Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 10

Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Lögfræðingar sem Morgunblaðið ræddi við telja athyglisvert að Róbert Spanó skuli vera dómari í undirrétti og yfirrétti Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í landsréttarmálinu. Með því er farið að reglum dóm- stólsins, nánar tiltekið d-lið 24 greinar. Segir þar að í yfirrétti skuli ekki sitja dómarar sem sátu í undirrétti þegar sama mál var tekið fyrir. Undantekn- ingin sé forseti undirréttarins og dóm- arinn sem sat fyrir hönd ríkisins sem í hlut átti. Vísað til réttarins til réttlátrar málsmeðferðar Belginn Paul Lemmens var forseti undirréttarins sem felldi dóm í lands- réttarmálinu 12. mars í fyrra. Lemm- ens skilaði ásamt öðrum dómara sér- áliti en þeir lýstu sig ósammála meirihlutanum í málinu. Sem kunnugt er taldi meirihlut- inn að slíkir ann- markar væru á skipan dómara í landsréttarmálinu að það varðaði brot á réttinum til rétt- látrar málsmeð- ferðar. Vísaði meirihlut- inn til 1. málsgrein- ar 6. greinar mann- réttindasáttmála Evrópu um réttinn til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. „Þegar kveða skal á um réttindi og skyldur manns að einkamálarétti eða um sök, sem hann er borinn um refsi- vert brot, skal hann eiga rétt til rétt- látrar og opinberrar málsmeðferðar innan hæfilegs tíma fyrir sjálfstæðum og óvilhöllum dómstóli,“ segir í 1. máls- greininni. Hún er efnislega samhljóða 70. grein stjórnarskrárinnar en þar segir: „Öll- um ber réttur til að fá úrlausn um rétt- indi sín og skyldur eða um ákæru á hendur sér um refsiverða háttsemi með réttlátri málsmeðferð innan hæfi- legs tíma fyrir óháðum og óhlutdræg- um dómstóli.“ Athyglisverð mótsögn Íslenskur fræðimaður í lögfræði féllst á að ræða málið undir nafnleynd. Málið væri athyglisvert. „Ég tel að þetta sé ekki í samræmi við þær hefðir sem við byggjum á hér. Mannréttindadómstóllinn er augljós- lega ekki hefðbundinn dómstóll. Mér finnst þetta orka mjög tvímælis, svo ekki sé meira sagt, að sami maður sem væntanlega hefur samið atkvæðið í fyrri umferð sitji svo aftur í málinu sem þá væntanlega sérfróður um mál- efni íslensks réttarkerfis og eigi þá aftur að hafa mögulega aðkomu að því hver niðurstaðan verður. Ef maður væri málsaðili og hefði verulega hags- muni af niðurstöðu svona dóms þá liði manni ekkert vel með þetta. Það má skoða ákvæði í mannréttindasáttmál- anum og mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar um að allir eigi rétt á að fá úrlausn sinna mála fyrir óhlut- drægum dómstóli. Getur hann í ljósi þeirrar gagnrýni sem hefur komið fram talist óhlutdrægur, eða er hann kominn í þá stöðu að hann þarf að verja fyrri niðurstöðu? Þetta er mannrétt- indadómstóll. Er hann eini dómstóllinn sem myndi þá leyfast að setja málin upp með þessum hætti? Þ.e.a.s. að málsaðilar geti sagt með allgóðum rök- um að þeir telji að þeir séu ekki að fá málið flutt fyrir óvilhöllum dómstól. Ef málið yrði flutt fyrir Landsrétti [sem er áfrýjunardómstóll] yrðu höfð uppi andmæli gegn þessu út frá ákvæðum í mannréttindasáttmálum og stjórnar- skrá. Má þá ekki gera það í tilviki sjálfs Mannréttindadómstólsins? Þetta er mjög skrítið,“ sagði fræðimaðurinn um málið. Það væri „meiriháttar réttar- öryggismál“ að fá álit nýrra dómara við áfrýjun máls. Annar lögfræðingur sem Morgun- blaðið ræddi við lýsti efnislega sömu sjónarmiðum. Það væri einkennileg regla að sami dómari og sat á fyrra dómstigi skuli sitja áfram þegar máli sé skotið til yfirréttar. Það gildi einu þótt hann verði einn sautján dómara. Seta Róberts Spanó í yfirrétti vekur athygli  Bent er á ákvæði um réttinn til réttlátrar málsmeðferðar Ljósmynd/MDE Í Strassborg Yfirréttur Mannréttindadómstóls Evrópu mun taka fyrir landsréttarmálið 5. febrúar. Sautján dómarar munu sitja í réttinum. Róbert Spanó Ragnar Aðalsteinsson hæsta- réttarlögmaður segir aðspurður það koma sér spánskt fyrir sjónir að Róbert Spanó skuli verða dóm- ari á báðum dómstigum Mannrétt- indadómstóls Evrópu (MDE) í landsréttarmálinu. „Það verður að viðurkennast að okkur þykir það frekar sérkenni- legt. En ég hygg að rökin þar að baki séu í fyrsta lagi þau að það verður að vera einhver frá því landi sem á aðild að málinu. Hann er náttúrlega eini íslenski dóm- arinn í dómstólnum. Stundum hef- ur að vísu verið settur dómari ad hoc, eins og kallað er, til þess að sitja í einstökum málum. En jafn- framt tel ég ekki ótrúlegt að þetta sé gert til að tryggja tengsl milli undirréttarins í landsréttarmálinu ekki hafa komið sér á óvart. „Ég hafði fylgst með dómum sem höfðu gengið bæði hjá Evrópudómstólnum, á vegum Evrópusambandsins, og hjá EES- dómstólnum [EFTA-dómstólnum]. Þannig að þetta kom mér ekkert á óvart. Mér fannst þetta vera í beinu framhaldi af því að leggja áherslu á að draga sem mest úr pólitískum afskiptum af skipun dómara,“ segir Ragnar. Róbert Ragnar Spanó var skip- aður dómari við MDE í júní 2013. Hann varð í apríl í fyrra annar tveggja varaforseta dómstólsins. Róbert var áður meðal annars forseti lagadeildar Háskóla Ís- lands. málanna á fyrra dómstiginu og því síðara.“ – Er heppilegt að sami maður sitji á báðum dómstigum, sé litið svo á að verið sé að áfrýja málinu? „Svona al- mennt séð er það ekki heppilegt. Þarna kann hins vegar að vera fyrir hendi nauðsyn til að tryggja samfelluna í málsmeðferðinni. Að þar sé þessi Íslendingur sem tryggir að ekki sé neinn misskiln- ingur varðandi íslenskan rétt,“ segir Ragnar. Hann segir aðspurður dóm Óheppileg þátttaka á báðum dómstigum RAGNAR AÐALSTEINSSON TELUR ÞÖRF Á SAMFELLU EIGA HLUT AÐ MÁLI Ragnar Aðalsteinsson www.efling.is Rafræn atkvæðagreiðsla um boðun vinnustöðvunar félags- manna í Eflingu-stéttarfélagi sem starfa hjá Reykjavíkurborg hefst kl. 12:00 þriðjudaginn 21. janúar 2020 og lýkur kl. 12:00 sunnudaginn 26. janúar 2020. Vinnustöðvunin tekur til félagsmanna Eflingar sem vinna hjá Reykjavíkurborg skv. kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Eflingar- stéttarfélags sem rann út þann 31. mars 2019. Vinnustöðvunin tekur til allra þeirra starfa sem unnin eru sam- kvæmt ofangreindum samningi. Vinnustöðvunin er með þeim hætti að félagsmenn leggja niður vinnu annars vegar tímabundið á tilgreindum dögum og hins vegar ótímabundið frá tiltekinni dagsetningu. Þriðjudagur 4. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59. Fimmtudagur 6. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59. Þriðjudagur 11. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 12:30 og fram til klukkan 23:59. Miðvikudagur 12. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59. Fimmtudagur 13. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og fram til klukkan 23:59. Mánudagur 17. febrúar 2020: Vinna lögð niður frá klukkan 00:01 og ótímabundið eftir það. Atkvæðisrétt eiga félagsmenn Eflingar sem vinna hjá Reykjavíkur- borg. Telji einhver sig eiga atkvæðisrétt en er ekki á kjörskrá eða fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki senda tilkynningu um atkvæðagreiðsluna, getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar fram til loka kjörfundar, og ef við á fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram nauðsyn- leg gögn. Kjörstjórn Eflingar-stéttarfélags hjá Reykjavíkurborg Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.