Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
● „Meginskýringin
er sú að við náðum
ekki alla leið með
nógu mörg mál til
þess að klára
þetta,“ segir Gunn-
ar Tómasson,
framkvæmdastjóri
Þorbjarnar, um
ástæður þess að
viðræðum um
mögulega samein-
ingu sjávarútvegsfyrirtækjanna Þor-
bjarnar og Vísis í Grindavík var hætt.
„Þetta þarf mikið lengri tíma. Við höf-
um slitið viðræðum en erum enn betur
tilbúnir að fara í enn meira samstarf.
Við rekum þrjú fyrirtæki saman og það
kæmi jafnvel frekari samrekstur til
greina,“ segir Gunnar. Fyrirtækin sem
um ræðir heita Haustak, Codland og
Pytheas.
Síðastnefnda félagið er framleiðslu-
og markaðsfyrirtæki í Grikklandi.
„Við höfum farið í gegnum ágætis
vinnu. Bæði höfum við kynnst þeirra
fyrirtæki betur og þeir okkar. Við sjáum
vel hvaða snertifletir koma helst til
greina. Við eigum eftir að útfæra það
aðeins betur,“ segir Gunnar.
Spurður hvort til greina komi að hefja
viðræður um sameiningu síðar segir
hann ekkert útilokað í því efni.
Hafa slitið viðræðum
um sameiningu að sinni
Gunnar
Tómasson
Landsframleiðsla Kína jókst um
6,1% í fyrra og er það minnsti vöxtur
hennar sem mælst hefur frá árinu
1990. Er minnkandi vöxtur m.a. rak-
inn til veikari einkaneyslu, aukins at-
vinnuleysis og erfiðleika í fjármála-
kerfi landsins, að sögn Financial
Times.
Þar er einnig þeirri spurningu velt
upp hvort áhrifa af viðskiptastríði
milli Kína og Bandaríkjanna muni
áfram gæta í hagkerfinu á árinu 2020
eða hvort þau hafi nú þegar komið
fram.
Tölurnar sem vitna um frekari
kulnun annars stærsta hagkerfis í
heimi, á eftir því bandaríska, koma
örfáum dögum eftir að fréttir bárust
um að leiðtogar Kína og Bandaríkj-
anna hefðu ákveðið að bera klæði á
vopnin og ná nýjum viðskiptasamn-
ingum milli ríkjanna tveggja.
Sérfræðingar hafa á síðustu dög-
um varað við of mikilli bjartsýni yfir
þeim jákvæðu skrefum sem tekin
hafa verið í deilum ríkjanna tveggja.
Þó er talið líklegt að svartsýni meðal
fjárfesta muni dvína, nú þegar vilji
virðist til þess í Washington og Pek-
ing að snúa af braut síharðnandi
átaka og tollsetningar milli ríkjanna
tveggja.
Færri börn
Fæðingartíðni í Kína mældist
1,05% á nýliðnu ári og hefur aldrei
mælst minni. Undirstrika tölurnar
þá staðreynd að á komandi áratug-
um mun ungu fólki fækka til muna í
þessu fjölmennasta ríki veraldar. Sú
fækkun mun gera landinu erfitt að
halda uppi hagvexti til lengri tíma
litið.
Ljósmynd/AFP
Vöxtur Enn mælist töluverður hag-
vöxtur í Kína en þó minni en áður.
Hagvöxtur í Kína
ekki minni frá 1990
Fæðingartíðni
hefur aldrei mælst
lægri í landinu
VEITINGASTAÐUR
Á BESTA STAÐ Í SMÁRALIND
NÝR OG GLÆSILEGUR
ALLIR LEIKIR · ALLAR DEILDIR · ALLT SPORT Á EINUM STAÐ
18. janúar 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 122.34 122.92 122.63
Sterlingspund 159.66 160.44 160.05
Kanadadalur 93.77 94.31 94.04
Dönsk króna 18.256 18.362 18.309
Norsk króna 13.794 13.876 13.835
Sænsk króna 12.912 12.988 12.95
Svissn. franki 127.01 127.71 127.36
Japanskt jen 1.1115 1.1181 1.1148
SDR 169.0 170.0 169.5
Evra 136.44 137.2 136.82
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.8126
Hrávöruverð
Gull 1555.2 ($/únsa)
Ál 1778.0 ($/tonn) LME
Hráolía 64.26 ($/fatið) Brent
STUTT
nota er mun hærra á Norðurlönd-
um en í löndum ESB.
Ólíkt Íslandi og Kanada hækkar
raforkuverð í Noregi og í löndum
ESB vegna kolefnisskatts á raf-
orkuframleiðendur, að sögn Jack-
son, en á móti kemur að norska
ríkið niðurgreiðir orku til við-
skiptavina.
Vatnsaflsvirkjanir eru sam-
keppnishæfasti orkugjafinn sam-
kvæmt Jackson, enda er útblástur
koldíoxíðs frá þeim nær enginn, og
því er enginn beinn kostnaður því
samfara. Til samanburðar er með-
altalsútblástur koldíoxíðs vegna ál-
framleiðslu í heiminum 9,6 tonn af
koldíoxíði á hvert tonn af áli.
Jackson kom einnig inn á það
hvernig álver utan Kína reyndu í
auknum mæli að bæta samkeppn-
isstöðu sína. Þau vildu marka sér
sérstöðu með því að leggja áherslu
á sjálfbærni og græna framleiðslu,
en 87% af áli í Kína eru framleidd
með orku úr jarðefnaeldsneyti,
eins og fram kom í grein í Morg-
unblaðinu fyrr í vikunni. Nefndi
hann meðal annars þróunarverk-
efnið Elysis, sem álrisarnir Alcoa
og Rio Tinto standa að, en þar er
markmiðið að útrýma öllum út-
blæstri vegna álframleiðslu. Þetta
er mikilvægt, að sögn Jackson, því
kolefnisskattar munu hækka í
framtíðinni og niðurgreiðslur
vegna þeirra minnka. Nefndi Jack-
son að svo gæti fari að kolefn-
isskattar yrðu allt að 44 Banda-
ríkjadalir á tonn af áli innan tíu
ára. Eins og Jackson kom inn á
þarf einnig að horfa til óbeins út-
blásturs koldíoxíðs vegna álfram-
leiðslu, sem kemur til vegna þeirr-
ar orku sem notuð er til að knýja
álverin.
Álver á Norðurlöndum
samkeppnishæfari en í ESB
Ódýrasta orkan í Kanada Vatnsaflsvirkjanir samkeppnishæfasti kosturinn
Orkukostnaður vegna álframleiðslu
Árið 2019
Heimild: CRU
Evrópa
Heimsmeðalverð
Önnur lönd
Or
ku
ko
st
na
ðu
r, U
SD
/t
on
n
Noregur
Ísland
Ka
na
da
0 10 20 30 40 50 60
Framleiðsla (uppsafnað), milljónir tonna
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Álver á Norðurlöndum eru mun
samkeppnishæfari en álver í lönd-
um Evrópusambandsins vegna
mun lægri orkukostnaðar. Þetta
kom fram í máli Martin Jackson,
álsérfræðings
hjá breska
greiningar-
fyrirtækinu
CRU, á morgun-
verðarfundi
Landsvirkjunar
á Hótel Nordica
í vikunni. Álver á
Íslandi eru í
þeim samanburði
skrefi framar en
álver í Noregi og í löndum ESB,
eins og sjá má á meðfylgjandi
skýringarmynd, sem Jackson birti
á fundinum.
Eins og einnig má sjá á mynd-
inni hafa álver í Kanada þó vinn-
inginn í þessum efnum, en orkan
sem þau fá úr vatnsaflsvirkjunum
þar í landi er mun ódýrari en á
Norðurlöndum og löndum ESB.
Ástæða hinnar góðu stöðu kanad-
ísku álveranna er samkvæmt Jack-
son að búið er að afskrifa mikið af
innviðafjárfestingum í orkukerfinu.
Önnur ástæða er að mörg álver-
anna eiga sjálf sín eigin orkuver.
Ólíkur uppruni orkunnar
Þá sagði Jackson að ástæðan
fyrir betri samkeppnishæfni Norð-
urlandaríkja borið saman við lönd
ESB í þessum efnum væri ólíkur
uppruni orkunnar, en hlutfall end-
urnýjanlegrar orku sem álverin
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gestir Morgunverðarfundur Landsvirkjunar á Hótel Nordica var vel sóttur.
Martin Jackson.