Morgunblaðið - 27.01.2020, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2020
Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is
Við búum til
minningar myndó.is
ljósmyndastofa
FERMINGAR
MYNDIR
MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is SmartlandMarta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Óttast áhrif veirunnar á ferðaþjónustu
Hópferðir til og frá Kína bannaðar Sóttvarnargrímur uppseldar í apótekum á Íslandi
Alexander Kristjánsson
alexander@mbl.is
Útbreiðsla kórónaveirunnar sem
geisar í Kína gæti haft áhrif á ferða-
þjónustu á Íslandi. Þetta óttast for-
maður Félags fyrirtækja í hótel-
rekstri og gistiþjónustu.
Veiran, sem veldur alvarlegri
lungnasýkingu, hefur orðið minnst
56 að bana, auk þess sem um 2.000
hafa sýkst. Til að stemma stigu við
útbreiðslu veirunnar hafa kínversk
stjórnvöld ákveðið að takmarka
ferðalög Kínverja til annarra landa,
en frá og með deginum í dag verða
skipulagðar hópferðir til og frá Kína
bannaðar.
Brögð eru að því að kínverskir
hópar hafi afpantað hópferðir hjá ís-
lenskum ferðaþjónustufyrirtækjum
seinustu daga.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Kristófer Oliversson, formaður Fé-
lags fyrirtækja í hótelrekstri og
gistiþjónustu, að hann viti þó engin
dæmi þess enn að hópar frá Kína
hafi afpantað gistingu.
„Við höfum verið að bíða eftir
þessu [banni] og við munum finna
fyrir því þegar þar að kemur,“ segir
Kristófer.
Ferðabannið tekur, sem fyrr seg-
ir, aðeins til svokallaðra hópferða,
en ekki liggur fyrir nákvæm skil-
greining á því hvaða ferðir falla þar
undir. Ljóst er þó að um töluverðan
fjölda fólks er að ræða, enda eru
Kínverjar fjórða fjölmennasta þjóð-
in meðal erlendra ferðamanna, og
kemur meirihluti þeirra í skipulögð-
um hópferðum, að sögn Kristófers.
Of snemmt er að segja til um hve
langvinn ráðstöfunin verður. „Þegar
svona veira kemur fram á sjónar-
sviðið verða menn auðvitað smeykir
og eðlilegt að gripið sé til hámarks-
viðbúnaðar í upphafi meðan mörg-
um spurningum er enn ósvarað.“
Sóttvarnargrímur uppseldar
Sóttvarnargrímur fyrir andlit
hafa rokið út úr apótekum síðustu
daga og eru víðast hvar uppseldar.
Samkvæmt upplýsingum frá starfs-
mönnum eru kaupendurnir einkum
asískir ferðamenn. Grímurnar nota
menn til að verja sjálfa sig, en ekki
síður til að koma í veg fyrir að smit
berist í aðra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðbúin Ýmsir hafa orðið sér úti um
sóttvarnargrímur síðustu daga.
„Auðvitað ber maður kvíðboga gagn-
vart stöðu starfsfólks þegar stór
vinnuveitandi þarf að draga saman
seglin,“ segir Kolbeinn Gunnarsson,
formaður verkalýðsfélagsins Hlífar í
Hafnarfirði. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu á laugardag hafa
stjórnendur álvers Rio Tinto í
Straumsvík ákveðið að framleiða að-
eins 184 þúsund tonn af áli í ár, en
framleiðslan var 212 þúsund tonn ár-
ið 2018. Raunar varð talsverð röskun
á starfseminni í fyrra þegar slökkva
þurfti á einum af þremur kerskálum
álversins. Því fylgdu þá strax minni
afköst og samdráttur í kaupum á raf-
orku af Landsvirkjun.
Nokkuð á þriðja hundrað félags-
manna Hlífar starfar í eða í
tengslum við álverið. Kolbeinn hefur
þær upplýsingar að minni fram-
leiðsla í álverinu eigi ekki að þýða
fækkun starfsmanna. „Auðvitað geta
aðstæður alltaf breyst en okkur er
sagt að fremur eigi að draga úr hlið-
arverkefnum ýmiskonar, þjónustu-
kaupum og svo framvegis. Komi hins
vegar til fækkunar starfsmanna
vænti ég þess að fundnar verði mjúk-
ar leiðir, svo sem að menn sem nálg-
ast eftirlaun hætti fyrr og svo fram-
vegis,“ segir Kolbeinn, sem getur
þess ennfremur að undanfarið hafi
Hlíf unnið að gerð sérkjarasamnings
við Rio Tinto í Straumsvík. Sjái nú til
lands í þeirri vinnu og óskandi sé að
nýjar aðstæður valdi ekki bakslagi.
Um 35 starfsmenn í Straumsvík
eru í Rafiðnaðarsambandi Íslands.
Formaður þess, Kristján Þórður
Snæbjarnarson, segir stöðu þeirra
óbreytta. „Erfiður rekstur álversins
og tæknileg vandamál í framleiðsl-
unni á síðustu árum eru þó áhyggju-
efni,“ segir Kristján. sbs@mbl.is
Áhyggjur af starfsfólkinu
Draga saman álframleiðslu í Straumsvík Aðstæðurnar
geta breyst Tæknileg vandamál í rekstri eru áhyggjuefni
Morgunblaðið/Eggert
Stóriðja Breyttar áherslur í álveri.
„Framganga Matvælastofnunar í um-
ræddu máli kallar á ábyrgð stjórnenda
hennar,“ segir Haraldur Benedikts-
son, þingmaður
Sjálfstæðisflokks-
ins. Eins og fram
hefur komið hefur
stofnunin greitt
fyrirtækinu Kræs-
ingum í Borgar-
nesi alls 112 millj-
ónir króna í
bætur. Fyrirtækið
var sýknað af
kæru um vörusvik
í nautabökum.
Kæran byggðist á aðeins einu sýni
sem dómstólum þótti veikur grunnur
að byggja á. „Þetta er ámælisdómur
yfir vinnubrögðum Matvælastofnunar.
Við getum samt ekki sett öll vinnu-
brögð stofnunarinnar undir, en oft er
umkvörtunarefni stjórnenda fyrir-
tækja hvernig eftirlit er framkvæmt,“
segir Haraldur.
Framgangan engum til hagsbóta
Sigurður Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins,
segir reglulega berast frásagnir af at-
vikum þar sem fólk sem sinnir opin-
beru eftirliti, á ýmsum sviðum, fari
fram af mikilli hörku. „Framferði Mat-
vælastofnunar gagnvart þessu til-
tekna fyrirtæki sýnir svart á hvítu að
verklag stofnunarinnar þarf að endur-
skoða. Framgangan í máli Kræsinga
er engum til hagsbóta,“ segir Sigurður
og bætir við að SI hafi hvatt til þess að
opinbert eftirlit með matvælafram-
leiðslu verði einfaldað og samræmt.
sbs@mbl.is
Stjórnendur
axli ábyrgð
Haraldur
Benediktsson
Mast er gagnrýnt
í kjötbökumálinu
Íbúar í Biskupstungum og þeirra gestir fögn-
uðu komu þorra á bóndadaginn, sl. föstudag, á
árlegu þorrablóti í Aratungu. Stemningin var
einstaklega góð, gleðin við völd og sungið og
dansað fram á nótt. Enn er þeim sið haldið í
Biskupstungum að hver fjölskylda mætir til
borðhalds með sinn þorramat í eigin trogi.
Unga fólkið slær ekki slöku við þegar kemur að
því að gera þorramatnum skil, hér má sjá Krist-
in Ingvarsson hvetja sína kærustu, Kristínu
Ölfu Arnórsdóttur, til að bragða á kæstum há-
karli. Þau voru meðal þeirra átta gesta sem
ungbændurnir í Austurhlíð, Kristín Sigríður
Magnúsdóttir og Trausti Hjálmarsson, mættu
með til hátíðarinnar. Við hlið Kristins eru tveir
tryggir fjallmenn þeirra hjóna, Kristínar og
Trausta, þeir Aðalsteinn Orri Arason og Hafþór
Gunnlaugsson.
Þorrablót í Aratungu í Biskupstungum
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Þorranum heilsað víða um land um helgina