Morgunblaðið - 18.01.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 2020
EM 2020
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Vonin um að karlalandsliðið í hand-
knattleik verði á meðal keppenda á
Ólympíuleikunum í Japan næsta
sumar er orðin dauf. Ísland tapaði í
gær fyrir Slóveníu í fyrsta leik sínum
í milliriðli II á EM í Malmö 30:27. Ís-
land hefur tapað á móti tveimur
þjóðum sem einnig eru í kapphlaup-
inu um að komast í undankeppnina
fyrir leikana, Ungverjalandi og Slóv-
eníu. Er Ísland nú fjórum stigum á
eftir Slóveníu og tveimur á eftir
Ungverjalandi í milliriðlinum á EM.
Sex stig eru enn í boði á mótinu, en
Ísland mætir spútnikliði Portúgals á
morgun og kunnuglegum liðum,
Noregi og Svíþjóð, í vikunni. Vand-
inn er hins vegar sá að frekar virðist
vera að draga af íslenska liðinu held-
ur en hitt. Vonandi er það rangt mat
en liðið átti í það minnsta erfitt upp-
dráttar gegn Slóveníu í gær og vann
slóvenska liðið sanngjarnan sigur.
Vörnin opnaðist illa
Hin ágenga vörn íslenska liðsins
hentaði ekki að þessu sinni. Því
fylgir viss áhætta að spila slíka vörn
því hún getur opnast svo illa þegar
leikmenn lenda í stöðunni maður á
móti manni á opnu svæði. Í gær
skoruðu Slóvenar til dæmis fjölda
marka úr dauðafærum þar sem varn-
armaður náði ekki að trufla skottil-
raunina. Þegar vel gengur getur
þessi vörn hins vegar sett sóknarleik
andstæðinganna í uppnám eins og
gerðist gegn Rússum og í fyrri hálf-
leik gegn Ungverjum, sérstaklega
þegar mönnum tekst að drepa að-
gerðir í fæðingu með því að vaða út í
andstæðingana.
Mörg gegnumbrot
Slóvenar áttu ekki í vandræðum
með að nýta sér glufurnar. Besti
maður vallarins, Dean Bombac,
blómstraði við þessar aðstæður.
Hann skoraði níu mörk og flest
þeirra með gegnumbrotum. Ofan á
það bætti hann tíu stoðsendingum og
átti stærstan þátt í sigri Slóvena.
Ég hef vissan skilning á að Guð-
mundur skuli veðja á slíkt varnar-
afbrigði. Við eigum ekki marga stóra
og sterka lurka til að spila klass-
ískari varnir með góðu móti. 6-0 virk-
aði þó ágætlega þegar Danir voru 7 á
móti 6 á dögunum. En ég er svolítið
undrandi á því að ekki skuli vera ein-
hvers konar plan b til sem hægt sé að
grípa til í vörninni. Ef til vill er slíkt
erfitt í framkvæmt í ljósi þess hve
nauman tíma landslið hafa til að æfa
yfir árið.
Betra liðið vann
Sóknin var frábær í fyrstu tveimur
leikjunum í keppninni og ágæt í fyrri
hálfleik gegn Ungverjalandi. Hún er
nú orðin stirðari og mögulega er hún
of einhæf. Mótherjarnir virðast hafa
brugðist við henni. Lykilmenn eins
og Aron Pálmarsson og Alexander
Petersson virkuðu ekki ferskir. Aron
reyndi að draga vagninn með því
skjóta framan af leik.
Það gekk ekki í þetta skiptið og
betur gekk þegar Ólafur Guðmunds-
son kom frískur inn á og skoraði þrjú
mörk í fyrri hálfleik. Þá var Viggó
Kristjánsson einnig ógnandi þegar
hann kom inn á fyrir Alexander og
skoraði 5 mörk. Hann hefur komist
vel frá sínu til þessa á fyrsta stórmóti
sínu.
Ánægjulegt var að sjá Viktor Gísla
Hallgrímsson verja þrjú víti í leikn-
um. Hefði leikurinn unnist hefði
Viktor líklega verið senuþjófurinn.
Það hafðist þó ekki og við Íslend-
ingar verðum að horfast í augu við
það að okkar menn töpuðu fyrir
betra liði í þetta skiptið.
Vonin um þátttöku í Japan
orðin dauf eftir annað tap
Slóvenar unnu sanngjarnan sigur gegn Íslendingum
Ljósmynd/Einar Ragnar Haraldsson
Malmö Janus Daði Smárason skoraði fjögur mörk gegn Slóvenum í gær og sækir hér að vörn þeirra í leiknum.
Malmö Arena, EM karla, milliriðill II,
föstudag 17. janúar 2020.
Gangur leiksins: 2:2, 7:2, 8:5, 9:9,
11:12, 13:14, 15:14, 17:16, 19:17,
21:18, 26:20, 28:25, 30:25, 30:27.
Mörk Slóveníu: Dean Bombac 9,
Jure Dolenec 5/1, Borut Mackovsek
3, Blaz Blagotinsek 3, Igor Zabic 3,
Miha Zarabec 2/2, Nik Henigman 2,
Blaz Janc 2, Nejc Cehte 1.
Varin skot: Klemen Ferlin 15.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Íslands: Bjarki Már Elísson
SLÓVENÍA – ÍSLAND 30:27
6/2, Viggó Kristjánsson 5, Janus
Daði Smárason 4, Ólafur Guðmunds-
son 3, Aron Pálmarsson 3, Sigvaldi
Björn Guðjónsson 3, Elvar Örn Jóns-
son 1, Alexander Petersson 1, Kári
Kristján Kristjánsson 1.
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson
9, Viktor Gísli Hallgrímsson 5/3.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Dómarar: Gjorgi Nach-
evski og Slave Nikolov, Norður-
Makedóníu.
Áhorfendur: 6.026.
Íslenska landsliðið í
handknattleik tapaði sínum öðr-
um leik í röð á Evrópumótinu í
Austurríki, Noregi og Svíþjóð í
gær. Slóvenar, sem hafa spilað
nánast óaðfinnanlega á mótinu,
unnu ekkert sérstaklega sann-
færandi þriggja marka sigur en
sigur er sigur og Slóvenar eru
með fullt hús stiga í milliriðli
tvö líkt og Norðmenn sem
verða að teljast líklegastir til
þess að fagna Evrópumeist-
aratitilinum í Stokkhólmi hinn
26. janúar.
Eins og Guðmundur Þórður
Guðmundsson landsliðsþjálfari
benti réttilega á þá tapaði ís-
lenska liðið fyrir betra liði í gær.
Það hefur sýnt sig á mótinu til
þessa að íslenska liðið er svo
sannarlega á réttri leið en þrátt
fyrir það á liðið ennþá eitthvað í
land. Of mörg dauðafæri hafa
farið forgörðum á mikilvægum
augnablikum og það ber vott
um ákveðið reynsluleysi.
Ísland hefur komist yfir í
báðum tapleikjum sínum á
mótinu til þessa en glutrað nið-
ur forystu sinni á mikilvægum
augnablikum í leikjunum. Það
sést best á leik bestu liðanna á
mótinu að þegar þau ná for-
skoti í leikjum sínum láta þau
forystuna aldrei af hendi og það
er munurinn á góðum liðum og
frábærum liðum.
Væntingar íslensku þjóð-
arinnar voru litlar sem engar
fyrir Evrópumeistaramótið en
eftir tvo magnaða sigra fóru
einhverjir að láta sig dreyma
um verðlaun. Framtíðin er svo
sannarlega björt og uppbygg-
ingin heldur áfram. Það er ekki
langt í að íslenska liðið skili
verðlaunapeningum í hús á nýj-
an leik og liðið fái aftur við-
urnefnið „Strákarnir okkar“ hjá
meginþorra þjóðarinnar, það er
ég nokkuð sannfærður um.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – Fram.................. L16
Kórinn: HK – Afturelding ..................... L16
Ásvellir: Haukar – ÍBV .......................... L16
Origo-höllin: Valur – KA/Þór ................ L16
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
TM-höllin: Stjarnan U – ÍBV U........ S15.30
Kórinn: HK U – Fylkir ........................... S16
Kaplakriki: FH – Valur U ................. S19.30
Hleðsluhöllin: Selfoss – Víkingur ..... S19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Dalhús: Fjölnir – Keflavík b .................. L16
Sauðárkrókur: Tindastóll – Njarðvík ... L16
Geysisbikar kvenna, 8-liða úrslit:
Origo-höll: Valur – Breiðablik ............... S18
Ásvellir: Haukar – Grindavík................. S18
Blue-höllin: Keflavík – KR ................ S19.30
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót kvenna, Hertz-deildin:
Laugardalur: Reykjavík – SA .......... L17.45
KNATTSPYRNA
Reykjavíkurmót karla:
Egilshöll: Valur – Víkingur R........... L15.15
Egilshöll: Fram – Leiknir R............. L17.15
Egilshöll: Fylkir – Fjölnir ................. S17.15
Egilshöll: KR – Þróttur R ................. S19.15
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Stórmót ÍR fer fram í 24. skipti um helgina
í Laugardalshöll og stendur yfir kl. 9-17
báða dagana. Besta frjálsíþróttafólkið
keppir til úrslita báða dagana kl. 14 til 16.
GLÍMA
Bikarglíma Íslands fer fram í Ármanns-
heimilinu í Laugardal í dag kl. 13 til 15.30.
Enski boltinn á Símanum Sport
Watford – Tottenham........................ L12.30
Arsenal – Sheffield United (mbl.is) ...... L15
Newcastle – Chelsea ......................... L17.30
Burnley – Leicester ................................ S14
Liverpool – Manchester United ....... S16.30
UM HELGINA!
Portúgal gerði sér lítið fyrir og vann
tíu marka sigur gegn Svíþjóð í milli-
riðli tvö á Evrópumótinu í hand-
knattleik í Malmö í gær. Leiknum
lauk með 35:25-sigri portúgalska
liðsins sem leiddi með þremur mörk-
um í hálfleik, 15:12.
Svíar náðu að minnka forskot
Portúgala í tvö mörk í upphafi síðari
hálfleiks, 15:13, en lengra komust
Kristján Andrésson og lærisveinar
hans í sænska landsliðinu ekki.
Portúgalska liðið fagnaði öruggum
og þægilegum sigri í leikslok í sínum
fyrsta leik í milliriðli tvö.
Miguel Ferraz og Fabio Magalha-
es voru markahæstir í portúgalska
liðinu með sex mörk hvor. Þá var
Alfredo Quintana afar öflugur í
markinu hjá Portúgölum með ellefu
skot varin og 38% markvörslu.
Andreas Nilsson og Daniel Petters-
son skoruðu fjögur mörk hvor fyrir
Svía.
Portúgal hefur byrjað EM með
miklum látum en næsti leikur liðsins
er gegn Íslandi á morgun. Portúgal-
ar enduðu í öðru sæti D-riðils á eftir
Noregi en liðið hefur nú þegar lagt
Frakkland og Bosníu að velli á EM.
Eini tapleikur liðsins á EM kom
gegn Noregi en sigur Norðmanna
var nokkuð sannfærandi, 34:28.
Pedro Portela er markahæsti leik-
maður Portúgala á mótinu með 16
mörk úr 23 skotum og er hann með
70% skotnýtingu.
Þá eru Norðmenn með fullt hús
stiga í milliriðli tvö, líkt og Slóvenar,
eftir öruggan 36:29-sigur gegn Ung-
verjum. Sander Sagosen fór mikinn í
liði Norðmanna að vanda og skoraði
sjö mörk en Norðmenn eru til alls
líklegir á mótinu í ár. bjarnih@mbl.is
AFP
Sigurvíma Leikmenn portúgalska liðsins fögnuðu vel og innilega í leikslok
eftir að hafa lagt heimamenn í Svíþjóð að velli í Malmö með tíu marka mun.
Verðugt verkefni
bíður strákanna
Portúgalar niðurlægðu Svía í Malmö