Morgunblaðið - 18.01.2020, Síða 27
MINNINGAR 27Messur á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
AKURINN kristið samfélag |
Samkoma kl. 14. Biblíufræðsla,
söngur og bæn.
ÁRBÆJARKIRKJA | Áramóta-
guðsþjónusta Eldriborgararáðs kl.
11, sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir
og Þórey Dögg Jónsdóttir djákni
þjóna fyrir altari og sr. Þór Hauks-
son prédikar. Kór Árbæjarkirkju
syngur. Kórstjóri og organisti er
Kristina Kalló Szlenár. Kaffiveitingar
í boði kirkjunnar og Eldriborgarar-
áðs. Sunnudagaskólinn á sama
tíma í safnaðarheimili.
ÁSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11 í umsjá Jóhönnu Maríu
Eyjólfsdóttur djáknakandídats, sr.
Sigurðar Jónssonar og Ingu Stein-
unnar Henningsdóttur, sem leikur á
píanóið. Hressing í Ási á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Um-
sjón með stundinni hafa Sigrún
Ósk, Þórarinn Kr. og Guðmundur
Jens.
BORGARNESKIRKJA | Sr. Þor-
björn Hlynur Árnason þjónar fyrir alt-
ari. Kirkjukórinn undir stjórn Stein-
unnar Árnadóttur. Meðhjálpari er
Heiðrún Bjarnadóttir.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Prestur er
Magnús Björn Björnsson. Umsjón
sunnudagaskóla Steinunn Þorbergs-
dóttir djákni og Steinunn Leifsdóttir.
Alþjóðlegi söfnuðurinn í Breiðholts-
kirkju kl. 14. Lofgjörðar- og bæna-
stund á ensku. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Prestur er Toshiki Toma.
Djákni er Steinunn Þorbergsdóttir.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl.
11. Hressing eftir samveruna. Guðs-
þjónusta kl. 14. Organisti: Antonia
Hevesi, félagar úr Kammerkór Bú-
staðakirkju syngja. Sr. Pálmi messar
og þjónar. Heitt á könnunni eftir
messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur:Gunnar Sigurjónsson. Org-
anisti er Sólveig Sigríður Ein-
arsdóttir. Samkór Kópavogs leiðir
söng. Veitingar í safnaðarsal að
messu lokinni.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11.
Sunnudagaskólinn á þessu vormiss-
eri verður ekki með því sniði að
hann sé á sama tíma og messurnar
hvern sunnudag. Nánara fyr-
irkomulag auglýst fljótlega. Æðru-
leysismessa kl. 20.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og prédikar. Kór
kirkjunnar undir stjórn Arnhildar Val-
garðsdóttur organista. Sunnudaga-
skólinn á sama tíma í umsjá Mörtu
og Ásgeirs.
GLERÁRKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Sameiginlegt
upphaf í messu. Sr. Stefanía G.
Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju
leiðir söng undir stjórn Petru Bjarkar
Pálsdóttur organista. Umsjón með
sunnudagaskóla: Sunna Kristrún
djákni.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl.
11. Séra Sigurður Grétar Helgason
prédikar og þjónar. Kór Grafarvogs-
kirkju leiðir söng og organisti er Há-
kon Leifsson. Sunnudagaskóli kl.
11 á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón
hefur Þóra Björg Sigurðardóttir og
Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari
er Stefán Birkisson.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í
Spöng | Selmessa kl. 13. Séra Sig-
urður Grétar Helgason prédikar og
þjónar. Vox Populi leiðir söng og org-
anisti er Hilmar Örn Agnarsson.
GRENSÁSKIRKJA | Samkirkjuleg
guðsþjónusta kl. 11 í tilefni Alþjóð-
legrar samkirkjulegrar bænaviku fyrir
einingu kristninnar. Dr. Eric Guð-
mundsson, prestur Aðventkirkj-
unnar, prédikar. Dr. María G. Ágústs-
dóttir og sr. Eva Björk
Valdimarsdóttir þjóna ásamt messu-
hópi og lesurum frá Samstarfsnefnd
kristinna trúfélaga á Íslandi. Vox
Gospel ásamt Barna- og ungdóm-
skórum Fossvogsprestakalls. Stjórn-
andi Þórdís Sævarsdóttir, organisti
Ásta Haraldsdóttir. Fjölskyldukirkjan
þri. kl. 17.15-18.30.
GRUND dvalar- og hjúkr-
unarheimili | Guðsþjónusta 19.
janúar í umsjón Félags fyrrverandi
þjónandi presta kl. 14 í hátíðasal.
Prestur er Örn Bárður Jónsson.
Grundarkórinn undir stjórn Kristínar
Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta og barnastarf. Prestur
er Leifur Ragnar Jónsson. Organisti
er Hrönn Helgadóttir og kirkjukór
Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í
safnaðarheimilinu í umsjá Péturs
Ragnhildarsonar. Fermingarbörn úr
Ingunnarskóla verða með boð þar
sem allir koma með veitingar.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Sr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar og þjónar fyrir
altari. Messuþjónar aðstoða. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja. Organisti er Björn Steinar
Sólbergsson. Umsjón barnastarfs:
Kristný Rós Gústafsdóttir og Ragn-
heiður Bjarnadóttir. Bænastund
mán. kl. 12.15. Fyrirbænaguðsþjón-
usta þri. kl. 10.30. Árdegismessa
mið. kl. 8. Kyrrðarstund fim. kl. 12.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Félagar úr Kordíu kórs Háteigskirkju
leiða messusöng. Organisti er Krist-
ín Jóhannesdóttir. Prestur er Eiríkur
Jóhannsson.
HJALLAKIRKJA | Sunnudag 19.1.
verður messað kl. 11 í Digra-
neskirkju. Prestur er Gunnar Sig-
urjónsson og organisti er Sólveig
Sigríður Einarsdóttir. Hádegisverður
í safnaðarheimili að messu lokinni.
Fjölskyldumessa er sama dag í
Hjallakirkju kl. 17. Prestar: sr. Gunn-
ar Sigurjónsson og Sunna Dóra
Möller. Organisti er Lára Bryndís
Eggertsdóttir. Kvöldverður í safn-
aðarheimili að messu lokinni.
HVERAGERÐISKIRKJA | Messa
kl. 11. Sr. Halldóra Þorvarðardóttir
prófastur setur sr. Ninnu Sif Svav-
arsdóttur í embætti sóknarprests í
Hveragerðisprestakalli. Kirkjukór
Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar
syngur, organisti er Miklós Dalmay.
Veitingar í boði sóknarnefnda.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía
| Samkoma kl. 11. Service. Transla-
tion into English. Samkoma á ensku
kl. 14. English speaking service.
Samkoma á spænsku kl. 16. Reu-
niónes en español.
Samkoma Fíló+ kl. 20.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn
samkoma kl. 13. Aldursskipt barna-
starf og heilög kvöldmáltíð. Ólafur
H. Knútsson prédikar. Kaffi.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudag
kl. 11 er árleg Rótarýmessa í Kefla-
víkurkirkju. Félagi Rótarýklúbbs
Keflavíkur, fráfarandi menningar-
fulltrúi og menningarverðlaunahafi
Reykjanesbæjar 2019, Valgerður
Guðmundsdóttir, flytur hugleiðingu.
Kór Keflavíkurkirkju syngur undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar, org-
anista. Sr. Erla Guðmundsdóttir
þjónar. Jóhanna, Helga og Ingi Þór
halda utan um sunnudagaskóla-
samveru á sama tíma. Súpuþjónar
og fermingarforeldrar reiða fram
súpu og brauð í Kirkjulundi að lok-
inni messu.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sighvatur Karlsson,
settur héraðsprestur, prédikar og
þjónar fyrir altari. Kór Kópavogs-
kirkju syngur undir stjórn Lenku Má-
téová, kantors. Sunnudagaskólinn á
sama tíma í safnaðarheimilinu Borg-
um.
KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta í
stofum Kvennakirkjunnar í Þingholts-
stræti 17 kl. 20. Séra Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir prédikar, Aðalheiður
Þorsteinsdóttir stjórnar söng og leik-
ur á píanó. Kaffisamvera að lokinni
messu.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Félagar úr
Fílharmoníunni syngja undir stjórn
Magnúsar Ragnarssonar organista.
Ása Laufey Sæmundóttir héraðs-
prestur þjónar. Sara Gríms leiðir
sögu og söng í sunnudagaskól-
anum. Léttur hádegisverður í safn-
aðarheimilinu að messu lokinni.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Kór Laugarneskirkju og Arngerð-
ur María Árnadóttir. Sr. Davíð Þór
Jónsson þjónar fyrir altari og prédik-
ar. Sunnudagaskóli á meðan. Kaffi
og samvera á eftir.
Betri stofan Hátúni 12 kl. 13. Helgi-
stund með sr. Davíð Þór og Arngerði
Maríu.
Þriðjudagur 21.1.: Kyrrðarbæn kl.
20. Kirkjan opnuð kl. 19.40. Kristin
íhugun.
Fimmtudagur 23.1.: Kyrrðarstund kl.
12 í Áskirkju. Málsverður og opið
hús á eftir.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Dís
Gylfadóttir leiðir stundina ásamt
sunnudagaskólakennurunum.
Messa kl. 20. Kór Lindakirkju leiðir
lofgjörð undir stjórn Óskars Ein-
arssonar. Sr. Dís Gylfadóttir þjónar.
NESKIRKJA | Messa og sunnu-
dagskóli kl. 11. Sameiginlegt upp-
haf. Félagar úr Kór Neskirkju leiða
safnaðarsöng. Organisti er Stein-
grímur Þórhallsson. Prestur er Stein-
unn Arnþrúður Björnsdóttir. Barna-
starf. Umsjón Ari Agnarsson, Katrín
Helga Ágústsdóttir og Gunnar Th.
Guðnason. Samfélag og kaffisopi á
Torginu eftir messu.
SALT kristið samfélag | Sameig-
inlegar samkomur Salts og SÍK kl.
17 alla sunnudaga í Kristniboðs-
salnum Háaleitisbraut 58-60. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SANDGERÐISKIRKJA | Sól-
risumessa kl. 14. Eldeyjarkórinn
syngur undir stjórn Arnórs Vilbergs-
sonar. Ræðumaður er Gunnar Sig-
urðsson stjórnarformaður Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Prestur er
Sigurður Grétar Sigurðsson. Kaffi-
sala kvenfélagsins Hvatar eftir
messu.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Óli og Jóhanna leiða
samveruna. Söngur, biblíusaga.
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sighvatur
Karlsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða
safnaðarsöng. Organisti: Tómas
Guðni Eggertsson.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10. Hvað er að
gerast í Mið-Austurlöndum? Dr.
Magnús Þorkell Bernharðsson, pró-
fessor við Willams College, Massa-
chusset, talar.
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar.
Friðrik Vignir Stefánsson er org-
anisti. Sveinn Bjarki og leiðtogar sjá
um sunnudagaskólann. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða
almennan safnaðarsöng. Kaffiveit-
ingar og samfélag eftir athöfn í
safnaðarheimilinu.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa
sunnudag kl. 11. Egill Hallgrímsson
sóknarprestur annast prestsþjón-
ustuna. Organisti er Jón Bjarnason.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Halldór Reynisson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt messuþjón-
um. Félagar í kór Vídalínskirkju
synga og organisti er Jóhann Bald-
vinsson. Boðið upp á messukaffi.
Sunnudagaskóli á sama tíma sem
Matthildur Bjarnadóttir æskulýðs-
fulltrúi leiðir ásamt Þórdísi Jónu
Eggertsdóttur og Davíð Sigurgeirs-
syni. Sjá gardasokn.is.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Karla-
kórinn Þrestir syngur undir stjórn
Ástvalds Traustasonar. Hressing í
safnaðarsal að guðsþjónustu lok-
inni.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjón-
usta kl. 20. Létt tónlist.
Orð dagsins:
Brúðkaupið í Kana
(Jóh. 2)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Siglufjarðarkirkja.
✝ Þórveig Sig-urðardóttir
fæddist á Sleitu-
stöðum í Skaga-
firði 11. mars
1925. Hún lést 11.
janúar 2020.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin
Guðrún Sigurð-
ardóttir húsmóðir
frá Víðivöllum í
Skagafirði, f. 29.
júní 1886, d. 4. júlí 1969, og
Sigurður Þorvaldsson, kenn-
ari, bóndi og hreppstjóri frá
Álftártungukoti á Mýrum, f.
23. janúar 1884, d. 21. desem-
ber 1989.
Þórveig ólst upp hjá for-
eldrum sínum á Sleitustöðum í
stórum systkinahópi og eru
þau: Sigrún, f. 1910, d. 1988;
Gísli, f. 1911, d. 1966; Gerður,
f. 1915, d. 2012; Sigurður, f.
1917, d. 1999; Guðrún, f. 1918,
d. 2000; Þorvaldur Pétur, f.
1920, d. 1922; og tvíburi hans,
drengur, d. 1920; Lilja, f. 1923,
d. 2008, og tvíburi hennar,
Rósa, d. 1923; Jón, f. 1927, d.
1928; Jón, f. 1929, og Guðjón
Þór Ólafsson (fósturbróðir), f.
1937, d. 1998.
Þann 14. ágúst 1956 giftist
Þórveig Ólafi Jóhanni Jóns-
syni, kennara og skólastjóra.
Í uppvextinum tók Þórveig
þátt í almennum störfum á
stóru sveitaheimili. Hún gekk í
barnaskóla sveitarinnar í Hlíð-
arhúsi, var í Héraðsskólanum
á Laugarvatni 1943-1944, í
Kvennaskólanum á Blönduósi
1945-1946, tók handavinnu-
kennarapróf frá Kennaraskól-
anum 1947 og handavinnu-
kennarapróf frá Handíða- og
myndlistaskólanum 1949. Hún
kenndi við Barnaskólann á
Hellissandi 1949-1950, Gagn-
fræðaskólann í Vestmanna-
eyjum 1950-1951 og Héraðs-
skólann í Reykholti 1951-1955.
Fjölskyldan bjó í Keflavík
frá 1956-1979. Þar kenndu þau
Þórveig og Ólafur við barna-
skólann, hún með hléum vegna
barneigna. Ólafur var skóla-
stjóri við skólann frá 1972-
1979. Haustið 1979 fluttu þau
á Svalbarðsströnd þar sem
þau kenndu og hann var skóla-
stjóri til ársins 1987. Frá 1987-
1994 kenndu þau við Grunn-
skólann í Gaulverjabæ og var
Ólafur jafnframt skólastjóri
þar.
Að lokinni starfsævi fluttu
þau Þórveig og Ólafur í Ártún,
húsið sitt á Sleitustöðum. Á
Sleitustöðum dvöldu þau öll
sumur og undu sér best. Eftir
andlát Ólafs flutti Þórveig til
Akureyrar og bjó þar til ævi-
loka.
Útför Þórveigar fer fram
frá dómkirkjunni á Hólum í
Hjaltadal í dag, 18. janúar
2020, og hefst athöfnin klukk-
an 11.
Ólafur lést af slys-
förum 13. febrúar
1999. Foreldrar
hans voru Ingi-
björg Arngríms-
dóttir og Jón Jóa-
kimsson. Þau
bjuggu í Fljótum í
Skagafirði og þar
ólst Ólafur upp.
Börn Þórveigar og
Ólafs eru: 1)
Drengur, f. 1957,
lést á fyrsta ári. 2) Ragnar
Smári, f. 1958, var kvæntur
Bryndísi Símonardóttur. Bryn-
dís á einn son. 3) Sigrún Erla,
f. 1959, gift Jóhanni F. Þór-
hallssyni og eiga þau tvö börn.
4) Hrafnhildur Inga, f. 1960,
gift Magnúsi Traustasyni og
eiga þau þrjú börn. 5) Sólveig
Jóna, f. 1964, gift Jóhanni Þor-
varði Ingimarssyni og eiga þau
fimm börn. Barnabarnabörnin
eru þrettán talsins.
Árin sem Þórveig og fjöl-
skylda bjó í Keflavík voru
Gerður systir hennar og Ragn-
hildur Björk Sveinsdóttir, f.
1957, dóttir Gerðar, til heimilis
hjá þeim. Ragnhildur og börn
Þórveigar og Ólafs eru uppeld-
issystkin. Eiginmaður Ragn-
hildar er Eiríkur Oddur
Georgsson og eiga þau þrjú
börn og sex barnabörn.
Elsku Lóley amma.
Ég er full þakklætis fyrir að
hafa átt þig að frá fyrstu stundu.
Þú varst kona sem auðvelt var
að líta upp til, staðföst, heiðarleg
og ósérhlífin. Allar stundirnar í
sveitinni með þér og afa eru lík-
legast með þeim betri sem nokk-
uð barn getur óskað sér, hakkbuff
með vel brenndum lauk tekur mig
aftur um 27 ár og minnir mig á að
blaðra ekki yfir hádegisfréttirn-
ar.
Minningu um fallegu og góðu
ömmu mína geymi ég í hjartanu
og gleymi sögunum af ömmu í
sveitinni aldrei.
Bryndís Rán Magnúsdóttir.
Elsku amma.
Leiðir okkar skilja hér, alla
vega í bili. Mikið er ég þakklát
fyrir allar samveru stundirnar
okkar og allar fallegu minning-
arnar sem ylja. Dásamlegar
minningar úr sveitinni, þar sem
við krakkarnir lékum okkur allan
daginn, fengum ömmumat að
borða og kókópuffs alla morgna,
því það mátti í sveitinni. Hvergi
annarsstaðar leið okkur jafn vel.
Þú varst alltaf svo góð og ljóm-
aðir alltaf þegar þú sást Freyju
og Loka litla, eins og þú kallaðir
hann alltaf. Ég mun sakna þess að
fá þig í kvöldmat á hverjum föstu-
degi að borða pítsu, þér fannst
pítsan mín svo góð og varst alltaf
svo glöð að koma í heimsókn.
Nú liggur leiðin þín aftur í
faðminn á afa eftir langa bið.
Við sjáumst aftur síðar.
Þín
Vigdís.
Elsku hjartans amma.
Við erum hér, við mamma.
Og vitum ei hve skamma stund þú átt.
Svona byrjar Ömmulagið með
hljómsveitinni Evu. Þetta lag er
búið að glymja í hausnum á mér
síðan ég sá ljósin á sjúkrabílnum.
Þetta fallega lag um ömmu höf-
undarins finnst mér svo lýsandi
fyrir hana ömmu mína. Ég er svo
þakklátur fyrir hana ömmu, hún
kenndi mér svo margt. Ég fékk að
búa hjá henni einn vetur þegar að
ég var í Verkmenntaskólanum á
Akureyri. Þá lærði ég til dæmis
að það tekur því ekki að hita feit-
ina til þess að steikja kleinur
nema ef maður ætlaði að steikja
kleinur úr að minnsta kosti tveim-
ur kílóum af hveiti. Við amma vor-
um ekki alltaf sammála þegar við
bjuggum saman þennan eina vet-
ur en veturinn einkenndist af því
að við sátum flest kvöld og spil-
uðum ótukt. Spil sem að amma
hikaði ekki við að skemma fyrir
mér svo að hún gæti unnið.
Amma var algjör vinnuþjark-
ur, ég man eiginlega ekki eftir
henni öðruvísi en á fullu að baka
og elda ofan í mannskapinn þegar
við komum í heimsókn í sveitina.
Eða að sauma út harðangur og
klaustur, skera út allskonar muni,
þó aðallega klukkur, og svo sat
hún við og heklaði teppi í metrav-
ís síðustu árin. Ég er svo heppinn
að hún gaf mér muni eftir sig, út-
skorna klukkan sem hún gaf mér í
jólagjöf, harðangur og klaustur-
srúmfatasettið sem ég á eftir
hana og teppið með litasamsetn-
ingu sem ég hefði aldrei látið mér
detta í hug en mér þykir svo vænt
um.
Amma sagði manni ótrúlegar
sögur úr sveitinni á Sleitustöðum,
af langafa og -ömmu og hvernig
lífið var á þeim tíma, hvernig
verkin voru og hvernig fyrsti pen-
ingaseðillinn sem hún eignaðist
hefði brunnið í húsbrunanum á
Sleitustöðum er hún var barn.
Amma hefði orðið 95 ára á
þessu ári, hún var södd lífsdaga
og er ég ofboðslega þakklátur fyr-
ir það að hún hafi komið austur í
sumar og eytt tíma með okkur í
sveitinni. Einnig að hún hafi kom-
ið austur og verið hjá okkur nú
um hátíðarnar í Fljótsdalnum.
Takk, elsku amma Lóley, fyrir
allt, allar stundirnar sem við spil-
uðum og spjölluðum. Allar stund-
irnar í eldhúsinu, spjallið um
blómin og takk fyrir að vökva
blómin mín á sumrin þegar að ég
var á bak og burt upp um fjöll og
firnindi. Sérstakar þakkir fyrir
allar heiðarlegu tilraunirnar til
þess að lækna þágufallssýkina hjá
mér.
Ég vil enda þessa grein á síð-
asta erindinu úr Ömmulaginu:
Og ef til vill að ofan
Í gegnum blámann, roðann,
er útsýnið ögn öðruvísi en hér.
Þú lítur yfir lífið
Baráttuna, stríðið
Með söknuði og kannski líka þökk í
hjarta þér.
Takk fyrir mig, amma, ég bið
að heilsa afa.
Þórhallur Jóhannsson.
Elsku amma mín, mig langaði
bara að þakka þér fyrir allt. Allar
samverustundirnar í gegnum ár-
in, sérstaklega þegar ég var með
þér í sveitinni, þær eru ómetan-
legar þegar ég horfi á þær aftur í
huganum. Hefði óskað þess að ég
hefði verið duglegri að kíkja í
Skagafjörðinn eftir að ég varð
fullorðinn en kannski var ég bara
byrjaður að taka þér og kofanum
þínum sem sjálfsögðum hlut. Ég
mun aldrei gleyma þér eða síð-
asta símtalinu sem við áttum sam-
an. Það var myndsímtal þar sem
ég sýndi þér nýfæddan son minn,
langömmubarnið þitt. Þú sagðir
hlæjandi frasa sem hefur heyrst
svo oft: „Þetta er líklega bara fal-
legasta barn í heimi“ á meðan þú
borðaðir einn af uppáhaldsréttun-
um þínum, pítsu. Þetta var í eina
skiptið sem þú sást óskírðan son
minn og er ég mjög þakklátur fyr-
ir það.
Góða ferð í sumarlandið, amma
mín, bið að heilsa afa mínum og
nafna sem er án efa mjög glaður
að hitta þig aftur eftir langa bið.
Þinn
Ólafur Jóhann.
Þórveig
Sigurðardóttir
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin
að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar