Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 4

Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 NÁNAR Í SÍMA 585 4000 EÐA Á UU.IS MARRAKESH VERÐ FRÁ137.900 KR. ÁMANNM.V. TVO FULLORÐNA 17. - 23. APRÍL 6. NÆTUR, 7. DAGAR Flygildi með LIDAR-mæli var flog- ið yfir snjóflóðin við Flateyri í gær. Gert verður landlíkan út frá mæl- ingunum og þannig fæst rúm- mál snjóflóð- anna, að sögn Hörpu Gríms- dóttur, hópstjóra ofanflóðavökt- unar Veðurstof- unnar. Flateyringar hafa gagnrýnt að höfnin hafi ekki verið varin fyrir snjóflóðum. „Þessi varnargarður er ekki hannaður til að verja höfnina. Hann er hannaður til að verja íbúðabyggðina en ekki smábáta- höfnina,“ sagði Harpa. „Það að varnargarðurinn ofan við Flateyri sé ekki ætlaður til að verja höfnina eru ekki ný sann- indi,“ sagði Guðmundur Gunn- arsson, bæjarstjóri Ísafjarðar- bæjar. Hann sagði að Flateyringar og Önfirðingar, einkum þeir sem tengjast sjávarútvegi, hafi farið fram á það á sínum tíma að höfnin yrði varin fyrir snjóflóðum. Þeir hafi ekki legið á þeirri skoðun sinni. Hann sagði að gera þyrfti nýtt hættumat. Að sögn Veðurstofunnar flæddu snjóflóðin úr Innra-Bæjargili og Skollahvilft yfir leiðigarðana ofan Flateyrar á löngum köflum. Mikill flóðsnjór er ofan við þvergarðinn á milli leiðigarðanna. Neðan við þver- garðinn eru flóðtungur innan við báða leiðigarðana. Þar hefur snjór- inn gusast yfir leiðigarðana og líka að einhverju leyti flætt yfir þver- garðinn eftir að hafa farið yfir leiði- garðana ofar. Flóðin virðast hafa gusast yfir garðana á talsverðri ferð. Flóðin eru tiltölulega þunn á milli garðanna og neðan þvergarðs- ins, víðast hálfur til einn metri að þykkt. Með görðunum að utanverðu eru þykkar hrannir af flóðsnjó, víða margra metra þykkar. Doppler- ratsjá á Skollahvilftargarðinum mældi hraða flóðsins áður en það skall á honum og var hann 45-60 m/s eða 150-200 km/klst. Snjóflóð- in tvö eru með þeim allra stærstu sem skollið hafa á leiðigörðum í heiminum. gudni@mbl.is Grunnkort/Loftmyndir ehf. Flateyri Snjófl óð úr Innra-Bæjargili 14. jan. kl. 23.03 Varnar- garðar Snjófl óðin á Flateyri Snjófl óð úr Skollahvilft 14. jan. um kl. 23.10 Snjófl óðið 26. okt. 1995 Innra-Bæjargil Skollahvilft Höfnin Heimild: Veðurstofan Snjór yfir garðana á löngum köflum  Varnargarðarnir verja byggðina Harpa Grímsdóttir „Ég er í áfalli yfir því að hafa ekki vitað að höfnin var hættusvæði og eins því að hún var óvarin fyrir snjó- flóðum,“ sagði Guðrún Pálsdóttir á Flateyri. Hún á hlut í fjölskyldufyrirtækinu Hlunnum ehf. sem gerði út Blossa ÍS. Hann sökk ásamt þremur öðrum í snjóflóðinu á þriðjudagskvöld. Tveir til viðbótar strönduðu. Blossi ÍS útvegaði sex til sjö manns vinnu. Áform um gerð snjóflóðavarnar- garða til að verja Flateyri voru kynnt á íbúafundi nokkru eftir snjó- flóðið mannskæða 1995. „Ég benti á það á fundinum að ef það kæmi hamfaraflóð, eins og 1995, þá færi það beina leið í smábátahöfn- ina. Mér var svarað því að kæmi flóð mundi litla lónið, sem svo er kallað, taka við því. Ég var ekki sátt og mót- mælti þessu,“ sagði Guðrún. „Ég spurði í framhaldinu hvort bátarnir væru tryggðir fyrir snjóflóðum. Þá var hlegið að mér. Þetta rifjaðist allt upp nú þegar báturinn minn fór.“ Ótti Guðrúnar reyndist ekki ástæðulaus. Hún segir ljóst að bát- urinn sigli aldrei meir, allavega ekki hjá þeim. „Það er sorglegt að missa svona mikið gæfuskip. Báturinn var tryggður en við vorum ekki með rekstrarstöðvunartryggingu. Við urðum fyrir svakalegu tjóni.“ Neyðarviðvörunarkerfi var um borð í Blossa ÍS. „Klukkan 23 sendi tækið að það væri eldur í vélarrúmi og eldur í stýrishúsinu. Ég hringdi í tengdason minn og bað hann að fara niður á bryggju því það væri kviknað í Blossa. Maðurinn minn fór líka. Þegar þeir komu þangað blasti það við þeim að allt var farið.“ Guðrún kveðst finna til mikils ör- yggisleysis. Höfnin og bátarnir hafi verið flóttaleið yfir að Holti þegar Flateyrarvegur er ófær. Nú sé ljóst að ekki sé hægt að treysta á hana því höfnin sé óvarin. gudni@mbl.is Finnur til öryggisleysis vegna skorts á vörnum  Höfnin á Flateyri óvarin  Öryggishlekkur brostinn Morgunblaðið/RAX Flateyri Guðrún Pálsdóttir sagði Flateyringa hafa treyst á höfnina og bátana sem flóttaleið þegar vegurinn lokast. Morgunblaðið/RAX Í kafi Mikill snjór er á Flateyri en unnið var að því í gær að ryðja götur. Snjóflóðin á Vestfjörðum Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ og lögreglustjórinn á Vestfjörðum hafa boðað til íbúafunda vegna snjóflóðanna á Flateyri og í Súg- andafirði. Íbúafundur á Flateyri verður haldinn á mánudag klukkan 17 í Félagsbæ og fundur á Suðureyri verður sama dag klukkan 20 í fé- lagsheimilinu. Á þriðjudagskvöld verða fundir á Ísafirði klukkan 17 og Súðavík klukkan 20. Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri Náttúru- hamfaratrygginga Íslands, og Tómas Jóhannesson, fagstjóri hjá Veðurstofunni, munu hafa fram- sögu á fundinum, auk bæjar- stjóra. Þá munu fulltrúar Ofanflóða- sjóðs, Heilbrigðisstofnunar Vest- fjarða, Rauða krossins, almanna- varnadeildar ríkislögreglustjóra, Landsbjargar og fleiri sitja fyrir svörum. Funda með íbúum vegna snjóflóðanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.