Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 28

Morgunblaðið - 18.01.2020, Side 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 ✝ Bergur IngiGuðmundsson fæddist í Bolung- arvík 3. ágúst 1964. Hann lést á heimili sínu í Vesturhlíð í Skálatúni 7. janúar 2020. Foreldrar hans voru Guð- mundur Krist- jánsson, f. 21. nóv- ember 1923, d. 23. september 1987, og Guðrún Pálmadóttir, f. 31. júlí 1925, d. 3. maí 2013. Bergur var yngstur fimm systkina: 1. Bene- dikt, f. 15. nóvember 1951, d. 8. c) Guðmundur, í sambúð með Svövu Tyrfingsdóttur, þau eiga eina dóttur. 4. Jónína Elva, börn hennar eru a) Sandra Dögg í sambúð með Inga Þór Jónssyni og þau eiga saman eina dóttur en Sandra á tvær dætur af fyrra hjónabandi með Sigurði Ólafi Oddssyni. b) Benedikt Páll í sambúð með Þórunni Eydísi Jakobsdóttur og eiga þau eina dóttur. Bergur ólst upp í Bolungar- vík til 9 ára aldurs en fluttist þá á Skálatúnsheimilið í Mos- fellsbæ. Þar bjó hann glaður við gott atlæti en tryggðin við Bol- ungarvíkina bar hann alla tíð og var duglegur að heimsækja fólkið sitt þar. Útför Bergs Inga fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag, 18. janúar 2020, klukkan 11. nóvember 1966. 2. Pálmi Árni, f. 8. júlí 1954. Kona hans er Lene B. Vestergaard. Þau eiga tvo syni, a) Magnús sem er í sambúð með Sofie Brandi og eiga þau eina dóttur. b) Jó- hann. 3. Kristján Jón, f. 19. nóv- ember 1956. Hans kona er Drífa Gústafsdóttir og þeirra börn eru a) Íris Björk í sambúð með Einari Sigursteini, þau eiga þrjú börn. b) Birgitta. Við andlát okkar kæra Bergs Inga sitjum við saman fjölskyld- an í Stínubæ og rifjum upp allar samverustundirnar sem við höf- um átt með honum. Við grátum og hlæjum til skiptis. Grátum yfir því að fá ekki að skapa fleiri minningar með elsku frænda okkar, hlæjum yfir öllum gleðistundunum sem við áttum með honum. Við erum samt sátt að elsku vinurinn okkar hafi ekki þurft að þjást, hann var nefnilega dramadrengur og þoldi illa veikindi eða að sjá aðra veika. Það voru forréttindi að hafa þennan hjartahlýja gleðigjafa sér við hlið frá barnæsku, kenndi okkur að gleðjast yfir litlu hlut- unum í lífinu og fordómaleysi gagnvart þeim sem eru öðru vísi. Gleðin yfir pítsusneið eða súkku- laðistykki og kóki var svo innileg, það þurfti lítið til að gleðja okkar mann. Hann var alltaf svo hepp- inn. Bergur var mikill tónlistar- unnandi, hann hlustaði á tónlist og sló taktinn af mikilli snilld með. Hann taldi upp alla tónlist- armennina og vissi í hvaða hljóm- sveit þeir voru. Rolling Stones voru hans goð og var hann búinn að upplifa það að fara út í heim á tónleika með þeim. Mamma hefur fylgt Bergi frá barnæsku sem frænka og barnapía hans, eins og henni er lagið sýndi hún honum alla tíð mikla hlýju og umhyggju. Sam- band þeirra var einstakt alla tíð og mikill kærleikur á milli þeirra. Þau töluðu þau saman í síma reglulega og heimsóttu hvort annað. Bergur var mikið inn á heimili okkar í minni æsku og eftir að foreldrar hans féllu frá gisti hann í Stínubæ þegar hann kom í Bol- ungarvíkina sína. Í ferðum okkar til og frá Reykjavík var komið við í Skálat- úni í heimsókn og voru það ávallt gleðistundir, 55 ára afmæli Bergs var haldið í ágúst 2019 og þá var sko partí. Við gerðum okkur samt grein fyrir því að elsku vinurinn var farinn að eldast og orðinn veikari síðustu ár. Nú er komið að kveðjustund og ljóst að stundirnar í Stínubæ og Skálatúni með Bergi verða ekki fleiri. Við munum samt halda áfram að heimsækja vini hans og okkar í Skálatúni. Elsku hjartans Giggi okkar er farinn, við erum öll sorgmædd en glöð í hjarta að hafa fengið hann í líf okkar. Við systkinin og börnin okkar höfum öll átt dýrmætar stundir með elsku hjartans frænda og það hefur kennt okkur öllum að meta lífið á annan hátt. Kennt okkur að það eru ekki allir eins, að umgangast alla af virðingu sama hvernig þeir koma í þennan heim. Sendum öllum aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Stínubæjargengið kveður hjartans frænda í hinsta sinn með texta úr lagi Bubba Morthens Kveðja. Far þú í friði elsku vinur. Farðu í friði vinur minn kær. Faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Fyrir hönd allra í Stínubæ, Sólveig Sigurðardóttir. Elsku kallinn minn. Það er svo sárt að horfa á eftir þér elsku frændi minn og vinur. Frá því ég var barn var samvera okkar fjöl- skyldna alltaf mikil og sterk og ég svo heppinn að hafa fengið að alast upp við hlið þér. Ég vil fyrst og fremst þakka mömmu fyrir þann fjársjóð sem hún gaf okkur systkinunum með því að galopna heimili okkar fyrir þér. Í staðinn launaðirðu með endalausri gleði og hamingju. Alltaf var jafn mikil tilhlökkun þegar von var á þér vestur í heim- sókn yfir jól, páska eða sumarfrí. Ég var svo ánægður þegar krakkarnir mínir fóru að stálpast og þegar við fórum suður báðu þau alltaf um að fá að kíkja í heimsókn til þín í Skálatún. Þau sóttu í það. Það var engin Reykja- víkurferð án þess að heimsækja þig, ef svo var var sú ferð mun fá- tækari. Ég gæti aldrei talið upp allar skemmtilegu upplifanirnar með þér því þær eru endalausar. Fyr- ir það er ég þakklátur. Þó eru nokkrar sem koma upp í hugann nú þegar komið er að kveðju- stund og þá standa upp úr allir tónleikarnir sem þú tókst þátt í, bæði í Skálatúni og svo á alls kyns mannamótum. Hæst ber kannski þegar þú spilaðir með okkur á AFÉS árið 2012 og bera mynd- bönd þau vitni að þú varst í sælu- vímu hverja einustu mínútu á sviðinu. Þarna voru allir þínir vin- ir samankomnir á sviðinu með okkur; Elton John, Mick Jagger, Keith Richards, Queen og fleiri. Þarna varstu í essinu þínu. Þú kenndir mér meira á lífið en nokkur annar og varst örugglega hamingjusamari en margur ann- ar. Þú þurftir ekki að fara í skóla til að læra núvitund; þú bara tókst þér penna í hönd, settir eitt- hvað gott á fóninn og þar varst þú á staðnum með algjöra einbeit- ingu. Henni varð ekki haggað. Ég hitti þig í síðasta skipti í af- mæli Halldórs Bjarna núna rétt fyrir jólin þar sem við Karolína komum og sungum með ykkur. Þá varstu fljótur að koma og tromma á gítarinn hjá mér í takt með hægri hendinni og borða pítsu með vinstri! Já, þú varst fjölhæfur. Það sem þú varst ánægður að fá okkur í heimsókn, faðmaðir okkur til skiptis og spil- aðir út öllum gleðispilunum þín- um. Það er óhætt að segja að stórt skarð sé höggvið hjá okkur fjöl- skyldunni. Við munum aldrei gleyma þér og munum halda minningu þinni á lofti um ókomna tíð. Minningu um einstakan gleði- gjafa! Við fjölskyldan á Sólvöllum vottum fjölskyldu Bergs, Nínu og öllu starfsfólkinu og ábúendum í Skálatúni okkar allra dýpstu samúð. Benedikt Sigurðsson. Bergur Ingi Guðmundsson ✝ Knútur Eyj-ólfsson fædd- ist í Hvammi í Landsveit 7. jan- úar 1949. Hann lést á gjörgæslu- deild Landspít- alans 31. desem- ber 2019. Foreldrar hans voru Eyjólfur Ágústsson bóndi, f. 9.1. 1918, d. 30.3. 1997, og Guðrún Sigríður Kristinsdóttir húsmóðir, f. 9.12. 1921, d. 24.5. 2009. Knútur var næstyngstur sex systkina sem eru Kristinn, f. 24.2. 1942, d. 13.11. 1996, Katrín, f. 19.9. 1943, Ágúst Sigurvin, f. 5.6. 1945, d. 7.12. 1996, Ævar Pálmi, f. 21.8. 1946, d. 27.9. 2017, og Selma, f. 25.07 1961. Fyrri kona Knúts var Guðríður Sig- urðardóttir og eign- uðust þau tvær dæt- ur, Sigríði Theo- dóru, f. 4.2. 1975, og Guðrúnu Sigríði, f. 28.11. 1977. Eft- irlifandi eiginkona Knúts er Edda Halldórsdóttir og eign- uðust þau saman soninn Aron, f. 1.10. 1995. Útför Knúts fór fram í kyrr- þey í Grafarvogskirkju 10. jan- úar 2020. Ekki ætla ég að rekja lífsferil Knúts frænda míns, en vil beina huga lesenda austur í Landsveit í Rangárvallasýslu. Þar skagar eitt fjall, Skarðsfjall, upp úr fremur flötu landi. Aldrei hefur mér fundist fjallið fagurt, en hins vegar fylgir því þægileg nærvera og jafnvel einhver dulúð. Þar í nánd standa nokkrir bæir og þar nyrst undir fjallinu vestanverðu er bærinn Hvammur. Þar hefur sama ættin búið lengi og verður það rakið til Gunnars Jónssonar er þar býr árið 1655 – en ekki er vitað hverjir bjuggu þar áður. Það er í Hvammi sem Knútur elst upp, ásamt nokkuð stórum systk- inahópi. Hluti af uppeldinu var að taka þátt í störfum hinna fullorðnu og þar lá alveg ljóst fyrir til hvers var ætlast. Gengu hlutirnir ekki að vilja Eyjólfs föður þeirra, þá var það látið heyrast með orðum sem ekki var neitt silkimjúkt barnamál. Þeir bræður gátu snemma orð- ið uppátektarsamir. Um 5-6 ára aldurinn stunduðu þeir það, þeg- ar faðir þeirra var frá bæ, að gangsetja bæði dráttarvél og bíl og aka um að húsabaki, þar sem móðir þeirra sá ekki til. Slíkir menn urðu síðar ákaflega næmir og hæfir til að beita vélknúnum tækjum og gátu alls ekki skilið klaufaskap annarra við slíkt. Fleiri bæir eru undir Skarðs- fjalli og var á sumum þeirra nokkuð mannmargt á sumrin vegna aðkomuunglinga og kaupavinnufólks. Eyjólfssynir frá Hvammi urðu oft þátttakend- ur í gleðinni, þegar fólk tveggja eða fleiri bæja hittist. Líf og gleði þess fólks sem bjó fyrrum á bæj- unum undir Skarðsfjalli lifir að- eins í minningu þeirra sem það þekktu, enda hefur margt gjör- breyst frá því sem þá var. Knútur var margsamsett manngerð. Hann hafði ánægju af að hitta fólk og varð þá, í gleði sinni, stundum nokkuð fyrirferð- armikill þegar áfengis var neytt. Innst inni var hann einfari og fór því margar ferðir inn í óbyggðir, oft einbíla og einn. Í slíkum ferðum gisti hann stundum hjá mér þegar ég starf- aði í Veiðivötnum. Knútur hafði mikla hæfni til að meðhöndla vél- ar, en í hug sínum og hjarta var hann fyrst og fremst íslenskur sveitamaður. Ég tel það miður að hann varð ekki bóndi í Hvammi. Á bls. 622- 624 í bókinni Veiðivötn á Land- mannaafrétti er Knúti lýst nán- ara en hér er gjört. Ungur kynntist Knútur fyrri konu sinni, Guðríði Sigurðardótt- ur. Ég man það svo, að leit hafi verið á jafn fallegu pari og þau voru, en kannski sýndi hann henni ekki alltaf það tillit sem hún verðskuldaði. Eftirlifandi ekkja Knúts er Edda Halldórsdóttir. Einhverju sinni lét Knútur einhver þau orð um hana falla, að ég fann að hann var fullur af sterku þakklæti til hennar, vegna þess hve hún væri honum skilningsrík og hjálpsöm í veikindum hans. Í síðasta símtali okkar Knúts var hann einstak- lega glaður vegna flugnámsins sem sonur þeirra er nú í. Töluðum orðum Knúts mátti treysta. Hann hafði þá dóm- greind fram yfir ýmsa aðra, að geta séð í gegnum lygabull. Aldr- ei sá ég hann öðruvísi en glaðan. Hann var einstaklega vinnusam- ur og mikill fjáraflamaður og að auki góður eignagæslumaður. Í anda forfeðranna held ég að hann hafi gætt þess, að fjölskylduna skorti aldrei neitt. Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún. Knútur Eyjólfsson, þú varst ástkær föðurbróðir okkar og við munum eftir þér sem miklu nátt- úrubarni í sveitinni. Þú varst hlýr og traustur maður með mikinn húmor, það var gaman að vera í návist þinni. Við minnumst þín með hlýju og minnumst góðu og skemmtilegu stundanna. Takk fyrir stuðninginn þinn gegnum árin. Við sendum fjölskyldu og vin- um hugheilar samúðarkveðjur. Þegar þú ert aðskilinn frá vin, átt þú ekki að syrgja; því að það sem þú elsk- ar mest hjá honum getur orðið sýni- legra í fjarvist hans, líkt og fjallið verð- ur sýnilegra fyrir fjallgöngumanninn úr fjarlægð. Guðrún Sigríður, Ágúst Krister og fjölskyldur. Knútur Eyjólfsson Okkar ástkæri faðir og afi, HILMAR AXEL KRISTJÁNSSON, Funafold 60, lést föstudaginn 9.janúar. Hann verður jarðsunginn mánudaginn 20. janúar klukkan 13 frá Grafarvogskirkju. Hilmar, Letetia, Christien og barnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR sjúkraliði, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 3. janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Jón Friðjónsson Hulda Sigurðardóttir Sigríður Friðjónsdóttir Garðar Pétursson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, BORGHILDUR STEFÁNSDÓTTIR frá Akurholti, Huldubraut 25, lést 10. janúar. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 23. janúar klukkan 15. Þórður Flosason Stefanía Anna Þórðardóttir Þorvaldur Geir Sigurðsson Rósbjörg S. Þórðardóttir Hjálmur Þ. Guðmundsson Sesselja Kristjánsdóttir og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, REYNIR KARLSSON, lést miðvikudaginn 15. janúar á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði. Útförin fer fram í Seltjarnarneskirkju föstudaginn 24. janúar klukkan 15. Sérstakar þakkir til starfsfólks biðdeildar HVE á Akranesi og hjúkrunarheimilisins Hrafnistu í Hafnarfirði fyrir alúð og umhyggju. Svala Kristinsdóttir Anna Reynisdóttir Sturla Óskar Bragason Ragnheiður Björk Reynisd. Björgvin Halldórsson Karl Reynisson Anna Þorsteinsdóttir Kristinn Reynisson Reynir G. Brynjarsson Sólrún J. Böðvarsdóttir Magnús Reynisson Sigríður Jóhanna Tyrfingsd. Okkar ástkæri, HAUKUR HLÍÐAR ÞORGILSSON þúsundþjalasmiður, lést 15. janúar á Landspítalanum í Fossvogi. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. janúar klukkan 15. Geir Gunnar Geirsson, Guðrún Ólafía Sigurðardóttir og fjölskylda Guðbjörg Ragnheiður Þorgilsdóttir Páll Óli Þorgilsson Anna Ólafía Þorgilsdóttir Guðmundur Þorgilsson Guðfinna Ásta Þorgilsdóttir og aðrir aðstandendur og ástvinir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.