Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Stærðir eru breytilegar og hægt að innrétta að vild. Umhverfið er í miðju fjölbreyttu miðborgarlífinu með mikla nálægð við ferðamenn. Möguleikarnir eru endalausir en rýmin henta vel ýmiskonar rekstri s.s. gullsmiði, snyrtistofu, hárgreiðslustofu, kaffihús, heilsubúð, mörkuðum af ýmsu tagi, listamönnum, einnig sem skrifstofur s.s lögfræðistofur, auglýsingastofur og arkitektar svo fátt eitt sé nefnt. Einnig gefst kostur á að tengja saman rekstur og búsetu í sama húsnæðinu. Brynjureitur afmarkast af Laugavegi 27 a og b og Hverfisgötu 40-44 og á milli þeirra liggur ný og skemmtileg göngugata sem getur skapað sér sérstöðu í hringiðu miðbæjarins og hefur fengið nafnið Kasthúsastígur. Við Laugaveg 27 a og b eru stærði í boði á bilinu 31 m² til 239 m² en við Hverfisgötu frá 60 m² til 255 m². Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson löggiltur fasteigna- sali í s. 897 7086 hmk@jofur.is eða Ólafur Jóhannsson löggiltur fasteignasali í s. 824 6703 olafur@jofur.is. Nýtt og spennandi verslunar- og þjónustuhúsnæði á Brynjureit TIL LEIGU Ífundarboði frá stjórnmálaflokki, sem ég ber virðingu fyrir, heyri ég orð-in: „Öll velkomin.“ Ég hrekk í kút. Ætlum við virkilega að sætta okkurvið að menn knýi fram breytingar á málinu sem einungis munu valdamálótta? Við erum „leiðrétt“: Þú átt ekki að segja „allir“, þú átt að segja „öll“. Þórarinn Eldjárn (Til í að vera til 2019) talar um afkynjun í þessu sam- bandi í fyrri hluta eftirfarandi vísu, en í seinni partinum minnir hann óbeint á að orðið „maður“ hefur víðari merkingu en sumir (ekki „sum“) vilja halda: Öll geta sagt það saman sem er afkynjað: Aðili er aðila gaman eins og Hávi kvað. Þessi vísa ásamt fyrirsögninni Málvönun (ekki Málvöndun!) er tilvalin til kennslu í öllum skólum. Kennari (hefur brugðið vísunni á skjá): Jæja, krakkar mínir, hver er þessi Hávi? Nemandi I (eftir langa þögn): Jú, ég held þetta sé Óðinn. Kennari: Hárrétt, Óðinn er „hinn hávi“ sem talar til okkar í Háva-málum og segir þar meðal annars: „Maður er manns gaman.“ – En hvað merkir orðið „málvönun“? Nemandi II: Vönun er sama og gelding, þannig að málvönun væri þá gelding málsins, afkynjun málsins, eins og Þórarinn kallar það. Umræðan varð fjörug og fræðandi um kyn orða og kyn manna og þann mun sem þar getur verið á. Næsti tími var svo helgaður Háva- málum. Ég lagði til að orð ársins yrði „málvönun“. En nei, upplýst hefur verið við há- tíðlega athöfn að „hamfarahlýnun“ hefði hlotið náð fyrir augum aðstandenda. Gárungarnir eru strax farnir að glotta og vilja breyta h-i í s. Í jólakorti frá þýskum vini kom fram að æviskeiði mannsins mætti skipta í fjögur stig: 1. Þú trúir á jólasveininn; 2. Þú trúir ekki á jólasveininn; 3. Þú ert jólasveinn- inn; 4. Þú ert eins og jólasveinninn. Það er gott að fá jólakort. Og það er líka gott að skrifa jólakort, staldra við og ávarpa vininn eða ættingjann persónulega. Þess vegna finnst mér sárt að vita til þess að menn séu smátt og smátt að afleggja þennan sið. Við stillum óró andans við jólakortaskrifin í öllu atinu á aðventunni. – Reynd- ar ættum við að skrifa eitthvað á hverjum degi. Þar á ég við dagbókina. Hversu indælt er það ekki að setja á blað stutta hugleiðingu fyrir svefninn? Ég er ekki að biðja um neina snilld. En það er nú samt svo að maður fer að huga meir og meir að orðalagi eftir því sem á dagbókina líður – og þetta skilar sér allt í dags- ins önn. Áramótaheitið gæti verið: Ég ætla að fá mér penna og dagbók og skrifa eitthvað á hverju kvöldi. Og sjá: Að nokkrum mánuðum liðnum verður óvænt til setning sem jafnvel góðskáldin gætu verið stolt af. Og loks þetta: Gaman var að heyra tilbrigðin við kunnuglegu stefin í jóla- kveðjum útvarpsins að þessu sinni: a) „Hugheilustu kveðjur allra tíma“ og b) „Hundurinn Nói sendir óskir um kæfuríkt ár“. Hvað merkir orðið „málvönun“? „Málvönun“ Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com Landið okkar – Ísland – er hættulegt land.Þannig hefur það alltaf verið. Það erunáttúruöflin sem skapa þessar hættur.Stundum eru það eldgos, stundum snjó- flóð, stundum hraunelfar, stundum óveður, hvort sem er á landi eða á hafi úti. Þegar Morgunblaði 20. aldar er flett má segja að reglulega birtist forsíður með myndum af sjómönn- um, sem farizt höfðu í sjóslysum. Það er fyrst á átt- unda áratug síðustu aldar, sem þeim fréttum fer að fækka og síðustu áratugi aldarinnar voru þær orðn- ar alger undantekning. Þær fréttir snertu flestar fjölskyldur þessa lands með einum eða öðrum hætti. Móðir greinarhöfundar missti þrjá af fjórum bræðr- um sínum á sjó. Sá fjórði fékk berkla og varð að fara í land. En þannig hefur þetta verið um aldir, eftir að fólk fór að sækja sjó. Með einhverjum hætti þurfum við að minnast allra þeirra sjómanna, sem frá upphafi Íslands byggðar hafa horfið í hafið. Það er hægt að gera með því að efna til verðlauna- samkeppni um risastórt kórverk í minningu þeirra eða með risastórri höggmynd á stað sem hæfir. Raunar má segja að einn af rithöfundum okkar, Jón Kalman Stefánsson, hafi með ritverki sínu, Himnaríki og helvíti, reist íslenzkum sjómönnum minnisvarða, sem lengi mun lifa með þjóðinni. Þegar ég var lítill strákur átti ég erfitt með að skilja hvað fólst í orðunum að verða úti. Smátt og smátt skildi ég að fólk gat orðið úti – dáið – með því að vera úti í vondum veðrum á Íslandi. Og raunar er í fyrrnefndri skáldsögu Jón Kalmans Stefánssonar sönn saga af sjómanni, sem varð úti á sjó fyrir vest- an. Hann gleymdi að taka stakkinn sinn með sér og þegar í land var komið var hann dáinn, frosinn við þóftuna. Í æsku birtist Katla mér sem mesta ógnin í til- veru okkar. Þegar horft var til baka löngu seinna varð ljóst hvers vegna. Föðuramma mín var ættuð úr Vestur-Skaftafellssýslu. Hún var að vísu farin þaðan, þegar Katla gaus 1918, en móðir hennar bjó í Mýrdal og fleiri ættmenni hennar á þeim slóðum. Umtal hennar um Kötlugosið 1918 hefur greinilega haft þessi áhrif á litla barnssál. Raunar ólst hún upp sem barn á heiðarbýli, fjarri öllum mannabyggðum, sem heitir Eintúnaháls. Þar var henni bannað að borða ber. Hvers vegna? Vegna þess að fólkið á bænum trúði því, hundrað árum eft- ir Skaftárelda, að ber væru eitruð. Í nútímanum birtast hætturnar í landi okkar með öðrum hætti. Það hafa of margir erlendir ferðamenn misst líf sitt í slysum hér á seinni árum. Þar er Reynisfjara ofarlega á blaði. Og ekki margir áratug- ir síðan hópur erlendra ferðamanna var á ferð á há- lendi Íslands og ók yfir fallega á, sem tók skyndi- lega á sig aðra mynd og hreif bílinn með sér með alvarlegum afleiðingum. Þessar hugleiðingar sækja á, þegar sjávarplássin fyrir vestan verða illa úti í annað sinn á aldarfjórð- ungi. Snjóflóðin á Flateyri og áhrif snjóflóðs í Súg- andafirði á háttsemi hafsins, sýna hversu vanmáttug við í raun og veru erum, gagnvart náttúruöflunum í þessu landi, þegar þau fara í sinn versta ham. Önnur tilvik sem upp hafa komið að undanförnu benda svo til þess að nýjar kynslóðir Íslendinga hafi gleymt sögu okkar í þessum efnum og fari þess vegna ekki nægilega varlega. Vélsleðaferð að jökli bendir til þess svo og erfið rútuslys. Og hvernig á að skýra þær upplýsingar, sem fram komu í gær um að hægt hafi verulega á fram- kvæmdum við snjóflóðavarnir á undanförnum árum og að því markmiði, sem átti að ná fyrir áratug verði ekki náð fyrr en að nokkrum árum liðnum. Hver eða hverjir tóku slíkar ákvarðanir og með hvaða rökum? Fannst einhverjum í kerfinu kannski lítil ástæða til vegna þess að snjóflóða hafði ekki orðið vart að ráði í nokkur ár? Þau gera ekki boð á undan sér. Það þarf augljóslega að gera fleira en að ljúka fyrirhuguðum framkvæmdum við snjóflóðavarnir. Það þarf að rifja upp glímu þessarar þjóðar við náttúruöflin með þeim hætti að sú glíma gleymist ekki. Það er ekki hægt að útiloka að við eigum eftir að finna meira fyrir henni á næstu árum og áratugum. Í gær og í fyrradag birtust fréttir í alþjóðlegum fjölmiðlum um að hitastig á jörðinni hafi verið með mesta móti síðasta áratuginn. Í því felst að hitastigið í hafinu fer hækkandi. Það hefur afleiðingar. Fiskurinn færir sig norðar. Veðurfarið verður sveiflukenndara, eins og við sjáum hér en engir finna þó meira fyrir um þessar mundir en Ástralar. Það ríkir neyðarástand í Ástralíu vegna gróðurelda, sem æða um allt. Við þurfum, auk framkvæmda, að hefja mjög víð- tæka og markvissa upplýsingamiðlun og fræðslu- starfsemi til þess að uppvaxandi kynslóðir Íslend- inga átti sig á í hvers konar landi við búum. Þótt við búum í góðum húsum en ekki lengur í torfbæjum standast hús nútímans hvorki snjóflóð né sjávarflóð. Og þótt við ráðum yfir margvíslegri nýrri tækni dugar hún skammt, þegar náttúruöflin láta til sín taka. Framan af 20. öldinni voru það sjóslysin, sem voru okkur þungbær. Getur verið að á 21. öldinni verði það náttúru- váin? Að sjálfsögðu verða einhverjir, sem halda því fram, að þetta sé tómt rugl. En er hægt að taka þá áhættu, að svo sé? Ísland er hættulegt land Náttúruváin sækir á Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Fræg er sagan af því, þegarBandaríkjamenn spurðu Zhou Enlai, einn af leiðtogum kínverskra kommúnista, að því árið 1971, hvað hann segði um frönsku stjórnarbylt- inguna. „Það er of snemmt um það að segja,“ svaraði Zhou. Þetta hefur verið haft til marks um kínverska speki þegar horft er langt fram og aftur í tímann. En það er misskiln- ingur eins og kom fram í Financial Times 10. júní 2011. Túlkurinn við þetta tækifæri, Charles W. Freeman, upplýsti að Zhou hefði verið að tala um stúdentaóeirðirnar í París 1968. Sagan er samt merkileg fyrir tvennt. Í fyrsta lagi voru kommúnist- arnir sem stjórnuðu Kína engir spek- ingar, heldur þröngsýnir og grimmir ofstækismenn. Eftir að þeir höfðu sigrað í borgarastríði 1949 hófust fjöldaaftökur um allt Kína, sann- kallað blóðbað. Milljónir manna voru drepnar. Og í „Stóra stökkinu“ fram á við árin 1958-1962 féllu 44 milljónir manna úr hungri, eins og sagnfræð- ingurinn Frank Dikötter hefur sýnt fram á, en hann hefur rannsakað kín- versk skjalasöfn sem áður voru lok- uð. Í öðru lagi var alls ekki of snemmt um þetta að segja. Þegar í nóv- emberbyrjun 1790 hafði breski stjórnmálaskörungurinn Edmund Burke gefið út Hugleiðingar um Frönsku byltinguna (Reflections on the Revolution in France) þar sem hann kvað hana dæmda til að mistak- ast. Frönsku byltingarmennirnir teldu að allt vald ætti að vera í hendi lýðsins og það merkti ekki annað en að allt vald ætti að vera í hendi þeirra sem teldu sig hafa umboð lýðsins en þeir væru sökum reynsluleysis og of- stækis síst allra til mannaforráða fallnir. Byltingarmennirnir ætluðu að rífa allt upp með rótum en það hlyti að enda með ósköpum enda hefðu þeir óljósar hugmyndir um hvað taka ætti við. Breskt stjórn- arfar einkenndist hins vegar af því, sagði Burke, að valdinu væri dreift til margra aðila og þess vegna mynd- aðist jafnvægi milli þeirra og fram- vindan yrði hæg og örugg. Allt gekk fram sem Burke sagði. Ógnarstjórn hófst í Frakklandi og fallöxin hafði ekki undan. Loks hrifs- aði herforingi frá Korsíku völdin og krýndi sjálfan sig keisara. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Kínversk ekki-speki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.