Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 18.01.2020, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 Hann Helgi mág- ur minn lést 28. nóv- ember sl. og í tilefni af afmælisdeginum hans sem er á morgun, 19. janúar, langar mig að minnast hans með nokkrum orðum. Ég fann það best þegar hann Helgi veiktist hvað mér þótti vænt um hann. Margs er að minn- ast á langri samleið. Skemmti- legra ferðalaga þegar börnin voru lítil – og svo voru það allar afmæl- is- og fermingarveislurnar sem þau hjónum munaði ekkert um að slá upp. Þá var ætíð glatt á hjalla – sungið og spilað. Hann Helgi var sérstaklega bóngóður maður og var ósjaldan kallaður til þegar góð ráð voru dýr. Hann var listasmiður og hafði töfrahendur. Hann var afar Helgi Brynjar Þórisson ✝ Helgi BrynjarÞórisson fædd- ist 19. janúar 1942. Hann lést 18. nóv- ember 2019. Útför Helga fór fram 13. desember 2019. félagslyndur og allt- af var notalegt að spjalla við hann um heima og geima. Margt gengur á í stórum fjölskyldum. Eitt sinn veiktist ættmóðirin og var dálítið rugluð í nokkra daga. Hún lét dæturnar rúnta með sig um þveran og endilangan Borg- arspítalann og harðneitaði að fara í rúmið. Hún, þessi fína dama, ætlaði ekki að láta stelpuskját- urnar dætur sínar segja sér fyrir verkum. Dæturnar litu hver á aðra – nú voru góð ráð dýr. „Hann Helgi getur kannski komið henni í rúmið.“ Helgi mætti og auðvitað hlýddi hún honum og var sofnuð eins og barn skömmu síðar. Svona var hann Helgi. Hans Helga verður sárt sakn- að. Hann var einstakur maður og það er mikil sorg fyrir fjölskyld- una að missa hann svo skyndi- lega. Ég votta öllum ástvinum samúð. Elsa Lúðvíksdóttir. Elsku mamma, tengdó og amma. Það er mjög erfitt að átta sig á því að þú sért farin frá okk- ur en hugga mig við að þú hefur mjög marga yndislega sem taka vel á móti þér með opinn faðm. Vona svo innilega að þú náir að njóta þín eins og við vorum svo mikið að óska eftir og þú áttir það svo skilið. Nýbúin að finna draumastaðinn þinn í Hafnarfirði og þú hlakkaðir svo til að geta dundað þér heima við og gera heimilið að þínu. Sinna áhugamál- unum sem voru handavinna, mál- un og að vera með fjölskyldu og vinum. Þetta var yndislegur tími sem við áttum saman síðustu mán- uði, þó svo að hann hafi verið mjög erfiður þegar þú varðst veikari. Þegar við vorum að koma þér fyrir í íbúðinni og skiptast á að gista hjá þér þegar þú gast verið heima síð- ustu vikurnar. Skildir ekkert í þessu hjá okkur og fussaðir en hafðir samt gaman af því, vildir aldrei vera byrði á neinum og þú varst það aldrei og hefðir aldrei verið, það var svo gott og nærandi að vera með þér og eiga stundir með þér. Þetta var stutt og erfið barátta en þú barðist vel og vildir svo klára þetta verkefni eins og öll önnur sem þú tókst að þér, held að þetta sé það eina sem þú kláraðir ekki, orkan var því miður búin. Ekki hafa áhyggjur af prjóna- skapnum sem var eftir, það verður einhver sem klárar hann fyrir þig. Það eru sem betur fer mjög margar góðar minningar sem við eigum og það er hægt að hugga sig eitthvað við þær, samt aldrei eins og að geta hitt á þig og spjall- að yfir kaffibolla. Því miður gaf ég mér ekki nógu mikinn tíma í það á seinni árum og það er eitthvað sem ég á alltaf eftir að sjá eftir, en við vorum líka öll upptekin í lífinu eins og gengur og gerist. Elísa og öll hin barnabörnin eiga eftir að sakna þín mjög mikið, þú varst svo yndislega góð við þau og áttir mjög gott samband við þau öll. Ágústa Jóna Jónsdóttir ✝ Ágústa JónaJónsdóttir fæddist 1. janúar 1958. Hún lést 3. janúar 2020. Útför- in fór fram 10. jan- úar 2020. Gafst þeim öllum tíma og hlýju. Þetta er mjög stórt skarð sem myndaðist þeg- ar þú fórst frá okkur og við fjölskyldan verðum að reyna að þjappa okkur betur saman til þess að það verði ekki eins sárt. Stærsta verkefnið þitt var að koma okkur öllum á legg og eins ólíkur og barnahópurinn innbyrðis var sem þú þurftir að eiga við og mörg uppátækin sem við tókum upp á, þá tókst þér mjög vel til og þú getur verið stolt af okkur öllum og það var mjög gott að heyra að þú varst það og elsk- aðir okkur öll. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur um ævina og við erum það sem við erum vegna þín, elsk- um þig og munum alltaf sakna þín, hvíldu í friði, kærleik og hlýju. Þinn sonur, tengdadóttir og barnabörn, Hjörleifur, Karitas, Selma, Sylvía Lind og Elísa Björk. Elsku mamma. Ég var ekki tilbúin og verð lík- legast aldrei. Hugurinn reynir að skilja en augun kíkja og eyrun hlusta eftir þér, hendurnar fálm- andi og öll restin af líkamanum leitandi því ég hef aldrei á það reynt að vera án þín. Nærvera þín umvafði mig ætíð öryggi og hlýju. Þú varst alltaf til staðar og gafst mér rými þegar ég þurfti. Við átt- um þannig samband að við gátum verið saman heilan dag án þess að segja orð. Þegar tók að líða á kvöldið var hinsvegar eins og við hefðum ekki talað saman í mánuð og þurftum að ræða allt milli him- ins og jarðar. Þessar samræður áttu sér yfirleitt stað í þvottahús- inu áður en þú fluttir. Þar varstu mín trúnaðarkona, hugsanir eða vandamál sem lágu þungt á hjart- anu runnu af mér. Hrein af áhyggjum kom ég a.m.k. þaðan út. Það eru þessar hversdagslegu stundir sem eru mér kærastar núna, eins og að dotta í sófanum við hljóðin í prjónunum þínum renna saman við útvarpið eða Kilj- una. Við fórum á sýningar saman og það var svo gott að fara með þér því þú varst bæði hreinskilin en hlustaðir líka og hafðir gaman af því þegar ég reyndi að túlka eða tala um verk frá mínu sjónarhorni. Þú leyfðir mér að vera týnd og gafst mér færi á að finna eigin leiðir. Þú kenndir mér að kenna sjálfri mér og það er ómetanlegt, oftar en einu sinni minntir þú mig þó á að vera raunsæ. Ég var hepp- in að eiga þig að og er enn því þú verður alltaf hjá mér í formi minn- inga, mynda og sagna systkina minna. Kveðja, Dóttir þín Berglind Hreiðarsdóttir. Elsku mamma mín. Að minnast þín er svo sárt en á sama tíma er svo gott að hugsa til þín. Við erum rík af dýrmætum og fallegum minningum sem munu hjálpa okkur að kljást við sökn- uðinn sem er svo mikill. Þú gafst okkur svo mikið, svo mikla ást og svo mikinn stuðning. Alltaf varstu til staðar fyrir mig og börnin og þau voru ófá kvöldin sem fóru í spjall hjá okkur mæðgum. Við ræddum oft um krakkana og þú gafst mátulega mikið af uppeldis- ráðum á sama tíma og þú lést mér líða eins og ég væri að standa mig svo vel í móðurhlutverkinu. Ekki vottur af gagnrýni. Við ræddum allt sem hægt var að ræða, frá prjóni til heimsmála, mikið um bækur, áætlanir um framtíðina, það fylgdi stundum dass af pólitík og yfirleitt var stutt í húmorinn. Heimsóknir til þín voru tíðar, enda bað Ari nánast um það dag- lega að kíkja á ömmu sína og Agla hljóp skælbrosandi inn til ammí. Davíð þótti alltaf einstaklega vænt um þig og vinskapinn ykkar á milli. Hann mun sjá til þess að reglu- lega verði haldin spilakvöld í þínu nafni með volgan bjór og skál af góðu súkkulaði við hönd. Það leið varla sá dagur sem ég heyrði ekki í þér, og mér leið eins og eitthvað vantaði þegar það kom fyrir, sem gerir dagana núna svo ótrúlega erfiða. Heimsins besta mamma, amma og mín allra besta vinkona. Við er- um þér svo þakklát og munum alltaf vera. Þú munt fylgja okkur og hjálpa með hlýju þinni og ást, svo lengi sem við lifum, þar til við sameinumst á ný. Eins og þú sagðir alltaf, við heyrumst elskan mín. Áslaug Sara, Davíð, Ari Nóel og Agla Sóley. Þakklæti. Mér er efst í huga þakklæti til elsku Ágústu, þakklæti fyrir að fá að kynnast þér, gjafmildi þinni og vináttu. Við áttum margar góðar spjallstundir yfir kaffibolla þar sem bar á góma nýjustu bækurn- ar sem við vorum að lesa, prjóna- skap, börnin okkar eða heimsmál- in. Við stunduðum leikhúsið í all- mörg ár og þótti okkur alltaf jafn- gaman hvort sem leikritið höfðaði til okkar eða ekki. Leiðir okkar hefðu aldrei legið saman ef ekki hefði verið fyrir vin- skap dætra okkar Berglindar og Hjördísar Grétu sem eru nú búnar að vera vinkonur í 20 ár. Með góð- mennsku sinni tóku Ágústa og fjölskylda á móti Hjördísi Grétu opnum örmum og var hún alltaf aufúsugestur á heimili þeirra. Með þakklæti í huga kveð ég góða vinkonu og bið almættið að umvefja hana og fjölskylduna ást og umhyggju. Kom, huggari, mig huggar þú, kom hönd og bind um sárin, kom dögg og svala sálu nú, kom sól og þerra tárin, kom hjartans heilsulind, kom heilög fyrirmynd, kom ljós og lýstu mér, kom líf er ævin þver, kom eilífð bak við árin. (Valdimar Briem) Jóna og Hjördís Gréta. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangaamma, HERDÍS E. JÓNSDÓTTIR, sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, 4. janúar, verður jarðsungin frá Neskirkju þriðjudaginn 21. janúar klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Umhyggju - félag langveikra barna. Ingvar Einarsson Ragnhildur Jónsdóttir Sigríður Einarsdóttir Eiríkur Jónsson Friðjón Einarsson Sólveig Guðmundsdóttir Herdís R. Einarsdóttir Guðlaugur Óskar Jónsson barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MAGNHILDAR SIGURÐARDÓTTUR frá Efsta Dal. Sigurður Sigurðsson Jórunn Sigurðardóttir Sigurður K. Eggertsson Sigrún Sigurðardóttir Þröstur Þorvaldsson Jón Sigurðsson Ingibjörg Þóra Arnarsdóttir Hilmar Steinar Sigurðsson Þórdís Sigurðardóttir Jóhanna Ellý Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur ómetanlegan stuðning og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns og föður, ÞÓRÐAR ODDSSONAR skipstjóra. Hildur Maríasdóttir Linda Bára Þórðardóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, ELÍNAR JÓNSDÓTTUR kennara, sem lést annan jóladag á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Aníta L. Þórarinsdóttir Jón Helgi Þórarinsson Erna Þórarinsdóttir Ingibjörg Svafa Siglaugsdóttir og fjölskyldur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HILMARS ÞORKELSSONAR, Vogatungu 75, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans fyrir alúð og umhyggju. Guðlaugur Ævar Hilmarsson Jóhannes Ævar Hilmarsson Berglind Jóhannsdóttir Sverrir Ævar Hilmarsson Steinunn S. Jakobsdóttir Jakob Ævar Hilmarsson Kristín Þorsteinsdóttir Hilmar Ævar Hilmarsson Anna Heiða Pálsdóttir Kristinn Ævar Hilmarsson Suwanna Munthong barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR BRYNDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, Garðabyggð 16, Blönduósi, lést þriðjudaginn 10. desember. Útförin fór fram í kyrrþey fimmtudaginn 19. desember að ósk hinnar látnu. Stefán Árnason Jónína Olesen Guðmundur Kristinn F. Jónasson Hjörtur Jónasson Árni Stefánsson Ingunn Stefánsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁGÚSTU ÞURÍÐAR GÍSLADÓTTUR. Ólafur Davíðsson Helga Einarsdóttir Sigrún Davíðsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, GUÐFINNU HELGADÓTTUR. Edda Sigurgeirsdóttir Þórður Kristinsson Helgi Sigurgeirsson Gerður Garðarsdóttir Svanberg Sigurgeirsson Rannveig Ása Reynisdóttir Gunnar Guðjónsson og ömmubörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÚLÍUS GESTSSON rafvirkjameistari, sem lést miðvikudaginn 8. janúar verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 22. janúar klukkan 13. Halldóra Guðmundsdóttir Jón Júlíusson Sigríður S. Júlíusdóttir Helga Júlíusdóttir Arnfinnur Róbert Einarsson Bjarni Júlíusson Þórdís Klara Bridde Hrönn Júlíusdóttir Ársæll Hreiðarsson Sigríður Rut Júlíusdóttir Hjalti Már Björnsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.