröfum um jöfnun launa milli markaða, launaþró- unartryggingu og fleiri málum sem BSRB og aðildarfélög bandalagsins hafi lagt áherslu á í kjaraviðræðun- um. Þá eigi eftir að ræða launahækk- anir, sem eru ekki á sameiginlegu borði BSRB heldur á forræði ein- stakra aðildarfélaga. „Allir tilbúnir í aðgerðir“ Í pistli á vef Sameykis, stærsta stéttarfélags opinberra starfsmanna, segir að árangur kjaraviðræðna fé- lagsins við ríki, sveitarfélög, Strætó, Orkuveituna og Isavia undanfarna daga hafi verið æði misjafn. Nú verði atlaga gerð yfir helgina í vinnuhópi um styttingu vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki. Félagið muni ekki skrifa undir samninga nema vakta- vinnufólkið fái sitt. „Í ljósi þess hve samningaviðræð- urnar hafa tekið langan tíma og hversu mikillar óþolinmæði gætir í okkar hópi þá höfum við hafið funda- herferð og höfum heimsótt nokkra stærstu vinnustaðina undanfarna daga. Á fundunum hefur verið rætt um stöðuna í kjaraviðræðunum og af- stöðu félagsfólks til mögulegra að- gerða til þess að þrýsta á um að samn- ingar náist. Það er áberandi að hvort sem rætt er við fólk á Landspítala, Sjúkratryggingum, félagsfólk okkar í grunnskólum eða á Höfðatorgi, það eru allir tilbúnir í aðgerðir,“ segir þar. Erla María Markúsdóttir Jóhann Ólafsson Fjórir erlendir ferðamenn eru alvar- lega slasaðir eftir að jeppi og jepp- lingur skullu saman við Háöldukvísl á Skeiðarársandi, miðja vegu milli Núpsstaðar og Skaftafells, á öðrum tímanum í gær. Svo virðist sem öðr- um bílnum hafi verið ekið yfir á öf- ugan vegarhelming og hann lent framan á hinum bílnum, sem kom úr gagnstæðri átt. Flughált var á svæð- inu og hvasst, en skyggni ágætt. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglu eru ferðamennirnir frá Frakk- landi og Suður-Kóreu, og eru þrjú hinna alvarlega slösuðu börn á aldr- inum 5-10 ára sem öll voru í öðrum bílnum. Beita þurfti klippum til að ná þeim fjórða, sem er fullorðinn, út úr bílnum og tók það töluverðan tíma, að sögn Gríms Hergeirssonar, starfandi lögreglustjóra á Suður- landi. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunn- ar voru kallaðar á vettvang, en um borð voru tveir læknar, hjúkrunar- fræðingar og bráðatæknar, auk hefðbundinnar áhafnar Landhelgis- gæslunnar. Voru farþegarnir fluttir á Landspítala í Reykjavík. Auk þeirra fjögurra, sem eru alvarlega slasaðir, voru þrír minna slasaðir einnig fluttir með sjúkrabíl til borg- arinnar, til eftirlits á bráðadeild. Er Morgunblaðið talaði við Jón Magnús Kristjánsson, yfirlækni bráðalækninga á Landspítala, í gær- kvöldi voru farþegarnir fjórir enn á gjörgæsludeild en hann sagði of snemmt að segja til um hvort ein- hverjir þeirra væru í lífshættu. Jón Magnús sagði að sjúklingar hefðu verið færðir til innan spítalans þannig að pláss væri á bráðamót- tökunni til að taka á móti hinum slösuðu. Þá hefði verið tekin um það ákvörðun fyrir hálfum mánuði að opna rými á efri hæð bráðamót- tökunnar og af þeim sökum hefði verið hægt að takast á við þetta hóp- slys með eðlilegum hætti. Hópslysaáætlun almannavarna var virkjuð og var vegurinn um Skeiðará lokaður í um fjórar klukku- stundir. Rauði kross Íslands opnaði um stund fjöldahjálparmiðstöð á Kirkjubæjarklaustri, en þar var 17 farþegum í rútu, sem kom að slys- inu, veitt áfallahjálp, áður en hóp- urinn hélt áfram leiðar sinnar. Fjórir slösuðust alvarlega í bíl- slysi við Skeiðará  Þrjú börn eru meðal hinna slösuðu Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson Alvarlegt slys Lögregla og björgunarsveitir að störfum við Skeiðará í gær þar sem harður árekstur varð. Í bílskúr í Vestmannaeyjum hefur ungur fálki fengið skjól. Fálkinn, sem hefur fengið nafnið Sindri, fannst niðri á bryggju í bænum fyrir fimm dögum, blautur og hrakinn. „Pabbi er lögregluþjónn í bænum og var á vakt þegar hann fann fálkann niðri á bryggju. Hann hafði fengið grút á sig og flughæfnin var algjörlega farin,“ segir Ágúst Halldórsson, sem hefur séð um fuglinn síðan. Sindri er evrópskur förufálki, en talið er að hann hafi komið hingað til lands með fiskiskipi. Í gær vó Sindri 850 grömm, en fálkar af hans tegund vega jafnan um 1.200 grömm. Síðustu daga hefur Sindri verið í góðu yfirlæti á heimili Ágústs og fjöl- skyldu. „Ég byrjaði á að gefa honum rib-eye steik og síðan hefur hann fengið gæsabringu og fleira,“ segir Ágúst. Í gær var svo komið að þvotti og segir Ágúst að hann hafi notið lið- sinnis Margrétar Lilju Magnús- dóttur hjá Sealife, eins helsta sér- fræðings landsins í fuglaþrifum. Ágúst segir að þrifin hafi gengið vel, en þó þurfi að þrífa fálkann aftur síð- ar til að ná grútnum endanlega af. Ágúst segir að Sindri sé gæfasta villta dýr sem hann hefur komist í kynni við, og láta heimilismenn vel af honum. „Ég held að við þurfum að hafa hann hér fram á sumar til að leyfa honum að jafna sig, en konan er reyndar ekki alveg sammála.“ Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Þvottur Sindri fálki var ljúfur sem lamb þegar kom að þvotti í gær. Að launum fékk hann lundapysju í kvöldmat. Förufálki í góðu yfirlæti í Eyjum Forseti Mannréttindadómstóls Evrópu hefur hafnað ósk Sigríðar Andersen, fyrrverandi dóms- málaráðherra, um að koma á fram- færi sjónarmiðum sínum í máli á hendur íslenska ríkinu sem rekið er fyrir yfirdeild dómsins. Í samtali við Morgunblaðið segir Sigríður að sér hefði þótt eðlilegt að fá að skýra frá sinni hlið með greinargerð í ljósi þess að fjallað sé um hana í „annarri hverri máls- grein“ í málflutningi lögmanns sækjanda, Vilhjálms H. Vilhjálms- sonar. Sjónarmið hennar muni þó engu að síður koma fram í mál- flutningi ríkisins, segir Sigríður, en hún hefur sent ríkislögmanni yfir- lýsingu, að hans ósk, þar sem farið er yfir málavöxtu. »10-11 Sigríður fær ekki að svara fyrir sig

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.