Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 18

Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Lariat Sport Litur: Magnetic/ Svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque Lariat með Sport pakka, Ultimate pakka , up- phituð/loftkæld sæti, heithúðaðan pall, fjarstart og trappa í hlera, Driver alert og distronic, Bang Olufssen hljómkerfi, 360 myndavél. VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphi- tanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Sport Litur: Svartur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Sport-pakki,Bakkmyn- davél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk 2019 Ford F-150 Lariat Litur: Platinumhvítur, svartur að innan. FX4 offroad-pakki, Bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, o. fl. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 375 hestöfl 470 lb-ft of torque VERÐ 12.770.000 m.vsk Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Helstu göngu- og hjólastígar höfuð- borgarinnar hafa nú fengið nöfn, rétt eins og götur borgarinnar. Á fundi í skipulags- og samgöngu- ráði í vikunni var samþykkt tillaga nafnanefndar um nöfn stíganna. Nöfnin eru þessi:  Mánaleið heitir stígurinn með- fram Sæbraut.  Sólarleið heitir stígurinn sem liggur meðfram Ægisíðu og í gegn- um Fossvog inn í Elliðaárdal.  Árleið heitir stígurinn í gegn- um Elliðaárdalinn.  Kelduleið heitir stígurinn sem liggur frá Sæbraut, í gegnum Geirs- nef, og svo á Vesturlandsvegi inn í Mosfellsbæ.  Eyjaleið heitir stígurinn sem liggur frá Bryggjuhverfi, í gegnum Grafarvoginn og til Mosfellsbæjar, meðfram sjónum.  Bæjarleið heitir stígurinn sem liggur frá Nauthólsvík, meðfram Öskjuhlíð og niður í miðbæ Reykja- víkur. Í nafnanefnd sitja Ármann Jakobsson, Guðrún Kvaran og Nikulás Már Másson. Fulltrúar meirihlutaflokkanna í ráðinu bókuðu að rétt eins og götur og vegir hefðu nöfn væri eðlilegt að stígar sem ætl- aðir væru gangandi og hjólandi hefðu nöfn. „Vel hefur tekist til að okkar mati. Sex ný, falleg nöfn bæt- ast nú við á stígakort Reykjavíkur.“ Nafnanefnd fjallaði enn fremur um tillögu frá Hólmfríði Þ. Larsen, dóttur Ketils Larsen fjöllistamanns, sem lést í apríl 2018. Hólmfríður gerði það að til- lögu sinni að litla „eyjan“ í Úlfarsá við Vesturlands- veg fengi nafnið Ketilsey. Ketill bjó að Engi við Vesturlandsveg. „Hann ræktaði upp þessa „eyju“ og þótti af- skaplega vænt um hana,“ segir Hólmfríður. Nafnanefndin bendir á að heitið Ketilsey sé þegar til í Breiðafirði. Gerir nafnanefndin ekki athuga- semd við það, fyrir sitt leyti, að um- rædd „eyja“ verði nefnd Ketils- hólmi. Féllst skipulags- og samgönguráð á þessa tillögu. Morgunblaðið/Hari Hefur fengið nafn Sólarleið heitir stígurinn sem liggur meðfram Ægisíðu og í gegnum Fossvog inn í Elliðaárdal. Helstu göngustígar í borg- inni hafa nú fengið nöfn  Litla „eyjan“ í Úlfarsá var nefnd í höfuðið á Katli Larsen Ketill Larsen ÚR BÆJARLÍFINU Sigurður Ægisson Siglufjörður Siglfirðingar eru orðnir lang-þreyttir á því að komast ekkiburt úr plássinu nema endr- um og sinnum yfir vetrartímann þótt einhver óveður geri með of- ankomu og öðrum leiðindum. Síð- ustu vikur hafa verið einstaklega hvimleiðar. Og ekki bætti rafmagns- leysið þetta. Siglufjarðarvegi er iðu- lega lokað, sem reyndar er vel, og eins er með Ólafsfjarðarveg, því báðir geta verið stórhættulegir ef eitthvað er af snjó uppi í fjöllunum.    Æ fleiri eru því teknir að spyrja út í loftið hvenær göng verði boruð úr austri yfir að Dalvík, því fyrir- huguð breikkun Múlaganga leysir ekki nema hluta vandans, og úr vestri í Fljótin, úr Hólsdal yfir í Nautadal, með innkomu nærri Ketilási, eða þá aðeins norðar, úr Skarðsdal með útkomu við Hraun. Vegurinn um Almenningana er kafli út af fyrir sig og bara tímaspursmál hvenær þar gerist eitthvað sem eng- inn þorir að hugsa til enda.    Átta bæir á Íslandi teljast enn sem hættusvæði í C-flokki þegar kemur að snjóflóðum, en það er sá flokkur sem mest þörf er á að byggja upp varnir í. Þetta eru Bíldudalur, Eskifjörður, Hnífsdalur, Neskaupstaður, Patreksfjörður, Seyðisfjörður, Siglufjörður og Tálknafjörður. Vinnunni átti að ljúka árið 2010. Að sögn væri hægt að klára dæmið á áratug ef lands- yfirvöld hysjuðu nú upp um sig.    Sólardagurinn nálgast og það léttir vissulega brúnina. Sú gula lét sig hverfa á bak við fjöllin í suðri 15. nóvember en fer á ný að varpa geislum sínum yfir Ráðhústorgið 28. janúar næstkomandi. Þá er stutt í vorið.    Margar bækur komu út á síð- asta ári, einkum á seinni hluta þess, og var jafnvel talað um metfjölda hvað þetta varðaði, ef undirritaður man rétt. Sumar þóttu merkilegri en aðrar og var hampað sem því nam, eins og gengur. Sú fallegasta, bæði að innihaldi og útliti, fór þó hljóðlega um í jólabókaflóðinu. Barst ekki mikið á. Lágstemmd rödd hennar varð undir í þeim há- vaða öllum. Hún lætur reyndar ekki mikið yfir sér, er ekki nema rúmar 10 blaðsíður, en þeim mun áhrifa- ríkari eru fyrir vikið myndirnar og orðin sem hún geymir. Bókin er eftir Særúnu Hlín Laufeyjardóttur og er tileinkuð minningu sonar þeirra hjóna, Sæ- rúnar Hlínar og Arons Mars Þor- leifssonar.    Orðrétt segir höfundurinn: „Árið 2015 misstum við son okkar. Hann fæddist andvana á 21. viku með- göngu. Við gáfum honum nafnið Gabríel Máni. Dætur okkar, sem þá voru 3 og 6 ára gamlar, áttu ekki síður erfitt með missinn en við for- eldrarnir, svo ég fór að spyrjast fyr- ir og leita að barnabók sem ég gæti lesið fyrir þær. Ég átti erfitt með að finna bók sem mér fannst henta, svo ég skrifaði sögu Gabríels og las hana fyrir dætur mínar. Það er Gleymmérei styrktarfélagi að þakka að sagan er nú orðin að bók og við fengum myndlistarkonuna Elínu Hansdóttur til þess að mynd- skreyta. Það er von okkar að sagan geti hjálpað einhverjum í gegnum sorgarferlið. Bókin heitir Lítið ljós og er til bæði á íslensku og ensku. Ég er afar þakklát fyrir að Bóka- safn Fjallabyggðar á Siglufirði og í Ólafsfirði og verslunin Hjarta bæj- arins á Siglufirði eru með nokkur eintök, bæði á íslensku og ensku, sem fást fyrir frjáls framlög sem renna óskipt í styrktarsjóð Gleym- mérei.“ Ritstjóri bókarinnar var Anna Lísa Björnsdóttir og um hönn- un sá Helgi Hilmarsson.    Í hinni árlegu vetrarfuglataln- ingu Náttúrufræðistofnunar Íslands sem fór fram um land allt í kringum áramótin sást frá Máná í Úlfsdölum að Árósi í Siglufirði alls 21 tegund: auðnutittlingur, bjartmáfur, díla- skarfur, fjallafinka, hávella, hrafn, húsdúfa, hvítmáfur, langvía, rjúpa, silfurmáfur, silkitoppa, skóg- arþröstur, snjótittlingur, stokkönd, straumönd, stuttnefja, svartbakur, svartþröstur, teista og æðarfugl.    Nanna Franklínsdóttir á Siglu- firði er nú í þriðja sæti yfir elstu Ís- lendingana, hún er 103 ára, fædd 12. maí 1916 að Litla-Fjarðarhorni í Kollafirði í Strandasýslu. Foreldrar hennar voru Franklín Þórðarson frá Stóra-Fjarðarhorni í Strandasýslu og Andrea Jónsdóttir frá Miðhúsum í Kollafirði. Þau eignuðust 13 börn og af þeim hafa níu náð 90 ára aldri. Móðir þeirra, Andrea, sem bjó síð- ustu árin á Siglufirði og lést þar 1979, varð 97 ára. Aðeins Dóra Ólafsdóttir í Reykjavík, 107 ára, og Lárus Sigfússon í Reykjavík, 104 ára, eru eldri en Nanna. Frá þessu er sagt á Facebook-síðunni Langlífi. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Siglufjörður Það er fagurt á Siglufirði allan ársins hring, líka þegar fönnin liggur yfir. En íbúarnir eru þó orðnir langþreyttir á að komast ekki burt nema endrum og sinnum í hinum ýmsu erindagjörðum í kjölfar hríðarveðra. Sólardagurinn nálgast óðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.