Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 ✝ SverrirBjörnsson fæddist á Fall- andastöðum í Hrútafirði 1. jan- úar 1932. Hann andaðist á sjúkra- húsinu á Hvamms- tanga 4. janúar 2020. Foreldrar hans voru Björn Guð- mundsson bóndi á Fallandastöðum og síðar í Brautarholti í Hrútafirði, f. 23. apríl 1897, d. 23. janúar 1977, og Anna Sigríður Guðmunds- dóttir húsmóðir, f. 12. janúar 1900, d. 7. desember 1997. Systkini Sverris voru Pétur Ingvar, f. 1921, d. 1997, Ottó f. 1922, d 2017, Ingimundur, f. 1923, d 1925 og Alda, f. 1936, d 1953. Þann 2. nóvember 1959 kvæntist Sverrir Guðbjörgu Á. Kristinsdóttur, f. 17 febrúar 1937. Foreldrar hennar voru Krist- inn Sveinsson, f. 1901, d. 1994 og Gunnlaug Helga Sigurð- ardóttir, f. 1901, d. 1991. Börn Sverris og Guðbjargar eru: Björn Ingi, Kristín Anna, Ásgeir og Alda Berglind. búnaðarfélagið, hann var forð- agæslumaður sveitarfélagsins og sat í einnig stjórn þess í tvö kjörtímabil. Einnig var hann formaður verkalýðsfélags Hrútfirðinga í nokkur ár. Hann söng alla sína tíð í kirkjukórum Staðar- og Prestbakka sókna en söngur var honum mjög kær. Sverrir var einn af stofn- félögum karlakórsins Lóuþræla og söng með þeim í fjölda ára. Sverrir var lengi í forsvari fyrir endurbyggingu Riis-húss á Borðeyri og vann að því af gífurlega miklum áhuga. Mál- efni Staðarkirkju voru honum einnig hugleikin og tók hann þátt í endurbyggingu hennar ásamt lagfæringu á kirkjugarð- inum auk þess að vera lengi í sóknarnefnd. Sverrir hafði mikinn áhuga á trjárækt og starfaði hann m.a. í hópi sem heitir „Litlu græningjarnir“. Eitt helsta verk hópsins var gerð Óskalundar, útivistasvæð- is við Reykjaskóla, með tilheyr- andi skógrækt en þar gegndi Sverrir mikilvægu hlutverki. Öllum þessum samfélags- verkum lagði hann sig allan fram við að koma í gegn með einstakri alúð og eljusemi og var hann oftar en ekki í for- svari fyrir þau. Útför Sverris fer fram í Stað- arkirkju, Hrútafirði, í dag, 18. janúar 2020, klukkan 14. Barnabörn þeirra eru tólf talsins og barnabarnabörnin fjögur. Sverrir ólst upp á Fallandastöðum og síðar í Braut- arholti í Hrútafirði og bjó hann þar megnið ævi sinnar, en árið 2007 byggðu þau Guð- björg sér hús í landi Brautarholts sem þau nefndu Fallandastaði þar sem þau bjuggu þar til þau fluttu á Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga þar sem þau dvöldu síðasta æviár Sverris. Sverrir lauk búfræðingsprófi við Bændaskólann á Hvanneyri árið 1950 og starfaði hann sem bóndi í Brautarholti frá árinu 1959 og alla sína starfsævi, auk þess að starfa sem kjötmats- maður og endurskoðunar- maður reikninga hjá Kaup- félagi Hrútfirðinga á Borðeyri. Hann var í stjórn Kaupfélagsins í þó nokkur ár ásamt því að vera stjórnarformaður í þrjú ár. Sverrir starfaði mikið að fé- lagsmálum fyrir sveit sína og hérað. Má þar nefna störf fyrir Takk fyrir samfylgdina Sestu hérna hjá mér ástin mín horfðu á sólarlagsins roðaglóð. Særinn ljómar líkt og gullið vín léttar bárur þar kveða þýðan óð. Við öldunið og aftanfrið er yndislegt að hvíla þér við lið. Hve dýrlegt er í örmum þér að una og gleyma sjálfum sér. (Jón frá Ljárskógum) Kveðja frá Dúddu, Guðbjörg Á. Kristinsdóttir. Elsku Pabbi minn. Nú hefur þú kvatt okkur og eftir sitjum við með sorg í hjarta en einnig með gnótt af góðum minningum. Ég minnist uppvaxtaráranna þegar byggingaframkvæmdir voru í gangi á hverju ári og þess trausts sem þú sýndir okkur krökkunum við þá vinnu og margt annað við bústörfin. Það voru ald- eilis ekki tilbreytingasnauð upp- vaxtarár. Ég man svo vel öll heil- ræðin þín, hver var fyrsta setningin sem þú skrifaðir á nýju ritvélina, ráðin sem þú gafst mér þegar ég hóf skólagöngu fjarri heimili eða þegar ég eignaðist minn fyrsta bíl. Ég var svo gæfu- samur að hlusta á þau og gleyma aldrei. Það var einnig svo gott að vita af þér sem bakhjarli á yngri árum þegar við vorum að koma undir okkur fótunum. Ég man svo vel hve gaman var að fara í ferðalög saman og eftir að ég flutti að heiman og eignaðist fjölskyldu þá var það eitt af mestu tilhlökkunarefnunum að hitta ykkur og fara í ferðalag saman á góðum sumardegi. Og síða,r þeg- ar erfiðara var fyrir ykkur að ferðast, að skreppa norður og fara í bíltúr og fræðast af þér um ná- grennið. Það verður skrítið að hlakka ekki lengur til þessara ferða eða símtala okkar þar sem ýmislegt var rætt og ástandið í þjóðfélaginu krufið til mergjar. Elsku pabbi, nú höfum við farið okkar síðasta bíltúr saman. Megi Guð og gæfa fylgja þér á þeirri ferð sem þú ferð nú. Vertu bless pabbi minn, ég sakna þín. Björn Ingi Sverrisson. Nú er komið að leiðarlokum pabbi minn. Þú ert kominn á stað þar sem þú getur spókað þig um í guðsgrænni náttúrunni. Þú varst gegnheill bóndi og náttúrubarn. Vildir hvergi annarsstaðar búa en í sveitinni þinni. Tvennt mikilvægt gafst þú mér í veganesti út í lífið. Fyrst og síðast að vera heiðarleg og gefa engan afslátt af því, sagðir að mannorð áynnist á löngum tíma en tæki andartak að glata. Annað sagðir þú við mig þegar ég flutti að heiman sextán ára gömul að ég myndi aldrei geta plumað mig fjárhagslega því ég eyddi öll- um peningum í nammi. Sá gamli vissi alveg hvað hann var að segja, hann þekkti dóttur sína. Ég er þrjósk og olli pabba ekki von- brigðum því ég hét því með mér á þeirri stundu að ég skyldi sýna honum að ég gæti alveg séð mér farborða. Ekki orðin gjaldþrota ennþá. Þú varst endalaust að fram- kvæma eitthvað. Sem barn og unglingur man ég varla eftir öðru en byggingaframkvæmdum nán- ast hvert sumar eða eitthvað ann- að sem gæti orðið til framfara. Fé- lagsstörfin tóku drjúgan tíma og ég hef þá trú að þér hafi ekki þótt það leiðinlegt. Þú áttir nokkur áhugamál sem þú sinntir af mikl- um eldmóði. Riis-húsið var þar framalega í flokki. Ég man árlegu ferðir þínar suður til Reykjavíkur þar sem við keyrðum þig milli fyr- irtækja og stofnanna til að afla fjár til uppbyggingar þess. Kirkj- an og endurbætur á henni og garðinum tók líka drjúgan tíma og ekki er hægt að gleyma lundinum góða í Reykjaskóla. Þú varst þakklátur öllum þeim sem lögðu hönd á plóg og unnu með þér að þessum verkefnum og eins fyrir ómetanlega hjálp fólksins í sveit- inni er veikindi herjuðu á. Ég tek undir það að við áttum sannarlega góða nágranna. Lífið var ekki alltaf dans á rós- um því veikindi mömmu og síðar þín voru stór partur af lífinu í Brautarholti. Oft varstu hræddur um að missa mömmu sem þú elsk- aðir af öllu hjarta. Hún er reyndar sér kapítuli, ótrúlegur barátt- unagli sem við mættum taka til fyrirmyndar. En þið stóðuð eins og klettur saman í blíðu og stríðu, fallegt hjónaband. Nú er það okk- ar systkinanna að hugsa um mömmu, sem við munum gera. Ég þakka þér samfylgdina og allt sem þú gerðir fyrir mig. Þín dóttir, Kristín Anna . Elsku pabbi. Mig langar að rifja upp lítið minningarbrot sem þú sagðir mér frá, af okkur tveimur. Þetta var á þeim árum sem mamma var að berjast við sitt fyrsta krabbamein. Þú ungur bóndi með fjögur ung börn og ég sennilega aðeins fjögurra ára. Amma og afi voru einnig búsett í Brautarholti og voru þér til stuðn- ings. Það breytir því ekki að þetta var þér ótrúlega erfiður tími og markaði djúp spor í þinni sál. Þú varst búinn að fá fréttir af því að mömmu væri ekki hugað líf og þér brást allur kjarkur. Þú settist nið- ur einn á stabbann í hlöðunni og sást ekki neina ljósglætu fram- undan. Þá kom ég trítlandi til þín, en ég var ekki vön að leggja leið mína mikið í fjárhúsin. Ég settist við hlið þér, tók í hönd þína og spurði „ pabbi minn, er eitthvað sem ég get gert fyrir þig?“ Það féllu hjá þér tár og það gerðist eitthvað innra með þér. Þetta var svo tilviljunarkennt að þú varst þess fullviss að þarna hefði ég ver- ið send af æðri mætti þér til hugg- unar og eflingar. Þú fylltist von og styrk til að halda áfram. Ég held líka að eitthvað ólýsanlegt hafi haldið verndarhendi yfir ykkur mömmu. Það eru varla til önnur eins dæmi um hvernig þið mamma hafið alltaf náð að rísa aftur upp úr öllum ykkar veikindum. En nú kom að því að þú áttir ekki afturkvæmt. Ég sat hjá þér meðan þú barðist þína síðustu lotu. Ég tók í hönd þína og hugsaði „ Ég vildi að ég gæti gert eitthvað fyrir þig pabbi minn“. Kveð þig elsku pabbi minn, Ljúft nú lát þig dreyma. Svífðu hátt um himininn, inn í aðra heima. Farðu í friði, farðu nú, með sátt í þínu hjarta. Sálu fylgi eilíf trú, inn í ljósið bjarta. (abs) Hvíldu í friði. Þín dóttir Alda Alda Berglind Sverrisdóttir. Elsku afi. Takk fyrir að kenna mér að um- gangast dýr. Takk fyrir að kenna mér að keyra traktor og fjórhjól. Takk fyrir að kenna mér að ríða hesti. Takk fyrir allar stundirnar í fjárhúsinu. Takk fyrir að leyfa mér að vera frjáls í gúmmítúttum hoppandi í drullu í fjósinu. Takk fyrir að gefa mér mitt eigið lamb. Takk fyrir alla hlöðuslagina (þó þú nenntir því alls ekki alltaf). Takk fyrir alla hafragrautar- og slátur- morgnana. Takk fyrir húmorinn þinn. Takk fyrir að leyfa mér að reka mig á (eins og að keyra fjór- hjól ofan í skurð). Takk fyrir gleðina sem þú sýndir Birki Neó. Takk fyrir að vera afi minn. Takk fyrir allt. Elska þig og mun sakna þín mikið. Þín Berglind Elva. Kæri afi. Svona er þetta án þín: Við hugsum til þín þegar við förum í kirkjuna og deilum augnablikinu með þér þegar við hittum ömmu. Við munum eftir þér þegar við borðum jarðarber því við vitum hvað þér þótti þau góð. Okkur finnst þú vera hjá okkur þegar við förum að sofa. Og þegar við ber- um þungt þá finnst okkur sem þú hjálpir til. Mér finnst leiðinlegt að þurfa slá garðinn án þín (Fíus). Það var ævintýri að geta hjálpað þér með blómin en núna sjáum við þig speglast í þeim þegar sólin skín. Mér mun líða betur þegar mér líður illa, því ég veit að ég er aldrei ein. Ég gleymi þér aldrei því þú ert í mínu hjarta og vona að þú munir heldur ekki gleyma mér. Þitt ættarblóm blómstrar. Nóa Sophia, Júlía Sólín, Fíus Franz og Dagur Anton Minningin okkar er börnin sögðu lágt „sæll afi!“ og svo fylgdi mjúkt, varlegt knús. Þú varst ekki afi sem spilltir börnunum okkar, þú varst afi sem kenndi hlýju og virðingu. Svo hugsum við bara lágt „bæ afi“, með mjúkri og hlýrri virð- ingu. Ásgeir og Kathrin. Við lífslok Sverris Björnssonar fyrrverandi bónda í Brautarholti í Hrútafirði er okkur konunum sem höfum staðið vaktina í Riishúsi á Borðeyri undanfarin sumur bæði ljúft og skylt að minnast þessa öð- lings. Það er tæplega á neinn hall- að að halda því fram að vinnu- framlag Sverris til alls þess sem laut að endurbyggingu Riishúss sé aðdáunarvert. Hann kom að þessu verkefni strax í upphafi fyr- ir nær þremur áratugum og það átti hug hans fram til loka. Hann fékk afar miklu áorkað sem for- maður félagsskaparins sem að því stóð. Það má segja að nær öll vinna sem snéri að fjáröflun þess hafi hvílt á herðum Sverris. Í plöggum félagsins eru ófá bréfin sem hann hefur skrifað til hinna ýmsu stofnana og félagasamtaka í þeim tilgangi. Orðalag þeirra svo kurteist en þó svo staðfast og end- urspeglar manninn sem um penn- ann hélt. Utanumhald með verk- legum framkvæmdum var líka á hans könnu. Það var meira en eitt dagsverk. Eftir að Sverrir lét af störfum sem formaður Félags áhugamanna um endurbyggingu Riishúss eftir nær 20 ár í því starfi, þýddi það ekki að áhuginn á verkefninu hefði dalað. Þvert á móti. Eftir að litla kaffihúsið opn- að í Riishúsi á sumrin lagði hann oft leið sína ásamt Dúddu sinni yf- ir fjörð í kaffi og vöfflur og spjall um gang mála í Riis. Þau hjón voru ávallt aufúsugestir þar. Sverrir átti alltaf til nóg af hlýleg- um orðum til handa „konunum sínum þar“ eins og hann kallaði okkur svo fallega. Við sendum Dúddu og fjölskyldunni allri hlýj- ar kveðjur og minnumst Sverris vinar okkar með væntumþykju og virðingu fyrir honum og störfum hans. Lokið er vöku langri liðinn er þessi dagur. Morgunsins röðulroði rennur upp nýr og fagur. Miskunnarandinn mikli metur þitt veganesti. Breiðir út ferskan faðminn fagnandi nýjum gesti. (HA) Kristín Árnadóttir, Ásdís Guðmunsdóttir, Sigurrós M. Jónsdóttir, Katrín Kristjánsdóttir, Kristín Guðbjörg Jónsdóttir, Ingibjörg Rósa Auðunsdóttir. Eftir að við hjónin fluttum að Prestbakka í Hrútafirði 1989 átt- um við samstarf við þrjá frábæra sóknarnefndarformenn, Ingva á Borðeyrarbæ, Sverri í Brautar- holti og Einar í Hvítárhlíð, hvern í sinni sókn. Þvílíkir öðlingar, þeir þrír, eins og ég kallaði þá. Nú er hinn síðasti þeirra látinn, Sverrir Björnsson sóknarnefndarformað- ur Staðarsóknar í fjölda ára. Sverrir var einstaklega glaður og góður félagi, snyrtimenni hið mesta og lét aldrei sinn hlut eftir liggja við sjálfboðastörf. Kona hans, Guðbjörg Kristinsdóttir, studdi mann sinn í hvívetna og sungu þau bæði í kirkjukórnum heima á Stað og sameinaða kórn- um með Prestbakkakirkjukórn- um. Hann í tenór og hún í altrödd, vinsæl hjá kórstjórum og félögum okkar í kórunum. Þeir sem aka þjóðveginn um Hrútafjörð að austan sjá víða af- rakstur vinnunnar hans Sverris. Hann stóð fyrir gróðursetning- unni í kirkjugarðinum á Stað eftir sléttun hans, skjólbelti á þrjá vegu og tóku ýmsir þátt í því átaki. Þá ber að nefna trjálundinn heima í Brautarholti sem gleður augað og rímar við fallega umgengni þar á hlaðinu. Ekki skemmir nýja eldri borgara húsið þeirra Dúddu fyrir. Húsið ber nafnið Fallandastaðir eftir eignarjörð Sverris skammt þar frá, en Brautarholt er nýbýli þaðan. Loks ber að geta hópsins Litlu græningjanna sem Sverrir stofn- aði og hafði forystu í. Þau beindu kröftum sínum einkum að skóg- arreitnum við Reykjaskóla sem nú er farinn að teygja vel úr sér. Vorhugurinn kom yfir Sverri þeg- ar birta tók, jafnvel eftir að þau hjónin fluttu á Sjúkrahúsið á Hvammstanga. Því ævinlega hlakkaði hann til vorstarfanna, til að hlú aftur að nýkviknuðu lífi gróðurs og skepna. Í haust sem leið kvaddi ég Sverri. Hann sat á rúmi sínu í góðu smáíbúðinni þeirra Dúddu á sjúkrahúsinu, glaður og glettinn til augnanna eins og vant var, en orðinn þreyttur, sagði hann. Ég þakka þeim báðum samfylgdina og votta henni, börnum og barna- börnum innilega samúð. Góður og hjartahlýr drengur er genginn. Guð blessi minningu Sverris Björnssonar og ykkur ástvini hans. Guðrún L. Ásgeirsdóttir. Sverrir Björnsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Yndislega mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, ÓLÖF MARÍN EINARSDÓTTIR lést á heimili sínu hjúkrunarheimilinu Sóltúni 9. janúar. Útförin fer fram í Dómkirkjunni miðvikudaginn 22. janúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Bergið Headspace, stuðnings- og ráðgjafarsetur fyrir ungt fólk og Rótina. Rannveig Þöll Þórsdóttir Solveig Björk Sveinbjörnsdóttir Helga Kristín Friðjónsdóttir Ólafur Þ. Sveinbjörnsson Michael Klein Helena Aðalsteinsdóttir Anton Logi Ólafsson Ylfa Þöll Ólafsdóttir Gabríel Noor Helguson Mumtaz Sonja Björt Ylfu Hjálmarsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN SVEINBJÖRNSSON bifvélavirki, Hraungerði 1, Akureyri, lést þriðjudaginn 14. janúar. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju 24. janúar klukkan 13.30. Þökkum starfsfólki lyflækningadeildar á SAK og Heima- hlynningu auðsýndan samhug og umönnun. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri. Hanna Soffía Jónsdóttir Sveinbjörn Sveinbjörnsson Dröfn Áslaugsdóttir Anna Berglind Sveinbjörnsd. Sigríður Erla Sveinbjörnsd. Eygló Sveinbjörnsdóttir Bergþór Ásgrímsson Jón Helgi Sveinbjörnsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.