Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
Síðumúli 13
577 5500
108 Reykjavík
www.atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
Lagerhúsnæðimeð góðri lofthæð 1.335,4m2
Húsnæðið er mikið opið rými með góðri lofthæð og skiptist í um
1.200m2 lagerrými og um 135m2 skrifstofur og kaffistofu á annarri
hæð. Möguleiki er að skipta húsnæðinu niður í tvöminni leigurými
frá 550m2 til 800m2. Í húsnæðinu eru þrjár ca. 5 metra háar
innkeyrsluhurðar.
Stórt malbikað plan við húsið. Ekki vsk. húsnæði.
Húsnæðið er laust samkvæmt samkomulagi.
Iðnaðar og lagerhúsnæði 390m2
Til leigu 390 fm iðnaðar- og lagerhúsnæði á vinsælum stað við
Smiðshöfða. Lofthæð er um 8metrar þar sem hæst er.
Innkeyrsluhurð er ca. 4,5 metra hámeð rafmagnsopnun. Þriggja fasa
rafmagn. Á 2. hæð eru tvær skrifstofur, parketi á gólfi og
starfsmannaastaða. Húsnæðið er allt hið snyrtilegasta.
Rýmið skiptist í 328m2. iðnaðarhúsnæði á jarðhæð auk um 62m2.
millilofts, samtals 390m2.
TIL LEIGU TIL LEIGULYNGÁS 15, GARÐABÆ SMIÐSHÖFÐI 11, RVK
Upplýsingar veitir: HalldórMár Sverrisson löggiltur fasteignasali og leigumiðlari
í síma 898 5599 eða halldor@atvinnueign.is
Bergey VE kom í fyrsta skipti til
heimahafnar í Vestmannaeyjum í
gær. Skipið var smíðað í skipa-
smíðastöð Vard í Aukra í Noregi
og er eitt af sjö systurskipum
sem skipasmíðastöðin smíðaði
fyrir íslensk fyrirtæki. Bergey
var afhent Bergi-Hugin, dótt-
urfyrirtæki Síldarvinnslunnar, 1.
október sl. og kom til Akureyrar
6. október. Þar annaðist Slippur-
inn frágang á millidekki skipsins.
Bergey staldrar ekki lengi við
í Eyjum. Veiðarfæri verða tekin
um borð og er gert ráð fyrir að
haldið verði til veiða í dag, laug-
ardag. Jón Valgeirsson skipstjóri
sagði í samtali við heimasíðu
Síldarvinnslunnar í gær að hon-
um litist mjög vel á skipið. „Það
verður gaman að hefja veiðar á
þessu nýja skipi. Á leiðinni frá
Akureyri fengum við aðeins
brælu úti fyrir Norðurlandinu og
það lét ágætlega. Það eru öðru-
vísi hreyfingar á þessu skipi en á
gömlu Bergey. Það er flott að
hefja veiðar á nýju skipi á laug-
ardegi: Laugardagur til lukku,“
sagði Jón.
Áður hafði Bergur-Huginn
tekið á móti systurskipinu Vest-
mannaey VE sem kom til lands-
ins í júlímánuði sl. Skipin eru
28,9 metra löng og 12 metra
breið togskip. Skipin eru búin
tveimur aðalvélum og tveimur
skrúfum. aij@mbl.is
Flott að byrja á laugardegi
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Nýtt skip Á efri myndinni eru þeir Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs, Jón Valgeirsson skipstjóri og Arnar
Richardsson, framkvæmdastjóri Bergs/Hugins ehf. Á neðri myndinni siglir Bergey fánum prýdd til hafnar.
Bergey kom
til heimahafnar
í Eyjum í gær
Ökumaður almenningsvagns, sem
lést á sjúkrahúsi mánuði eftir að
hafa lent út af Ólafsfjarðarvegi sum-
arið 2018, var ekki í bílbelti. Þetta
kemur fram í skýrslu rannsóknar-
nefndar samgönguslysa sem gefin
var út í gær.
Almenningsvagninn var á leið frá
Siglufirði til Akureyrar 5. júní 2018
er ökumaður missti stjórn á bílnum
og hafnaði í vegkanti hægra megin.
Auk bílstjóra var einn farþegi um
borð, níu ára stúlka, en hún notaðist
við bílbelti og slasaðist lítillega.
Ökumaðurinn var fluttur á spítala,
þar sem hann lést af sárum sínum
tæpum mánuði síðar. Við rannsókn
málsins kom í ljós að hann átti við
margvísleg heilsufarsvandamál að
stríða, og segir í skýrslunni að öku-
hæfni hans hafi sennilega verið
skert sökum veikinda og lyfjanotk-
unar.
Ökumaður
rútunnar
ekki í belti
Banaslys Ökumaðurinn lést af sár-
um sínum tæpum mánuði síðar.
Ökuhæfni sennilega
skert vegna veikinda