Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020 50 ára Kristín fæddist í Tuscaloosa í Alabama en ólst upp í Keflavík og býr þar. Hún er viðurkenndur bókari og er rekstrar- og fjármálastjóri hjá Skólum ehf. og situr líka í stjórn fyrirtækisins. Maki: Bleda Tusha, f. 1980, málari hjá Málningarþjónustu Magga Daða. Sonur: Tristan Ingi Baranowski, f. 2010. Foreldrar: Vigdís Kristjánsdóttir, f. 1950, fv. starfsmaður Fríhafnarinnar, búsett í Reykjanesbæ, og John Joseph Baran- owski, f. 1948, fv. hermaður, búsettur í Ala- bama. Kristín Margrét Baranowski Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er ekki við aðra að sakast, þótt allt virðist ganga á afturfótunum. Sýndu fólki léttari hlið á þér. Hugsaðu áður en þú talar. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur verið bæði fræðandi og skemmtilegt að hlusta á það sem eldra fólk hefur til málanna að leggja. Hug- myndir þínar um umbætur falla ekki í kramið heima. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það sitja margir um þig og vilja hafa áhrif á ráðagerðir þínar. Aðrir eru þó tilbúnir til þess að hlusta á þig. Þér eru all- ir vegir færir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það hefur ekkert upp á sig að fresta málum sem verður að vinna. Stuttar vinnuferðir munu einkenna næstu mánuði. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver er að reyna að ná sambandi við þig, opnaðu augun. Mundu að mann- orðið er meira virði en efnahagslegur ávinningur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Stundum þarf að vita hvenær á að henda sér út í djúpu laugina. Láttu góðvild þína ekki verða á þinn eigin kostnað. 23. sept. - 22. okt.  Vog Óvænt áform um ferðalög gætu kom- ið þér á óvart. Þú færð glaðning frá góðum vini. Ekki setja öll eggin í sömu körfu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Samband þitt við makann er afar gott núna. Vertu opin/n og óhrædd/ ur við að takast á við nýja og spennandi hluti. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hvort sem þú trúir því eður ei þá er þetta rétti tíminn til að halda út á nýjar brautir. Taktu einn dag í einu, ekki hugsa um framtíðina. 22. des. - 19. janúar Steingeit Deilur um eignir eða peninga geta spillt vináttu. Ekki hugsa þig um tvisvar þegar vinur býður þér í óvissuferð. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Notaðu daginn til þess að sinna skapandi verkefnum og vinna með börn- um. Samvera styrkir sambönd svo nú er rétti tíminn til að skipuleggja ferðalag með makanum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Allt hefur sinn stað og stund og nú þarftu ekki annað en grípa tækifærið þeg- ar það gefst. Lífið leikur við þig og þér hef- ur aldrei liðið betur. allri starfsemi SEB. Kjarnavörur uxu smám saman og döfnuðu og var Óttar Felix framkvæmdastjóri þess í 11 ár. Um aldamótin ákvað hann að söðla um og seldi hlut sinn. Hann kom inn í tónlistarlíf landsmanna af fullum krafti, stofnaði útgáfu- fyrirtækið Sonet (Zonet), fjárfesti m.a. í útgáfuréttindum Japís, tón- listardeildar Eddu og Tónaflóðs auk þess að tryggja sér alþjóð- legan útgáfurétt á hljóðritum silf- urbarkans Robertinos. Þekktir listamenn á borð við Hljóma, Mannakorn, KK og Magnús Ei- ríksson, Guitar Islancio og Geir Ólafsson eru meðal þeirra sem Sonet-útgáfan hefur gefið út. Óttar hafði um árabil forgöngu að því að íslenskum tónlist- armönnum var boðin þátttaka í hinni árlegu alþjóðlegu tónlist- arhátið í Shanghai. Óttar end- urreisti Austurbæjarbíó sem tón- leikasal 2004 og hélt þar fjölmarga tónlistarviðburði. Hann stóð fyrir vel sóttum minningartónleikum um John Lennon 9.9. 2009 og heið- urshljómleikum í Hörpu í tilefni sjötugsafmælis Bobs Dylans. Hann gerðar bakara, fyrirtækis sem ís- lenskir bakarar höfðu stofnað 1939 um framleiðslu á smjörlíki, sultu og annarri efnisvöru fyrir bakaríin í landinu. Óttar samdi um starfslok hjá Sambandinu og gekk til liðs við SEB í ársbyrjun 1989. SEB stóð höllum fæti um þessar mund- ir, skuldir miklar vegna offjárfest- ingar í húsnæði. Til að geta haldið áfram framleiðslu stofnaði Óttar, í félagi við annan starfsmann, fyrir- tækið Kjarnavörur sem tók við Ó ttar Felix Hauksson fæddist 19. janúar 1950 í Reykjavík og ólst þar upp. Hann gekk í Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla. Hann lagði stund á tónlistarnám í Barnamúsíkskólanum í Reykjavík frá 10 ára aldri. Hann hélt ungur út á tónlistarbrautina, hætti námi aðeins sextán ára gamall og stofn- aði hljómsveitina Sonet. Hann hóf störf hjá Hljómum frá Keflavík ár- ið 1968 en gekk ári seinna til liðs við hljómsveitina Pops. Í ársbyrjun 1970, þá tvítugur, venti hann sínu kvæði í kross og hélt til Danmerkur ásamt góðum vini sínum. „Þessi tími litaðist af ungæðislegri róttækni,“ segir Ótt- ar. „Viðkvæðið var nokkurn veginn í þá veru að maður þyrfti að koma sér í burtu af skerinu, burt frá þessu rotna gerviþjóðfélagi og finna sjálfan sig,“ segir Óttar og brosir. En ári seinna var Óttar kominn heim aftur. Hann tók þátt í stofnun Framboðsflokksins og skipaði efsta sæti O-listans í Reykjaneskjördæmi við alþingis- kosningarnar 1971. Haustið 1972 settist Óttar á skólabekk að nýju og var í hópi fyrstu nemenda við nýstofnaðan Lýðháskóla í Skálholti en eftir að- eins átján daga skólasetu bauðst honum starf við innflutnings- verslun og starfaði næstu sjö árin við það, fyrst hjá Garðari Ólafs- syni, þá eigin verslun og síðast hjá heildverslun Herlufs Clausen. Hann hóf þá nám í bakaraiðn hjá fósturföður sínum, Guðfinni Sig- fússyni bakarameistara í Grímsbæ. Með sveinspróf í bakaraiðn og góð- ar einkunnir úr Iðnskólanum í Reykjavík hlotnaðist Óttari styrk- ur til framhaldsnáms og 1985 flutt- ist fjölskyldan til Danmerkur þar sem Óttar hóf nám í matvæla- tækni. Hann lauk námi 1988, kom heim og hóf störf hjá Versl- unardeild Sambandsins um haust- ið. Síðla það ár leituðu forsvars- menn bakara hófanna hjá Óttari um að hann tæki við fram- kvæmdastjórastöðu Sultu- og efna- endurvakti unglingahljómsveitina Pops ásamt Birgi Hrafnssyni, Pétri Kristjánssyni, Ólafi Sigurðs- syni og Björgvini Gíslasyni. Starf- aði Pops á árunum 1992-2009 en síðasta áratuginn hefur Óttar Felix starfrækt hljómsveitina Gull- kistuna ásamt Gunnari Þórðarsyni, Magnúsi Kjartanssyni, Ásgeiri Óskarssyni og Jóni Ólafssyni. Nýr kafli hófst í lífi Óttars haustið 2010, þá settist hann á skólabekk í íslensku- og menning- ardeild Háskóla Íslands. „Ég hafði lengi haft í huga, að þegar ég yrði sextugur og farið að róast, þá ætl- aði ég í íslenskuna,“ segir Óttar. Hann stóð við það, lauk BA-prófi í íslensku 2013 og MA-prófi í ís- lenskum fræðum 2015 og hóf dokt- orsnám sama ár. Óttar Felix hefur gegnt trún- aðar- og forystustörfum í fé- lagasamtökum í áranna rás. Má þar nefna m.a.: Þjálfun og stjórn- arstörf fyrir Knattspyrnufélagið Val, nefndastörf fyrir Félag ís- lenskra iðnrekenda, setu í stjórn Sambands hljómplötuframleiðenda, formennsku í Taflfélagi Reykjavík- ur, varaforseti Skáksambands Ís- lands, formaður fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Kópavogi og situr nú í fulltrúaráði Knatt- spyrnufélagsins Vals. Áhugamál Óttars eru tónlist, lestur, skák og fluguveiði auk þess að fylgjast með í heimi alls kyns íþrótta. Fjölskylda Eiginkona Óttars er Guðný Þöll Aðalsteinsdóttir, f. 21.11. 1955, við- urkenndur bókari. Foreldrar henn- ar voru Aðalsteinn Valdimarsson, f. 8.9. 1928, d. 10.6. 1979, deildar- stjóri á Akureyri, og Margrét Ás- geirsdóttir, f. 21.8. 1928, d. 29.5. 2016, loftskeytamaður og símritari. Börn Óttars og Guðnýjar eru: 1) Aðalsteinn Rúnar, f. 11.10. 1978, tölvuleikjaframleiðandi og fjár- festir í Los Angeles. Kona hans er Belinda Navi og dóttir þeirra er María Shirin; 2) Ingibjörg Ösp, f. 19.2. 1982, verkefnastjóri barna- og unglingastarfs í Borgarbóka- safninu en maður hennar er Davíð Óttar Felix Hauksson, útgefandi og íslenskufræðingur – 70 ára Fjölskyldan Óttar, Guðný, börn, tengdabörn og barnabörn árið 2018. Í músík og miðaldabókmenntum Íslenskufræðingurinn Óttar Felix. 40 ára Sigurður er Reykvíkingur, ólst upp í Seljahverfi og býr þar. Hann er jarð- vinnuverktaki og véla- maður. Maki: Linda Rún Traustadóttir, f. 1990, aðstoðarleikskólastjóri á leikskólanum Borg. Stjúpdóttir: Bjarney Sara Haraldsdóttir, f. 2011. Foreldrar: Magnús E. Baldursson, f. 1954, verktaki, og Helga Ingibjörg Sig- urðardóttir, f. 1960, húsmóðir. Þau eru búsett í Reykjavík. Sigurður Margeir Magnússon Til hamingju með daginn Reykjavík Alex Davíðsson fæddist 12. apríl 2019 kl. 11.43. Hann vó 3.600 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Kolbrún Edda Aradóttir og Davíð Einarsson. Nýr borgari V E R S L U N S N O R R A B R A U T 5 6 · 1 0 5 R E Y K J A V Í K · F E L D U R . I S Hinn 14. janúar síðastliðinn áttu Björk Axelsdóttir, kennari og íslenskufræð- ingur, og Jón Sveinn Pálsson, fyrrver- andi skólastjóri, 60 ára brúðkaups- afmæli. Afkomendur og tengdafólk fögnuðu merkum tímamótum með þeim. Demantsbrúðkaup

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.